Fréttatíminn - 16.10.2015, Side 80
„Skuggahliðin er prýðisgóð ungmennabók;
hér er spenna, forboðnar ástir, hryllingur
og alveg ágæt saga … mörgum unglingnum,
sem hefur gleypt í sig bækur á borð við
Afbrigði, Hungurleikana og alla vampíru-
bókaf lokkana, á eftir að líka lesturinn.“
ALÞ / MORGUNBLAÐIÐ UM SKUGGAHLIÐINA
„Spennumynd í skáldsagnaformi.“
THE TELEGRAPH UM SKUGGAHLIÐINA
Þ O R I R
Þ Ú ?
Sagan um ATAN ‚sem er afkvæmi
hvítanornar og svartanornar‘ heldur áfram ...
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Stjórnandi Philharmonia Orchestra er Jakub Hrusa.
Börn Áslaug Jónsdóttir stendur í stórræðum
Skrímslasýning í Gerðubergi
Mikið stendur til í menningarmið
stöðinni Gerðubergi því um næstu
helgi, laugardaginn 24. október
nánar til tekið, verður opnuð sýn
ingin Skrímslin bjóða heim. Um
er að ræða upplifunarsýningu úr
heimi hinna vinsælu barnabóka um
litla skrímslið og stóra skrímslið.
Aðgangur að sýningunni verður
ókeypis og mun hún standa til 24.
apríl á næsta ári.
Sýningarhönnun og stjórn er í
höndum Áslaugar Jónsdóttur og
Högna Sigurþórssonar en Áslaug
er einn höfunda bókaflokksins. Alls
hafa átta bækur um skrímsins verið
gefnar út og hafa þær verið þýddar á
fjölmörg tungumál.
Á sýningunni gefst allri fjölskyld
unni tækifæri til að ganga inn í heim
litla og stóra skrímslisins og upplifa
veröldina út frá þeirra sjónarhorni.
Meðal þess sem hægt er að gera er
að líta inn á heimili stóra skrímslis
ins eða heimsækja litla skrímslið,
fara um vinalegan skrímslaskóginn
eða spennandi skúmaskot skrímsla
þorpsins. Víðsvegar í sýningunni
er hægt leika sér að hætti skrímsl
anna: leika með kubba eða liti,
glíma við skrímslaskák og aðrar
þrautir. Svo þurfa skrímslin auð
vitað stöðuga hjálp gesta við að hafa
upp á skrímslakisanum.
tónleikar Philharmonia orchestra í hörPu
Sveitin sem lagði
fram hjálparhönd
Í ár eru liðin 30 ár frá því Philharmonia Orchestra, undir stjórn Vladimirs Ashkenazy, hélt
tónleika í Royal Festival Hall í London til þess að safna fyrir tónlistarhúsi Íslendinga. Meðal
gesta á tónleikunum árið 1985 voru frú Vigdís Finnbogadóttir, Karl prins af Wales og lafði
Díana og gaf hljómsveitin allt fé sem safnaðist til byggingar tónlistarhúss á Íslandi. Ári fyrr
hafði Philharmonia verið fyrsta breska sinfóníuhljómsveitin til að leika hérlendis, á tvennum
tónleikum í Laugardalshöll, en eftir ferðina þótti ljóst að þörf væri á góðu tónleikahúsi á Ís-
landi. Philharmonia Orchestra átti verulegan þátt í því að af byggingu Hörpu varð og því er
mikið fagnaðarefni að bjóða hljómsveitinni heim í Eldborgarsal Hörpu, nú á fimmta starfsári
hússins. Tónleikarnir verða tvennir. Sunnudaginn 18. október og mánudaginn 19. október. Með
sveitinni leikur píanóleikarinn Daniil Trifonov.
P hilharmonia Orchestra er með réttu kölluð þjóðarhljómsveit Breta. Hvar sem
sveitin kemur fram spilar hún af
sama metnaði og þegar hún leik
ur í Lundúnum eða einhverjum af
glæstustu tónlistarsölum heims.
Árið 2015 fagnar hljómsveitin
70 ára afmæli sínu. Hún heldur
yfir 160 tónleika á ári hverju,
auk þess að taka upp tónlist fyrir
kvikmyndir, tölvuleiki og geisla
diska. Philharmonia Orchestra
hefur fyrir löngu fest sig í sessi
sem ein fremsta hljómsveit heims
og frumkvöðull í bresku tón
listarlífi. Upptökur Philharmonia
Orchestra eru rómaðar og hljóm
sveitin leiðandi hvað varðar gæði
flutnings, nálgun við áheyrendur,
tónleikaferðir, tónlistarfræðslu og
notkun nýrra miðla til þess að ná
til áheyrenda um heim allan.
Hljómsveitin starfar með
mörgum af eftirsóttustu lista
mönnum heims og ber þar
fyrst að nefna stjórnandann og
listræna ráðgjafann EsaPekka
Salonen. Það á sinn þátt í því hví
líkan heiðurssess Philharmonia
Orchestra skipar í breskri tónlist.
Stjórnandi sveitarinnar er Jakub
Hrusa, sem fæddist í Tékkóslóv
akíu og í tímaritinu Gramophone
er hann sagður „jaðra við að vera
snillingur“. Hann hefur verið
tónlistarstjóri og aðalstjórnandi
PKG, Pragfílharmóníunnar, frá
2009. Hann er einnig aðalgesta
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Tókýóborgar (TMSO) og fram
lengdi nýverið samning sinn við
sveitina til ársins 2018.
Rússneski píanóleikarinn
Daniil Trifonov hefur náð undra
skjótum frama, þökk sé óviðjafn
anlegri tækni og næmri tjáningu.
Síðasta vetur lék hann í fyrsta
sinn með sinfóníuhljómsveitum í
Atlanta, Dallas, Seattle, Toronto
og Vín, auk þess að leika aftur
með New York Philharmonic,
Chicago Symphony, Cleveland
Orchestra, National Symphony
í Washington og Philharmonia
Orchestra í Lundúnum. Hann fór í
tónleikaferð um Japan með Mari
inskyhljómsveitinni, ferðaðist um
Bandaríkin með fiðluleikaranum
Gidon Kremer og hélt einleikstón
leika í rómuðum tónleikasölum
á borð við Royal Festival Hall í
Lundúnum, Opera City í Tókýó,
Théatre des Champs Elysées í
París og, þriðja árið í röð, í Carne
gie Hall í New York. Sem fyrr
ferðast Philharmonia vítt og breitt
um heiminn. Í sumar lék hún m.a
undir stjórn Vladimir Ashkenazy
á tónleikaferð um Kína, sem og í
Þýskalandi og Prag undir stjórn
Christophs Von Dohnányi, áður
en sveitin hélt til Íslands í fyrsta
sinn í 30 ár.
Á efnisskránni verða for
leikurinn úr The Bartered Bride
eftir Smetana. Píanókonsert nr.
2 eftir Sergei Rachmaninov og
Sinfónía nr. 7 eftir Dvorák. Tón
leikarnir hefjast klukkan 19.30
bæði kvöldin.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Áslaug Jónsdóttir setur upp sýningu um
litla og stóra skrímslið í Gerðubergi.
80 menning Helgin 16.-18. október 2015