Fréttatíminn - 16.10.2015, Blaðsíða 84
AFMÆLISKÖKU
ÞARF AÐ PANTA MEÐ
DAGS FYRIRVARA
… Á AFMÆLI Í DAG!
APOTEK ER MEÐ AFMÆLISKÖKUNA
Hjá okkur færðu þessa frábæru afmælisköku. Hún er tilvalinn eftirréttur
fyrir ölskyldur og vinahópa sem hafa gaman saman á Apotekinu.
Gómsæt súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hindberjum, hjúpuð
súkkulaðiganache að hætti Axels Þ., Pastry Chef. Kakan er hæfileg
fyrir 6–10 manns og kostar 3.990 kr.
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
Vídeólist síbreytilegt Verk
Kling og Bang í Basel
Kling & Bang mun í
dag, föstudag, taka
þátt í sýningunni „On
the road to Hellissand-
ur“ í Ausstellungsraum
Klingental í Basel, en
sýningin er partur af
listahátíðinni Cult-
urescapes sem haldin
er um þessar mundir
í borginni. Fram-
lag Kling & Bang til
sýningarinnar eru verk
úr vídeó arkífi Kling &
Bang sem sýnd verða
innan í skúlptúrrýminu
Demented Diamond.
Í vídeó arkífinu eru
nú verk eftir tæplega
hundrað listamenn og
verða fjölmörg þeirra
sýnd í Basel, en sýn-
ingin tekur stöðugum
breytingum meðan
á henni stendur. Auk
sýninga á verkum úr
arkífinu verða einnig
nokkrar einkasýningar
haldnar á tímabilinu.
Ragnar Kjartansson.
Á sdís Sif Gunnarsdóttir, Ragnar Helgi Ólafsson og Selma Hreggviðsdóttir
sýna verk sín sem eru sérstaklega
gerð fyrir Demented Diamond.
Verk Selmu Hreggviðsdóttur
„Reflective Surface“ verður frum-
sýnt við þetta tilefni, en verk Ás-
dísar Sifjar og Rangars Helga voru
frumsýnd í Demented Diamond
í Hafnarhúsinu á Listahátíð í
Reykjavík árið 2012. Aðstandend-
ur Ausstellungsraum Klingental
munu einnig sýna valin vídeóverk
frá svissneskum listamönnum.
Sýningarstjórar fyrir hönd Kling
& Bang eru Daníel Björnsson,
Elísabet Brynhildardóttir og Ingi-
björg Sigurjónsdóttir.
Auk Kling & Bang taka Eggert
Pétursson, Guðmundur Thorodd-
sen, Margrét Blöndal, Tumi Magn-
ússon, Ragnar Kjartansson eldri,
Ragnar Kjartansson & Kjartan
Ragnarsson, Nic Bezemer, Silvia
Bächli og Thomas Heimann þátt í
sýningunni.
Í gegnum árin hefur Kling &
Bang verið þess heiðurs aðnjót-
andi að vinna með fjölmörgum
listamönnum. Settar hafa verið
upp ótal sýningar sem hafa mynd-
bönd/kvikmyndir í aðalfókus eða
það hefur verið notað sem hluti af
innsetningum og jafnvel hafa ver-
ið tekin upp myndbönd, gjörning-
ar eða aðrir viðburði í tengslum
við galleríið. Þetta samstarf var
Kling & Bang innblástur til að
safna myndböndum til sýninga.
Þau mynda nú safnið: The Kling &
Bang Confected Video Archive.
The Confected Video Archive
er síbreytilegt. Það vex í hvert
sinn sem það er sýnt og stuðlar
jafnvel að sköpun nýrra verka.
Safnið er stöðugur flaumur
listaverka sem flæða milli lista-
mannanna, Kling & Bang og
áhorfandans. Þegar vídeó safnið
er til sýnis er verkum úr því raðað
saman, ýmist á nýjan hátt eða í
kerfi sem áður hefur verið notað.
Jafnvel þótt hver samsetning sé
búin að hluta til úr sömu eining-
unum þá veitir hver og ein þeirra
nýja sýn á heildina. Safnið er
því aldrei fullbúið og takmarkið
er óskilgreint. „The Demen-
ted Diamond“ er hugarfóstur
listakonunnar Ingibjargar Sigur-
jónsdóttur og var fyrst sett upp á
Listahátíð í Reykjavík, 2012.
Dagskrá einkasýning-
anna er sem hér segir:
Opnun, 16. október klukkan 18. Ný
og valin verk úr „The Confected
Video Archive of Kling & Bang“
17.10 – 23.10, Selma Hreggviðsdóttir
„Reflective Surface“
24.10 – 30.10, The Demented Diamond,
Svissneska útgáfan
31.10 – 6.11, Ásdís Sif Gunnarsdóttir
„One man cinema“ for your eyes
only
7.11 – 13.11, Ragnar Helgi Ólafsson
„Axis Mundi“
14.11 – 22.11, Valin verk úr „The
Confected Video Archive of Kling
& Bang“.
84 menning Helgin 16.-18. október 2015