Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
Pólitískur myndbrjótur
sem dregur allt í efa
n Brynjar Níelsson var efnilegur í fótbolta en var húðlatur, segir Þorgrímur Þráinsson n Fljótfær en heiðarlegur
S
kemmtilegur, húðlatur,
heiðarlegur, rökfastur, fljót
fær, þagmælskur, málsvari
þeirra sem minna mega
sín. Þetta eru orð sem
vinir og samferðamenn Brynjars
Níelssonar, alþingismanns og lög
manns, nota um hann. Brynjar hef
ur farið mikinn á veraldarvefnum
að undanförnu þar sem hann hefur
lýst skoðunum sínum á RÚV, kven
réttindum og því sem hæst ber í
þjóðfélaginu hverju sinni. Enda tel
ur Brynjar að þingmenn eigi ekki
að breytast í embættismenn þegar
þeir setjast á þing heldur eigi kjós
endur þeirra rétt á að vita hvað þeir
eru að hugsa hverju sinni.
Brynjar er yngstur þriggja
bræðra, fæddur árið 1960. Fjöl
skyldan bjó í Hlíðunum, leik
völlurinn var Klambratún og Vals
völlurinn. Hann hóf námsferilinn
í Hlíðaskóla, þaðan sem leiðin lá
í MH og loks í lagadeild Háskóla
Íslands þaðan sem hann útskrif
aðist sem lögfræðingur. Brynjar
þótti fremur latur í skóla enda hafði
hann um margt annað að hugsa og
úr lagadeildinni útskrifaðist hann
með 2. einkunn, eða 6,94.
Brynjar fór snemma að vinna
eins og títt var um ungmenni af
hans kynslóð og vann meðal annars
sem brunavörður hjá Slökkviliðinu
á sumrin á meðan hann var í há
skólanámi. Eftir útskrift úr háskól
anum hóf hann störf sem fulltrúi
hjá yfirborgarfógetanum í Reykja
vík og starfaði þar í fimm ár. Þá
opn aði hann eigin lögmannsstofu
og starfaði þar uns hann settist á
þing í vor sem leið.
Brynjar er kvæntur Arnfríði
Einarsdóttur héraðsdómara og
saman eiga þau tvo syni sem báð
ir stunda nú nám við lagadeild Há
skóla Íslands.
Hvers manns hugljúfi
Elsti bróðir Brynjars, Gústaf,
segir að hann hafi alltaf ver
ið hvers manns hug
ljúfi. „Hann er
í eðli sínu
hlédrægur, svo hlédrægur að það
jaðrar við feimni. Við erum mjög
samrýndir bræðurnir, það er varla
sá dagur sem við tölumst
ekki við. Við hittumst mikið fyrir
utan vinnu og erum miklir félagar.
Það sem einkennir Brynjar öðru
fremur er að honum finnst gaman
að góðum rökræðum, hann er bæði
vígfimur og rökfastur maður. Hann
er ekki maðurinn sem otar sínum
tota, það er fjarri honum. Hann er
ekki í hagsmunagæslu fyrir sjálfan
sig, það er ekki til neitt spillingar
element í honum. Hann er heiðar
leikinn uppmálaður,“ segir Gústaf
um litla bróður sinn.
Helgi Sigurðsson hæstaréttar
lögmaður er einn
elsti vinur
Jóhanna Margrét
Einarsdóttir
johanna@dv.is
Nærmynd „Hann bregst hart
við ef það er kom-
ið fram með frekju og
yfirgangi gagnvart þeim
hópum fólks sem á sér
fáa eða enga málsvara.
Sama um álit annarra
„Hann vill geta mætt með
skakkt bindi og í sokkum
sitt af hvoru tagi í vinnuna.
Honum er nákvæmlega
sama hvað fólki finnst,“
segir Þorgrímur Þráinsson
um Brynjar Níelsson.
FJÓRFALDIR
VILDARPUNKTAR
ICELANDAIR
ALLA HELGINA!
(1.–5. ÁGÚST)
Dæmi: 10.000 kr. áfylling
gefur 600 Vildarpunkta.
4
FAL
DIR
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum
þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair korti eða
American Express vildarkorti. Nánari upplýsingar um
vildarkerfi ÓB eru á ob.is/vildarkerfi
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
32
19
8