Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2011, Síða 46
E lsta og virtasta golfmót heims, opna breska meistaramótið, hófst á fimmtudaginn en það nær hápunkti á sunnudags- kvöldið þegar nýr meistari verður krýndur. Mótið fer að þessu sinni fram á Royal St. George’s vellin- um á Englandi en þetta er í fjórtánda skiptið sem þetta merka mót er haldið á þeim velli. Augu allra þessa helgina beinast að Norður-Íranum unga Rory McIlroy sem á dögunum tók sig til og jarðaði keppinauta sína á opna bandaríska mótinu. Hann fór þó ekki nægilega vel af stað á fimmtudaginn. Rory fór holurnar átján á 71 höggi eða einu yfir pari vallarins og er fimm höggum á eftir efsta manni, Dananum Thomas Björn. Aðeins einu sinni í sögu mótsins hefur einhver unnið það eftir að hafa verið fimm höggum á eftir efsta manni eftir fyrsta dag. Það var árið 2004 þegar Todd Hamilton hrósaði sigri. The Claret Jug, verðlaunagripur- inn sem slegist er um, er sá eftirsótt- asti í golfinu og ekki skemmir fyrir að peningaverðlaunin eru þau hæstu sem um getur. Sigurvegarinn fær í sinn hlut 900.000 pund eða 170 millj- ónir íslenskra króna. Langt síðan heimamaður bar sigur úr býtum Royal St. George’s völlurinn er á Eng- landi en heimamenn eru búnir að bíða lengi eftir því að sjá Englending vinna opna breska. Þeim hefur lítið gengið síðustu tvo áratugina en síð- asti Englendingurinn sem vann opna breska var Nick Faldo. Það gerði hann hann á St. Andrews-vellinum í Skot- landi árið 1990. Fara þarf 42 ár aftur í tímann til að finna síðasta sigur Englendings á enskum velli en það var Tony Jacklin, sigursælasti fyrirliði Ryder-liðs sem vann á Royal Lytham & St. Annes vell- inum árið 1969. Englendingar vonast þó eftir að það breytist í ár en í fyrsta skiptið í ansi langan tíma á England tvo efstu kylfingana á heimslistanum, þá Luke Donald og Lee Westwood. „Ég er klár í þetta. Ég þekki vel að spila á strandvöllum og finn mig allt- af vel þar. Þetta verður auðvitað erfitt enda vilja allir vinna þetta magnaða mót. Ég er samt í góðu formi núna og tel mig alveg kláran til að halda á silfukönnunni á sunnudaginn,“ sagði Luke Donald í vikunni. Allir horfa til Rorys Norður-Írinn ungi Rory McIlroy stimplaði sig heldur betur inn sem mest spennandi kylfingur heims í síð- asta mánuði þegar hann vann opna bandaríska með fáheyrðum yfirburð- um. Þessi 22 ára gamli piltur hefur lengi verið að láta vita af sér en sig- urinn í Bandaríkjunum skaut hon- um rakleiðis upp á stjörnuhimininn. Pressan sem hann er undir er gífurleg en hann fór ekki nægilega vel af stað og skoraði einum yfir pari vallarins á fyrsta degi. „Þetta var allt í lagi. Þetta var erf- iður dagur og ég þurfti að vera þolin- móður. Ég vissi að ég fengi ekki mörg tækfæri á fuglum en ég er þokkalega ánægður með þessa byrjun. Þegar maður er ekki búinn að spila jafn- lengi á móti og ég er maður orðinn spenntur að komast aftur út á völlinn. Á meðan ég held mig við parið ætti ég að vera góður því ég er að slá boltann vel þannig þetta er bara spurning um púttin,“ sagði Rory sáttur eftir fyrsta hringinn. Verðlaunaféð hækkar enn Sá sem sigrar í opna breska fær í sinn hlut 900.000 pund eða 170 milljón- ir króna. Verðlaunaféð hefur hækk- að duglega undanfarin ár en gaman er að horfa til fyrstu mótanna. Fyrstu fjögur mótin var ekkert verðlaunafé en næstu ellefu ár eftir það fékk sigur- vegarinn 6 pund í sinn hlut. Hafa ber þó í huga að þetta var fyrir aldamót- in þarsíðustu og því 6 pund dágóður skildingur. Svo fór verðlaunaféð úr 6 pund- um upp í 10 og þaðan í 30 og síðan 100 og fyrst voru eitt þúsund pund í verðlaun árið 1955. Árið 1993 var búið að hundraðfalda þá upphæð og varð Greg Norman fyrstur til að fá 100 þúsund pund fyrir að vinna mót- ið. Þegar Tiger Woods ungur að árum hampaði sigri á St. Andrews árið 2000 vann hann sér inn 500 þúsund pund. Sjö hundruð og fimmtíu þús- und pund fengust fyrir að vinna mót- ið 2007 til 2009 en eftir það hækkaði verðlaunaféð upp í 850.00 pund sem Louis Oosthuizen fékk í fyrra. Sig- urvegarinn í ár fær því meira en nokkur annar hefur fengið fyr- ir að vinna opna breska Saga silfurkönnunnar Sigurvegari opna breska fær að launum silfraða könnu sem ber heitið Claret Jug. Sá áhugakylf- ingur sem endar efst- ur og sigrar í keppni þeirra fær silfurmed- alíuna. Claret Jug er ekki upphaflegi verð- launagripur opna breska. Fyrstu árin var notast við belti sem gert var úr dýru leðri frá Mónakó en á því var beltissylgja úr silfri og merki. Beltið sem verðlauna- gripur kom til fyrir tilstilli jarlsins af Eglinton sem hafði gíf- urlegan áhuga á miðaldabúskap. Beltið mátti sá eiga sem vann þrjú mót í röð og þegar það gerð- ist strax fyrstu árin að menn unnu opna breska hvert árið á fætur öðru þurfti að grípa í taumana. Árið 1872 var ákveðið að sigurvegarinn fengi til eignar medalíu og þeir þrír klúbbar sem fyrst komu að mótinu myndu hver og einn leggja 10 pund í púkk fyrir nýjum verðlaunagrip. Sá gripur var og er Claret Jug. 46 | Sport 15.–17. júlí 2011 Helgarblað Allra augu á McIlroy n Opna breska meistaramótið hafið n Mikil pressa á 22 ára gamlan Norður-Íra n Verðlaunaféð hækkar enn Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Golf Ár Kylfingur Þjóðerni Völlur (Skor) 2010 Louis Oosthuizen, Suður-Afríka St. Andrews (-16) 2009 Stewart Cink, Bandaríkin Turnberry (-2, vann í umspili) 2008 Pádraig Harrington, Írland Royal Birkdale (+3) 2007 Pádraig Harrington, Írland Carnoustie (-7, vann í umspili) 2006 Tiger Woods, Bandaríkin Royal Liverpool (-18) 2005 Tiger Woods, Bandaríkin St. Andrews (-14) 2004 Todd Hamilton, Bandaríkin Royal Troon (-14, vann í umspili) 2003 Ben Curtis, Bandaríkin Royal St. George (-1) 2002 Ernie Els, Suður-Afríka Muirfield (-6, vann í umspili) 2001 David Duval, Bandaríkin Royal Lytham & St. Annes (-10) 2000 Tiger Woods, Bandaríkin St. Andrews (-19, met á öllum stórmótum) Sigurvegarar á Opna breska síðustu ellefu árin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.