Fréttatíminn - 16.10.2015, Side 24
Hefur
aldrei þótt
hallærislegt
að yrkjast á
Bára Grímsdóttir ólst upp við að hlusta á ömmu sína og afa og
foreldra sína setja saman vísur og kveða. Sjálf fór hún snemma
að kveða og tónlistin hefur alltaf átt hug hennar allan, líka
þegar hún var pönkari með röndótt hár. Í dag er Bára tónskáld,
söngkona, kórstjóri og tónlistarkennari. Og síðast en ekki síst
þá er hún formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar.
É g var umkringd kveðskap frá því ég fæddist,“ segir Bára Grímsdóttir, formaður Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar, en hún bjó
fyrstu ár ævinnar í Grímstungu í
Vatnsdal. „Afi, pabbi og bræður hans
og líka amma voru oft að kveða. Svo
það hefur verið kveðskapur í kring-
um mig frá frumbernsku. Þegar við
svo fluttum í bæinn þá voru pabbi og
bróðir hans oft fengnir til að kveða og
æfðu þá heima hjá okkur. Síðar gengu
foreldrar mínir í Iðunni. Ég man eftir
því sem lítil stelpa að fara með þeim
á fundi með yngri systkinum mínum
og eftir sumarferðunum sem voru
farnar árlega. Mér fannst alltaf ofsa-
lega gaman að heyra fólkið búa til
vísur og kveða.“
Fannst kveðskapurinn aldrei
hallærislegur
Bára segist snemma hafa farið að
hnoða saman eigin vísum. „Ég
setti eitthvað saman en var aldrei
neitt sérstaklega góð í því, ég
var alltaf betri í að læra lögin. Ég
hef í gegnum tíðina kveðið mikið
en þá eru það oftast vísur eftir
aðra. Pabbi var aftur á móti rosa-
lega góður í að setja saman vísur
og var alveg svakalega snöggur
að því. Ég man þegar vinir mínir
voru að koma í heimsókn þá fann
pabbi alltaf eitthvað fyndið til að
yrkja um. Mamma var líka farin
að setja saman vísur þó hún hafi
verið dálítið lengur að því en hann.
Svo voru þau stundum að yrkjast
á. Kveðskapurinn hefur alltaf skipt
mig miklu máli og ég fór aldrei í
gegnum tímabil þar sem mér þótti
þetta hallærislegt. Ég fór í gegnum
ýmis tímabil og var meðal annars
pönkari með svart og hvítt hár og
hlustaði á allskyns rokk og popp
en á sama tíma var ég að fara nið-
ur í útvarp með mömmu að kveða.
Reyndar höfðu vinir mínir ekkert
við þetta að athuga. Mér hefði líka
verið alveg skítsama þó einhverjum
öðrum þætti það ekki nógu flott.
Ég missti aldrei áhugann.“
Stofnaði kór í Vestmanna-
eyjum
„Það hefur verið dálítið flandur á
mér,“ segir Bára sem hóf tónlistar-
nám sitt sjö ára, fór svo í tónmennta-
kennaranám og tónsmíðanám og
flutti svo til Hollands þar sem hún
nam tónsmíðar í fimm ár. Í millitíð-
inni flutti Bára til Noregs þar sem
hún kenndi tónlist við lýðháskóla
en eftir heimkomu settist hún að í
Vestmannaeyjum í átta ár. „Í Eyjum
var ég tónmenntakennari og kenndi
líka í tónlistarskólanum og svo setti
ég auglýsingu í bæjarblaðið því mig
langaði endilega til að stofna kór og
það mættu 50 manns á fyrstu æf-
inguna. Þar með var Samkór Vest-
mannaeyja endurstofnaður sem ég
svo sá um öll árin. Kórinn frum-
flutti meðal annars nokkur verk
eftir mig. Þegar ég svo skrapp til
Reykjavíkur mætti ég stundum á
fundi hjá Iðunni, einu sinni með
yngsta son minn sem var þá hvít-
voðunugur og hann fékk að laun-
um margar vísur,“ segir Bára sem
lagði svo aftur land undir fót og fór
með eiginmanni sínum, Chris Fost-
er sem einnig er tónlistarmaður og
hennar helsti samstarfsmaður, til
Englands. „Svo komum við aftur til
Íslands árið 2004 og ég fór að mæta
reglulega á fundi hjá Iðunni. Stuttu
síðar varð ég varaformaður félags-
ins og núna í vor var ég svo kjörin
formaður.“
Kvæðunum oft líkt við arab-
íska tónlist
Bára er með mörg járn í eldinum
því auk þess að sinna formennsku
Iðunnar stjórnar hún kór, kennir
og semur tónlist. Í dag er hún að
leggja lokahönd á nýtt íslenskt tón-
verk fyrir börn, Ævintýrið af Sölva
og Oddi kóngi, sem verður gefið út
í myndskreyttri bók með diski og
verður frumflutt á Myrkum músík-
dögum. Hún segir kvæða- og rímna-
lögin klárlega hafa áhrif á hennar
eigin tónsmíðar. „Ég nota til að
mynda oft skrítnar tóntegundir,
svona eins og eru í kvæðalögunum
og eins hef ég verið dugleg við að
nota fimmundir og flókinn ritma í
mínum tónsmíðum. Fólk heldur oft
að ég sé að vitna í balkantónlist en
þessi hluti minna tónsmíða er beint
frá íslensku kvæðunum. Íslensku
kvæðalögin eru dálítið sér á báti þó
það sé hægt að finna einhverskonar
skyldleika í þeim við aðra tónlist.
Þetta eru oftast mjög stutt lög en
stíllinn í þeim er oft sagður minna
á arabískan söng vegna flutnings-
mátans og tóntegundanna.“
„Það er nú bara eins á þessu sviði
og öðrum að karlarnir hafa haft
sig meira í frammi,“ segir Bára að-
spurð um það hvers vegna karlar
kveði sér oftar hljóðs en konur. „Það
heyrist ekki jafn mikið í konunum
þó það hafi alltaf verið til mjög góð-
ar kvæðakonur. Það eru mjög góð-
ar kvæðakonur í félaginu og þeim
er að fjölga. Svo vil ég nefna flottar
kvæðakonur sem búa úti á landi,
m.a. Ásu Ketilsdóttur úr Aðaldal,
og systurnar Kristínu og Önnu Sig-
tryggsdætur á Akureyri. Konurnar
komast ekki jafn auðveldlega í kast-
ljósið og karlarnir. Þeir eru kannski
duglegri við að koma sér áfram en
það virðist líka vera þannig þegar
fólk biður um einhvern til að kveða
þá er frekar leitað í karlana.“
Mikið af rappinu flott
Bára og eiginmaður hennar Chris
hafa verið með námskeið í Listahá-
skólanum sem hafa verið vel sótt af
bæði ungum tónskáldum og öðru
listafólki. Hún segist ekki hafa
áhyggjur af því að kveðskapurinn
fjari út en það þurfi samt að vinna
í því að halda í honum lífinu. „Mér
finnst áhuginn vera aðeins að vakna
og það er mikið til Steindóri And-
ersen að þakka. Þegar hann fór
að kveða með Sigurrós vakti það
ekki bara athygli hér á landi heldur
líka erlendis og síðan á hefur allt-
af smám saman vaxið áhuginn á
þessu.“
„Mér finnst mikilvægt að fólk
semji á íslensku. Það er oftast lé-
leg afsökun þegar fólk segir að
það liggi betur fyrir því að semja á
ensku. Ég á nú enskan mann sem
finnst oft ekki mikið um þessa texta
koma,“ segir Bára og hlær. „En
það er nú líka sem betur fer fólk
að semja góða texta á íslensku. Jú,
margt af rappinu er fínt, þó ég sé
nú ekki alltaf hrifin af orðaforðan-
um. Annars finnst mér hún Ragna
í Cell7 alveg frábær, þó hún semji
og syngi á ensku. En við þurfum að
vinna í því að fá fleiri kvæðamenn
og það þarf líka stanslaust að halda
því við að fólk geri vísur og að það
sé rétt gert, svo hefðin glatist ekki.
Það eru að sjálfsögðu allir sem hafa
einhvern áhuga velkomnir á fundi
til okkar.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Bára Grímsdótt-
ir, formaður
Kvæðamanna-
félagsins Ið-
unnar, vill vinna
í því að fá fleiri
kvæðamenn svo
hefðin glatist
ekki. Hún er
hrifin af ís-
lenska rappinu
og sérstak-
lega af Rögnu
í Cell7, sem sé
ein af fáum
Íslendingum
sem kunni að
semja á ensku.
Myndir/Hari.
Kvæðamannafélagið, sem telur um 200 félaga, heldur reglulega kvæðakvöld í
Gerðubergi. Föstudaginn síðastliðinn var Steindór Andersen heiðraður fyrir störf
sín í þágu kveðskaparlistarinar.
24 viðtal Helgin 16.-18. október 2015
ILMANDI KAFFIPÚÐAR
FRÁ TE & KAFFI
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984
Te og Kaffi hafa nú framleitt þrjár vinsælustu
kaffitegundir sínar sem kaffipúða. Sérvaldar
kaffibaunir sem halda bragðgæðum
og ilmi alla leið í bollann þinn,
Java Mokka, Espresso Roma og
French Roast.
NÝ ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA