Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Síða 32
4 2.–6. ágúst 2013 Verslunarmannahelgin
Brúðkaup og róleg fjölskyldustemming
Þ
að er yfirleitt róleg og nota-
leg stemming um verslunar-
mannahelgina inni í Básum
á Goðalandi,“ segir Skúli H.
Skúlason, framkvæmdastjóri Úti-
vistar. „Við búumst við að það geti
orðið um 400 manns sem verða á
tjaldstæðunum.“
Það er pláss fyrir um 800 til 1.000
manns á tjaldstæðunum en Skúli
segir að skógurinn og kjarrið gleypi
tjöldin og því finnist fólki oft ekki svo
margt fólk á svæðinu. Í Básum er góð
tjaldaðstaða, útigrill, vatnssalerni og
sturtur. Þar er hins vegar ekki raf-
magn.
Góð færð hefur verið inn í Bása
síðustu vikur, að vísu er Hvannáin
stundum farartálmi, botninn á henni
getur verið grýttur og hún breytir oft
um farveg.
Ekki er skipulögð dagskrá í Bás-
um um verslunarmannahelgina. All-
ar helgar er þar kveiktur varðeldur á
laugardagskvöldinu þar sem menn
koma og syngja saman. Það sama
er uppi á teningnum um verslunar-
mannahelgina. Fjöldi gönguleiða er í
nágrenni tjaldstæðisins og skálanna,
bæði langar og krefjandi gönguleið-
ir, til dæmis upp á Fimmvörðuháls,
og stuttar og auðveldar eins og inn í
Stakkholtsgjá.
„Það er yfirleitt fjölskyldufólk sem
kemur í Bása um verslunarmanna-
helgina. Unglingarnir fara ann-
að. Það verður brúðkaup í Básum á
laugardaginn það er orðið nokkuð
algengt að fólk gifti sig þar, ég held að
þetta sé þriðja eða fjórða brúðkaupið
þar í ár,“ segir Skúli. n
johanna@dv.is
Klassískur
kryddlögur
n 6–7 msk. ólífuolía
n nokkrir hvítlauksgeirar, saxaðir
smátt eða pressaðir
n safi úr sítrónu
n ferskt rósmarín, saxað smátt
n þurrkað timjan
n nýmalaður pipar
Þ
að eru rúm sjötíu lið búin
að skrá sig til leiks,“ segir Jó-
hann Bæring Gunnarsson,
einn aðstandenda Mýrar-
boltans sem fer fram um
verslunarmannahelgina. Að venju
verður boðið upp á skítuga stemn-
ingu í Tungudal í Skutulsfirði og von-
ast Jóhann, sem titlar sig skíthæl, til
þess að metþátttaka verði að þessu
sinni. „Það voru hundrað lið í fyrra
en miðað við sama tímabil í fyrra
erum við aðeins yfir. Það færist alltaf
líf í skráningarnar síðustu dagana.“
Mýrarboltinn hefur verið í boði um
verslunarmannahelgina frá árinu
2005 og hefur hann notið mikilla vin-
sælda.
Glæsileg dagskrá
Jóhann segist lofa því að Mýrarbolt-
inn verði drullugri í ár en í fyrra enda
sé búið að fjölga völlum. „Það verða
átta vellir og það gefur auga leið að
það verður meiri drulla.“ Ljóst er að
fyrir þá sem leggja leið sína vestur
verður nóg í boði. Mýrarboltamótið
hefst klukkan 10 að morgni laugar-
dags og er búist við að keppni ljúki
klukkan 18. Úrslitakeppni fer svo
fram á sunnudeginum. Á laugar-
dagskvöld er fjörubrenna og stórtón-
leikar á Suðurtanga þar sem með-
al annars Mugison stígur á svið. Að
tónleikum loknum verður flugelda-
sýning sem Jóhann lofar að verði öll
hin glæsilegasta. „Við erum að bjóða
upp á fleiri böll í kringum viðburðina
og fá hörkugóðar hljómsveitir. Ég
get lofað stærstu brennu og flug-
eldasýningu um verslunarmanna-
helgina.“ Meðal annarra hljómsveita
og tónlistarmanna sem munu koma
fram má nefna Retro Stefson, Jónsa í
Svörtum fötum, Jónas Sigurðsson og
Ritvélar framtíðarinnar, Playmo og
fjölmarga plötusnúðar.
Verð í Mýrarboltann og á alla tón-
leika og skemmtistaði bæjarins er
9.500 krónur en þeir sem taka ekki
þátt í Mýrarboltanum en vilja passa
á tónleika og skemmtistaði borga
7.500 krónur. Frítt
verður á brennuna,
flugeldasýninguna
og að sjálfsögðu
geta allir horft á
Mýrarboltann án
þess að greiða fyrir
það.
Hugmynd frá
Finnlandi
Mýrarboltinn hélt
innreið sína á Ís-
landi árið 2004
eftir að tveir
vestfirskir eldhugar skelltu sér á
Heimsmeistaramót mýrarboltans
í Finnlandi árið 2004. Strax sama
ár hóf mýrarboltinn innreið sína á
Vestfirði en stuttu eftir heimkom-
una fór fram mýrarboltamót á Ísa-
firði. Á vef Mýrarboltafélags Íslands
segir að eftir góðar móttökur kepp-
enda og áhorfenda á mótinu á Ísa-
firði hafi verið ákveðið að slá til og
halda veglegt mót sumarið 2005.
„Mótið sló í gegn og tóku 14 lið þátt,
þar af 5 kvennalið,“ segir á vef félags-
ins og því bætt við að Mýrarbolta-
félag Íslands, sem heldur utan um
mótahald hafi einmitt verið stofnað
í kjölfarið á vel heppnaðri keppni í
greininni.
Jóhann segist lofa góðri stemn-
ingu í Mýrarboltanum um helgina.
„Það verður drullugóð stemning.
Það er alveg á hreinu.“ n einar@dv.is
„Drullugóð
stemning“
n Mýrarboltinn á Ísafirði frá árinu 2005
„Það verða
átta vellir
og það gefur auga
leið að það verður
meiri drulla
Góð stemning Stemningin í Mýrarboltanum er jafnan góð. Baráttan er hörð en allir eru þó komnir til að hafa gaman.
Grillspjót
eru sniðug
Þegar haldið er í útilegu er hugs-
unin yfirleitt að flækja matarmál-
in ekki of mikið. Margir detta í
að grípa með sér pylsupakka eða
hamborgara til að skella á grillið.
Það þarf hins vegar ekki að vera
neitt flóknara að grilla dýrindis
kjöt, en það krefst þó stundum
smá undirbúnings. Að skera kjöt
niður í litla teninga og stinga upp
á grillspjót er til dæmis mjög snið-
ugt. Þá er gott að leyfa bitunum að
liggja í kryddlegi í nokkra klukku-
tíma áður en þeir eru þræddir upp
á spjótin. Þetta er hægt að gera við
nánast allt kjöt og jafnvel fisk, ef
hann er þéttur í sér. Svo getur líka
verið skemmtilegt að setja græn-
meti á spjótin með kjötinu.
Það er auðvelt að grilla kjötið
á spjótunum og í það þarf í raun
engin áhöld. Kjötinu er einfald-
lega snúið á grillinu með því að
grípa um endana á spjótunum.
Kryddlög má nánast búa til úr
því kryddi sem hugurinn girnist,
en uppistaðan í leginum er gjarn-
an ólífuolía.
Þá er einnig hægt að grilla
eftirrétti á spjótum. Til dæmis
stinga ávöxtum, sykurpúðum og
súkkulaði á spjót og halda yfir
grillinu í skamman tíma. Ekki er
skynsamlegt að leggja eftirréttar-
spjótin beint á grillið en gott get-
ur verið að hafa einnota álbakka
undir spjótunum.
Eyþór Ingi á
Neistaflugi
Hátíðin Neistaflug í Neskaupstað
hefur fest sig í sessi sem ein af stóru
bæjarhátíðunum um verslunar-
mannahelgina. Hátíðin er kær-
komið tækifæri fyrir brottflutta
bæjarbúa til að snúa aftur í sinn
heimabæ og skemmta sér með vin-
um og ættingjum. En hátíðin býður
líka upp á skemmtidagskrá fyrir þá
sem vilja sækja Neskaupstað heim.
Dagskrá hátíðarinnar er ekki af
verri endanum. Á daginn skemmta
Gunnar og Felix börnum auk
Ingó töframanns. Boðið er upp á
dansleiki á kvöldin. Á fimmtudags-
kvöld spila Dúndurfréttir, fimmtu-
dagskvöld er það Eyþór Ingi sem
treður upp og á laugardagskvöld
spilar Eyþór Ingi ásamt hljóm-
sveitinni Buffi fram undir morgun.
Á sunnudeginum er heljarinnar
flugeldasýning og svo ball með Sál-
inni í Egilsbúð.
Fyrir bæjarbúa er svo nóg
um að vera – boðið er upp á
söngvakeppni milli hverfa,
Austurlandsmót í Drullubolta,
fótboltamót milli hverfa og barna-
skrúðgöngur.
n Í Básum í Þórsmörk er pláss fyrir 800 til 1.000 manns á tjaldsvæðinu
Básar Það verður varðeldur og róleg fjölskyldustemming í Básum á Goðalandi um
verslunar mannahelgina.