Fréttatíminn - 16.10.2015, Side 8
www.icewear.is
R E Y K J AV Í K - A K U R E Y R I - V Í K Í M Ý R D A L
LitirLitir
GLÆSILEGAR DÚNÚLPUR
FYRIR DÖMUR OG HERRA
| |
KrKr . 21.890. 21.890
BRAGI Dúnúlpa BIRTA Dúnúlpa
Við erum að
skoða tilboð
ríkisins frá
því í gær,
hvert félag
í sínu horni,
en ég sé
ekkert sem
bendir til að
það semjist
fyrir helgi.
Þ að er langt í land ennþá, ég get ekki sagt að við séum farin að sjá neina skímu sem bendir til að
samningar náist á næstunni,“ sagði Þórar-
inn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR,
spurður um stöðuna í samningaviðræðum
SFR og SLFÍ og ríkisins um þrjúleytið
í gær, fimmtudag. „Við erum að skoða
tilboð ríkisins frá því í gær, hvert félag í
sínu horni, en ég sé ekkert sem bendir til
að það semjist fyrir helgi.“
Verkfall hófst í gærmorgun, fimmtu-
dag, og tekur til rúmlega fimm þúsund
félagsmanna félaganna tveggja og hefur
áhrif á starfsemi 158 stofnana. Verk-
fallið er ótímabundið hjá félagsmönnum
á Landspítalanum, Tollstjóra, Ríkisskatt-
stjóra og sýslumannsembættum. Hjá
öðrum stofnunum eru áætluð tveggja
daga verkföll nokkrum sinnum yfir fjög-
urra vikna tíma bil, starfsmenn þeirra eru
í verkfalli í dag, föstudag, og verða að öllu
óbreyttu einnig í verkfalli á mánudag og
þriðjudag.
Vonir vöknuðu um að hreyfing væri
komin á samningaviðræðurnar með nýju
tilboði ríkisins, en samkvæmt fyrrgreind-
um orðum Þórarins voru þær óraunhæfar.
„Það er ekki búið að aflýsa samninga-
fundi í dag,“ sagði hann þá. „En í augna-
blikinu er enginn fundur í gangi og ég
veit ekki hvort framhald verður á honum í
dag. Þetta á eftir að taka töluverðan tíma.“
Áhrif verkfallsins eru víðtæk, ekki síst
á starfsemi Landspítalans þar sem 1600
starfsmenn hafa lagt niður störf. Páll
Matthíasson, forstjóri Landsspítalans,
sagði í fréttum RÚV í gær að dagdeildir
og göngudeildir væru á talsvert minni
afköstum en vanalega og fimm daga
deildinni á Landakoti hafi verið lokað.
Tölvudeild og símaver séu á tæplega
helmings afköstum. Landlæknir birti í
gær frétt á vefsíðu embættisins þar sem
hann segir að „engin ástæða sé til þess
að bíða eftir skaðlegum áhrifum „heldur
fylgja fordæmi vorsins og binda endi á
verkföllin eins fljótt og auðið er,“ og vísar
þar til lagasetningar á verkföll BHM og
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í vor.
Miklar tafir urðu á öryggiseftirliti á
Keflavíkurflugvelli og seinkaði brott-
farartíma nokkurra flugvéla töluvert.
Þjónusta hjá tollstjóra, ríkisskattstjóra og
sýslumönnum er verulega skert, nánast
engin kennsla fer fram í Háskóla Íslands
og Háskólanum á Akureyri, sýningar
Þjóðleikhússins falla niður og afgreiðslu-
staðir ÁTVR eru lokaðir í dag, mánudag
og þriðjudag en opið verður eins og
venjulega á morgun, laugardag. Þjónusta
á heilsugæslum verður verulega skert, en
þar verður ekki svarað í símann á meðan
verkfallinu stendur og síðdegisvakt á
öllum heilsugæslum höfuðborgarsvæðis-
ins lokuð. Þá mun heimahjúkrun aldraðra
og sjúkra að mestu leggjast niður.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Viðskipti Nýtt hugbúNaðarhús
Meirihluti teknanna kemur erlendis frá
„Með stofnun AGR-Reyndar erum
við að sameina helstu sérfræð-
inga landsins í vörustjórnun við
einhverja reyndustu sérfræðinga
landsins í innleiðingu og þjónustu
á NAV viðskiptahugbúnaðnum.
Sérstaða okkar byggir á því að
bjóða fyrsta flokks vörustjórnunar-
þekkingu til viðbótar við öfluga
þjónustu á Dynamics NAV,“ segir
Haukur Hannesson, framkvæmda-
stjóri hjá AGR-Reynd ehf., en AGR
og Reynd hafa nýverið sameinað
krafta sína til að bjóða Dynamics
NAV viðskiptalausnir samhliða
vörustjórnunarlausnum AGR á inn-
lendan og erlendan
markað.
Sameinað félag
verður með starfsemi í
Bretlandi og Dan-
mörku en öll þróun fer
fram hérlendis. Meiri-
hluti tekna félagsins
kemur erlendis frá í
gegnum fjölbreyttan
hóp viðskiptavina, en
fyrirtækið þjónustar
meðal annars alþjóðlega við-
skiptavini á borð við Le Creuset,
BoConcept, IKEA í Saudí Arabíu,
Best Denki í Singapore ásamt
meirihluta þeirra
skemmtiferðaskipa
sem koma til lands-
ins.
Frá árinu 1997
hefur AGR sérhæft
sig í hugbúnaðargerð
og ráðgjöf á sviði að-
fangastýringar en
hugbúnaðurinn er í
notkun hjá mörgum
af öflugustu fyrir-
tækjum landsins. Sérstaða Reyndar
byggir á Dynamics NAV viðskipta-
kerfinu ásamt verslunarlausnum
frá LS Retail, segir í tilkynningu.
Haukur Hannesson.
Verkfall Áhrif Á laNdspítalaNum og Víðar
Samningar ekki í sjónmáli
Ekkert bendir til að verkfalli félagsmanna SFR og SLFÍ ljúki á næstunni og tímabundin verkföll á
mánudag og þriðjudag virðast verða að veruleika, samkvæmt framkvæmdastjóra SFR.
Allir útsölustaðir ÁTVR eru lokaðir í dag, föstudag, og verða væntanlega einnig lokaðir á mánudag og þriðjudag.
8 fréttir Helgin 16.-18. október 2015
www.cargobilar.is
Ertu að flytja?
Leigir bílinn og ekur sjálf/ur