Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 35
 7Verslunarmannahelgin 2.–6. ágúst 2013 Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.isFERÐAFÉLAG ÍSLANDS Seiðmagn óbyggðanna Ferðafélag Íslands hefur gefið út Seiðmagn óbyggðanna, ferðaþætti eftir Gerði Steinþórsdóttur. Einstakar ferðalýsingar Gerðar að mestu byggðar á greinum hennar sem birtust í Morgunblaðinu undir heitinu ,,Á slóðum Ferðafélags Íslands.“ Fæst á skrifstofu FÍ Mörkinni 6 og í helstu bókabúðum. Frægustu útihátíðirnar L íklega er einhver allra frægasta útihátíð Íslandssögunnar sú sem haldin var í Vestmanna- eyjum árið 1874 þegar eyja- skeggjar komust ekki upp á land til að fagna kónginum og hefur hún verið haldin árlega síðan. Rann hún síðar saman við frídag versl- unarmanna sem var lögfestur árið 1894, en þá 13. september. Enn liðu því nokkur ár þangað til verslunar- mannahelgin varð til í þeirri mynd sem við þekkjum sem mestu ferða- helgi ársins. Á undanförnum áratug- um hafa nokkrar útihátíðir skráð sig á spjöld sögunnar umfram aðrar og hafa sumar verið haldnar um versl- unarmannahelgi og aðrar ekki. valurgunnars@gmail.com Atlavík 1984 Stuðmenn léku í Atlavík árið 1982 sem var fest á filmu í myndinni Með allt á hreinu. Tveim árum síðar bættu þeir um betur og drógu sjálfan Ringo Starr með sér, sem spilaði á trommur með þeim á sviðinu. Með honum í för var eiginkonan Barbara Bach sem leikið hafði í Bond-myndinni The Spy Who Loved Me. Margar sögur hafa spunnist um komu Ringos, svo sem að hann hafi fúlsað við humar og frekar kosið hamborgara, en fátítt var að stórmenni sæktu landið heim í þá daga. Tónlistarkeppni var haldin og lentu Greifarnir í fjórða sæti en Gaukar með Egil Helgason innanborðs í því þriðja. Eldborg 2001 Vafalaust er ljótasti kaflinn í sögu íslenskra útihátíða sá sem átti sér stað í Eldborg árið 2001. 14 stúlkur leituðu aðstoðar Neyðarmóttöku eftir að hafa verið nauðgað. Skipuleggjandinn Einar Bárðarson var harðlega gagnrýndur fyrir að slá slöku við í gæslu og mun fleiri sóttu hátíðina en búist var við. Tónlistarlegur hápunktur hátíðarinnar var endurkoma Jet Black Joe en hennar er minnst fyrir annað. „Aldrei aftur Eldborg,“ skrifaði Guðrún Agnarsdóttir í Læknablaðið. Hátíðin hefur ekki verið haldin síðan. Viðey 1984 Þessa sömu helgi var útihátíð haldin í Viðey og þykir ein sú misheppnaðasta sem sögur fara af. Aðeins um 200 manns keyptu miða og á sunnudeg- inum varð að blása allt af. Skipuleggjandinn Magnús Kjartansson kenndi vondri sunnan- átt og neikvæðum skrifum í Mogganum um að svo illa fór. Bauð hann krökkunum sem mættu samlokur og sígarettur og aðstoðaði þá við að komast aftur í land þegar ljóst var hvert stefndi. Þeir sem létu sig hafa það að mæta á annað borð voru þó í aðstöðu sem margir í dag vildi fegnir komast í, en það var að sjá Björk og Sykurmolana spila löngu áður en þau urðu fræg sem hljómsveitin Kukl. Uxi 1995 Woodstock-hátíð „ecstasy“- kynslóðarinnar, og líklega eru mun fleiri sem segjast hafa verið þar en í raun fóru. Þetta var ein fyrsta tilraunin til að halda metnaðarfulla tónlistarhátíð á alþjóðlegan mælikvarða hérlendis, einmitt á þeim tíma þegar Ísland var að komst á kortið sem tónlistarmiðstöð. Björk söng fjögur lög, en þar fyrir utan komu meðal annars fram The Prodigy og Atari Teenage Riot, en Bobby Gillespie var plötusnúður. Hátíðin var minna sótt en vonast var til og talsvert var um áflog og eiturlyfjaneyslu, en hún braut blað í sögunni og eins má segja um hana og Woodstock: Ef þú manst eftir því, þá varstu ekki þar. Saltvík 1971 Frægasta útihátíð 68 kynslóðarinnar hlýtur að vera sú sem haldin var á Kjalarnesinu hvítasunnu- helgina 1971. Ætlun Æskulýðsráðs Reykjavíkur var að stemma stigu við ölvun á útihátíðum, en allt fór úrskeiðis. Talsverð ölvun var frá upphafi og jókst hún um allan helming þegar skemmtistöðum höfuðstaðarins var lokað og eldra fólk tók leigubíla á svæðið. Áætlað er að 10.000 manns hafi verið viðstaddir en 8.000 miðar seldust. Margir gagnrýndu hátíðina eftir á, en sumar af helstu hljómsveitum tímabils- ins komu fram, svo sem Trúbrot og Náttúra og einnig Árni nokkur Johnsen. All Tomorrow‘s Parties 2013 Einhver glæsilegasta tónleikadagsskrá sem boðið hefur verið upp á hérlendis var þegar hin alþjóðlega ATP-hátíð var haldin fyrr í sumar á Ásbrú í Keflavík. Deerhoof, Thurston Moore, The Fall og Thee Oh Sees komu fram ásamt ein- valaliði íslenskra tónlistarmanna. Tónleikanna mun líklega helst vera minnst fyrir það þegar Nick Cave datt af sviðinu, en ekki síður fyrir magnaða sviðsframkomu hans í framhaldinu. Þótti hátíðin takast vel og verður vonandi framhald á, þó varla sé hún útihátíð í hefðbundn- um íslenskum skilningi. Margir gesta keyrðu heim að tónleikum loknum og tónlistin frekar en fylleríið var í fyrirrúmi. Húsafell 1969 Sama sumar og Woodstock var haldin vestra lögðu Íslendingar land undir fót og áætl- að er að um einn af hverjum fimm Íslendingum hafi farið út úr bænum þá verslunarmannahelgi. Stærsta hátíðin var á Húsafelli þar sem Trúbrot lék fyrir dansi, og vakti athygli að sumir aðdáendur dönsuðu ekki heldur störðu sem bergnumdir á. Blöðin lýstu því svo að það væri sem lítil borg hefði risið yfir helgina og fór allt vel fram, en þó voru á þriðja hundrað manns fjarlægð sökum ölvunar og sex tjöld brunnu vegna vanþekkingar á gastækjum. Ekki urðu þó teljandi slys á fólki. Árni í Eyjum 1996–2005 Oftar en einu sinni hefur orðið hálfgert uppþot á Þjóðhátíð í Eyjum vegna Árna Johnsen. Árið 1996 veittist hann að Páli Óskari sem lét vel að ástmanni sínum og sagðist Árni vera að vernda hátíðargesti fyrir ósiðlegheitum. Árið 2005 veittist hann svo að Hreimi söngvara Lands og sona. Árni sagðist aðeins hafa rekist utan í Hreim, en var ekki boðið að vera kynnir á þjóðhátíð árið eftir. Eitt frægasta atvikið var þó þegar hann lét kippa Rottweilerhundunum úr sambandi fyrir tíu árum, þá sjálfur á leið í fangelsi. Bæði Rottweiler og Páll Óskar munu spila á þjóðhátíð í ár en Ingó veðurguð stjórnar Brekkusöng, svo líkur eru á að allt muni ganga slysalaust fyrir sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.