Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
Fann pabba á Facebook
n „Þurfum að bera saman myndir af okkur“
D
önsk kona, Eva Stokholm,
hefur undanfarna daga leit-
að logandi ljósi að íslenskum
föður sínum og loksins fund-
ið hann. Leitin fór að mestu leyti
fram í gegnum samfélagsmiðlana og
bar árangur eftir að Evu barst fjöldi
ábendinga á Facebook. „Ég hef
talað við dóttur hans en hann er í
sumarfríi. Hann hefur samt staðfest
við dótturina að það sé möguleiki
á því að hann sé faðir minn,“ seg-
ir Eva sem telur allar líkur á að svo
sé og tilkynnir meðal annars á Face-
book að faðirinn hafi komið í leitirn-
ar. Af samskiptum á Facebook-síðu
hennar má ráða að hann heiti Rögn-
valdur.
Eva vildi ekki segja DV alla sól-
arsöguna fyrr en endanleg stað-
festing fengist. „Ég er að bíða eftir
frekari upplýsingum sem ég fæ von-
andi eftir að hann kemur úr fríi. Ég
verð að ræða við hann. Við þurfum
að bera saman myndir af okkur og
gá hvort við séum lík. En þetta hlýtur
að skýrast á næstu vikum,“ segir hún.
Eva var í sólskinsskapi þegar DV
ræddi við hana og að því er fram
kemur á Facebook er hún í sjöunda
himni eftir að hafa fundið Rögnvald.
„Þúsund þakkir, allir. Ég get ekki
lýst því hve þakklát ég er fyrir allar
ábendingarnar sem ég fékk eftir að
ég lýsti eftir blóðföður mínum. Nú
hef ég fundið hann og takk aftur fyrir
að sýna þessu áhuga og verja tíman-
um ykkar í þetta,“ skrifar Eva þakk-
lát veraldarvefnum. Hún vinnur hjá
ráðgjafarfyrirtæki í Danmörku og
er móðir svo líklega bætist í barna-
barnahópinn hjá Rögnvaldi. n
Eva Stokholm Fann íslenskan föður sinn
á Facebook.
H
ann sagði bara: „ Krakkar,
þið eruð ekki að skilja
þetta: Þetta verður geð-
bilaðasta partí sem haldið
hefur verið fyrr og síðar.
Við erum að tala um dýr í útrým-
ingarhættu,“ segir viðmælandi DV,
sem ekki vill láta nafn síns getið, um
ummæli matreiðslumannsins Ósk-
ars Finnssonar þar sem hann ræddi
um fimmtugsafmæli athafna-
mannsins Ólafs Ólafssonar í árs-
byrjun 2007.
Afmælið var haldið í kæli geymslu
á vinnusvæði Samskipa í Kjalarvogi
í Reykjavík og var hún sérútbúin
fyrir afmælið. Kvikmyndafyrirtækið
Saga Film sá um framkvæmd veisl-
unnar og lét Óskar ummælin falla
á undirbúningsfundi fyrir afmælið
sem er einna þekktast vegna þess að
breski popparinn Elton John kom
og spilaði fyrir gestina. Ólafur er
sagður afa greitt popparanum millj-
ón dollara, um 70 milljónir króna á
þeim tíma, fyrir að spila í afmælinu.
Framandi dýr
Óskar hafði yfirumsjón með matn-
um í fimmtugsafmæli Ólafs en hann
hefur löngum verið kenndur við
steikhúsið Argentínu. Auk kokka
frá Argentínu komu matreiðslu-
menn frá Nobu í London og Þrem-
ur frökkum og elduðu ofan í af-
mælisgesti Ólafs. „Hann talaði um
að það kæmu dýr sem væru hengd
upp á afturlöppunum: sebrahestar
og gíraffar. Það voru mjög framandi
tegundir á boðstólum þarna,“ segir
heimildarmaðurinn og vísar til orða
Óskars. Með á umræddum fundi
var maður sem starfað hafði hjá
Ólafi við undirbúning veislunnar,
Maggi fíni eins og hann er kallaður,
en sá maður hafði ferðast um heim-
inn í nokkurn tíma og sett saman
matseðilinn í afmælið. „Hann hafði
ferðast í tvö eða þrjú ár og verið að
smakka mat fyrir veisluna.“
Veiðimannaþema
Heimildarmaðurinn segir að í af-
mælinu hafi verið tvískipt þema:
Annars vegar veiðimannaþema
framan af kvöldi og svo Mið-
jarðarhafsþema seinni hluta kvölds-
ins. „Það var svona veiðimanna-
þema fyrri hluta kvöldsins. Fólk átti
að upplifa sig sem aristókrata í ein-
hverjum veiðimannakofa. Svo um
það leyti sem Elton kom var skipt
yfir í Miðjarðarhafsþema.“
Átið á dýrunum í útrýmingar-
hættu rímaði því við veiðimanna-
þemað en líkt og kunnugt er þá er
Ólafur Ólafsson mikill veiðimaður
og hefur ferðast oftsinnis til Afríku
til að skjóta ýmiss konar skepnur.
DV hefur meðal annars greint frá
því að Ólafur hafi ferðast til Afríku
til að skjóta ljón. n
Boðið upp á dýr í
útrýmingarhættu
n Afmælisgestir hjá Ólafi Ólafssyni í Samskipum borðuðu framandi skepnur
„Það
voru
mjög framandi
tegundir á boð
stólum þarna
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sebrahestar Ein af þeim
dýrategundum sem í boði
voru í afmælisveislu Ólafs
voru sebrahestar.
Mynd: REutERS
Geðbilaðasta partíið Óskar Finnsson
sagði að afmælisveisla Ólafs Ólafssonar
yrði geðbilaðasta partí sögunnar.
Undirbúa
millidómstig
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innan ríkisráðherra hefur skipað
nefnd sem hefur það hlutverk að
undirbúa millidómstig. Var það
eitt af markmiðum í stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar að tekið
yrði upp slíkt millidómstig bæði í
einkamálum og sakamálum og að
Hæstiréttur starfi í einni deild.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að með skipun nefndarinn-
ar sé ráðherra að hrinda verkefn-
inu af stað en nefndin mun útfæra
fyrirkomulag, tímamörk, kostn-
að og önnur atriði er snerta tilurð
millidómstigs og leggja drög að
frumvarpi. Einnig skal í frumvarp-
inu fjallað um starfsemi og fyrir-
komulag sameiginlegrar stjórn-
sýslu dómstóla landsins, eftirlit
dómskerfisins með dómurum og
starfsemi dómstóla. Stefnt er að
því að leggja megi frumvarp fyrir
Alþingi í mars á næsta ári.
Formaður nefndarinnar er
Kristín Edwald hæstaréttarlög-
maður og aðrir nefndarmenn eru
Hafsteinn Þór Hauksson, lektor
við HÍ, og Hervör Þorvaldsdóttir
héraðsdómari.
Veiðimaður Ólafur Ólafsson
er mikill veiðimaður og hefur
matarvalið væntanlega
endurspeglað það.
Mynd: SiGtRyGGuR ARi
Vilja sumar-
götur áfram
Rekstraraðilar og íbúar við
Skólavörðustíg hafa farið fram
á það í bréfi til borgarstjóra að
gatan verði göngugata fram yfir
Menningarnótt.
Sumargöturnar svokallaðar
voru opnaðar þann 1. júní
síðast liðinn og til stóð að þeir
kaflar Skólavörðustígs og Lauga-
vegar sem hafa verið sumar-
götur yrðu lokaðir fyrir umferð
vélknúinna ökutækja til mánu-
dagsins 5. ágúst næstkomandi
vegna gatnaframkvæmda í mið-
borginni. Rekstraraðilar við
Skólavörðustíg telja þær fram-
kvæmdir ekki hafa áhrif á um-
ferð um götuna þar sem gang-
andi umferð er það mikil fyrir.
Í frétt á vef Reykjavíkurborgar
segir að mikil ánægja hafi verið
með fyrirkomulagið meðal
rekstraraðila við Skólavörðustíg
og vildu allir aðilar hafa sumar-
götu lengur en auglýstan tíma.
Málið er nú til skoðunar hjá Um-
hverfis- og skipulagssviði. Fram
kemur í fréttinni að Reykjavíkur-
borg fagni frumkvæðinu.