Fréttatíminn - 10.10.2014, Blaðsíða 78
— 2 — 10. október 2014
HEILSURÆKTARKORT VEITIR AÐGANG AÐ
9 STÖÐVUM OG 3 SUNDLAUGUM
Munið afsláttar
kjör fyrir eldri b
orgara
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Októberfest
í Veggsport
Persónulegt
þjónusta
og vinalegt
umhverfi
30% afsláttur í golfherminn
Skelltu þér í golf í góðu veðri
9 mismunandi golfvellir
2 fyrir 1 í skvass um helgar
Bjóddu vini þínum með í skvass!
Á www.nmb.is getur þú kannað mataræði þitt og fengið
einstaklingsmiðaða endurgjöf sem byggir á nýjustu þekkingu.
Næring móður á meðgöngu getur haft áhrif
á vöxt, þroska og heilsu barnsins til æviloka.
Færð þú nóg af næringarefnum
sem nauðsynleg eru fyrir fósturþroska?
LyfjamáL Ríkið spaRaR tvo miLLjaRða á miLLi áRanna 2011 og 2013
Ríkið sparar milljarð í lyfjum á ári –
en kostnaður almennings aldrei hærri
Hlutdeild almennings í kostnaði vegna lyfja hefur aldrei verið
hærri en nú. Hann fór í fyrsta sinn yfir kostnað ríkisins árið
2012. Sparnaðaraðgerðir í kostnaði vegna lyfja skila sér ekki til
almennings. Tveggja milljarða sparnaður á árunum 2011-2013
fer nær alfarið til ríkisins.
Sigr íður Dögg AuðunSDót tir
s parnaður ríkisins vegna almennra lyfja á árunum 2011-2013 nemur tveimur milljörðum. Árið 2012 urðu
jafnframt umskipti í kostnaðarþátt-
töku almennings vegna lyfja þegar
almenningur greiddi í fyrsta sinn
hærra hlutfall en ríkið í lyfjakostn-
aði, samkvæmt tölum Hagstofu Ís-
lands sem Líftíminn hefur tekið
saman.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkratryggingum Íslands nam
kostnaður vegna allra lyfja á árinu
2011 rúmum 10 milljörðum á verð-
lagi ársins 2013. Lyfjakostnaður
ríkisins tveimur árum síðar hafði
dregist saman um 1,9 milljarða. Á
sama tímabili jókst kostnaðarþátt-
tökuhlutfall almennings í lyfjum úr
tæpum 48% í tæp 54%.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkratryggingum hækkaði lyfja-
kostnaður ríkisins mikið árin 2008
og 2009 í kjölfar gengisfalls krón-
unnar. Frá þeim tíma hefur kostnað-
ur þó lækkað á hverju ári þrátt fyrir
verðbólgu. Þetta skýrist að miklu
leyti af breytingum sem gerðar
hafa verið á greiðsluþátttöku sjúkra-
trygginga í kostnaðarsömustu lyfja-
flokkunum á síðustu árum og af
verðlækkunum lyfja en einnig vegna
hækkun notendagreiðslna.
Lyfjakostnaður lækkaði um tæp-
ar 700 milljónir króna milli áranna
2012 og 2013. Lækkun kostnaðar
milli ára skýrist fyrst og fremst af
tveimur þáttum, samkvæmt upp-
Á undanförnum árum hafa verið gerðar
breytingar á greiðsluþátttöku nokkurra
lyfjaflokka. Fyrsta breytingin tók gildi 1.
mars 2009. Breytingarnar fela í sér að
eingöngu hagkvæmustu lyfin í hverjum
lyfjaflokki eru með greiðsluþátttöku
sjúkratrygginga. Ef þau lyf reynast
ófullnægjandi geta læknar sótt um
lyfjaskírteini fyrir dýrari lyfin. Áhrifin
af breytingunum hafa verið tvíþætt,
notkun hagkvæmari lyfja hefur aukist og
verð á mörgum lyfjum hefur lækkað, allt
að 60-70% verðlækkun á sumum lyfjum.
Gerðar hafa verið breytingar á greiðslu-
þátttökunni í eftirfarandi lyfjaflokkum:
blóðfitulækkandi lyf, prótónpumpu-
hemlar, ákveðin blóðþrýstingslyf, lyf
við beinþynningu, öndunarfæra lyf,
þunglyndislyf og geðrofslyf
Ýmsir aðrir þættir hafa einnig áhrif
á lyfjakostnaðinn, svo sem breyting
á smásöluálagningu lyfja, hækkun
virðisaukaskatts og almenn hækkun á
hlut sjúklings. Verð á mörgum lyfjum
hefur lækkað mikið með tilkomu nýrra
samheitalyfja á markaðinn og vegna
verðendurskoðunar Lyfjagreiðslu-
nefndar. Einnig hefur gengi krónunnar
mikil áhrif því verð meirihluta lyfja er
skráð í erlendri mynt sem uppreiknast
mánaðarlega með útgáfu nýrrar lyfja-
verðskrár.
Ástæðan fyrir lækkun kostnaðar á
árinu 2013 skýrist fyrst og fremst af
tveimur þáttum. Í fyrsta lagi hefur verð
á mörgum lyfjum lækkað með tilkomu
nýrra samheitalyfja á markaðinn og
vegna verðendurskoðunar lyfja-
greiðslunefndar. Í öðru lagi lækkaði
kostnaður tímabundið vegna nýs
greiðsluþátttökukerfis sem tók gildi
þann 4. maí 2013 þar sem notendur
greiða lyf sín að fullu í fyrsta þrepi.
Kostnaður SÍ vegna flestra lyfja er því
minni fyrstu mánuðina eftir gildistöku
nýja greiðsluþátttökukerfisins þar sem
kerfið hefur ekki náð jafnvægi.
Breytingar hafa skilað mikilli verðlækkun lyfja
Guðrún I. Gylfadóttir, deildarstjóri lyfjadeildar hjá Sjúkratryggingum Íslands:
lýsingum frá Sjúkratryggingum.
Í fyrsta lagi hefur verð á mörgum
lyfjum lækkað með tilkomu nýrra
samheitalyfja á markaðinn og vegna
verðendurskoðunar lyfjagreiðslu-
nefndar. Í öðru lagi lækkaði kostn-
aður tímabundið vegna nýs greiðslu-
þátttökukerfis sem tók gildi í maí
2013. Henný Hinz, hagfræðingur
ASÍ, bendir á að markmiðin með
breytingunum hafi ekki verið að
spara í lyfjakostnaði ríkisins heldur
fyrst og fremst að færa kostnaðinn
af þeim sem borga mest yfir á þá
sem borga minnst. Hún staðfestir
að viðsnúningur hafi verið í greiðslu-
þátttökukerfinu árið 2012 og segir
líklegt að breytingarnar í fyrra komi
til með að auka enn kostnaðarhlut-
fall sjúklinga á þessu ári því áhrifin
af breytingunum hafi ekki að fullu
komið fram í fyrra.
Árið 2012 var reglum um sér-
lyf (S-merkt lyf, öðru nafni nefnd
sjúkrahúslyf) breytt í sparnaðar-
skyni svo Íslendingar hafa nú ekki
sama aðgengi að lyfjum og aðrir
Norðurlandabúar. Lyfjakostnaður
vegna sérlyfja hefur samt sem áður
aukist um rúmar 650 milljónir
milli áranna 2011 og 2013. Nánar er
fjallað um þessar breytingar og af-
leiðingar þeirra í fréttaskýringu á
síðu 6.
14000
12000
10000
8000
6000
4000
2000
0
Einstaklingar Ríkið
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
*Í milljónum króna uppreiknað á verðlagi ársins 2013
Lyfjakostnaður 2006-2013*