Fréttatíminn - 16.10.2015, Blaðsíða 59
tíska 59Helgin 16.-18. október 2015
Aðalstræti 10
2.hæð Kraumhús.
S:5712407
Opið alla laugardaga 10 - 17
sunnudaga 12-17 og virka
daga 9-18
www.juniform.is
Fallegu
eyrnaböndin
komin
Mikið úrval
7.900 kr.
V ið fyrstu sýn virðist líf fyrirsætunnar Cöru Dele-vingne vera dans á rósum. Öll helstu tískuhús heims keppast um að fá hana til að ganga tísku-
pallana fyrir sig, henni er boðið í öll helstu partíin og hún er
einnig farin að reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu, með ágætis
árangri. Hún er auk þess fluggáfuð og fyndin í þokkabót og
er ein skærasta stjarna samfélagsmiðlanna. Cara greindi
hins vegar nýlega frá því í viðtali að hún hefur glímt við
þunglyndi frá því á unglingsárunum.
Cara var í viðtali hjá Women in the World, viðtalsvett-
vangi á vegum New York Times þar sem konur sem notið
hafa velgengni á ýmsum sviðum ræða það sem þeim liggur
á hjarta. Cara ræddi við leikarann Rupert Everett og byrjaði
hún á því að lesa fyrir hann ljóð eftir sjálfa sig. Að því loknu
greindi hún frá upplifun sinni af andlegum veikindum.
„Ég held að ég hafi gert það miklar kröfur á sjálfa mig að
ég fékk andlegt áfall. Ég fór svo langt niður að ég hugsaði
um að svipta mig lífi, ég vildi ekki lifa lengur,“ sagði Cara.
„Ég hélt að ég væri algjörlega ein, en á sama tíma vissi ég
hversu heppin ég væri og að ég ætti yndislega fjölskyldu
og vini, en það skipti ekki máli. Ég vildi bara að heimurinn
myndi gleypa mig.“ Cara greindi svo frá reynslu sinni af
þunglyndinu og þeirri meðferð sem hefur hjálpað henni að
takast á við sjúkdóminn. Hún sagði meðal annars að jóga og
það að læra að segja nei hafi verið hluti af hennar bataferli.
Þunglyndi og aðrir andlegir sjúkdómar hafa verið mikið í
umræðunni í íslensku samfélagi þessa dagana og hefur um-
ræðuhópurinn Geðsjúk verið stofnaður á Facebook. Hópur-
inn heldur utan um verkefnið „Geðsjúk: Ég er ekki tabú“
þar sem leitast er eftir að vekja athygli á geðsjúkdómum og
uppræta þau tabú sem snúa að slíkum sjúkdómum. Kassam-
erkið #égerekkitabú heldur utan um umræðuna á Twitter.
Þar hafa fjölmargir notendur stigið fram og opnað sig um
geðsjúkdóma sína. Þó svo að Cara sjálf hafi ekki nýtt sér
kassamerkið má með sanni segja að hún sé ekki tabú, hún
vill opna umræðuna um geðsjúkdóma og takast á við þá.
Cara Delevingne
er ekki tabú
Cara Delevingne greindi frá glímu sinni við þunglyndi og
sjálfsvígshugsanir í viðtali á hjá Women in the World á
dögunum. Mynd/Getty
Tyra Banks ásamt Miss J, gönguþjálfara ANTM, en saman hafa þau leitað að
verðandi ofurfyrirsætum í 12 ár. Mynd/Getty
Leitinni að næstu
ofurfyrirsætu
Bandaríkjanna lýkur
Raun veru leikaþátt ur inn Amer-
icas Next Top Model hætt ir göngu
sinni eft ir 22 þátt araðir og 12 ár í
sjón varpi. Þættirnir eru byggðir á
hugmynd of ur fyr ir sæt unnar Tyru
Banks og greindi hún frá því í vik-
unni að ekki yrðu fleiri þátt araðir af
ANTM fram leidd ar.
Þættirnir hafa notið gríðarlegra
vin sælda í gegn um árin og hafa verið
sýndir í yfir 170 löndum og hafa 32
lönd gert sína útgáfu af þættinum.
Áhorfið á bandarísku útgáfuna hefur
þó fallið hratt eftir því sem þáttaröð-
unum fjölgar. Þegar best lét horfðu
að jafnaði 6,13 millj ón ir manna á
þátt inn í viku hverri. Nú fylgj ast þó
ekki nema 1,56 millj ón ir manna með
bar áttu kepp enda í að verða næsta
of ur fyr ir sæta Banda ríkj anna. Tyra
hefur prófað ýmis konar fyrirkomu-
lag í þáttunum. Þannig var ein þátta-
röðin eingöngu skipuð smávöxnum
fyrirsætum og önnur fyrirsætum í
yfirstærð (plus size). Í 20. þáttaröð-
inni var svo karlkyns fyrirsætum
leyft að taka þátt í fyrsta sinn. Hvort
sú breyting hafi haft áhrif á áhorf-
stölur er ekki gott að segja. Hins
vegar er ljóst að þáttaröðin sem nú
er í sýningu er sú síðasta og verður
lokaþátturinn sýndur í des em ber.
Tyra tilkynnti um endalok þáttanna
á Twitter og Instagram og þakkaði
hún aðdáendum fyrir dyggan stuðn-
ing, en nú tel ur hún tíma bært að
hætta. Tyra mun hins vegar halda
áfram í sjónvarpinu, en mun fara úr
raunveruleikaþáttum í lífsstílsþætti,
en hún mun stjórna lífsstíls- og
spjallþættinum Fablife á sjónvarps-
stöðinni ABC.