Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Page 21
Fréttir | 21Helgarblað 15.–17. júlí 2011
sínum. Við þurfum að vinna með
þau sjónarmið og reyna að komast
til móts við þau eins og kostur gefst.“
En hvað með undanþágur eða
sérlausnir? Nú er ljóst að það eru
fjölmörg fordæmi fyrir þeim og því
engu líkara en að Bændasamtökin
séu að reyna að leiða umræðuna á
villigötur.
„Ég myndi ekki orða það þannig
og það er eðlilegt að allar lögfræði-
legar hliðar málsins séu skoðaðar í
kjölinn, þó ég eigi eftir að kynna mér
rit Stefáns Más – en ég mun gera það.
Það liggur hins vegar alveg fyrir að
það hefur verið samið um undan-
þágur og sérlausnir sem eru teknar
upp í aðildarsamningum. Aðildar-
samningar milli ESB og aðildarrík-
is eru í Evrópurétti jafngildir stofn-
sáttmálum sambandsins þannig að
þessar sérlausnir hafa mjög sterka
stöðu.“
Harðbýlt og strjálbýlt
Þegar kemur að samningaviðræð-
um um landbúnaðarmál eru til for-
dæmi um að aðildarríki hafi sam-
ið um sérlausnir. Þar má nefna
samninga Finnlands og Svíþjóð-
ar sem sömdu um búskap á norð-
lægum slóðum, sá búskapur sem er
stundaður fyrir norðan 62. breidd-
argráðu. Þá samdi Malta til dæm-
is um bann á innflutningi á lifandi
búfénaði, þar sem um eyríki er að
ræða og nauðsynlegt að vernda
stofna fyrir sjúkdómum. Eru slíkar
lausnir ekki borðleggjandi fyrir Ís-
land?
„Ísland yrði strjálbýlasta landið í
ESB, ef af aðild yrði. Landið er jafn-
framt mjög harðbýlt. Gróðurtímabil-
ið er stutt og landbúnaður er mjög
fábreyttur hér miðað við það sem
gengur og gerist í Evrópu, auk þess
sem markaðir Evrópu eru fjarlæg-
ari okkur en aðildarríkjum á megin-
landinu. Við höfum því veigamikil
rök fyrir því að þessar sérreglur eigi
fyllilega við hér. Það eru fordæmi fyr-
ir því og þessi svæði njóta sérstaks
stuðnings.“
Gott að hafa Norðurlöndin
Þann 1. júlí síðastliðinn tóku Pól-
verjar við formennsku í ráðherraráði
ESB og koma því til með að vera við-
semjendur Íslendinga næsta hálfa
árið. Skipt er um formennskuríki á
sex mánaða fresti en á eftir Pólverj-
um taka Danir við keflinu, þá Kýpur
og svo Írland. Skiptir máli hvaða ríki
fer með formennsku þegar kemur að
aðildarviðræðum?
„Það skiptir ekki öllu máli en auð-
vitað skipti máli þegar við sóttum
um upphaflega, að hafa átt stuðn-
ing Svíþjóðar vísan sem þá fór með
formennsku. Öll formennskuríki
sem við höfum talað við hafa þá lýst
yfir eindregnum samstarfsvilja. Það
verður þó ekkert verra að hafa náið
samstarfsríki eins og Danmörku í
formennskusæti eftir áramót, því er
ekki að neita.“
Þjóðin ákveður
Nú er ljóst að almenningsálitið á Evr-
ópusamstarfinu hefur sveiflast mik-
ið á undanförnum misserum. Eina
stundina virðist sem meirihluti Ís-
lendinga styðji aðild en í næsta mán-
uði gæti meirihlutinn verið andvígur.
Óttast Stefán að vinnan sem samn-
inganefndin hefur unnið verði að
lokum til einskis?
„Aðalatriðið er það að við höf-
um fengið ákveðið hlutverk. Alþingi
ályktaði um að sótt skyldi um að-
ild og það er umboð Alþingis sem
við förum með. Það er þjóðin sem
ákveður hvort verði fallist á aðild-
arsamning eður ei. Þetta er mikil
vinna, það er rétt, en hún mun eftir
sem áður gagnast okkur. Við höfum
lært heilmikið um ESB og sömuleið-
is hefur ESB lært mikið um okkur. En
við vinnum eftir lýðræðislegu um-
boði og okkar hlutverk er einfaldlega
að skila af okkur eins góðu starfi og
mögulegt er.“
Hvað breytist?
Flestir Íslendingar sem velta Evrópu-
samstarfinu fyrir sér langar ef til vill
að vita hvað komi til með að breyt-
ast í daglegu lífi hér á landi, verði af
aðild. Getur Stefán bent á einhverjar
breytingar?
„Ætli það séu ekki fyrst og fremst
efnahagsmálin. Hvort aðildin leiði
ekki til meiri efnahagslegs stöð-
ugleika. Afnám verðtryggingar og
mögulega lægri vextir í kjölfarið sem
verði merkjanlegar breytingar. Svo er
rétt að minnast á að með aðild fáum
við loksins sæti við borðið þar sem
ákvarðanir eru teknar. Til þessa höf-
um við fylgt ákvæðum EES-samn-
ingsins en aðeins með því að geta
haft takmörkuð áhrif á þær reglur
sem við þurfum að taka upp í lands-
rétti. Það myndi auðvitað breytast.“
„ Ísland er mjög vel
í stakk búið til að
tileinka sér löggjöf ESB.
Ísland sækir um aðild að Evrópusambandinu
Hvernig er aðildarferlið?
Ríkjaráðstefna milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins
Ríkjaráðstefnan markar formlegt
upphaf samningaviðræðnanna
Leiðtogaráð ESB fjallar um umsókn Íslands
Leiðtogaráðið tekur umsóknina ásamt áliti framkvæmda-
stjórnarinnar til umfjöllunar og getur með einróma samþykki
allra aðildarríkja ákveðið að hefja aðildaviðræður við Ísland
Ísland verður aðildarríki Evrópusam-
bandsins á sérstakri aðildarráðstefnu
Löggjöf íslands yfirfarin og kannað að hve miklu leyti
hún er í samræmi við löggjöf Evrópusambandsins
Framkvæmda-
stjórnin fer yfir
löggjöf ESB
með Íslandi
Ísland lýkur
við gerð lista
yfir inn-
leiðingu lög-
gjafar ESB
Framkvæmda-
stjórnin
gerir skýrslu um
niðurstöðu yfir-
ferðarinnar
Ráðherraráð ESB fjallar um umsóknina
Ráðherraráð ESB
leggur fyrir fram-
kvæmdastjórn ESB
að vinna álit um
umsókn Íslands
Framkvæmdastjórnin
beinir umfangsmiklum
spurningalistum til
Íslands um löggjöf og
lagaframkvæmd
Ísland svarar
spurningum
fram-
kvæmda-
stjórnarinnar
Framkvæmdastjórn
ESB semur álit um
aðildarumsókn Ís-
lands og sendir hana
til leiðtogaráðs ESB
Formlegar samningaviðræður
Samningaviðræður hefjast
um einstaka kafla lög-
gjafar ESB (alls 35 kaflar)
Undirbúningur
samningsafstöðu
ESB og Íslands
Samningarviðræður
innan vébanda ríkja-
ráðstefna Íslands og
aðildaríkja ESB
Þegar einróma samkomulag
hefur náðst um kafla er
honum lokað þar til heildar-
niðurstaða liggur fyrir
Viðræðum lýkur – undirbúningur að aðild hefst
Aðildarsamningurinn
er undirritaður af öllum
aðildarríkjum ESB og Íslandi
og fullgildingarferli hefst
Þjóðaratkvæða-
greiðsla á Íslandi
Samn-
ingum er
lokið um
alla kafla
viðræðn-
anna
Niðurstöður
viðræðnanna eru
felldar saman í
aðildarsamning
Íslands, dag-
setning aðildar
er ákvörðuð og
Ísland fær
stöðu verðandi
aðildaríkis
Leiðtog-
aráð ESB sam-
þykkir aðildar-
samninginn
einróma og
Evrópuþingið
veitir sam-
þykki sitt
Stefán Haukur Jóhannesson
Leiðir samninganefnd Íslands í við-
ræðum við ESB.
MyNd SiGtRyGGuR ARi
Ef samþykkt
Löng og ströng leið inn í ESB