Fréttatíminn - 16.10.2015, Side 32
KOMDU OG NJÓTTU MEÐ OKKUR!
Tapasbarinn er 15 ára og þér er boðið í afmælisveislu
mánudaginn 19. og þriðjudaginn 20. október
tapasbarinn – hinn eini sanni í 15 ár
10 vinsælustu tapasréttirnir 590 kr./stk.
• Marineraðar lambalundir með lakkríssósu
• Bleykja með hægelduðu papriku salsa
• Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
• Hvítlauksbakaðir humarhalar
• Marineðar kjúklingalundir með alioli
• Serrano með melónu og piparrót
• Grillaðar lambalundir Samfaina með myntusósu
• Spænsk eggjakaka með lauk og kartöflum
• Beikonvafin hörpuskel og döðlur með sætri chilli sósu
• Nautalund í Borgunion sveppasósu
... og allir fá ljúffenga og margrómaða súkkulaðiköku
Tapasbarsins í eftirrétt.
Codorníu Cava-glas 490 kr./stk.
Peroni, 330 ml 590 kr./stk.
Campo Viejo, léttvínsglas 690 kr./stk.
veitingar á afmælisverði
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 551 2344
AFMÆLISleikur
Í tilefni tímamótanna langar okkur
að gleðja heppna viðskiptavini.
Fylltu út þátttökuseðil á tapas.is
og þú gætir unnið veglega vinninga
t.d. ferð fyrir tvo til Tenerife á Spáni
í tólf daga - að verðmæti 455.582 kr.
Vinningar verða dregnir út
22. október 2015.
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík
Sími 551 2344 | www.tapas.is
RESTAURANT- BAR
Framtíðarkonan mun klæðast kjól
úr grasi og starfar neðansjávar
Sigurlaug Brynj-
ólfsdóttir er
nemandi í 9. bekk
í Valhúsaskóla á
Seltjarnarnesi.
Nemendur í textíl-
vali við skólann
fengu það verk-
efni að hanna
klæðnað sem
framtíðarkonan
mun klæðast eftir
100 ár. Hönnun
Sigurlaugar
var valin til að
prýða sýninguna
Taktur í 100 ár,
sem er hluti af
Menningarhátíð
Seltjarnarness
sem fram fer um
helgina. Sigurlaug
er þess fullviss
að eftir 100 ár
verði heimurinn
betri en í dag og
að náttúran verði
einkennandi í
klæðaburði.
M enningarhátíð Seltjarnarness var sett í gær, fimmtudag, í Gallerí Gróttu á bókasafni
Seltjarnarness. Þar hefur sýningin
Taktur í 100 ár verið sett upp, en
sýningin varpar ljósi á baráttusöngva
kvenna síðustu 100 árin og er sýningar-
stjórn í höndum Sigurlaugar Arnar-
dóttur kennara. „Við settum af stað
samstarf við skólann og fengum krakka
í textílvali til að teikna og hanna kjól
sem framtíðarkonan mun klæðast eftir
100 ár. Með hönnuninni létum við svo
fylgja hvað hún væri að gera, hvernig
hennar fjölskylduhagir eru og hver
væru hennar baráttumál,“ segir Sigur-
laug. Til urðu margar flottar hannanir
og var kjóll nöfnu hennar valinn.
Snjallkjóll í stað snjallsíma
„Ég fékk strax hugmynd að kjól sem
átti að vera látlaus og úr grasi. Mér
finnst eins og heimurinn eigi eftir að
verða jákvæðari og betri í framtíðinni,
og auðvitað á tæknin eftir að þróast,“
segir Sigurlaug. Framan á kjólnum er
því eins konar snjallstykki sem á að
geta sagt til um heilsufar þess sem
klæðist kjólnum. „Stykkið á að auð-
velda konunni lífið, segja til um heilsu-
far hennar og hvort hana vanti næringu
eða eitthvað slíkt,“ segir Sigurlaug.
Kjóllinn er einnig náttúrulegur og
sjálfbær. „Hugsunin er að dýr eigi að
geta borðað kjólinn þegar hann er ekki
lengur nothæfur eða þegar konan vill
ekki nota hann lengur. Kjóllinn er því
afar umhverfisvænn,“ segir Sigurlaug.
Hluti af verkefninu var að lýsa fram-
tíðarkonunni og sér Sigurlaug fyrir
sér að hún starfi neðansjávar við að
byggja nýja borg. „Ég hugsaði frekar
um náttúruna en geiminn eða eitthvað
slíkt.“ Kjóllinn var saumaður undir
handleiðslu Ástu Vilhjálmsdóttur,
textílkennara við skólann, og verk-
efnið var einnig unnið í samstarfi við
félagsstarf aldraðra á Seltjarnarnesi.
Spennt fyrir því að hanna og
sauma
Við framleiðslu kjólsins var ákveð-
ið að notast við hör, þar sem ekki
er hægt að sauma úr grasi, ennþá.
„Hörið er frekar líkt grasi og það
gekk vel að sauma kjólinn,“ segir
Sigurlaug. Hún hannaði einnig skó
sem passa við kjólinn. „Þeir eru
þykkbotna og með bandi yfir ristina
og hugmyndin er að skreyta það með
blómum.“
Hægt verður að berja kjólinn
augum í Gallerí Gróttu um helgina
og í dag, föstudag, verður Sigur-
laug sýningarstjóri með leiðsögn
um sýninguna. Sigurlaug, hönnuður
kjólsins, segir þetta verkefni hafa
verið afar skemmtilegt og öðruvísi.
„Textíl- og myndmenntastarfið í skól-
anum er mjög öflugt og mér finnst
mjög gaman í þeim tímum. Það getur
því vel verið að ég muni hanna og
sauma meira í framtíðinni,“ segir
hönnuðurinn Sigurlaug. Dagskrá
Menningarhátíðar Seltjarnarness
í heild sinni er hægt að nálgast á
heimasíðu bæjarins, seltjarnarnes.is.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Kjóll framtíðarkonunn-
ar er hluti af sýningunni
Taktur í 100 ár, sem
fer fram um helgina í
Gallerí Gróttu í tilefni
Menningarhátíðar
Seltjarnarness. Sigur-
laug Brynjúlfsdóttir,
nemandi í 9. bekk við
Valhúsaskóla, hannaði
kjólinn og sér hún fyrir
sér að framtíðarkonan
verði náttúrusinnuð
baráttukona sem
starfi neðansjávar. Hér
hún með nöfnu sinni,
Sigurlaugu Arnardóttur,
sýningarstjóra.
Ljósmynd/Hari
32 viðtal Helgin 16.-18. október 2015