Fréttatíminn - 16.10.2015, Blaðsíða 68
68 matur & vín Helgin 16.-18. október 2015
Vín vikunnar
S unnarlega í Frakklandi, nánar tiltekið í Province rétt norðan við Marseilles, er að
finna vínsvæðið Côtes du Rhône.
Grenache er aðal rauðvínsþrúga
svæðisins en Syrah og fleiri er einn-
ig þar að finna. Eins og með mörg
önnur vínsvæði Frakklands getur
verið ansi strembið að ramba á góð
vín því héruðin eru stór, vínhúsin
mörg og gæðin oft misjöfn. Það er
því fagnaðarefni þegar góð frönsk
vín rata heim í ÁTVR og þessi vín
frá framleiðandanum Domaine
Jaume teljast til þeirra. Þetta er lítill
framleiðandi en hefur verið að í yfir
hundrað ár og er greinilega búinn
að ná ágætis tökum á vínyrkjunni.
Gott ef jólavínið í ár er ekki
bara fundið. Dökkt yfirbragð
án þess að vera mjög ágengt
en hefur þó frábært jafn-
vægi sem og langt og gott
eftirbragð. Þetta er svona
sparivín sem gott er að
njóta með mat við sérstök
tilefni eins og léttri villibráð
eða langelduðum lamba-
skönkum. Það er samt nógu
milt til að njóta sín bara vel
eitt og sér.
Þrjú til að taka eftir
Þetta er léttfetinn í
hópnum. Ferskur rauður
ávöxtur, í góðu jafnvægi
og gott eftirbragð. Gengur
alveg með kjöti, sérstaklega
ef það er ekki mjög þung og
mikil sósa með en eflaust
best með léttari réttum,
jafnvel smá krydduðum eða
maríneruðum, ljósu kjöti og
þess háttar. Þetta er gott
vín og heilmikið í flöskunni
fyrir peningana.
Öðruvísi en engu síðra vín en
litli bróðir. Ávöxturinn er ekki
eins áberandi þó vissulega
sé þetta berjaríkt vín og það
er meiri fylling og kryddaðir
tónar. Það er milt og mjög
ljúft. Myndi sóma sér vel
með sunnudagslambinu eða
maríneraðri svínalund.
Domaine Jaume Vinsobres Reference
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Syrah
Uppruni: Côtes du Rhône, Frakkland 2012
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: 4.490 kr. (750 ml)
Domaine Jaume Vinsobres Altitude 420
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Grenache
Uppruni: Côtes du Rhône, Frakkland 2012
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum: 3.990 kr. (750 ml)
Domaine Jaume Côtes du Rhône
Gerð: Rauðvín.
Þrúgur: Grenache
Uppruni: Côtes du Rhône, Frakkland 2014
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum: 2.990 kr. (750 ml)
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
í sjónvarpi
Heilsutíminn er í Fréttatímanum sem kemur út á föstu-
dögum. Sjónvarpsþátturinn er frumsýndur á mánudags-
kvöldum klukkan 20 og endursýndur nokkrum sinnum í
vikunni.
Teitur Guðmundsson
læknir er með fasta pistla.
Umsjónarmaður Heilsutímans
er Gígja Þórðardóttir
sjúkraþjálfari.
Sjónvarpsþátturinn Heilsutíminn
er sýndur á mánudagskvöldum
kl. 20 á Hringbraut í vetur.
magnús scheving
Ási á Slippbarnum
Þrjár kynslóðir
af kokteilum
Þ egar kemur að kokteilum kemst enginn með tærnar þar sem Ási á Slippbarnum
hefur hælana. Ási hefur um árabil
unnið á börum hér á landi og í Kaup-
mannahöfn og getur bæði reitt fram
sígilda kokteila sem og það nýjasta
nýtt. Við fengum hann til að sökkva
sér í sagnfræðirannsóknir og grafa
upp einn sígildan kokteil, nútíma
útgáfu af honum og svo býr hann
til eigin útgáfu af nútímaútgáfunni.
Tommý s
Þessi uppskrift kemur frá
manni sem heitir Julio Bermejo
og á stað sem heitir Tommy’s
Mexican Bar í San Fransisco.
Hann skipti Triple Sec út fyrir
Agave síróp og sagan segir að
þessi drykkur hafi fyrst verið
borinn fram frosinn. Honum
tókst að gera margarituna afar
vinsæla. Mér finnst þessi snún-
ingur á margaritunni vera alger
snilld. Þetta er heiðarlegur og
flottur drykkur og þess eðlis að
það er erfitt að klúðra honum.
Þegar ég vil eitthvað svalandi
og gott fæ ég mér Tommy’s.
60 ml Corralejo Reposado
tekíla
30 ml lime
15 ml agave síróp
Aðferð: Hrist og síað yfir
klaka. Skreytt með lime-
sneiðum.
Margarita
Það eru til margar sögur
um það hvernig marga-
ritan varð til en eins og
með flest annað eru
það mestallt lygasögur.
Fyrsta sagan er frá
1938 en svipaðir drykkir
voru í raun gerðir upp
úr fyrra stríði, það
hefur bara einhver skipt
brandí út fyrir tekíla.
Þetta er semsagt mjög
einfaldur sour sem við
sætum með Triple Sec
appelsínulíkjör. Ótrú-
lega ferskur og flottur
drykkur.
45 ml Corralejo Blanco
Tequila
30 ml Triple sec frá
Pierre Ferrand
25 ml ferskur lime safi
Aðferð: Glas kælt með
klaka. Hrist með ís en
hér fínsía ég ekki svo
klakabitar fylgi með
en þeir gera drykkinn
ferskari. Salt á glas-
barminn og skreytt með
lime.
Pippi Gonzales
Sagan segir að Lína lang-
sokkur, eða Pippi Långstrump,
hafi gifst manni að nafni
Gonzales og flust til Mexíkó en
hann hafi smitað hana af ein-
hverjum andskotanum þannig
að freknurnar urðu grænar.
Það fór auðvitað allt í háaloft
hjá þeim. Ég hugsaði þennan
drykk eins og smörrebröd,
hann er pínulítið matartengd-
ur. Þarna nota ég dill infusaða
ólífuolíu og dill ákavíti.
0,7 cm gúrka (kramin í botn á
hristara)
30 ml Aalborg dill ákavíti
30 ml Ocho Blanco „La Magu-
eyra“ tekíla
30 ml sítróna
25 ml sykursíróp
Aðferð: Hrist og double síað.
Dill ólífuuolía á topp.
Lj
ós
m
yn
di
r/
Te
it
ur