Fréttatíminn - 16.10.2015, Síða 90
Tíska íslenskar húðvörur heilla
Kínverskir tískurisar
sækja Ísland heim
í sland er einstakt land að heim-sækja, Íslendingar eru opnir og vinalegir,“ segir Jing Li, ritstjóri
Marie Claire í Kína. „Ég hef ferðast
víða um heiminn en ég verð að viður-
kenna að ég vissi ekki að Ísland væri
svona mikið öðruvísi. Ég elska allt
við Ísland, fólkið og sérstaklega mat-
inn þar sem skammtarnir eru svo
stórir,“ segir Gang Dong, ritstjóri
Harper´s Baazar í Kína. Þau eru
öll sammála um fegurð landsins en
þau heilluðust einnig af því hversu
hljóðlátt er hér. „Ef ég væri að leita
að stað til að fela mig á yrði Ísland
fyrir valinu,“ segir Jing Li og hlær.
Einstakt að sjá hraun í
gróðurhúsi
Í Íslandsferðinni kynntu þau sér
starfsemi Bioeffect og heim-
sóttu meðal annars gróðurhúsið í
Grindavík þar sem EGF frumuvak-
inn er ræktaður í byggplöntum.
„Það var einstakt að sjá ræktun-
ina með eigin augum,“ segir Jing
Li. „Ég hef áður komið inn á ýms-
ar rannsóknarstofur í snyrtivöru-
heiminum en aldrei í gróðurhús,
þetta var því mjög sérstök upplif-
un, allt var svo hreint og tært. Það
kom einnig á óvart að ekki er not-
ast við mold við ræktun byggsins,
heldur hraun úr Heklu. Það heill-
aði mig einnig að öll framleiðslan
er innlend,“ segir Gang Dong.
Rík tískumeðvitund á Íslandi
Jing Li segir að tískumeðvitund
Kínverja hafi farið seint af stað
og hafi hingað til einkennst af
því að elta tískutrendin í Evrópu,
það sé hins vegar að breytast
núna. „Við viljum verða leiðandi
afl í tískuheiminum.“ Jing Li segir
það heillandi hvernig náttúran og
loftslagið endurspeglast í íslenskri
tísku. „Íslendingar eru greinilega
með puttann á púlsinum þegar
kemur að tísku.“ „Það er einnig
magnað hvernig svona lítið land
getur verið virkt á snyrtivöru-
markaðnum og ég held að íslensk-
ar snyrtivörur eigi mikið erindi á
kínverskum markaði, sérstaklega
á kaldari svæðum,“ bætir Gang
Dong við. Að sögn Li og Dong er
kínverski húðvörumarkaðurinn
ansi þéttskipaður og það er erfitt
fyrir nýja aðila að komast inn á
markaðinn. Aðspurður um hvort
búast megi við því hvort Kínverjar
muni brátt nota íslenskar húðvör-
ur segir Gang Dong að Kínverjar
þurfti fyrst að fræðast meira um
Ísland og íslenska menningu. „Ís-
lenskar bækur og kvikmyndir eru
ekki fáanlegar í Kína og auk þess
er Björk bönnuð. Kínverjar eru
samt sem áður áhugasamir um Ís-
land svo það er aldrei að vita hvað
framtíðin mun bera í skauti sér.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Ritstjórar þriggja stærstu tískutímarita Kína, Harpeŕ s Baazar,
Marie Claire og Modern Weekly, heimsóttu Ísland á dögunum.
Tilefni ferðarinnar var áhugi á íslenskum húðvörum. Ritstjór-
arnir gáfu sér góðan tíma til að skoða landið og heilluðust
meðal annars af náttúrunni og skammtastærðunum á ís-
lenskum veitingastöðum.
Hópurinn tók sér góðan tíma til að ferðast um landið. Hér má sjá Pearl Shang sem sér um dreifingu Bioeffect í Kína, Kristin
Grétarsson, forstjóra Bioeffect, Yi Shen, ritstjóra Modern Weekly, Mao Wu yfirhönnuð hjá Only Lady í Kína, Gang Dong, rit-
stjóra Harper‘s Bazaar, Lan Ma, eiginkonu hans og Jing Li, ritstjóra Marie Claire.
sjónvarp sTelpan í rauða kjólnum í þriðju þáTTaröðinni af réTTi
Úr Eurovision í leiklist
Nýjasta þáttaröðin af Rétti verður
frumsýnd á sunnudaginn á Stöð
2. Þetta er þriðja serían af þessum
sakamálaþáttum og er það Baldvin
Z sem leikstýrir. Með eitt hlutverk-
anna fer hin 17 ára gamla Elín Sif
Halldórsdóttir sem margir muna
eftir sem stelpunni í rauða kjólnum í
Söngvakeppni sjónvarpsins í byrjun
ársins. Hún segist hlakka til að sjá
afraksturinn á skjánum.
„Ég er auðvitað spennt að sjá,“
segir Elín Sif. „Ég leik 14 ára stelpu
sem heitir Elva Dögg og er besta
vinkona stelpunnar sem finnst lát-
in í Þjóðleikhúsinu. Elva er mjög
venjulega stelpa úr Grafarvoginum
sem flækist inn í heim sem hún á
ekki heima í. Mjög ung og saklaus
en vill vera einhver önnur en hún
er,“ segir Elín. „Þetta er fyrsta hlut-
verkið mitt og Baldvin Z sagði við
mig að hann hefði séð einhvern
svip í mér í Eurovision sem hann
var hrifinn af,“ segir hún.
„Þetta var alveg ótrúlega gam-
an og ég get varla lýst því hversu
skemmtileg lífsreynsla þetta var,“
segir Elín. „Ef það er svona gaman
í öllum verkefnum þá er ég alveg til
í að halda áfram að leika. Ég mun
allavega skoða það.“
Elín er á öðru ári í MH og seg-
ist ekki vera með á planinu að taka
aftur þátt í Eurovision. „Ég stórefa
það,“ segir hún. „Það er ekki hægt
að grínast tvisvar með það. Þetta
var bara eitt flipp,“ segir Elín Sif
Halldórsdóttir. -hf
Elín Sif Halldórsdóttir vakti athygli í
undakeppni Eurovision fyrr á árinu. Nú
birtist hún í Rétti á Stöð 2.
Lockerbie gefur út
Hljómsveitin Lockerbie sendi frá sér sína
aðra breiðskífu síðastliðinn miðvikudag og
heitir gripurinn Kafari. Sveitin sem gaf út
sína fyrstu breiðskífu, Ólgusjór, sem meðal
annars kom út víðsvegar um Evrópu og
Japan sumarið 2011 gaf af því tilefni út
nýtt myndband síðastliðinn mánu-
dag við titillag plötunnar. Platan
sem hefur verið í rúmlega tvö og
hálft ár í vinnslu inniheldur 10 lög
og er henni dreift frítt á vefsíðu
sveitarinnar, www.lockerbie.is. Í
framhaldi af því mun hljóm-
sveitin setja af stað hópsöfnun
á Karolina fund þar sem
boðið verður upp á að
kaupa plötuna á vínyl
ásamt öðrum varningi
tengdum sveitinni.
John
Grant fílar
Búkalú
Heimasíða útflutnings-
stofu íslenskrar tónlistar,
www.imx.is, birtir reglulega
lista tónlistarmanna yfir
uppáhalds íslensku lögin
þeirra. Tónlistarmaðurinn
John Grant birti á dögunum
fimm laga lista af sínum
uppáhaldslögum. Á listanum
eru algengir sökudólgar eins og GusGus og
Sykurmolarnir, en athygli vakti þó að Grant
setti lagið Búkalú með hljómsveit allra
landsmanna, Stuðmönnum, á listann sinn,
sem og hið hádramatíska Hvað um mig
og þig, sem Ragnhildur Gísladóttir söng á
eftirminnilegan hátt í upphafi níunda ára-
tugarins. Smekkmaður hann John.
Betra sánd í
Hörpu
Tónlistarmaðurinn Ólafur
Arnalds birti myndir frá
tvennum tónleikum sínum í
Óperuhúsinu í Sydney í
vikunni. Uppselt
var á báða tón-
leika kappans
þar sem
hann flutti
sínar eigin
tónsmíðar
ásamt
Kamm-
ersveit
Sydney-
borgar.
Hann sagði
á Facebook
síðu sinni að
það væri betra
sánd í Hörpu,
sem hljóta að
teljast meðmæli.
Sturla Atlas og Úlfur Úlfur á Sónar
Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík tilkynntu í gær fyrstu 14
nöfnin af þeim sem koma fram á hátíðinni í Hörpu í febrúar á næsta ári.
Rappsveitin Úlfur Úlfur er þar á meðal en hún nýtur
mikilla vinsælda eftir að hafa gefið út plötuna Tvær
plánetur fyrr á árinu. Þá kemur ungstirnið Sturla
Atlas sömuleiðis fram, rétt eins og Apparat Organ
Quartet og Vaginaboys. Hinn gamalkunni Squarepus-
her treður og upp ásamt Hudson Mohawke,
Holly Herndon, Oneothrix Point Never,
Rødhåd, Recondite, AV AV AV, The Black
Madonna, Gangly og Skeng. Alls munu um
70 listamenn verða á hátíðinni en miða-
sala fer fram á Tix.is.
Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir
Leikum
okkur!
90 dægurmál Helgin 16.-18. október 2015