Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 25
Umræða 25Helgarblað 2.–6. ágúst 2013 Albert Sanders Af hverju reynir KSÍ að fá Aron Jó til að skipta um skoðun á vali um landslið þegar hann hefur klárlega ekki metnað til að spila fyrir Ísland?  Geir Þorsteinsson Ég tel það skyldu okkar að reyna að fá alla Íslendinga til að gefa kost á sér ef þeir eru nógu góðir leikmenn. Hildur Guðlaugsdóttir Sæll. Samkvæmt umdeildri yfirlýsingu KSÍ telur þú að Aron Jóhannsson eigi að spila með íslenska landsliðinu frekar en því bandaríska þar sem hann hefur fengið „uppeldi“ hjá KSÍ. Ertu sömu skoðunar með lækna sem hafa fengið „uppeldi“ á Landspítala háskólasjúkrahúsi? Að þeir eigi að starfa þar eftir nám, fyrir heiður og sæmd?  Geir Þorsteinsson Nei, tel það ekki eiga við lækna. Íþróttamenn koma fram fyrir hönd þjóðar sinnar ef þeir eru til þess kallaðir. Magnús Guðmundsson Það er álit 2.722 fótboltaáhuga- manna sem hafa fylkt sér bak við ákvörðun Arons Jóhannssonar eftir að hafa lesið afar hryssingslega tilkynningu og viðtöl við þig að framkoma æðsta manns KSÍ sé óeðlileg. Eftir að hafa fylgst með þessu liggur beinast við að spyrja: Finnst þér eðlilegt að koma fram með dylgjur um að Aron sé að falast eftir peningum? Er það mat þitt að svona hernaður auki líkurnar á því að honum snúist hugur? Finnurðu fyrir pressu um að segja af þér?  Geir Þorsteinsson Mikill meirihluti Íslendinga vill að Íslendingar leiki fyrir þjóð sína ef þeir eru til þess valdir. Við höfum ekki birt neinar dylgjur heldur upplýsingar frá fyrstu hendi. Ég vona enn að hann leiki fyrir Ísland. Ég finn ekki fyrir neinni pressu enda að berjast fyrir hagsmun- um íslenskrar knattspyrnu. Ég þoli alveg að allir séu ekki sammála mínum skoðunum. Einar Sigurðsson Ertu búinn að fá einhver viðbrögð frá Sunil Gulati, forseta bandaríska knattspyrnusambandsins, við bréfinu sem þú sendir honum vegna Arons Jóhannssonar?  Geir Þorsteinsson Nei, en hafði rætt lauslega við hann áður og hann spurði mig um gæði leik- mannsins. Ég sagði honum að Aron væri góður leikmaður. Friðrik Tryggvason Af hverju ætti Aron að spila með þessu landsliði sem hangir í 73. sæti styrkleikalistans frekar en góðu liði BNA sem situr í sæti 22? Gæti ekki bara verið að hann hafi metnað fyrir einhverju öðru en Smáþjóðaleikunum?  Geir Þorsteinsson Það væri gott að hann skýrði ákvörðun sína. Magnús Guðmundsson Af hverju beitti KSÍ sér ekki ekki þegar Ray Anthony Jónsson, leikmaður Grindavíkur, hugðist leika fyrir landslið Filippseyja? En blés svo í herlúðra í máli Arons Jóhannssonar. Hver er munurinn á þessum málum?  Geir Þorsteinsson Það eru þjálfar- ar Íslands sem velja landsliðið og þeir sýndu Ray ekki áhuga. Magnús Guðmundsson Þannig þér finnst bara eðlilegt að leikmenn spili fyrir landið sitt upp á sóma og sæmd „ef þeir eru nægilega góðir“ og valdir af þjálfurum landsliðsins? Ef þeir eru ekki valdir þá skiptir uppeldi innan KSÍ engu máli?  Geir Þorsteinsson Nú skil ég ekki. Það er þannig í heimi knattspyrn- unnar að leikmenn fá laun hjá félagsliðum sínum – líka þegar þeir taka þátt í landsleikjum. Uppeldið innan vébanda skiptir öllu máli. Við getum verið stolt af því, það sýnir mikill fjöldi íslenskra leikmanna sem spila erlendis sem atvinnu- menn. Hreiðar Eiríksson Hvernig rökstyður þú sterkt, og að mínu mati fremur dónalegt tilkall KSÍ, til þess að maður með tvöfalt ríkisfang velji íslenskt landslið fremur en bandarískt, þegar fyrir liggur að maðurinn er bæði íslenskur og bandarískur? Hvers vegna telur þú KSÍ eiga rétt á rökstuðningi frá manni um ákvarðanir sem varða þetta atriði? Telur þú framkomu af þessu tagi, í garð knattspyrnumannsins, auka hróður KSÍ og íslenskrar knattspyrnu?  Geir Þorsteinsson Það er hlutverk KSÍ að gæta hagsmuna íslenskrar knattspyrnu. Aron er alinn upp í ís- lenskri knattspyrnu og hefur leikið með U21 landsliðinu. Augljóslega gerum við tilkall til hans eins og allra Íslendinga. Hreiðar Eiríksson Telur þú að frammistaða KSÍ, hvað varðar karlalandsliðið í knattspyrnu, geti haft áhrif á það, hvort knattspyrnumenn með tvöfalt ríkisfang kjósa að spila með íslenska landsliðinu eða landsliði hins heimaríkis síns?  Geir Þorsteinsson Getur verið – gott væri að vita hvort svo sé. Maggý Möller Er KSÍ fórnarlamb í þessu máli? Finnst ykkur eins og Aron sé vondur við ykkur?  Geir Þorsteinsson Nei, alls ekki. Auðvitað er það miður ef US Soccer nýtur þess besta – þegar leik- maðurinn er byrjaður að blómstra. Aron er ekki vondur drengur en við munum klárlega sakna hans ef hann skiptir um lið. Franz Gunnarsson Er eitthvað í reglum KSÍ sem segir að leikmenn með tvöfalt ríkisfang eigi að leika með íslenska landsliðinu fremur en því erlenda?  Geir Þorsteinsson Nei, um þetta fjalla reglur FIFA (Alþjóða knattspyrnusambandsins). Kári Hinriksson Hefðir þú skrifað harðort bréf í anda þess sem þú skrifaðir nú til að mótmæla því ef bandarískur klassaleikmaður með tvölfalt ríkisfang hefði valið íslenska landsliðið fram yfir það bandaríska?  Geir Þorsteinsson Ég er þeirrar skoðunar að það geti verið ríkar ástæður fyrir því að leikmenn skipti um landslið. Ég er einfaldlega ekki þeirrar skoðunar í tilfelli Arons. Hvert mál þarf að skoða, í þessu er ekki hægt að alhæfa. Erlendir ríkisborgarar hafi fengið íslenskan ríkisborgarrétt og leikið fyrir Ísland, enda búið hér. Það hafði ekki verið kallað á þá í landslið fyrri þjóðar. Kristján Gíslason Hefði ekki verið eðlilegra að senda Knattspyrnusambandi USA og FIFA bréf áður en hann tók ákvörðun? Það hlýtur að hafa legið fyrir að Aron var að velta hlutunum fyrir sér.  Geir Þorsteinsson Ég hafði rætt við báða aðila en trúði alltaf að hjarta Arons slægi fyrir Ísland. Stefán Steinsen Geir, telur þú að yfirlýsingin um Aron hafi verið of harkaleg og geti í raun verið túlkuð sem hrokafull? Var hún yfir strikið og sérðu eftir einhverju?  Geir Þorsteinsson Nei, alls ekki, sannleikurinn er sagna bestur. Málið er alvarlegt fyrir íslenska knattspyrnu. Einar Sigurðsson Verður Sigurður Ragnar áfram með kvennalandsliðið? Er vilji innan KSÍ að hann verði áfram?  Geir Þorsteinsson Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum sl. þriðju- dag að bjóða Sigurði Ragnari að halda áfram með liðið. Það er nú í höndum framkvæmdastjóra KSÍ að semja við hann. Magnús Guðmundsson Á undanförnum árum hefur verið mikil breyting á íslenskri knattspyrnu bæði varðandi fjölda liða í deild sem og fjölda deila. Ertu ánægður með þessar breytingar nú þegar nokkur reynsla er komin á formið?  Geir Þorsteinsson Í heild held ég að þær hafi heppnast vel – erum samband enn í ferli breytinga því að í fyrsta sinn í ár var 10 liða 3. deild sem landsdeild. Við eigum hins vegar í nokkrum erfiðleikum með fyrirkomulagið í Pepsi-deild karla vegna aukins fjölda leikja þegar félagslið okkar ná góðum árangri í Evrópumótum eins og hefur gerst nú. Leikjaálagið kann að vera of mikið. Snorri Magnússon Ert þú sammála því að Laugardals- völlurinn sé illa hannaður fyrir landsleiki Íslands? Er fjarlægð áhorfenda við völlinn ekki aðalvanda- málið til að mynda stemningu og sterkari heimavöll? Myndi koma til greina að heimaleikir yrðu t.d. á Kaplakrika? Sérstaklega ef FH-ingar skyldu einhvern daginn klára stúkuna allan hringinn?  Geir Þorsteinsson Við viljum gera Laugardalsvöll að knattspyrnuleik- vangi án hlaupabrauta með lágreistar stúkur fyrir aftan mörkin. Við eigum í góðu samstarfi við Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) og FRÍ er sammála okkur um að knattspyrna og frjálsar íþróttir eigi ekki samleið. Vonandi verður nýr þjóðarleikvangur gerður fyrir frjáls- ar íþróttir í Laugardal þannig að við getum breytt Laugardalsvelli í knattspyrnuleikvang á komandi árum. Einar Sigurðsson Ertu ánægður með árangur karlalandsliðsins í undankeppni HM? Þrír sigrar, þrjú töp og enn möguleiki á að komast í umspil að minnsta kosti.  Geir Þorsteinsson Já, en var hrika- lega svekktur eftir tapið í síðasta leik gegn Slóveníu. Mér fannst leikur okkar riðlast þegar fyrirliðinn fór meiddur af velli. Sýnir vel að við þurfum að hafa stóran og sterkan hóp í keppni hinna bestu. Heidar Sumarlidason Hefur Björn Bergmann Sigurðarson sett sig í samband við KSÍ og útskýrt hvers vegna hann hefur ekki séð sér fært að svara í símann þegar landsliðsþjálfarinn hringir í hann?  Geir Þorsteinsson Hann hefur viljað einbeita sér að ferli sínum hjá félagsliði sínu. Ég vona að hann gefi kost á sér, mér finnst hann frábær leikmaður sem gæti styrkt íslenska landsliðið. Haukur Leifsson Sæll Geir. Kemur til greina að endurskoða áfengisveitingar á leikjum íslenska karlalandsliðsins. Þ.e.a.s. að leyfa léttvínsölu innan vallarins og hver er þín skoðun á áfengissölu á knattspyrnuleikjum?  Geir Þorsteinsson Skil afstöðu þína, þessar reglur eru settar af FIFA og UEFA og það er ekki á döf- inni að breyta þeim. Það tengist að mínu viti öllum þeim fjölda atvika á knattspyrnuleikjum þar sem áhorfendur hafa sett ljótan svip á leikinn. Magnús Guðmundsson Er fjármálastjórinn sem notaði greiðslukort sambandsins frjálslega í Sviss árið 2009 enn að starfa fyrir sambandið?  Geir Þorsteinsson Þetta gerðist ekki 2009 heldur að mig minnir 2004. Já, hann hlaut áminningu í starfi á sínum tíma. Einar Sigurðsson Með hvaða liði heldurðu í enska boltanum?  Geir Þorsteinsson Á unga aldri hélt ég með Stoke City. Var oft settur í markið úti á velli og þá var Gordon Banks bestur í heimi. Ég hef verið stuðningsmaður Barcelona í áratugi en hélt með Chelsea þegar Eiður lék þar. Nú verð ég að halda með Tottenham eða Cardiff. Jóna Gísladóttir Er „tilraunin“ með ráðningu hins sænska Lagerbäck „eins samnings“ tilraun eða verður leitað í svipaðar áttir þegar og ef Lars hættir? Sem sagt verð- ur þá aftur leitað í heimahagana eftir þjálfara?  Geir Þorsteinsson Eins og staðan er í dag erum við vongóð um að Lars haldi áfram með liðið. Halldór Haraldsson Hefur einhvern tímann komið til tals innan KSÍ að afsala sér styrkjum frá ÍSÍ til að aðrar íþrótta- greinar eigi meiri möguleika á að blómstra á Íslandi. Ef tekið er til greina hversu gífurlega fjármuni sambandið fær frá alþjóðasamböndum þarf þá KSÍ á „ríkisstyrkjunum“ að halda?  Geir Þorsteinsson Nei, en við höfum barist við hlið annarra sér- sambanda fyrir auknum styrkjum til þeirra. Í því sambandi getum við sætt okkur við að öll sérsambönd fengju sömu upphæð. Auðvitað þurfum við meira fjármagn. Við erum í samkeppni við þjóðir í Evrópu. Mikill ferðakostnaður kem- ur í veg fyrir að yngri landslið okkar fái nægjanlega mörg verkefni á al- þjóðavettvangi. Mörg sérsambönd búa við ótrúlega þröngan fjárhag sem hamlar útbreiðslu margra íþrótta á Íslandi. Það er miður. Ágúst Jóhannesson Hvernig lítur karlalandsliðið út ef við horfum til næstu 10 ára? Erum við að horfa upp á sama magn af gæðum koma upp og 88–91-kynslóðin hefur boðið upp á?  Geir Þorsteinsson Já, ég er bjartsýnn. Uppeldistarf íslenskra félaga gengur ótrúlega vel. Á hverju ári koma fram á sjónarsviðið frábær efni sem félög erlendis sýna áhuga. Það eitt segir sína sögu. Mikið átak í menntun íslenskra þjálfara sem og betri aðstaða allt árið um hring er að skila sér. Árni Gunnarsson Heyrir þú í Tólfunni í glerboxinu þarna hinum megin og hvað er álit þitt á tilvist Tólfunnar á landsleikjum? :)  Geir Þorsteinsson Heyri vel og sé. Er reyndar alltaf úti meðan á leik stendur. Frábært framtak og stuðningur við landsliðið. Tólfan er virkilega tólfti maður liðsins. Thorsteinn Thorsteinsson Ertu sammala vali FIFA á HM 2018 í Rússlandi og 2022 í Katar?  Geir Þorsteinsson Rússland já. Katar – varla – ég held að keppni þar að sumri til verði erfið, sér í lagi fyrir stuðningsmenn liðanna. Þó að hægt verði að kæla leikvangana þarf fólk að komast á milli. Ætli keppnin fari ekki fram að vetri þar en enska deildin hefur lýst yfir andstöðu nú þegar og fleiri munu væntanlega fylgja í kjölfarið. Vonar enn að Aron skipti um skoðun Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, á Beinni línu. Ákvörðun Arons í brennidepli Nafn: Geir Þorsteinsson Aldur: 40 ára Starf: Formaður KSÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.