Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Qupperneq 23
Fréttir 23Helgarblað 2.–6. ágúst 2013
Á
dögunum fögnuðu Norður-
Kóreumenn því að 60 ár væru
liðin frá vopnahlénu við Suð-
ur-Kóreu. Fáir Vesturlanda-
búar samglöddust Norð-
ur-Kóreumönnum jafn mikið og
Spánverjinn Alejandro Cao de Benos,
38 ára Katalóníumaður. Alejandro
er forsvarsmaður samtakanna Kor-
ean Friendship Association sem eru
alþjóðleg samtök stuðningsmanna
Norður-Kóreu. Samtökin starfa með
menningarmálanefnd Norður-Kóreu
og er starf nefndarinnar – og samtaka
Alejandro – meðal annars fólgið í að
efla menningartengsl Norður-Kóreu
við aðrar þjóðir. Alejandro er í raun
óopinber sendiherra Norður-Kóreu
og eini Vesturlandabúinn sem skipað-
ur hefur verið fulltrúi þjóðarinnar.
Vefritið Vice Magazine náði tali af
Alejandro á dögunum, eða skömmu
áður en hann hélt til Norður-Kóreu til
að samfagna með vinum sínum í einu
fátækasta ríki heims.
Mikill heiður
Í samtökum Alejandro eru þrettán
þúsund meðlimir og eiga þeir það
sameiginlegt að vilja vera vinir Norð-
ur-Kóreu. Ljóst er að Alejandro er
mikils metinn í Norður-Kóreu en
þegar hann fór þangað á dögunum
hitti hann meðal annars forsetann
Kim Jong-un og aðra hátt setta emb-
ættismenn í landinu.
Alejandro segist fyrst hafa fengið
mikinn áhuga á Norður-Kóreu þegar
hann var sextán ára. Samtökin urðu
til nokkru síðar og varð umfang
þeirra fljótt nokkuð mikið. Með að-
stoð dómsmálaráðuneytis Spánar
heimsótti hann Norður-Kóreu í nokk-
ur skipti og hélt fyrirlestra um stöðu
þjóðarinnar um víða veröld. Það var
svo árið 2002 að Norður-Kóreumenn
skipuðu hann sem sérstakan erind-
reka þjóðarinnar. „Mér fannst það
mikill heiður enda tók það mig tíu ár
að ávinna traust þeirra,“ segir Alej-
andro, eða Cho Son II eins og hann er
kallaður í Norður-Kóreu.
„Vinalegur“ einræðisherra
Vegna stöðu sinnar hefur hann hitt
marga hátt setta embættismenn í
Norður-Kóreu. Hann ber Kim Jong-il,
fyrrverandi forseta, sem lést árið 2011,
góða söguna og sömuleiðis syni hans
og núverandi leiðtoga, Kim Jong-un.
„Ég hitti Kim Jong-il nokkrum sinn-
um fyrir andlát hans og þáði meira að
segja gjafir frá honum. Kim Jong-un
er nokkurs konar blanda af föður sín-
um og afa. Eins og Kim Il-sung er hann
vinalegur og finnst gaman að spjalla,“
segir hann.
Alejandro býr á Spáni þar sem
hann sinnir störfum sínum fyrir
Norður- Kóreu. Aðspurður hvers vegna
hann búi ekki í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu, segir hann: „Ef ég
gerði það þá gæti ég ekki sinnt störfum
mínum jafn vel; veitt viðtöl og fylgst
með þeirri umræðu sem er í gangi um
Norður-Kóreu í öðrum ríkjum.“
Vill eitt ríki á Kóreuskaga
Mannréttindasamtök og Sameinuðu
þjóðirnar hafa gagnrýnt harðlega það
harðræði sem íbúar Norður-Kóreu
eru beittir. Efnahagsástand landsins
er í molum og eru þrælkunarbúðir
víða um landið þar sem „óvinum“ rík-
isins er haldið. Alejandro segir að sú
mynd sem teiknuð er upp af Norður-
Kóreu í fjölmiðlum sé ónákvæm. Þrátt
fyrir erfiðleika standi þjóðin saman og
einhugur ríki um stjórn hennar, ein-
ræðisherrann Kim Jong-un. „Það eru
mistök að halda að Norður-Kórea sé
að hruni komin. Það mun aldrei ger-
ast með núverandi leiðtoga.“ Hann
vonast þó til þess að Norður-Kórea
og Suður-Kórea muni sameinast í eitt
ríki einn daginn en það velti alfarið á
Suður-Kóreu og sambandi þeirra við
Bandaríkin.
Aðspurður um helstu vinaþjóðir
Norður-Kóreu segir Alejandro að Kín-
verjar séu sem fyrr mikil vinaþjóð.
„Og Rússland þar sem margir Norð-
ur-Kóreumenn búa þar. Kambódía,
Laos og Víetnam einnig. En þetta er
að breytast. Í dag eigum við marga
stuðningsmenn í Evrópu og í Banda-
ríkjunum.“
Sjálfboðavinna
Sem fyrr segir eru þrettán þúsund
meðlimir skráðir í samtökin og eru
flestir þeirra frá Bandaríkjunum. Þar
á eftir koma Bretar. Alejandro segist
aldrei hafa fengið greitt krónu fyrir
störf sín fyrir Norður-Kóreu. „Við ger-
um þetta allir í sjálfboðavinnu og not-
um frítíma okkar í að vinna fyrir Norð-
ur-Kóreu.“
Norður Kóreumenn hafa lengi
verið sakaðir um að brjóta á mann-
réttindum þegna sinna. Hann seg-
ir að þær efnahagsþvinganir sem rík-
ið hefur verið beitt séu ekki tilkomnar
vegna mannréttindabrota í Norður-
Kóreu. „Nei, alls ekki. Það sem heyr-
ir til mannréttinda eru þættir eins og
þak yfir höfuðið, matur, vatn, ókeyp-
is heilbrigðisþjónusta og menntun.
Ég hef oft komið til Bretlands þar sem
ég hef séð hungrað og fátækt fólk og
mörg samfélagsmál vandamál. Þessar
þjóðir eiga að leysa sín eigin vandamál
áður en þær fara að dæma aðrar þjóð-
ir,“ segir Alejandro og nefnir Bandarík-
in og Spán einnig í þessu samhengi. n
Mikils Metinn í
norður-kóreu
n Alejandro er eini Vesturlandabúinn til að gegna opinberri stöðu fyrir stjórnvöld Norður-Kóreu
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Eins og Kim Il-sung
er hann vinalegur
og finnst gaman að
spjalla.
Stoltur Alejandro segist hafa
verið afar stoltur þegar hann
var gerður að sendifulltrúa
stjórnvalda í Norður-Kóreu.
Hér stillir hann sér upp með
norðurkóreskri konu.
Sendiherra Alejandro
var gerður að sérstökum
erindreka árið 2002.
Á flakki Hér er Alejandro með fyrrverandi forseta norður-kóreska þingsins. Alejandro fer reglulega til Norður-Kóreu þar sem hann hittir hátt setta aðila.
Mikils metinn Yfir-
völd í Pyongyang meta
starf Alejandro mikils.
Hér er hann með Kim
Yong-nam embættis-
manni í höfuðborginni.