Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 22
22 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað Þ að voru margir sem áttuðu sig á því hvernig maður var þarna á ferðinni þrátt fyr- ir útlit hans og sögu. Hann hafði aðgang að alls kon- ar fólki, jafnvel háttsettu og náði að mynda þýðingarmikil tengsl,“ seg- ir Erla Bolladóttir um Sævar Mar- inó Ciesielski sem lést af slysförum í Kaupmannahöfn aðfaranótt mið- vikudagsins 12. júlí. Vinir og vandamenn Sævars lýsa honum sem vinamörgum baráttu- manni sem var aldrei einn. Hann var þó ekki gallalaus og hafði sína pers- ónulegu djöfla að draga, en hann var það sem hann valdi sér, lífsstíll hans stöðvaði hann aldrei í því sem hann ætlaði sér að gera. Hann velti sér ekki upp úr að- stæðum sínum þrátt fyrir að það samfélag sem hann reyndi að að- lagast eftir fangelsisvistina tæki á móti honum á forsendum sem hann gat ekki mætt. Erla, barnsmóðir hans, sem var einnig ákærð í Geirfinnsmálinu, lýs- ir honum sem hæfileikaríkum lista- manni, sem hafi verið fluggreindur. „Sævar hafði mikla hæfileika til að bera og var mikill hugsjónamaður sem hafði djúpan og næman skiln- ing á þjóðfélaginu. Eitt af því sem einkenndi hann umfram aðra var að hann hafði sterka innsýn og yfirsýn, hann var fljótur að sjá heildarmynd- ina og hafði mikla leiðtogahæfileika,“ segir hún. Hélt fram sakleysi sínu Sævar varð þekktur í íslensku þjóð- félagi þegar hann var einn af sak- borningunum í Geirfinns- og Guð- mundarmálinu svokallaða á áttunda áratugnum. Geirfinns- og Guðmund- armálið er eitt stærsta og flóknasta sakamál íslensks samtíma og hafa fá mál verið jafnlengi í þjóðarsálinni. Sævar hélt ávallt fram sakleysi sínu og reyndi margoft að fá mál sitt – og annarra sakborninga – tekið upp aftur fyrir rétti án árangurs. Hann sat í rúm tvö ár í einangrun á meðan mál- ið var rannsakað, sem er lengsti tími sem íslenskur gæsluvarðhaldsfangi hefur setið í einangrun. Sævar lýsti því margoft yfir að játning hans hafi verið knúin fram af miklu harðræði í fangelsinu. Sautján ára dómur yfir honum vegna morðs- ins á Geirfinni Einarssyni var byggður á þeirri játningu. Sævar sagði frá því hvernig þrúgandi og langvarandi yfir- heyrslur yfir honum tóku sinn toll. Bæði hann og hans nánustu að- standendur telja að hann hafi aldrei borið þess bætur að hafa setið svo lengi í einangrun og hafa sætt þeirri meðferð sem hann þurfti að þola á meðan hann sat inni. Sævar taldi að á sér hefði verið framið réttarmorð í málinu og barðist fyrir því alla tíð að réttlætinu yrði fullnægt og að hann fengi uppreisn æru ásamt öðrum sak- borningum. Var á Breiðavík Sævar ólst upp við erfiðar aðstæður og var vistaður á Breiðavík sem ung- ur maður. Í bókinni Stattu þig strákur sem rituð var af fyrrverandi kennara Sævars, Stefáni Unnsteinssyni, árið 1980 eru skráðar minningar hans frá dvölinni á barnaheimilinu í Breiða- vík sem haldast í hendur við lýsingar annarra sem þar voru vistaðir. Þrátt fyrir bókina og frásögn Sæv- ars í henni var ekkert gert í þeim málum sem tengdust Breiðavík fyrr en tæplega 30 árum seinna. Bók- in var þó notuð sem heimild þegar rannsóknarnefnd um barnaheimili fór yfir mál Breiðavíkurdrengjanna. Þegar Sævar var um tvítugt hafði hann hafið innflutning á hassi til landsins og ásamt barnsmóður sinni, Erlu Bolladóttur, tekið þátt í svokölluðu póstsvikamáli. Hann var handtekinn og færður í gæsluvarð- hald vegna póstsvikamálsins og var í kjölfarið grunaður um morðin í Guð- mundar- og Geirfinnsmálinu. Einangrun og falskar játningar Árið 1975 hurfu tveir ungir menn, Guðmundur Einarsson og Geir- finnur Einarsson. Í fyrstu voru mál- in rannsökuð sem tvö aðskilin mál, enda leið tæpt ár á milli þess sem mennirnir hurfu. Fljótlega eftir að Geirfinnur Einarsson hvarf, blönd- uðust Sævar og Erla inn í málið og voru ásamt öðrum grunuð um morðið á mönnunum. Í raun var fátt sem benti til þess að þau hefðu framið morðin ef litið er á þau fjölmörgu gögn sem til eru um rannsókn lögreglunnar. Þar að auki hafa lík Geirfinns og Guðmundar aldrei fundist og enginn veit hvort um óútskýrð mannshvörf hafi verið að ræða eða hvort þeir hafi verið myrtir. Í kjölfarið var Sævar hnepptur í gæsluvarðhald og einangrun. Sæv- ar var hafður í eitt og hálft ár í sex fermetra klefa með óopnanlegum glugga og suðandi loftræstikerfi dag og nótt, er blés misheitu lofti inn í klefann. Ljós logaði allan sólarhring- inn í klefanum og var Sævari hald- ið vakandi með hávaða og skarkala sem barst inn í klefa hans. Hann var í rúm tvö ár í gæslu- varðhaldi og hámarkseinangrun sem tók mikinn toll af honum. Þeg- ar Sævar loksins losnaði úr einangr- uninni mun hann hafa verið nán- ast mállaus vegna fásinnis. Sævari var einnig haldið sljóum með lyfj- um, bæði vöðvaslakandi og þung- lyndislyfjum, en hann var þó aldrei skoðaður af sérfræðingi sem greindi hann með þörf fyrir slík lyf. Hafður í fótahlekkjum Í viðtali við DV 2008 lýsti Erla Bolla- dóttir því að hún vissi að verið var að færa Sævar á milli staða í Síðumúla- fangelsinu, þar sem þau voru bæði í gæsluvarðhaldi, þegar hún heyrði í fótahlekkjum hans hringla, en hann var löngum í fótajárnum sem glumdi í um alla ganga fangelsisins er hann var færður í yfirheyrslur. Í kjallaragrein í DV árið 1995 er því lýst hversu illa var farið með Sævar í einangruninni. Þar kemur einnig fram að Sævar var í gæsluvarðhaldi vegna svokallaðs póstsvikamáls, en ekki beint vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Tíminn í gæslu- varðhaldinu var þó notaður til að yf- irheyra hann um það engu að síður. Eftir á að hyggja er augljóst að rannsóknarmennirnir í málinu beittu einkennilegum aðferðum við rannsókn sína. Framburður vitna í málinu stangaðist á og voru notaðir gegn þeim fjórum sem sátu í gæslu- varðhaldi, án þess að sannanir væru til staðar. Guðmundar- og Geirfinnsmálið var lengi á þvælingi á milli mismun- andi dómstiga, enda bæði flókið mál og fáar beinar sannanir gegn hinum grunuðu. Áður en dómur Hæstarétt- ar lá fyrir árið 1980 ávarpaði Sæv- ar réttinn og lýsti yfir sakleysi sínu. Hann sagðist gera sér grein fyrir því að snara hefði verið bundin um háls hans og hann ætti sér engrar undan- komu auðið. Þann 22. febrúar árið 1980 kvað Hæstiréttur upp dóm í málinu og Sævar Marinó Ciesielski, Krist- ján Viðar Viðarsson, Tryggvi Rún- ar Leifsson, Guðjón Skarphéðins- son, Erla Bolladóttir og Albert Klahn Skaftason fengu samanlagt 63 ára fangelsisdóm. Sævar fékk þyngsta dóminn af þeim sex og sat inni í níu ár af sautján. Þegar hann losnaði úr fangelsis- vistinni hóf hann strax baráttu sína fyrir því að fá uppreisn æru. Meðal þeirra sem studdu Sævar var Dav- íð Oddsson, þá forsætisráðherra, en árið 1995 sagði hann að sér þætti ljóst að ekki hefði verið rétt staðið að rannsókn málsins. Þrátt fyrir það og ítrekaðar til- raunir Sævars samþykkti Hæstiréttur ekki endurupptöku. Framboð til alþingiskosninga Sævar ætlaði í framboð til alþingis- kosninganna árið 2009 og fékk út- hlutað listabókstafnum N fyrir fram- boðið Samtök um réttlæti sem hann fór fyrir. Samtök um réttlæti stofnaði hann árið 1995 í kjölfar þess að hann reyndi að fá endurupptöku á máli sínu en tókst ekki. Sama ár hafði hann reynt að taka þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins á Suðurlandi þar sem hann stefndi á fyrsta sætið. Sævar taldi sig þá eiga fullt erindi í framboð og sagði meðal annars í viðtali sama ár að hann teldi mikilvægt „[...] að standa vörð um þá sem minnst mega sín í samfélaginu“. Hann sagði í viðtölum að sam- tökin myndu berjast fyrir réttindum ungs fólks, auknum aflaheimildum til sjávarþorpa og kæmu til með að standa vörð um landbúnaðinn. N- listinn hafði ekki uppfyllt þau skilyrði sem yfirkjörstjórn setti fyrir kosning- arnar og ekkert varð af framboðinu á endanum. Sævar ætlaði sér samt stóra hluti og sagðist vilja breyta ástandinu á Íslandi eftir hrunið 2008. Réttarmorð Sævar var langt leiddur alkóhólisti þegar hann lést, en í viðtali við DV árið 2008 lýsti hann lífsstíl sínum sem „drykkjumanni sem vildi ekki vera fullur“. Vinir hans segja að hann hafi aldrei gefist upp og hafi alltaf stað- ið fast í báða fætur þrátt fyrir að á móti blési. Sævar hafði undanfarið dvalið í Kaupmannahöfn, þar sem hann lést, en hann hafði reynt að fá dönsk yfirvöld til að beita þrýstingi á það að mál hans yrði endurupp- tekið. Hann hafðist í nokkurn tíma við í gistiskýlinu í Þingholtsstræti, en ferðaðist oft til Danmerkur og dvaldi þar og var með lögheimili sitt þar- lendis síðustu ár. Hann var nýlega orðinn 56 ára og lætur eftir sig fimm börn. Gögn í máli Sævars benda til þess að rétt sé að á honum hafi ver- ið framið réttarmorð. Hin ákærðu höfðu verið beitt harðræði og ját- uðu brot sem þau frömdu ekki, undir áhrifum lyfja. Sævar var að loknum fangelsisdómi sínum brotinn maður. Lýsa má Guðmundar- og Geirfinns- málinu sem draug sem hefur ásótt íslenska þjóðarsál til langs tíma. Ólíklegt er að nokkurn tímann verði úr því máli skorið eða upplýst hvað hafi orðið um þessa tvo menn. Hvort Sævar fær uppreisn æru sinnar eftir dauðann kemur tíminn til með að leiða í ljós en málið hefur verið til skoðunar hjá innanríkisráðuneytinu í nokkurn tíma. astasigrun@dv.is n Beygður maður sem bugaðist ekki n Leitaði réttlætis eftir réttarmorð n Lögregla þvingaði fram játningar með ótrúlegu harðræði n Sat í gæsluvarðhaldi í tvö ár Sævar vildi fá uppreisn æru „Sævar hafði mikla hæfileika til að bera og var mikill hug- sjónamaður sem hafði djúpan og næman skiln- ing á þjóðfélaginu. Sævar Ciesielski F. 0 6 . 0 7. 1 9 5 5 – D . 1 2 . 0 7. 2 0 1 1 Var útskúfaður Sævari er lýst sem fluggreindum og hæfileikaríkum manni sem aldrei náði að sameinast samfélaginu á ný eftir að hafa verið útskúfaður úr því. Mynd RóBERt REyniSSon Leirfinnur Eitt helsta sönnunargagn lög- reglunnar í málinu gegn Sævari og félögum og átti að vera eftirlíking af manni sem Geirfinnur hefði mælt sér mót við. Síðar kom í ljós að lögregla hafði notast við mynd af einum sakborninganna til þess að gera styttuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.