Fréttatíminn - 16.10.2015, Side 46
46 bílar Helgin 16.-18. október 2015
ReynsluakstuR toyota land CRuiseR 150
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Draumur allra ferðalanga
Ný og betrumbætt útgáfa af Toyota Land Cruiser 150, hinum sívinsæla „Íslandsbíl“, er með vél
sem uppfyllir nýjustu mengunarstaðla og eyðir þar að auki 10% minna. Land Cruiser-inn er fyrir
löngu búinn að sanna sig sem einhver besti ferðabíll sögunnar enda vandfundinn þægilegri
ferðafélagi.
Þ að valtar engin yfir þig ef þú ert á Toyota Land Cruiser, svo mikið er víst. Þetta er
stór bíll, risastór. Þetta er ekki ald-
rifsbíll sem reynir að vera hvoru-
tveggja í senn, jeppi og bæjarbíll,
heldur er þetta alvöru torfærujeppi
sem kemst hvert á land sem er og
meira en það. Hann kemst yfir fjöll
og ár og örugglega jökla og spúandi
eldfjöll líka. Og eyðimerkur, enda
er Land Cruiserinn vinsælasti jepp-
inn í Sádi-Arabíu. Það er ekki skrít-
ið að Íslendingar hafi tekið ástfóstri
við þennan risajeppa, því hann get-
ur tekist á við allar mögulegar ís-
lenskar aðstæður og á sama tíma
er gott að keyra hann í borginni.
Þetta er ekki jeppi til að skjótast
um í stórborgum, en hann er fínn
í Reykjavík og kannski ekki skrítið
að hann sé kallaður Íslandsbíllinn,
meðal ákveðins hóps sem notar
bílaslangur.
Ný útgáfa eyðir 10% minna
Land Cruiser-inn er sá bíll sem To-
yota hefur verið með hvað lengst í
framleiðslu, sleitulaust síðan 1951,
en það er helst að frétta að endur-
bætt útgáfa sem nú er hægt að
nálgast á Íslandi er með 2,8 l vél
sem uppfyllir nýja mengunarstað-
alinn, Euro 6. Þessa endurbætta út-
gáfa eyðir auk þess 10% minna og er
með 6 þrepa sjálfskiptingu. Bíllinn
er um sekúndu lengur í 100 km/
klst en eldri útgáfan en á móti kem-
ur að nýja vélin gefur meira tog en
sú gamla. Hönnuðir bjóða ekki upp
á neinar útlitsbreytingar að þessu
sinni svo bíllinn heldur sínu ágæta
útliti.
Gott útsýni úr öllum sætum
Þar sem bíllinn er stór er hann vita-
skuld líka þungur en það er samt
ekkert sem íþyngir við keyrslu
þessarar lúxuskerru. Hann er
mjúkur og einstaklega þægilegur
og hreinlega hrópar á að farið sé
með hann út fyrir borgarmörkin í
ferðalag um fjöll og firnindi. Það er
óhætt að segja að þægilegri ferða-
bíll sé vandfundinn. Hann er ekki
bara þægilegur í upphituðum raf-
stýrðum fjöldastillingar leðursæt-
unum þar sem útsýnið er með besta
móti heldur er hann alveg jafn þægi-
legur og með alveg jafn gott útsýni
aftur í, sem er hreint ekki gefið. Far-
angursrýmið er jafn stórt og bíllinn
gefur til kynna utan frá og er auk
þess þægilega aðgengilegt að innan
jafnt sem utan og kallar hreinlega á
að vera fyllt af útilegudóti áður en
haldið er á vit ævintýranna. Þessi
bíll hlýtur að vera draumur allra
ævintýraþyrstra ferðalanga. -hh
Land Cruiserinn
býður upp á ýmsar
góðar öryggis-
varnir sem staðal-
búnað. DAC-kerfið
sem stjórnar hraða
niður brekkur,
stöðugleikastýr-
ingu, blindsvæð-
askynjara, við-
vörunarkerfi við
umferð að aftan
og 7 loftpúða.
toyota land
CRuiseR 150
Verð:
frá 8.820.000
Eyðsla:
frá 7,4 l/100
Afl:
upp í 281 din hö
CO2:
frá 192 g/km
Svipaðir bílar:
Range Rover
Land Rover
Discovery
Jeep Wrangler
Mitsubishi Pajero
Nissan Patrol
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Fyrir baðherbergið
Burstað stál og króm
3.190,-
3.790,-
1.390,-
3.190,-
1.590,-
1.490,-
2.690,-
Gæðavara
!
Gott úrval
!
1.990,-
2.590,-
1.590,-
2.990,-
5 lítrar
margar
stærðir og
gerðir