Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 30
2 2.–6. ágúst 2013 Verslunarmannahelgin
Þetta þarftu
á útihátíðina
Það eru nokkrir hlutir sem geta reynst ómissandi á útihátíð-um. Í íslenskri veðráttu og
efnahagsástandi er eins gott að
vera við öllu búin/n og hér á eftir
fylgja nokkur heilræði.
Stígvél
Ef marka má
veðurspá
verður besta
veðrið á Suð-
vesturlandi
og því ef til
vill best að vera
bara í sandölum
á höfuðborgarsvæðinu um verslunar-
mannahelgina. Þeir sem ætla á útihátíð
ættu þó að íhuga að fjárfesta í stígvélum.
Þau gera gæfumuninn þegar gengið er
um Herjólfsdal eða mjög nærri mýrar-
boltavellinum á Ísafirði. Þau eru þægileg,
notadrjúg og henta eiginlega í öllu veðri.
Sólgleraugu
Þú situr í brekkunni
og blessuð sólin,
sem elskar allt,
skín beint í augun
á þér. Myndirnar
af þér úr brekkunni
minna meira á
grettusamkeppni en
smart stælpíu eða gæja sem er við öllu
búin/n. Þú getur verið laus við þetta með
því að kippa með þér sólgleraugunum.
Þau geta líka komið sér vel ef tekið var
of harkalega á því kvöldið áður (nú eða
ef þú ert með gras ofnæmi) og skartar
fagurrauðum og þrútnum augum.
Heimasmurt
Það getur reynst
bæði dýrt og óhollt
að kaupa sér
skyndibita. Það
fer betur með
fjárhag heimil-
isins að taka sér
smjörhníf í hönd og
útbúa nesti. Það þarf
ekki að vera flóknara en samloka með
osti og skinku, en fyrir lengra komna er
hægt að vera með alls kyns útfærslu á
smørrebrød.
Getnaðarvarnir
Getnaðarvarnir ættu að
vera staðalbúnaður
fólks sem stundar gott,
heilbrigt og ábyrgt
kynlíf.
Bakpoki
Síðast en ekki
síst þarftu bak-
poka. Það er
hægt að koma
fyrir nánast öllu
sem minnst var
á hér að framan í
slíkri tuðru. Þangað
er hægt að setja eða
sækja nestið, sólgleraugun, regnjakka,
stígvélin og ekkert týnist.
Stuð á Akureyri
hvernig sem viðrar
n Eyþór Ingi, Páll Óskar og Stuðkompaníið á Einni með öllu
S
tuðið byrjaði hér á Akur-
eyri strax í gærkvöldi en
undanfarin ár hefur sjón-
varpsstöðin N4 svona byrj-
að helgina á fimmtudeg-
inum með tónleikum og það hefur
þótt góður undirbúningur fyrir það
sem koma skal,“ segir Davíð Rúnar
Gunnarsson, einn skipuleggjenda
Einnar með öllu á Akureyri.
Ein sú stærsta
Sú verslunarmannahelgarhátíð er
með þeim allra stærstu sem fram
fara þessa miklu skemmtanahelgi
og í meðalári er líklega aðeins Þjóð-
hátíðin í Eyjum sem trekkir að fleira
fólk en hátíð Akureyringa. Ólíkt
öðrum slíkum fer skemmtana-
haldið á Akureyri fram um allan
bæinn svo að segja. Skemmtanir
af ýmsu tagi má finna á tjaldsvæð-
inu Hömrum þar sem fjölskyldu-
fólk kemur sér gjarnan fyrir enda
pláss nóg fyrir smáfólkið að leika
sér. Yngra fólkið er hrifnara af tjald-
svæðinu við sundlaugina enda það-
an styttra að fara í miðbæinn og
skemmta sér og sínum. Viðburðir
fara fram alla helgina í Lystigarðin-
um fallega sem og í hinni kostulegu
skautahöll heimamanna. Stíf dag-
skrá er fyrir alla aldurshópa í Skáta-
gili við göngugötuna bæði í dag og
á morgun eftir hádegið og þar kem-
ur meðal annars fram Páll Óskar
Hjálmtýsson auk þess sem hinsegin
ganga norðanmanna fer þar um á
laugardeginum.
Spár fara batnandi
Að sögn Davíðs er fjölmargt annað
áhugavert að sjá og upplifa á hátíð-
inni að þessu sinni og hann gefur
lítið fyrir veðurspár sem gera illu
heilli ráð fyrir talsvert köldu veðri
þegar þetta er skrifað. Samkvæmt
Veðurstofu Íslands fer hitamælir-
inn varla yfir tíu stig þessa helgina.
„Hitinn skiptir ekki öllu máli því
meðan ekki er rigning og hvasst er
alltaf hægt að klæða smá kulda af
sér. Annars hafa spár verið að breyt-
ast aðeins til batnaðar síðustu sól-
arhringa og við vonum að sólin sýni
sig öðru hverju allavega og hér verði
bara gott og þægilegt að vera.“
Stuðkompaníið aftur á svið
Í huga þeirra sem skipuleggja há-
tíðina er rúsínan í pylsuendanum
tónleikar hljómsveitarinnar Stuð-
kompanísins sem var æði vin-
sæl á árum áður og var þá skip-
uð heimamönnum að öllu leyti. Sú
sveit hefur aðeins tvívegis komið
fram í hartnær 20 ár og í fyrra skipt-
ið í Sjallanum á Akureyri árið 2006
og troðfyllti þá húsið. Fjölmargir
aðrir þekktir tónlistarmenn stíga á
svið þessa helgi bæði í göngugöt-
unni, á Ráðhússtorgi og á börum og
skemmtistöðum í bænum. Nægir
þar að nefna Pál Óskar, Hjálma,
Eyþór Inga og Siggu Beinteins svo
fáir séu nefndir. Síðast en ekki síst
er flugeldahátíðin á sunnudags-
kvöldið sem markar endalok há-
tíðarinnar þetta árið en sú flugelda-
sýning verður stærri og flottari með
hverju árinu. Davíð hvetur alla sem
vilja lyfta sér upp að láta sjá sig og
taka þátt og lofar að enginn verði
svikinn af heimsókn á Eina með
öllu. n
albert@dv.is
„Hitinn skiptir ekki
öllu máli því með-
an ekki er rigning og
hvasst er alltaf hægt að
klæða smá kulda af sér.
Pollurinn
Aðalskemmtunin fer fram
við Pollinn í Leikhús-
brekkunni.
Opið alla helgina
Föstudag 13:00 - 19:00
Laugardag 12:00 - 21:00
sunnudag 14:00 – 18:00
Mánudag 13:00 – 21:00
akstursíþróttasvæði
aÍH við KrÍsuvÍKurveg
sími 5530500 www.gokarthollin.is