Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 56
„Ég er með
blæti fyrir al-
þjóðlegri
matseld og hef
oft hugsað út
fyrir boxið til
að bjarga mér
í kringum hrá-
efnis- og fjár-
magnsskort.
Þessi uppskrift kemur frá Brasilíu og
telst til hversdagsmatar þar í landi.
Ég kynntist þessu á Suður-Spáni
þegar búið var að loka matarmark-
aðinum og mölflugurnar búnar að
skrá peningaveski mitt sem lög-
heimili. Ég setti því frosið surimi í
aðalhlutverk [surimi er „krabbakjöt-
ið“ sem maður sér oftast í sushi og
samanstendur af samanmaukuðum
fiskiafgöngum með krabbabragði
og sterkju]. Það besta við þessa upp-
skrift er að það er eiginlega skylda
að kaupa kippu af bjór með. Þessi
kolvetnisríka amatörútgáfa tókst
það vel upp að konan heimtar þetta
enn með reglulegu millibili,“ segir
Ragnar Egilsson, matargagnrýnandi
Reykjavík Grapevine, en hann er
matgæðingur DV að þessu sinni.
Brasilískt vatapa
n Vatapa
n Ólífuolía
n 2–3 hvítlauksgeirar
n Þumall af fersku engifer
n 1 bolli af gömlu
hvítu brauði, rifið
smátt
n 1 dós kókos-
mjólk
n 2 pakkar af
frosnu krabbakjöti
(þíðið og brytjið smátt)
n 1 1/2 bolli heimalagaður fiskikraftur
eða fiskiteningur leystur upp í vatni
1 n fínt hakkaður laukur
n Mjög fínt muldar hnetur (best að rista
þær örlítið á pönnu fyrst – kasjúhnetur
eru bestar en hef notað möndlur með
hýði út af verðinu)
n Chiliduft eða brytjaður ferskur chili
eftir smekk
n Karríduft eftir smekk
n Ein dós af söxuðum tómötum
n Lítil dós af bjór
n 1 límóna (ásamt berki)
n Lúka af fersku kóríander (saxað)
n Salt og pipar
Aðferð
Best er að undirbúa allt í skálar áður
en byrjað er að elda því eldunar-
tíminn er stuttur. Fínsaxið engi-
fer og hvítlauk saman. Leggið rifna
brauðið í skál með kókosmjólkinni.
Blandið tómatdós, bjór og safa og
berki úr einni límónu saman. Hitið
ólífuolíu á wokpönnu við meðalhita.
Setjið engifer-hvítlauk á wokpönnu
(ca 2 mín). Bætið saxaða lauknum
saman við (ca. 5 mín). Muldar hnet-
ur saman við ásamt chili og karrí (ca
5 mín). Tómat-bjór-lime saman við
(ca 2 mín). Bæta fiskisoði smátt og
smátt saman við (ca 5 mín). Bæta
kókosmjólk/brauði varlega við (ca 5
mín). Bæta við saxaða krabbakjöt-
inu (ca 5 mín). Ferskt kóríander.
Yfir rjúkandi disk af hvítum hrís-
grjónum. Fæðir fjóra með góðu
móti.
40 Lífsstíll 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
Fiskiolía góð við streitu
n Áhrif andlegrar streitu á hjartaheilsu minni
N
ýleg rannsókn á vegum
Michigan Technological
University, New York Med-
ical College og Mayo-
læknastöðvarinnar, sem stað-
sett er í Rochester, Minnesota,
sýnir fram á að inntaka fiskiolíu
hafi verndandi áhrif gegn áhrif-
um andlegrar streitu á hjartslátt-
artíðni og vöðvahreyfingar drif-
kerfisins, sem er hluti af sjálfvirka
taugakerfinu. Rannsóknin var lítil
í sniðum, en aðeins 67 einstak-
lingar voru rannsakaðir. Hún gaf
engu að síður merkilegar niður-
stöður.
Alls tók rannsóknin átta vik-
ur og var þátttakendum, sem all-
ir voru við góða heilsu, skipt í
tvo hópa. Annar hópurinn tók 9
grömm af fiskiolíu á dag en hinn
hópurinn 9 grömm af ólífuolíu og
fengu þátttakendur ekki að vita
hvorum hópnum þeir tilheyrðu.
Á þeim átta vikum sem rannsókn-
in stóð yfir voru gerðar mælingar
á blóðþrýstingi, hjartsláttartíðni
og fleiru auk þess sem gerðar voru
ýmsar prófanir til að athuga stress
og andlega streitu þátttakenda.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru þær að þeir sem tóku fiski-
olíu á hverjum degi sýndu minni
viðbragðshæfni af hálfu drifkerf-
isins auk þess sem áhrif andlegr-
ar streitu á hjartsláttartíðni höfðu
minnkað. Lýsisinntaka virðist þó
ekki hafa áhrif á blóðþrýsting.
Þessar niðurstöður sýna fram
á enn ein jákvæð áhrif fiskiolíu á
heilsu manna, sér í lagi á hjarta-
og æðakerfi líkamans. Fiskiolíur
er ríkar af omega-3 fitusýrum sem
eru taldar afar heilsubætandi, svo
sem við lækkun á blóðþrýstingi,
minnkandi líkum á myndun fitu-
útfellinga vegna æðahrörnunar
og minnkandi líkum á heilablóð-
falli hjá fólki í áhættuhóp. n
horn@dv.is
K
artöflur hafa haldið lífinu
í Evrópubúum svo öldum
skiptir því auk þess að vera
dásamlegar á bragðið eru þær
einstaklega hollar og nær-
ingarríkar. Tími kartaflanna er brátt
að hefjast en kartöfluræktendur eru
þegar hafnir að taka upp fyrstu hluta
uppskerunnar. Þegar hægt er að kom-
ast yfir nýuppteknar, íslenskar eðalkar-
töflur er ekki annað hægt en að borða
þessa dásamlegu fæðutegund í öll mál.
Blaðamaður DV tók saman upp-
skriftir að nokkrum kartöfluréttum
sem að sjálfsögðu bragðast best með
nýuppteknum, íslenskum kartöflum.
Stappaðar kart-
öflur
Mörgum þyk-
ir einfaldleg
langbest að
sjóða kartöfl-
ur og stappa
þær svo með
smjöri. Stappað-
ar kartöflur er ótrú-
lega einfalt að útbúa en þær henta vel
með nánast öllum fisk- og kjötréttum.
Nýjar, íslenskar kartöflur þarf ekki að
afhýða og því er um að gera að stappa
þær með hýðinu sem er afar ríkt af
trefjum og ýmsum næringarefnum. Þó
gæti verið nauðsynlegt að skola hýðið
áður en kartöflurnar eru soðnar.
Víða í norðurhluta Frakklands er
vinsælt að stappa kartöflur með rjóma
í stað smjörs en það gefur þeim enn
mýkri áferð og bragðast auk þess afar
vel.
Bakaðar
kartöflur
Bakaðar kar-
töflur eru
ómissandi
með flest-
um grillmat
enda unaðslegar
á bragðið. Betra er að
nota kartöflur í stærra lagi þegar baka á
þær á grilli eða í ofni.
Takið stórar kartöflur og skolið þær
vel. Stingið í þær vítt og breitt með gaffli
eða skerið grunnar rákir í báðar átt-
ir þannig að skurðirnir myndi köflótt
mynstur. Stráið ólífuolíu eða setjið
væna smjörklípu á kartöflurnar og vefj-
ið þeim svo inn í álpappír. Stingið inn
í ofn eða setjið þær á grillið og leyfið
þeim að bakast þar til þær eru alveg
mjúkar í gegn. Þegar kartöflurnar eru
tilbúnar er gott að setja örlitla smjör-
klípu til viðbótar á þær og strá yfir þær
salti. Eins er gott að setja sýrðan rjóma
og graslauk, beikonbita og/eða rifinn
ost á kartöflurnar til að gera þær enn
matarmeiri og bragðbetri.
Brúnaðar kart-
öflur
Brúnaðar
kartöflur eru
eitt helsta
meðlæti
margra Ís-
lendinga á að-
fangadagskvöld.
Rétturinn er upprunninn í Dan-
mörku en hefur fest sig í sessi sem
vinsælt meðlæti á jólunum hérlend-
is. Sjóðið kartöflur og afhýðið. Best
er að geyma þær í kæli yfir nótt og af-
hýða kaldar. Setjið sykur á pönnu og
látið hann brúnast en þegar allur syk-
urinn hefur bráðnað er smjör sett út
á pönnuna. Hrærið þar til smjörið er
bráðnað og blandan farin að krauma.
Setjið kartöflurnar þá á pönnuna og
hrærið varlega þar til þær eru þakt-
ar með karamellu. Ef karamellan er
of þykk er gott að bæta smá vatni eða
jafnvel rjóma út á.
Franskar
kartöflur
Franskar
kartöflur eru
einn vinsæl-
asti réttur í
heiminum í
dag og er það
að mörgu leyti
stórum skyndibitakeðjum frá Norð-
ur-Ameríku að þakka. Þær eru tald-
ar eiga upptök sín á landsvæði sem
nú tilheyrir Belgíu en til eru heim-
ildir um að djúpsteiking á kart-
öflum hafi hafist þar í lok 17. aldar.
Til að útbúa franskar kartöflur
þarf ekki annað en að skera kart-
öflur í strimla og djúpsteikja þær
upp úr olíu, ýmist í djúpsteiking-
arpotti eða venjulegum, djúpum
potti. Gott er að leyfa frönskunum
að kólna og strá svo yfir þær salti.
Kartöflumús
Kartöflumús
er ekki óal-
gengt með-
læti á ís-
lenskum
heimilum
enda pass-
ar hún vel með
ýmsum kjöt- og
fiskréttum. Rétturinn birtist fyrst
árið 1747 í matreiðslubókinni
The Art of Cookery eftir Hannah
Glasse og varð fljótt afar vinsæll
í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Kartöflumús er útbúin þannig að
kartöflur eru soðnar og maukað-
ar. Síðan er smjöri og mjólk, eða
jafnvel rjóma, bætt út á og músin
svo bragðbætt með salti, pipar og
öðru kryddi að vild. Vinsælt er að
bragðbæta kartöflumús með hvít-
lauk, beikoni, osti eða rjómaosti
svo eitthvað sé nefnt. n
Kartöflur í öll mál
n Næringarríkar og hollar n Tími kartaflanna runninn í garð
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Hollt og gott Rann-
sóknin sýndi fram á enn
eina ástæðuna til að
taka inn lýsi.
Ragnar Egilsson
Matargagnrýnandi Reykjavík Grapevine
Brasilískt
vatapa
Matgæðingurinn