Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 24
24 | Fréttir 15.–17. júlí 2011 Helgarblað Björn Reynir Halldórsson blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is Starfsmenn í verksmiðjum Nike í þriðja heiminum sæta illri meðferð af hálfu yfirmanna sinna. Þetta kom fram í umfjöllun Associated Press í vikunni. Nike komst í heimsfréttirn- ar fyrir áratug þegar upp komst um barnaþrælkun í verksmiðjum fyrir- tækisins í þriðja heiminum. Þrátt fyrir auknar kröfur um viðunandi aðbún- að starfsmanna er enn farið illa með starfsfólk í verksmiðjum fyrirtækisins. Starfsfólk lamið og skóm kastað í það „Við getum valið á milli þess að starfa áfram og þjást eða að segja frá og vera rekin,“ sagði starfskona í Pou Chen-verksmiðjunni í Indónesíu, sem framleiðir Converse-skó. Starfs- menn í verksmiðjunni eru 10 þús- und talsins og flestir konur. Þær fá hálfan bandaríkjadal, sem jafngildir tæpum sextíu íslenskum krónum, í tímakaup sem rétt dugar fyrir mat og leigu á hrörlegu húsnæði. Yfirmenn lemja starfsfólkið og kasta skóm í það. Þeir svívirða fólkið einnig með því að kalla það hunda og svín. Allt þetta er mikil móðgun fyrir múslima, en Indónesía er stærsta múslimaríki heims. Þá er dæmi um að starfskona hafi verið rekin fyrir að hafa tekið sér veikindaleyfi, þrátt fyrir að hafa framvísað læknisvottorði. Í annarri verksmiðju skammt frá voru sex konur látnar standa úti í steikjandi sólinni fyrir að hafa ekki náð að klára að búa til 60 pör af skóm á tilsettum tíma. Þeim var hleypt aft- ur til vinnu grátandi þegar þær höfðu verið utandyra í tvær klukkustundir. Meirihluti verksmiðja stenst ekki kröfur Nike Nike-fyrirtækið er meðvitað um vandamálið en forsvarsmenn þess segjast lítið geta gert. Eftir að fyrir- tækið var harðlega gagnrýnt fyr- ir 10 árum setti það strangari reglur og gerði fleiri ráðstafanir til að bæta aðbúnað starfsfólks í verksmiðjum fyrirtækisins í þriðja heiminum, en þær eru yfir þúsund talsins. Skýrsla sem Nike lét gera sýndi hins vegar að af 168 verksmiðjum, sem fram- leiða Converse-skó, uppfylla aðeins tvær af hverjum þremur staðla fyrir- tækisins um aðbúnað starfsfólks. Tólf verksmiðjur falla í versta flokkinn þar sem vinnustundir eru allt of marg- ar. Þá sé eftirlitsmönnum á vegum Nike ekki hleypt í verksmiðjurnar. Í öðrum 97 verksmiðjum hafa engar framfarir sést í þessum málum. Tals- maður Nike segir vandamálið stafa af því að framleiðendur í þriðja heims löndum, hafi haft leyfi til að framleiða Converse-skóna áður en Nike keypti vörumerkið. Það hindri Nike frá því að hafa eftirlit með eigin vörum. Skilur ekki vanmátt Nike Meðal annarra ráðstafana sem Nike hefur gert er að upplýsa um nöfn og staðsetningu verksmiðja fyrirtækis- ins og stefnir að því að upplýsa fyrir lok ársins um verksmiðjur í eigu dótt- urfyrirtækja. Það er aukið vandamál að framleiðendur færa verksmiðj- urnar á afskekktari svæði þar sem færri fylgjast með starfsemi þeirra. Margir gagnrýna þó Nike og segja fyrirtækið geta gert meira til að fram- fylgja reglum sínum. „Mér finnst það hreinlega ómögulegt að markaðs- veldi á borð við Nike sé ófært um að skipa verksmiðju í Indónesíu, eða einhvers staðar annars staðar, að koma til móts við reglur fyrirtækis- ins,“ segir bandarískur prófessor. n Verksmiðjur Nike standast ekki auknar kröfur um aðbúnað starfsmanna n Starfsmenn beittir ofbeldi n Verksmiðjur færðar á staði þar sem færri fylgjast með starfseminni „Mér finnst það hreinlega ómögu- legt að markaðsveldi á borð við Nike sé ófært um að skipa verksmiðju í Indónesíu, eða einhvers staðar annars staðar, að koma til móts við reglur fyrirtækisins. StarfSmenn í verkSmiðjum nike Sæta illri meðferð „Við getum valið á milli þess að starfa áfram og þjást eða að segja frá og vera rekin. Slæmar aðstæður Aðbún- aður starfsmanna er oft langt frá því að vera til fyrirmyndar. Bandaríkin glíma við mikinn skuldavanda: Lánshæfismat gæti lækkað Matsfyrirtækið Moody’s íhugar að lækka lánshæfismat Bandaríkjanna nú þegar illa gengur að finna lausn á skuldavanda Bandaríkjanna. Við- ræður hafa farið fram á milli repú- blikana og demókrata í Hvíta húsinu um skuldavandann en lítinn árangur borið. Barack Obama Bandaríkjafor- seti er sagður hafa gengið út í fússi af fundi á miðvikudaginn. Repúblikanar og demókratar eru ekki sammála um hvaða leið eigi að fara til að rétta af fjárlagahallann en flokkarnir þurfa að semja um frum- varp þess efnis þar sem repúblik- anar hafa meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins og demókratar meirihluta í öldungadeildinni. Repúblikanar vilja skammtíma- lausn sem felur alfarið í sér niður- skurð en demókratar vilja langtíma- lausn sem felur í sér sparnað upp á fjórar billjónir dala (468 billjónir króna) næstu tíu árin. Repúblikan- ar lögðust hins vegar gegn aðgerða- pakkanum. Obama hefur boðist til að samþykkja niðurskurð í velferðar- málum gegn því að hækka skatta á auðmenn. Repúblikanar neita hins vegar að ræða allar skattahækkanir. Skuldavandi Bandaríkjanna hefur náð nýjum hæðum en Bandaríkin hafa þegar náð skuldaþaki sínu sem nemur 14,3 billjónum dollara, eða 1.675 billjónum króna. Rætt er um að hækka skuldaþakið en það hefur ver- ið gert tíu sinnum á síðustu tíu árum. Bandaríkin þurfa að finna lausn fyrir 2. ágúst en náist ekki lausn fyrir það gætu Bandaríkin farið í greiðsluþrot. Greiðsluþrot Bandaríkjanna gæti haft víðtæk áhrif meðal annars í Evr- ópu sem nú glímir við mikinn efna- hagsvanda. Hagfræðingar telja þó að stjórnmálamenn í Bandaríkjun- um muni ekki láta Bandaríkin fara í greiðsluþrot heldur í versta falli finna lausn á síðustu stundu. Pólitískt líf þeirra sé í húfi. Krísa Barack Obama fundar með leiðtogum þingsins. Svört skýrsla á Írlandi: Hylmt yfir kynferðisbrot Prestar og biskupar á Írlandi hylmdu yfir kynferðislega misnotkun eftir ráðleggingar frá Vatíkaninu. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu sem kom út á miðvikudaginn og er 341 blaðsíða að lengd. Brotin sem um ræðir áttu sér stað á árunum 1996 til 2009 í Cloyne- biskupsdæminu í Cork-sýslu. Í skýrslunni kemur fram að grun- semdir um brot 19 presta hafi verið þaggaðar niður. Einn af þessum prestum hefur nú verið ákærður. John Magee sagði af sér í fyrra sem biskup í Cloyne án þess þó að viðurkenna að hafa hylmt yfir nokk- urt brot. Hann sagðist þó taka fulla ábyrgð á mistökum kirkjunnar. Samkvæmt reglum írsku kirkj- unnar ber að tilkynna allar grun- semdir um kynferðislega misnotk- un. Þær reglur tóku gildi árið 1996 og síðan þá hafa meira en 13 þúsund mál verið tilkynnt. Fulltrúi Vatíkans- ins sendi írskum biskupum trún- aðarbréf í kjölfarið þar sem sagt var að þessar reglur samrýmdust ekki helgilögum kaþólsku kirkjunnar. Helgilögin bæri að virða og prestar sem ásakaðir væru myndu að öllum líkindum hljóta sína refsingu frá kirkjunni í Róm. Skýrslan gefur í skyn að börn séu áfram í hættu á að verða misnotuð þar sem klerkar víða um Írland eru tregir til að tilkynna slík brot. Alan Shatter, dómsmálaráðherra Írlands, hefur lofað frumvarpi þar sem lagt er til að fangelsisvist verði refsing þeirra sem leyna upplýsingum um svo alvarleg brot. Hann segir fyrir- heit kaþólsku kirkjunnar um að setja veraldleg lög í fyrsta sæti byggð á sandi. Erkibiskupar hafa beðist afsök- unar og heitið auknu gagnsæi og enn frekara samstarfi við stjórnvöld. Fulltrúar Vatíkansins tjáðu sig hins vegar ekki um málið. Nota fanga sem skildi Hermenn í Mjanmar nota dæmda glæpamenn sem skildi í vopnuðum átökum, samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem var birt á miðvikudaginn. Auk þess eru fangarnir látnir bera vopn, mat og aðrar birgðir fyrir herinn. Fangarnir fá hins vegar ekki nóg af mat, skýli eða viðunandi læknisþjónustu. Áætlað er að fangarnir hafi verið 1.200 í janúar síðastliðnum. Brot þeirra eru misalvarleg og afplána þeir dóma allt frá einu ári upp í tutt- ugu. Margir fanganna eru ókunnugir staðarháttum og erfiðara er fyrir þá að sleppa. Þeir þykja ódýrt vinnuafl og því hentugir til þessara verkefna. Stjórnvöld hafa hafnað þessum ásökunum með öllu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.