Fréttatíminn - 16.10.2015, Qupperneq 14
F
Fjöldi erlendra ferðamanna sem sótti Ísland
heim fyrstu níu mánuði ársins var yfir millj-
ón samanborið við 788 þúsund á sama tíma
í fyrra – sem þá var metár eins og árin þar á
undan. Reikna má með því að fjöldi erlendra
ferðamanna sem fer um Leifsstöð á árinu
verði um 1250 þúsund. Í nýliðnum septem-
ber fóru um 123 þúsund erlendir ferðamenn
frá landinu, rúmlega 39% fleiri en í septem-
ber í fyrra.
Tölur um ferðamannafjöld-
ann gefa til kynna að metaf-
gangur af þjónustujöfnuði á
þriðja ársfjórðungi sé í upp-
siglingu, eins og greiningar-
deild Íslandsbanka bendir á,
en þróunin hefur átt mikinn
þátt í miklu gjaldeyrisinn-
f læði að undanförnu. Það
hefur gert Seðlabankanum
kleift að bæta gjaldeyrisforð-
ann og gengi krónunnar hefur
styrkst.
Ferðaþjónustan hefur dregið vagninn í
ár líkt og undanfarin ár. Atvinnuvegurinn
er sá stærsti hérlendis og hefur ekki síst
staðið undir þeim efnahagsbata sem hér
hefur orðið. Fyrirtæki í greininni keppa við
að halda í við þróunina. Fjöldi flugfélaga
flytur fólk til og frá landinu. Hótel rísa og
gististöðum fjölgar um allt land. Spreng-
ing hefur orðið í útleigu íbúða í einkaeign.
Bílaleigur og hópferðafyrirtæki hafa fjölgað
farartækjum og endurnýjað. Þá er aukin af-
þreying í boði.
Stjórnvöld hafa hins vegar verið furðu sein
að bregðast við þróuninni þegar kemur að
stefnumörkun þar sem hugað er að heildar-
sýn, stýringu, náttúruvernd samhliða nýt-
ingu, skattlagningu eða annars konar gjald-
töku og bættri dreifingu ferðamanna um
landið en fyrir liggur að ásetnustu staðirnir
þola vart aukinn fjölda, að óbreyttu.
Bót var að fjárveitingu stjórnvalda fyrr
á árinu til helstu ferðamannastaða en áður
hafði dýrmætur tími farið til spillis þegar ein-
blínt var á andvana fæddan náttúrupassann.
Í síðustu viku var hins vegar frá því greint
að sett yrði á laggirnar Stjórnstöð ferðamála
sem starfa mun til ársins 2020. Sú ákvörðun
var tekin í framhaldi af vinnu stýri- og verk-
efnahóps þar sem unnið var að gagnaöflun
og staðan greind. Mikið er undir því áætlað
er að gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu muni
fara úr 350 milljörðum króna í ár í 620 millj-
arða árið 2020 og yfir 1.000 milljarða árið
2030. Vinna stýrihópsins sýndi fram á veik-
ar undirstöður fyrir mótun framtíðarstefnu
í ferðaþjónustunni. Samanburðarhæf gögn
vantar, ábyrgð er víða óljós, lagaumgerðin
er flókin og skipulag greinarinnar óskýrt.
Vonir standa til þess að hin nýja stjórn-
stöð nýti næstu fimm ár til þess að ráðast í
bráðnauðsynleg verkefni. Fram hefur komið
að hlutverk hennar sé að samhæfa aðgerðir
og útfæra leiðir í samvinnu við stjórnsýslu,
sveitarfélög, stoðkerfi greinarinnar vítt og
breitt um landið, greinina sjálfa og aðra hags-
munaaðila.
Athygli vekur að sönnu nokkuð sam-
hljóða gagnrýni frá Össuri Skarphéðins-
syni, alþingismanni og fyrrum ráðherra,
og Vigdísi Hauksdóttur, formanni f jár-
laganefndar. Össur gagnrýndi það að kom-
ið væri á laggirnar nýrri stofnun við hlið
Ferðamálastofu, að tvær ríkisstofnanir
væru að sinna sama verkefni. Öll grund-
vallaratriðin, m.a. um gjaldtöku fyrir að-
gengi, væru jafn óleyst og áður. Vigdís tók
undir orð Össurar um að þetta „batterí“ ætti
þegar að vera til staðar í landinu en ef það
væri ekki brúklegt eða væri ekki að skila
þeim árangri sem stjórnvöld vilja hefði fyrst
átt að athuga með það hvort það hefði verið
hægt að laga með einhverjum hætti. Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála,
svarar þessari gagnrýni með því að benda
á að Stjórnstöð ferðamála sé samráðsvett-
vangur en ekki stofnun.
Hvernig sem á það er litið er mest um vert
að skikk komist sem fyrst á mál þessarar
ört vaxandi atvinnugreinar sem skiptir ein-
staklinga, fyrirtæki í greininni og þjóðarbú-
ið í heild svo miklu, að staðið verði við þau
markmið sem lagt er upp með, að tryggja já-
kvæða upplifun ferðamanna, aukna dreifingu
þeirra um landið, arðsemi og jákvætt viðhorf
til greinarinnar.
Stjórnstöð ferðamála
Bráðaþörf skipulagningar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
PARÍS flug f rá
12.999 kr.
AMSTERDAM flug f rá
9.999 kr.
DUBLIN flug f rá
12.999 kr.
BOSTON flug f rá
16.999 kr.
BERLÍN flug f rá
9.999 kr.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
ÚLLEN,
DÚLLEN
DOFF!
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
nóvember 2015 - mars 2016
nóvember 2015 - mars 2016
desember 2015 - mars 2016
nóvember 2015 - mars 2016
janúar - mars 2016
*999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið
nema annað sé tekið fram.
*
*
*
*
*
14 viðhorf Helgin 16.-18. október 2015