Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Side 57
Lífsstíll 41Helgarblað 2.–6. ágúst 2013
Ekki sóa berkinum
n Frosið sítrónukurl er gott í drykki
F
lestir sem matreiða sítrón-
ur kreista safann úr en henda
berkinum og hratinu í ruslið.
Sítrónubörkur er hins vegar
afar hollur og inniheldur allt að tíu
sinnum meira af vítamínum en safi
sítrónunnar. Hann er auk þess rík-
ur af trefjum, magnesíni, kalsíni og
karótíni og þar sem hann er fullur af
C-vítamíni og kalki hefur hann góð
áhrif gegn beinþynningu og liða-
gigt. Þá hefur hann verið notaður til
að vinna á og koma í veg fyrir nokkr-
ar gerðir krabbameins, svo sem húð-
krabbamein, ristilskrabbamein og
brjóstakrabbamein.
Lítið mál er að nýta ávöxtinn í
heilu lagi og það er því algjör óþarfi
að láta börkinn fara til spillis. Settu
sítrónu í heilu lagi í frystinn. Þegar
hún er frosin í gegn skaltu ná í rifjárn
og rífa sítrónuna niður í heilu lagi án
þess að fjarlægja börkinn áður. Til-
valið er að dreifa sítrónukurlinu út í
drykki og yfir alls konar mat, svo sem
salöt og súpur, ís og kökur, núðlu- og
pastarétti, hrísgrjón, sushi og fisk svo
eitthvað sé nefnt. n
horn@dv.is
Finndu
þinn tón
...og leiktu af
fingrum fram!
Þú finnur þinn tón í Hagkaup,
Lyfju, Lyfjum & Heilsu og víðar.
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Í frystinn
Gott er að eiga við
ávöxtinn frosinn.
Náttúrulegar
snyrtivörur
M
argar náttúruafurðir
henta vel sem snyrtivörur
og hafa sumar verið not-
aðar sem slíkar svo öld-
um skiptir. Auk þess að
vera mun ódýrari fara þær betur með
húðina en verksmiðjuframleiddar
vörur sem eru fullar af litar- og ilm-
efnum og því er tilvalið að leita nátt-
úrulegra leiða í húð- og hárumhirðu.
Blaðamaður DV tók saman
nokkrar náttúruafurðir sem virka frá-
bærlega sem snyrtivörur.
Kókosolía
Kókosolía er frábær og náttúruleg
olía sem nota má í allt frá matargerð
til húð- og hárumhirðu. Hún virkar
vel sem rakagefandi olía á andlit og
líkama, varir og hár. Með því að bera
kókosolíu í hár og hársvörð kemurðu
í veg fyrir flösu, kláða og hárlos auk
þess sem hárið verður glansandi og
silkimjúkt. Þá hentar olían vel til þess
að fjarlægja farða á náttúrulegan hátt
því hún veldur hvorki sviða né kláða í
augum og ertir ekki húðina.
Kókosolía er í föstu formi við
stofuhita en bráðnar auðveldlega í
lófa og hentar því vel til að bera á húð-
ina. Hægt er að kaupa náttúrulega
kókosolíu sem er án allra litar- og ilm-
efna.
Aðrar náttúrulegar olíur sem hafa
góð áhrif á húð og hár eru til dæmis
möndluolía, arganolía og lárperuolía.
Matarsódi
Matarsódi er sannkallað töfraefni því
auk þess að vera notaður í matargerð
og bakstur, til hreinsunar á vélum og
tækjum, í læknisfræðilegum tilgangi
og á tilraunastofum, hentar matar-
sódi einstaklega vel fyrir húð-, hár-
og tannumhirðu.
Matarsódi er algengt efni í tann-
kremi og munnskoli og hentar vel
til að gera tennur hvítari. Gott er að
tannbursta sig annan hvern dag með
blöndu af matarsóda og vatni í stað
þess að nota tannkrem, en matar-
sódinn hlutleysir sýrustigið í munn-
inum og hreinsar bæði tennur og
tannhold auk þess sem hann drepur
sýkla og kemur í veg fyrir sýkingar í
munni.
Eins er gott að nota matarsóda til
að hreinsa húðina og hentar hann
því vel út í baðið eða sem ódýr og
áhrifaríkur andlitsmaski, sé honum
blandað við nokkra dropa af vatni. Þá
er hægt að þvo hárið með matarsóda
og ediki í stað þess að nota sjampó.
Sítrónusafi
Sítrónusafi hefur lengi verið notað-
ur bæði á húð og hár. Sítrónur eru
ríkar af sítrónusýru sem hafa góð
áhrif á bólur og rauða bletti á húð-
inni auk þess sem C-vítamín sítrón-
anna lýsir upp húðina og gefur henni
fallega ljóma. Mælt er með því að
drekka glas af vatni með sítrónusafa
á hverjum morgni og einnig að bera
sítrónusafa beint á húðina, sér í
lagi á bólur og önnur sýkt svæði, og
hafa yfir nótt. Það opnar svitahol-
ur og minnkar fílapensla auk þess
sem safinn drepur sýkla. Þá virkar
sítrónusafi vel til að lýsa hár. Gott
er að blanda sítrónusafa saman við
vatn og setja í hár og hársvörð, því
auk þess að lýsa hárið hefur blandan
góð áhrif á hárvöxt og minnkar flösu.
Hunang
Hunang hefur verið notað sem nátt-
úruleg snyrtivara svo öldum skiptir.
Það er afar rakagefandi og græðandi
og hentar því vel til að næra bæði
húð og hár auk þess sem það býr
drepur sýkla og hefur því lengi verið
borið á skurði, skrámur og brunasár.
Þá virkjar það myndun nýrra húð-
fruma og minnkar þannig líkur á að
ör myndist.
Tilvalið er að nota hunang sem
andlitsmaska með því að bera þunnt
lag á andlit og varir og láta standa
í nokkrar mínútur áður en það er
hreinsað burt með volgu vatni. Slík-
ur maski deyfir rauða bletti og jafnar
þannig húðlitinn auk þess sem hann
vinnur gegn hrukkumyndun.
Þá er einnig gott að bera hunang
í hárið og láta það standa í nokkrar
mínútur áður en hárið er þvegið eins
og venjulega. Hunangið bæði hreins-
ar og nærir hárið og gefur því silki-
mjúka og glansandi áferð. n
n Bæði ódýrari og betri n Hunang og matarsódi