Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Blaðsíða 38
38 | Fókus 15.–17. júlí 2011 Helgarblað Boðið verður upp á leiðsögn um listaverkin í Viðey á sunnudag en þar mun Heiðar Kári Rannversson vera leiðsögumaður. Meðal annars verð- ur rætt um Friðarsúlu Yoko Ono og Áfanga eftir bandaríska listamann- inn Richard Serra. Verkið Áfangar var sett upp í tengslum við Listahátíð árið 1990 og stendur það á vesturhluta Viðeyjar. Verkið samanstendur af níu súlna- pörum úr stuðlabergi sem ramma inn nærliggjandi kennileiti eða áfangastaði. Listamaðurinn Serra er einn áhrifamesti myndhöggvari sam- tímans og var verkið gjöf hans til ís- lensku þjóðarinnar. Flestir ættu að kannast við Frið- arsúlu Yoko Ono en hún var fyrst tendruð 9. október 2007 og var lista- verkið sett upp í minningu látins eig- inmanns hennar, Bítilsins Johns Len- non. Á hverju ári lýsir Friðarsúlan frá fæðingardegi Lennons 9. októ- ber til 8. desember sem er dánardag- ur hans. Einnig er kveikt á ljósinu á gamlársdag, á jafndægri að vori og á sérstökum hátíðisdögum sem lista- maðurinn og Reykjavíkurborg koma sér saman um. Friðarsúlan er hvít að lit og myndar nokkurs konar óska- brunn, en á hann er rituð setningin: „Hugsið ykkur frið“ á 24 tungumál- um. Heiðar Kári er með BA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands en loka- verkefni hans fjallaði um listaverkin í Viðey. Í leiðsögn sinni skoðar Heiðar Kári sérstaklega tengsl verkanna við umhverfi og áhorfendur. Lagt verð- ur af stað frá Viðeyjarkirkju stund- víslega klukkan 14.30. Allir eru vel- komnir en gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Heiðar Kári Rannversson leiðsögumaður um Viðey: Leiðsögn um listaverkin í Viðey Friðarsúla Yoko Ono Á hverju ári lýsir Friðarsúlan frá fæðingardegi Lennons til dánardags hans. mælir með... KVIKMYND Super 8 „Super 8 er frábær afþreying. Hún nær jafnt til barna og fullorðinna, sérstaklega þeirra sem ólust upp við kvikmyndir Stevens Spielberg.“ Jón Ingi Stefánsson KVIKMYND Bridesmaids „Ég hafði heyrt utan að mér að myndin væri góð en ég gerði mér engan veginn grein fyrir því hversu góð hún væri.“ Viktoría Her- mannsdóttir BÓK Sláttur „Sláttur er fram- bærilegt og fínlega skrifað verk.“ Kristjana Guðbrandsdóttir HLJÓMPLATA Ég vil fara upp í sveit „Aðdáendur fyrri platna þeirra verða ekki sviknir og fólk á örugglega eftir að skemmta sér ein- staklega vel áfram á knapaböllum með Helga í broddi fylkingar.“ Birgir Olgeirsson Hvað ertu að gera? Gunnar Páll Ólafsson leikstjóri Hvað ertu að lesa núna? „Myrkfælni eftir Þorstein Má Gunnlaugsson. Hrollvekju- og draugasmásagnarit sem ég er hálfnaður með.“ Hver er uppáhaldskvikmyndin þín? „Þetta er versta spurning sem ég gat fengið og hef meira að segja oft hugsað út í það hvernig ég myndi svara henni. En ætli sú kvikmynd sem hefur haft mest áhrif á mig sé ekki The Shawshank Redemption.“ Hvað sástu síðast í bíó og hvernig fannst þér? „Kærastan vildi sjá Hangover part 2 þannig að það var brunað upp í Breiðholt því hún er bara sýnd í litlum sal núna. Myndin byrjar rólega og mikið af sömu bröndurunum út í gegn en myndaserían í lokin var alveg fyndin. Ekki eftirminnileg.“ Hvaða tónlist ertu að hlusta á núna? „Ég var að kaupa nokkur lög af nýju Bon Iver plötunni ásamt „soundtrackinu“ úr kvikmyndinni Hanna en Chemical Brothers gerðu einmitt tónlistina við þá mynd. Mæli með báðum plötunum.“ Hvað ætlar þú að gera um helgina? „Á föstudagskvöld reikna ég með því að þurfa að vinna fram á kvöld og mæta seint í eigið matarboð sem er klassískt. Laugardagurinn kemur sterkur inn því það spáir sól þannig að sundferð í Neslaugina væri tilvalin ásamt léttum dinner og tón- leikum með Quarashi. Á sunnudaginn spái ég afslöppun og því að það verði slökkt á símanum en ég á samt mjög erfitt með spá svona fram í tímann.“ Quarashi og sundferð um helgina Þ etta er fyrsta afkvæmið,“ segir tónlistarmaðurinn, ritstjórinn og Hafnfirðing- urinn Jón Jónsson um sína fyrstu plötu, Wait for Fate, sem komin er út. Vinsældir Jóns hafa aukist jafnt og þétt undanfarna mán- uði en lögin hans Lately, Kiss in the Morning og When You're Around hafa öll gert það gott. Jón er með tónlistina í blóðinu en bróðir hans er söngvarinn Friðrik Dór sem einnig hefur gert það gríð- arlega gott undanfarið. Bræðurnir koma stundum fram saman þar sem þeir taka lög hvor annars en engin áform eru uppi um að vinna tónlist saman á næstunni. Jón, sem lærði hagfræði við Bos- ton University, tók nýlega til starfa sem ritstjóri Monitor. Hann sakn- ar stundum þess að ganga áhyggju- laus um háskólasvæðið í Boston með iPodinn í eyrunum. Jón Jónsson og hljómsveit hans spila á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina og segir hann drauminn að allir í brekkunni syngi með. Eldra en tvívetra „Ég er búinn að bíða lengi eftir því að þessi plata komi út og er búinn að vera að semja lengi. Mörg þessara laga eru ekkert samin í gær,“ segir Jón um plötuna en hann vakti fyrst at- hygli þegar hann tók þátt í nemenda- sýningum Verslunarskólans á sínum tíma. Ábreiða hans af laginu Slapp- aðu af náði nokkrum vinsældum. „Það er mikilvægt að koma þessu efni frá sér til þess að geta haldið áfram sem tónlistarmaður en það er svo erfitt án þess að hafa gert nokk- uð við gamla efnið.“ Wait for Fate inniheldur 12 frumsamin lög en Jón samdi nánast allt efnið einn síns liðs. „Ég sem lög og texta en fæ smá hjálp hér og þar. Mín hægri hönd, Krist- ján Sturla Bjarnason, semur með mér tvö lög og svo sömdum við Frið- rik bróðir tvo texta fyrir löngu. Alveg 2006 minnir mig.“ Jón og Kristján Sturla kynntust í Verslunarskólanum og hafa verið miklir vinir síðan. „Kristján tók svo upp mest af efninu og sér um all- ar útsetningar,“ en Jón segist mjög ánægður með alla þá sem komu að plötunni og nefnir sérstaklega Haf- þór Karlsson, eða Haffa tempó eins og hann er oftast kallaður. „Svo auð- vitað strákarnir í hljómsveitinni. Maður þarf ekkert að segja þeim hvað á að gera. Þeir lesa mann bara algjörlega og allar uppástungur sem þeir koma með eru bara til bóta.“ Jón er sáttur við hljóminn sem tókst að skapa á plötunni sem og útlit hennar. „Hún rennur mjúk- lega í gegn og er þægileg en samt skemmtileg.“ Bræðurnir í bílskúrnum Jón og systkini hans hafa öll verið að sýsla í tónlist frá blautu barnsbeini. „Við fórum öll fjögur systkinin í Tón- listarskóla Hafnarfjarðar þegar við vorum sex ára. Fórum svo að læra á hljóðfæri átta ára. Eldri systir mín fór í Söngskólann og ég og tvíbura- systir mín vorum svo saman þarna í Verslósöngleikjunum. Frikki fór svo líka í það. Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson sendi nýlega frá sér sína fyrstu plötu, Wait for Fate. Hann er ánægður með gripinn sem inniheldur 12 frumsamin lög. Jón er bróðir Friðriks Dórs sem hefur einnig gert það gott og leika þeir stundum lög hvor annars. Jón er nýsestur í ritstjórastól Monitor og líkar starfið vel. Hann kemur fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og ætlar að ná brekkunni á sitt band. Dreymir um að allir í brekkunni syngi með Wait for Fate Jón semur allt sitt efni. „Ég er búinn að bíða lengi eftir því að þessi plata komi út og er búinn að semja lengi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.