Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 70
54 Fólk 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
Pabbi Heru vill verða borgarstjóri
n Býður sig fram í Christchurch
F
aðir tónlistarkonunnar Heru
Hjartardóttur, Hugo Kristins-
son, býður sig fram til borgar-
stjóra í einni stærstu borg Nýja-
Sjálands, Christchurch. Fjölskylda
Heru hefur búið í borginni um árabil
og komið ár sinni vel fyrir borð.
Hugo hefur ekki haft afskipti af
stjórnmálum áður og hefur hingað til
starfað við þróun hugbúnaðar. Hann
teflir djarft og býður sig fram á móti
Lianne Dalziel, reynslumikilli þing-
konu sem reyndar tapaði fyrir núver-
andi borgarstjóra, Bob Parker, í síð-
ustu kosningum.
Hugo er umhugað um upp-
byggingu borgarinnar eftir mikla
jarðskjálfta sem hafa skekið hana
síðustu ár. 4.423 jarðskjálftar hafa
mælst á svæðinu frá 4. september
2010 til septembermánað-
ar 2012.
Stærsti jarðskjálftinn
varð 22. febrúar árið 2011
og þá létu 185 manns líf-
ið. Tjónið nemur um 11
milljörðum Bandaríkja-
dala, eða 1.270 milljörð-
um króna.
Borgarbúar eru í sár-
um eftir náttúruhamfar-
irnar og mikillar upp-
byggingar er þörf. Hugo
segist hafa verið í lykil-
hlutverki síðustu misseri við upp-
byggingu og aðhlynningu þeirra sem
verst urðu úti í hamförunum. Í við-
tali við vefmiðilinn 3news.com, seg-
ist hann vilja meira gagnsæi í ákvarð-
anatöku borgaryfirvalda, traustari
uppbyggingu atvinnulífs og íbúða-
byggða og varðveislu merkra minja
í borginni.
„Þetta er mjög stór áskorun, ég
trúi að ég hafi fundið nýja leið að
markinu,“ segir Hugo.
Hugur Ís-
lendinga var hjá
Nýsjálendingum
þegar áfallið
reið yfir og fylgd-
ist þjóðin með vel-
gjörðum Heru og fjöl-
skyldu sem beittu sér í
hjálparstarfi eftir jarðskjálftana.
Meira en 100 þúsund manns
misstu heimili sín og meðan Hera
huggaði fólk með ljúfum tónum
var faðir hennar upptekinn við
að aðstoða heimilislausa að fá úrlausn
sinna mála. „Þetta er rosaleg lífsreynsla
og maður er enn þá frekar taugaveikl-
aður enda bíður maður bara eftir
næsta skjálfta,“ sagði Hera í viðtali við
Vísi um upplifunina. n
Veikindin reynast
dýrmæt reynsla
n Kalli Berndsen hélt upp á afmælið á Snaps n Fékk hálsfesti í afmælisgjöf
É
g sit hér í góðra vina hópi,
segir Karl Berndsen, hár-
greiðslu – og förðunarmeist-
ari, sæll og glaður þar sem
hann situr til borðs á Snaps
og fagnar afmæli sínu.
Karl greindist með heilaæxli
og hefur gengist undir meðferð
vegna þess. Hann fann fyrst fyrir
einkennum í ágúst í fyrra. „Mér
fór líða eitthvað undarlega í ágúst
en hélt að ég væri bara með flensu
og þetta myndi lagast. Það gerðist
ekki.“
Karl hefur treyst á æðri máttar-
völd í baráttu sinni við meinið.
„Þetta er verkefni sem þarf að
vinna. Ég bið til guðs að æxlið
hverfi. Ég hef alltaf verið trúaður
og það veitir mér styrk. Ég er sann-
færður um að ég eigi langt eftir.
Það eru mörg verkefni sem ég á
óunnin í lífinu,“ sagði hann í við-
tali við DV stuttu eftir að hann var
greindur.
Undir álagi
Karl hafði á þessum tíma verið undir
miklu vinnuálagi en tekist að ganga
frá sjónvarpsþáttum sínum áður en
hann var lagður inn.
Hann segir meðferðina ganga
vel. „Það gengur allt framar vonum,
meðferðin gengur mjög vel og ég er
að ná heilsu. Núna er verkefni mitt
að slaka á og ég er á leiðinni einn út
í sveit í ró og næði.“
Með mörg járn í eldinum
Kalli, eins og hann er oftast kallað-
ur, er landsþekktur fyrir að aðstoða
bæði konur og karla við að breyta
útliti sínu til hins betra. Hann hef-
ur lítið slakað á síðustu ár og hefur
haft fjölmörg járn í eldinum hverju
sinni.
Hann hefur séð um vinsæla sjón-
varpsþætti og um þessar mundir eru
þættir hans Í Nýju ljósi sýndir á Stöð
2 og njóta mikilla vinsælda. Fyrir
tveimur árum gaf Karl út fyrstu bók
sína – VAXI-n – sem hefur selst vel
og í febrúar var stofan hans Beauty
barinn flutt úr Kópavoginum í
Kringluna. Einnig sat Kalli í 30. sæti á
lista Besta flokksins í borgarstjórnar-
kosningunum í Reykjavík árið 2010.
Dýrmæt reynsla
En nú er tilveran með öðru sniði
hjá Kalla, hann hefur þurft að
dvelja á sjúkrahúsi og sætt krabba-
meinsmeðferð sem er krefjandi
verk efni fyrir hvern sem er.
Kalli er vinmargur og vinir og
vandamenn voru duglegir að heim-
sækja hann meðan hann dvaldi á
sjúkrahúsi og eru fegnir að fá hann
til baka. Hann naut þess mjög að
vera með vinum sínum áður en
hann keyrði út úr bænum og fékk frá
þeim fallega hálsfesti að gjöf og seg-
ist bæði fær um að njóta samvista
vinu og að vera einn og í næði.
Hann segir veikindin reynd-
ar hafa fært sér dýrmæta reynslu
og hann hafi uppgötvað á sér nýjar
hliðar.
„Ég komst að því þegar ég tókst á
við lífið eftir veikindin að ég á auð-
velt með að slaka á, verst að ég tamdi
mér það ekki fyrr. En þegar maður er
sleginn út af laginu þarf maður að
hugsa hlutina upp á nýtt og það hef-
ur reynst mér hollt,“ segir Kalli. „Ég
hef uppgötvað á mér nýjar hliðar
sem ég kann afskaplega vel við.“
Heilaæxlið sem læknar fundu
reyndist sem betur fer lítið og við-
ráðanlegt og Kalli segist hafa fulla
ástæðu til þess að vera bjartsýnn á
framhaldið. n
Lærði að slaka á
Veikindi Kalla Berndsen
hafa fært honum meiri
sjálfsþekkingu.
„Þegar maður
er sleginn út af
laginu þarf maður að
hugsa hlutina upp á nýtt.
Balti í
boltanum
Baltasar Kormákur er ekki aðeins
í framlínunni í Hollywood heldur
gerir hann sig gildandi á fótbolta-
vellinum líka.
Á dögunum mætti Baltasar
Kormákur ásamt nokkrum fé-
lögum sínum úr leikhúsinu á
knattspyrnuvöll Þróttara. Mæting
leikara var heldur slæleg og því
fengu félagarnir að spila með
liðsmönnum Þróttar á æfingu.
Frammistaða Baltasars Kormáks
vakti athygli og þótti hann fim-
ur með knöttinn og í afskaplega
góðu formi sem ekki er vanþörf á í
Hollywood.
Ömurlegt í
sumarbústað
Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs Lífs,
gaf lesendum Viðskiptablaðsins
nokkur ráð til þess að eiga öm-
urlegt frí. „Ef auka á spennuna
er líka tilvalið að blanda foreldr-
um sínum í málið. Sumarbústaðir
eru kjörnir áfangastaðir. Undan-
komuleiðir eru engar og nándin
verður sem mest. Langar sumar-
bústaðaferðir eru pyntingar í mín-
um huga,“ sagði Þóra sem reyndar
var nýkomin úr einni slíkri sumar-
bústaðaferð með foreldrum sínum
og systur, Sóleyju Tómasdóttur.
Flytur heim
Hin sívinsæla söngkona Leoncie
eða Ískryddsdrottning eins og hún
er gjarnan kölluð, hyggst flytja aft-
ur heim til Íslands ásamt Viktori,
eiginmanni sínum, en þau hafa
búið í Bretlandi að undanförnu.
„Þegar ég er búin að selja húsið
hérna úti kaupum við hjónin hús
á Íslandi,“ segir Leoncie og bætir
við: „Ég vil aldrei kaupa hús í Bret-
landi aftur þó svo húsin séu ódýr-
ari hérlendis.“
Þann 17. ágúst næstkomandi
verður Leoncie aðalnúmerið í
skemmtun í London á vegum The
House of Hot Breath og er hún titl-
uð „YouTube-ofurstjarna“ í aug-
lýsingu fyrir viðburðinn. Þar er að
öllum líkindum vísað í myndband
Leoncie við lagið Gay World sem
vakið hefur nokkra athygli og kom
henni meðal annars í sjónvarps-
þáttinn Sean Walsh World á sjón-
varpsstöðinni Comedy Central
eins og DV greindi frá á dögunum.