Fréttatíminn - 16.10.2015, Síða 60
Þ eir sem hafa upplifað andnauð af hvaða toga sem hún kann að orsak-ast vita að henni fylgir mikil vanlíðan
og varnarleysi. Frumþörf líkama okkar að
anda að sér súrefni og skila út koltvísýringi
er megin verkefni lungnanna sem tryggja
þannig loftskiptin. Það að anda er okkur
öllum lífsnauðsynlegt og þrátt fyrir að hver
fullorðinn einstaklingur hreyfi marga lítra
af lofti á hverri mínútu, þá tökum við ekk-
ert sérstaklega eftir því nema ef eitthvað
bjátar á.
Helsta einkenni þess að ekki er allt með
felldu er mæði, í fyrstu við áreynslu en svo
einnig í hvíld. Fjöldamargar orsakir geta leg-
ið henni til grundvallar og getur vandinn ver-
ið bæði tengdur lungunum beint og/eða ein-
hverjum öðrum líffærum, umhverfisþáttum,
eitrunum, sýkingum og lyfjum svo dæmi séu
tekin. Það getur því verið vandasamt verk
að átta sig á ástæðunum og þá ekki síst fyrir
sjúklinginn sem mögulega hefur þróað með
sér mæði og vanist henni á löngum tíma
þannig að hann kippir sér ekkert sérstaklega
upp við hana í raun. Þeir sem reykja eru iðu-
lega jafnt og þétt að skemma lungnavefinn
og einkennin koma hægt og rólega á meðan
þeir sem fá astmakast, hjartsláttaróreglu eða
skyndilegan blóðtappa í lungu finna fyrir
dramatískri breytingu
á örskömmum tíma.
Sjúkdómar eins og
blóðleysi, hjarta-
og æðasjúkdómar,
krabbamein ýmis
konar og langvinn
lungnateppa geta
lýst sér með skyndi-
legri mæði en einnig
slæðst aftan að einstak-
l ingnum. Sjúklingnum
finnst hann hafa minna út-
hald, vera slappari en venjulega
og svo framvegis. Þegar viðkom-
andi leitar læknis geta oftsinnis hefð-
bundnar rannsóknir verið eðlilegar líkt
og hjartalínurit, röntgenmynd af lungum
og venjubundnar rannsóknir í blóði. Til að
geta greint á milli þess hvað veldur getur
verið nauðsynlegt að fá ítarlegri rannsóknir
og hugsanlega fá álit fleiri en eins læknis.
Það getur verið gagnlegt að láta skoða sér-
staklega fyrir járni í blóði, skjaldkirtli, sýru-
stigi og nýrnastarfsemi. Mælst er til þess að
gera öndunarpróf (spirometry) sem getur
greint lungnasjúkdóm á frumstigi og einnig
hjálpað enn frekar við mismunagreiningu
á eðli vandans. Ítarlegri myndgreining þá
með sneiðmyndatækni er gagnleg í sumum
tilvikum og jafnvel enn frekar hjartaálags-
próf. Mögulega getur einnig þurft að fylgjast
með hjartslætti yfir lengri eða skemmri tíma
með sírita. Ljóst er að mæði er ekki eðlilegt
ástand og þarf að komast til botns í því hvers
vegna einstaklingurinn finnur fyrir henni.
Býsna auðvelt er að laga hana í sumum til-
vikum líkt og við járnskort eða í einfaldari
sýkingum, en það getur þurft flóknar aðgerð-
ir líkt og kransæðaþræðingu með víkkun hjá
þeim sem þjást af slíkum sjúkdómi. Megin
reglan er þó að vernda lungun frá eiturefnum
í umhverfinu, sérstaklega reykingum, leita
orsakanna og leysa þann vanda sem hægt
er svo þú þurfir ekki að standa á öndinni.
Stendurðu á öndinni?
Blóðleysi vegna járnskorts
PISTILL
Teitur
Guðmundsson
læknir
Lífsstílsbreytingar:
n Reykingafólk ætti strax að hætta að
reykja. Þær skemmdir sem hafa orðið
á lungnavefnum ganga ekki til baka en
hægt er að draga úr framvindu sjúk-
dómsins og stöðva frekari skemmdir
n Forðast ætti kringumstæður sem
erta eins og reyk og svælu.
n Leita samstundis meðferðar við
berkjusýkingum.
n Forðast óbeinar reykingar.
n Forðast skyndilegar hitabreytingar
og kalt og blautt veður.
n Öll hreyfing er af hinu góða hversu
lítil sem hún er og röskir göngutúrar
geta haldið lungnastarfseminni við og
jafnvel bætt hana.
n Meiri vatnsdrykkja. Ef drukkin eru
8-10 glös yfir daginn þynnist lungna-
slímið. Þetta skal þó gert í samráði við
lækni ef sjúklingur er t.d. með alvar-
legan hjartasjúkdóm samfara.
Unnið í samstarfi við Doktor.is.
Heilsufarslegur ávinningur af Því að Hætta að reykja
Þekkir þú einkenni hjartabilunar?
Hlutverk hjartans er að dæla blóði sem inniheldur súrefni og næringu til vefja líkamans.
Vinstri helmingur hjartans tekur við súrefnisríku blóði frá lungunum og dælir því um
líkamann. Hægri helmingur hjartans fær súrefnissnautt blóð frá vefjum líkamans og dælir
því til lungnanna þar sem það mettast súrefni á ný. Við hjartabilun uppfyllir dælugeta
hjartans ekki þarfir líkamans. Mikilvægt er að þekkja einkenni hjartabilunar:
Einkenni vinstri hjartabilunar:
Þegar vinstri helmingur hjartans starfar
ekki rétt myndast lungnabjúgur,
það er vökvasöfnun í
lungum. Það leiðir
til andþyngsla
(mæði) sem getur
takmarkað getu
viðkomandi til
athafna dag-
legs lífs. Við
væga hjartabilun
koma andþyngslin
einungis við líkamlega
áreynslu en við alvarlegri hjarta-
bilun geta komið fram andþyngsli
í hvíld. Stundum fylgir langvinnur og
þurr hósti.
Einkenni hægri hjartabilunar:
Þegar hægri helmingur hjartans starfar
ekki rétt getur myndast bjúg-
söfnun á fótum. Vegna aukins
þrýstings innan frá getur
myndast þurr húð á
sköflungum sem
hugsanlega leiðir
til stífluexems þ.e.
útbrot sem verða
að sárum og er
erfitt að græða. Hún
getur einnig valdið
vökvasöfnun í líffærum
kviðarhols, sérstaklega
lifrinni. Líffærin bólgna og
kviðurinn verður þaninn.
Vökvi getur safnast í kviðar-
holið, svokallaður skinuholsvökvi.
Hvað er til ráða?
n Borða fjölbreytt fæði.
n Hafa augun opin fyrir því hvort
járnþörfin verði meiri á vissum tímum.
Þetta á einkum við um konur.
n Veita einkennum athygli og leita
læknis.
n Konum með járnskort sem hyggja á
barneignir er bent á að tala við lækni.
Hverjar eru orsakir járnskorts?
Járnsnautt fæði: Sérstaklega hjá græn-
metisætum vegna þess að okkar aðal
járnuppspretta er kjöt. Ungbörn, einkum
þau sem eru fædd fyrir tímann, geta þjáðst
af járnskorti fyrst um sinn vegna þess að
járnbirgðirnar eru ekki nægar, en þær
byggjast upp á mánuðunum fyrir fæðingu.
Aukin þörf: Verður vegna aukinna frumu-
skiptinga, t.d. á meðgöngu og á vaxtar-
skeiði barna.
Minnkuð upptaka frá meltingarvegi:
Smáþarmasjúkdómar geta orsakað
minnkaða upptöku næringarefna frá
smáþörmum, t.d. glútenóþol (Coeliak
sjúkdómur) eða svæðisgarnabólga (Crohns
sjúkdómur)
Járnskortur af óþekktum uppruna:
Alltaf skal leita læknis þar sem orsökin
getur verið sár í meltingarvegi sem eiga
uppruna sinn í sepum eða krabbameini.
Langvinn lungnateppa er samheiti yfir ýmsa sjúk-
dóma, m.a. lungnaþembu, langvinna berkju-
bólgu og reykingalungu. Um er að ræða
bólguástand sem leiðir til ertingar í berkj-
unum, aukinnar slímmyndunar og stækk-
unar og eyðileggingar á lungnablöðrunum.
Lungnateppa einkennist af hósta og mæði
sem versnar smám saman með árunum.
Nauðsynlegasta „meðferðin“ er að hætta
að reykja. Lokastig sjúkdómsins er í raun
mjög kvalafullur dauðadagi þar sem sjúk-
lingurinn nánast kafnar hægt og rólega.
Langvinn lungnateppa
Hvað er til ráða?
Það er ekki hægt að lækna langvinna lungna-
teppu en til er meðferð sem léttir á einkennum
og minnkar líkur á fylgikvillum og felst hún í
lífsstílsbreytingum, lyfjameðferð og þjálfun.
Það er aldrei of seint að hætta. Lífslíkur þínar aukast við að hætta að reykja óháð því á hvaða aldri þú ert.
Hætti fyrir
20
mínútum
Ávinningur: Blóðþrýstingur og púls
lækka og blóðflæði batnar, sérstaklega
í höndum og fótum.
Hætti fyrir
3-9
mánuðum
Ávinningur: Öndunarvandamál minnka
(hósti, mæði og surg fyrir brjósti) og
lungnastarfsemi eykst um 5-10%.
Hætti fyrir
48
tímum
Ávinningur: Líkaminn er nú laus við nikó-
tín. Lyktar- og bragðskyn batnar.
Hætti fyrir
8
tímum
Ávinningur: Súrefnismettun í blóði
verður eðlileg og líkur á að fá hjartaáfall
minnka.
Hætti fyrir
72
tímum
Ávinningur: Öndun verður léttari og
úthald eykst.
Hætti fyrir
5
árum
Ávinningur: Hættan á hjartaáfalli hefur
minnkað um helming.
Hætti fyrir
24
tímum
Ávinningur: Kolsýrlingur (CO) í blóði
minnkar. Lungun byrja að hreinsa sig.
Hætti fyrir
2-12
vikum
Ávinningur: Blóðflæði um líkamann
eykst. Áreynsla og hreyfing verður auð-
veldari.
Hætti fyrir
10
árum
Ávinningur: Dregið hefur úr líkum á
lungnakrabbameini um helming. Líkur
á hjartaáfalli eru nú orðnar álíka og hjá
þeim sem aldrei hafa reykt.
Heimild: Embætti landlæknis.
60 heilsutíminn Helgin 16.-18. október 2015