Fréttatíminn - 16.10.2015, Page 50
B oðið er upp á ferðir frá Húsa-felli í Borgarfirðinum þar sem farið verður í breytta
jöklatrukka. Trukkarnir eru fyrr-
verandi NATO bílar sem hefur verið
breytt í ofvaxnar jöklarútur. Ekið
er frá Húsafelli og í átt að hálendi
Íslands. Keyrt er nánast upp á topp
Langjökuls og að ísgöngunum sem
eru í um 1250 metra hæð og á fal-
legum degi er útsýnið magnað. Við
komuna að gangamunnanum fær
hópurinn mannbrodda áður en hald-
ið er af stað inn í göngin. Farið er í
skoðunarferð með leiðsögumanni
í litlum hópum um göngin, sem
ná um 200 metra inn í jökulinn og
40 metra undir yfirborði hans, og
fræðst um leyndardóma jökla og íss.
Svalasti veislusalur landsins
Göngin eru um 500 metra löng og
eru þau lengst sinnar tegundar í
heiminum. Göngin voru fjögur ár í
undirbúningi og tóku framkvæmd-
irnar alls 14 mánuði, en göngin voru
opnuð í júní fyrr á þessu ári. Göngin
eru fallega lýst að innan og í ferð-
inni um göngin er meðal annars
fræðst um hvernig jöklarnir verða
til og hegða sér, jöklabúskap sein-
ustu áratuga og farið er yfir spár
vísindamanna næstu áratuga. Einn-
ig eru ýmis áhugaverð rými í göng-
unum skoðuð og loks er farið að 40
metra djúpri og nokkuð hundruð
metra langri jökulsprungu. Í ferð-
inni er mögulegt að bjóða upp á ljúf-
fengar veitingar í svalasta veislusal
landsins. Boðið eru upp á nokkra
matseðla sem framreiddir eru af
Hótel Húsafelli. Hægt er að velja á
milli mismunandi standandi pinna
og tapasrétta og gourmet samloka,
allt eftir höfði hvers hóps.
Borgarfjörður er sannkölluð
perla
Í Húsafelli, sem Íslendingum er
löngu kunnugt, er nóg af fallegum
gönguleiðum um þessa perlu Borg-
arfjarðar. Þá opnaði Hótel Húsafell
eitt glæsilegasta hótel landsins nú
í sumar. Hótelið er 36 herbergja í
hjarta skógarins í Húsafelli, með út-
sýni yfir dalinn, fjöllin og jöklana í
kring. Þar gefst hópum tækifæri að
fara í hádegis- eða kvöldverð sem
kokkar hótelsins töfra fram. Veit-
ingastaður hótelsins býður upp á
norræna matargerð með alþjóðleg-
um áhrifum og eldað er úr ferskum
hráefnum úr héraði. Í vetur býður
hótelið upp á spennandi jólamat-
seðil sem vert er að skoða nánar.
Borgarfjörðurinn er fullur af sögu,
jarðhita og náttúruundrum. Það er
því hægt að skipuleggja skemmti-
legan dag með hópnum. Aðrir staðir
sem vert er að skoða á leiðinni til
Into the Glacier eru meðal annars
Hraunfossar, Deildartunguhver,
Reykholt Snorra Sturlusonar, hell-
arnir Víðgelmir og Surtshellir, og
brugghúsið Steðji þar sem hægt er
að fá kynningu um brugggerð og
smakka afraksturinn.
Öðruvísi fyrirtækjaferðir
Into the Glacier er með almennar
brottfarir frá Hótel Húsafelli klukk-
an 12.30 fjórum sinnum í viku í vet-
Einstök upplifun á Langjökli
Into the Glacier býður hópum og starfsmannafélögum upp
á ógleymanlega upplifun inn í hjarta Langjökuls. Lagt er af
stað frá Hótel Húsafelli og í ferðinni er boðið upp á ljúffengar
veitingar í svalasta veislusal landsins. Ferð í ísgöngin er tilvalin
fyrir vinahópa og fyrirtæki og býður Into the Glacier upp á
ferðir sérsniðnar að þörfum hvers hóps.
ur, mánudaga, fimmtudaga, föstu-
daga og laugardaga. Hópar eru hins
vegar hjartanlega velkomnir alla
daga og á öðrum tímum í sérferðir,
í samráði við Into the Glacier. Boðið
er upp á spennandi kost fyrir fyrir-
tækja- og vinahópa sem vilja upplifa
öðruvísi dag og hrista hópinn sam-
an. Hægt er að skipuleggja stuttar
og lengri heilsdagsferðir í ísgöngin
með viðkomustöðum fyrir hópa. Við
bendum einnig á þann möguleika að
njóta léttra veitinga í ísgöngunum
eða njóta gómsætra rétta á jólamat-
seðli Hótel Húsafells í vetur. Fyrir
nánari upplýsingar og tilboð í ferðir
er hægt að hafa samband í gegnum
tölvupóst: info@intotheglacier.is
Unnið í samstarfi við
Into the Glacier
Ísgöngin í Langjökli voru opnuð í sumar en þau eru lengst sinnar tegundar í heiminum. Mynd/Skarphéðinn Þráinsson
Mögulegt er að gæða sér á dýrindis
veitingum í ísgöngunum og því er hægt
að fullyrða að ísgöngin séu svalasti
veislusalur landsins.
Hótel Húsafell er glæsilegt hótel í hjarta skógarins í Húsafelli, með útsýni yfir
dalinn, fjöllin og jöklana í kring.
50 jólahlaðborð Helgin 16.-18. október 2015