Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 36
8 2.–6. ágúst 2013 Verslunarmannahelgin Notalegt í Vatnaskógi n Fánahylling og bænastund fyrir alla fjölskylduna S æludagar í Vatnaskógi eru til- valin skemmtun um verslunar- mannahelgina fyrir fjölskyldu- fólk sem vill vera fjarri ys og þys, áfengisneyslu og hávaða. Dag- skráin er í anda sumarbúðastarfsins sem fram fer í Vatnaskógi, svo ekki er loku fyrir það skotið að gamlir skógar- menn sem nú eru orðnir fjölskyldu- feður fyllist nostalgíu. Sæludagarnir í ár eru engir venjulegir sæludagar því hátíðin er sérstaklega tileinkuð 90 ára afmæli sumarbúðanna. Óhætt er að fullyrða að heilagur andi muni svífa yfir vötnunum. Dagskráin hefst á fimmtudags- kvöld með grillveislu, leikjum, spjalli og bænastund. Þeir sem missa af þessu þurfa þó engar áhyggjur að hafa því aukið fjör færist í leikinn á föstudeginum. Verður íslenski fáninn hylltur við Gamla skála að fornum sið, farið í skoðunarferð um vatna- skóg og leikin knattspyrna. Þá mun rithöfundurinn og pistlahöfundur- inn Sigurbjörn Þorkelsson stýra um- ræðum undir yfirskriftinni Ausið úr lindum minninganna. Um kvöldið er boðið upp á gospelsmiðju, dansleik og bænastund, auk þess sem hátíðar- kvöldvaka, eins konar afmælisveisla Vatnaskógar, fer fram með pomp og prakt. Dagskráin á sunnudeginum er með svipuðu sniði og farið verður heim á mánudegi. Aðalreglan á sæludögum er sú að allir skuli njóta, enda er meginmark- mið KFUM og KFUK að efla heilbrigði líkama, sálar og anda. Fram kemur á vef samtakanna að boðið er upp á öfl- ugt og áhrifaríkt trúarlíf á sæludög- um. Ófáir fjölskyldufeður eiga hlýjar minningar úr Vatnaskógi. Þeir sem þar hafa dvalist tengja staðinn jafn- an við kyrrð og kósíheit en jafnframt prakkaraskap og fjör. Á sæludögum sameinast skógarmenn á ný. Hátíðin er tilvalin og mannbætandi skemmt- un fyrir alla fjölskylduna og eru þar þjóðleg og kristileg gildi í hávegum höfð. n johannp@dv.is Þ að verður sannkölluð fjölskylduhátíð hér um helgina, við verðum með 25 ára aldurstakmark á tjaldsvæðunum,“ segir Halla Ruth Sveinbjörnsdóttir, fram- kvæmdastjóri í Úthlíð. „Við erum að reyna að koma í veg fyrir að það fyllist hér allt af unglingum og því höfum við aldurstakmark á tjald- svæðinu, við viljum heldur gera fjölskyldufólkinu hátt undir höfði,“ segir Halla. Það verða dansleikir á hverju kvöldi, á föstudagskvöldið skemmtir Herbert Guðmunds- son og Júlladiskó, á laugardags- kvöldið verður Brekkusöngur sem Árni Johnsen stjórnar og svo verður hægt að skella sér á ball með Björg- vini Halldórssyni, Matta Matt og Rokkabillýbandinu. Þeir sem vilja dansa meira fara svo á diskótek á sunnudagskvöldið. „Ég held að við höfum aldrei getað boðið upp á jafnflotta skemmtikrafta og um verslunarmannahelgina í ár. Það verður hörkustuð hérna enda eig- um við von á að það verði allt fullt,“ segir Halla. Mikið verður í boði fyrir krakka til að mynda kemur Einar töframaður á sunnudag og sýnir og kennir töfrabrögð. Golfvöllur og sundlaug Úthlíð er vel í sveit sett, í um 100 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík og þaðan er stutt til margra þekktra ferðamannastaða svo sem Gullfoss og Geysi. Í Úthlíð í Biskupstungum er rekin alhliða ferðaþjónusta. Þar er sundlaug sem ber nafnið Hlíðar- laug, veitingastaðurinn Réttin, bensínstöð, ferðamannaversl- un, 9 holu golfvöllur og orlofshús sem hægt er að leigja til lengri eða skemmri tíma. Þar er líka hestaleiga en þar þarf að panta með fyrirvara, að minnsta kosti ef fólk vill leiðsögn í hestaferðina. Úthlíð á sér merka sögu, bærinn hét fyrrum Hlíð hin ytri og var kirkjustaður í Biskups- tungum. Úthlíð er meðal stærstu jarða landsins. Meginhluti lands hennar er Úthlíðarhraun úr Eldborgum á Lambahrauni, sem steyptist niður hlíðina ofan við bæinn. Þetta hraun er gróið, mosi ofan til og kjarr neð- ar, þar sem sumarbústaðabyggðin er. Sagan segir að Ásgeir Úlfsson, tengdasonur Ketilbjarnar gamla á Mosfelli, hafi byggt þar bú. Hans son- ur var Geir goði, sem bjó líka í Úthlíð. Haugur hans er sagður vera skammt frá bænum og þar móar fyrir hoftótt niðri við mýrina neðan gamla bæjar- ins. Stór grásteinn með laut er sagður vera hlautbolli úr hofinu. Úthlíðarkirkja Í katólskum sið voru kirkjur staðar- ins helgaðar Maríu guðsmóður og voru útkirkjur frá prestssetrinu í Miðdal í Laugardal þar til þær urðu útkirkjur frá Torfastöðum með lög- um árið 1880. Kirkjunni var þjón- að frá Torfastöðum og Skálholti til 1963. Lengi var þjónað í stofunni í Úthlíð eftir að kirkjan fauk 1936. Nýja kirkjan er hátíðleg og fal- leg og sést langt að. Hún var reist 2005–2006 í minningu Ágústu Ólafs- dóttur, eiginkonu Björns Sigurðsson- ar bónda í Úthlíð. Hún lést fyrir aldur fram haustið 2004. n johanna@dv.is Árni Johnsen stjórnar brekkusöng í Úthlíð n Aldurstakmark á tjaldsvæðinu n Hebbi og Júlladiskó skemmta Úthlíð Það verður fjölbreytt dagskrá um verslunarmanna- helgina í Úthlíð. „Við erum að reyna að koma í veg fyrir að það fyllist hér allt af unglingum. Brekkusöngur Árni Johnsen, frægasti brekkusöngstjórnandi landsins, stjórnar brekkusöng í Úthlíð. Fjölskyldufjör Það er gaman í Vatnaskógi. Mynd KFUM oG KFUK Útihátíð í Kópavogi Útihátíð Greifanna og Sigga Hlö fer nú fram í fjórða skiptið á Spot í Kópavogi. En Siggi segir það mikinn misskilning að allir fari úr bænum um verslunarmanna- helgina og bendir á að um 2.000 manns hafi sótt dansleikina síð- ustu ár. „Þetta er þriggja dansleikja hrina,“ segir Siggi. Á föstudags- kvöldið mun hljómsveitin Dalton sjá um að halda uppi stuðinu, en á laugardag og sunnudag taka Greifarnir og Siggi sjálfur völdin á Spot. „Á sunnudagskvöldinu erum við svo með brekkusöng á grasblettinum fyrir utan Spot. Þangað hefur komið fólk sem er ekki endilega að fara á ballið. Það verður tekið svona klukkutíma trall í brekkunni.“ Brekkusöngur- inn hefst klukkan 23.00 og Siggi segir að barnafólk hafi jafnvel kíkt við. Það er því ljóst að útihátíðar- stemningin verður í hávegum höfð í Kópavogi um helgina og því tilvalið fyrir þá sem ekki fara út úr bænum að skella sér. „Við lítum þannig á að við séum hérna fyrir fólkið í bænum. Síðustu ár hafa verið tvö svona gigg í gangi, það er Innipúkinn og svo ballið í Kópavogi. Þetta er sitt- hvor markhópurinn. Þeir sem fara á Innipúkann þeir fíla ekki Greif- ana og öfugt,“ segir Siggi. Stuðmenn halda uppi stuðinu Stuðmenn munu halda sína ár- legu verslunarmannahelgartón- leika í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum sunnudagskvöldið 4. ágúst. Sérstakir gestir verða Villi og Sveppi. Það verður því sann- kallað stuð í garðinum fyrir þá sem nenntu ekki á útihátíð. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 en garðurinn verður opnaður fyrir tónleikagesti klukkutíma fyrr. Ókeypis verður fyrir 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum og miðaverð verður 1.000 krónur á mann fyrir 12 ára og eldri í forsölu. Forsölu í miðasölu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins lýkur föstu- daginn 2. ágúst. Eftir það er hægt að kaupa miða á midi.is. Þar sem um viðburð utan hefð- bundins opnunartíma er að ræða gilda S-kort Reykjavíkur og árskort garðsins ekki. Opið verður í leik- tækin frá klukkan 19.00 tónleika- kvöldið. M y n d B en zo .is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.