Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Page 59
Lífsstíll 43Helgarblað 2.–6. ágúst 2013
Konan sér um þvottinn
en ég um eldhúsið
R
agnar Freyr Ingvarsson
læknir og matarbloggari
ferðast víða og þar sem
hann kemur leggur
hann áherslu á að borða
mat sem hann hefur ekki borð-
að áður. Honum finnst best að
finna veitingahús sem bjóða upp
á heimilismat en sneiðir fram hjá
dýrustu og fínustu stöðunum.
Hann vill borða mat líkastan því
sem heimamenn borða á hverjum
stað.
„Ég byrjaði að snúast í eld-
húsinu heima hjá móður minni
þegar ég var smápatti. Hún bak-
aði afskaplega góða skúffuköku og
stundum fannst mér hún ekki baka
hana nógu oft svo ég ákvað að læra
að baka hana sjálfur. Svo vatt þetta
upp á sig. Þegar ég var tólf ára fékk
ég það verkefni hjá henni móður
minni að sjá um kvöldmatinn einu
sinni í viku. Þá átti ég að kaupa
inn, elda og ganga frá eftir matinn.
Ég lærði mikið af þessu.“
Ragnar Freyr segir að innan við
tvítugt hafi honum ekki dottið í
hug að verða kokkur þó hann gæti
vel hugsað sér að elda á veitinga-
stöðum í dag. Hann fór í mennta-
skóla og þaðan lá leiðin í læknis-
fræði í Háskóla Íslands. „Ég held
að ég hafi ekki tekið meðvitaða
ákvörðun um að verða læknir.
Ætli þetta hafi ekki verið einhver
dulinn metnaður; mig langað að
prófa hvort ég kæmist í læknis-
fræðina. Námið gekk vel og mér
fannst það ótrúlega skemmtilegt.
Á námsárunum í Háskólanum
kynntist Ragnar eiginkonu sinni
Snædísi Evu Sigurðardóttur og
í dag eiga þau þrjú börn. „Þegar
við byrjuðum að búa, ákváðum
við að skipta heimilisverkunum á
þann veg að ég sæi um eldhúsið
en hún um þvottahúsið. Þetta eru
bestu kaup sem ég hef nokkurn
tíma gert.“ Ragnar lauk lækna-
námi sínu á Íslandi og þaðan lá
leið fjölskyldunnar til Lundar í Sví-
þjóð þar sem Ragnar hefur nú lok-
ið sérfræðinámi í lyf- og gigtar-
lækningum og um þessar mundir
leggur hann stund á doktorsnám.
Fyrir nokkrum árum fór hann að
blogga um mat á Eyjunni og hefur
verið iðinn við að birta uppskriftir
af ýmsum réttum sem hann hefur
prófað enda segir hann að eldhús-
ið sé hans herbergi og hann uni
sér hvergi betur en þar yfir heitum
pottum og pönnum. Þar sé hvergi
eins gott að slaka á.
„Um þessar mundir er það
frönsk matargerð sem heillar
mig mest. Þeir eru alltaf að leita
að því besta, besta hráefninu,
besta bragðinu og svo framvegis.
Aðferða fræðin við franska matar-
gerð finnst mér líka heillandi en
það getur verið ansi hátt flækju-
stig á henni. Síðustu átta eða níu
mánuði hef ég verið að skrifa mat-
reiðslubók. Í henni koma til með
að birtast vinsælustu uppskrift-
irnar mínar af blogginu auk fjölda
nýrra uppskrifta sem ég hef verið
að þróa og prófa. Það má eiginlega
segja að flest kvöld og allar helg-
ar hafi farið í undirbúning þessar-
ar bókar. Þó að þetta sé mikið álag,
bæði fyrir mig og fjölskylduna þá
er fjölskyldan alsæl og hvetur mig
til dáða. Ég fæ mikinn stuðning
frá henni. Þetta er áhugamál sem
verðlaunar sig sjálft, ég elda góð-
an mat sem þau borða. Svo baka
ég brauð og kökur í tíma og ótíma.
Fjölskyldan er stöðugt að prófa
nýja rétti sem hún fengi ekki að
bragða á nema af því að ég er að
prófa mig áfram. Íslenskt hráefni
er afar gott og ekki svo dýrt. Fiskur
í Svíþjóð kostar til dæmis þrisvar
sinnum meira en hér heima og
lambakjöt er rándýrt þar líka.
Þetta er mjög gott hráefni. Maður
er náttúrulega alinn upp á þess-
um mat og ég held að það sé sann-
merkt með öllum þjóðum að finn-
ast sitt hráefni það besta.“
Ragnar talar af mikill ástríðu
um mat, það verður ekki af honum
skafið en hvernig fer hann að því
að halda sér grönnum og vera sí-
borðandi. Hann brestur í hlátur og
segir: „Ég spila veggtennis þrisvar í
viku og það heldur mér í formi.“ n
n Ástríðukokkurinn Ragnar Freyr Ingvarsson n Börnin taka virkan þátt í eldhúsinu
Skúffukaka frá Ragnari Frey
375 gr hveiti
450 gr sykur
1,5 tsk. salt
1,5 tsk. lyftiduft
3/4 tsk. matarsódi
6 msk. gott kakóduft
3 og 3/4 dl nýmjólk
3 egg
190 gr smjör
Blandið þurrefnunum saman. Sigtið
hveitið, lyftiduftið, matarsódann og kakó-
ið. Bætið svo sykrinum og saltinu við.
Sigtið og blandið þurrefnunum saman í
hrærivélinni. Setjið síðan 2/3 af mjólkinni
og svo mjúkt smjörið saman við. Blandið
þessu saman í nokkrar sekúndur þar til
þetta er farið að líkjast þykkum graut.
Þá skal bæta eggjunum saman við og
restinni af mjólkinni. Blanda vel saman
við þangað til að þetta verður að
fallegu hægt rennandi deigi.
Smyrja ofnskúffuna með smjöri. Hella
deiginu í mótið. Bakað í 180 gráðu
heitum ofni í um það bil 30 mínútur.
Kremið
Súkkulaði 1,2 hlutur á móti 1 hlut
rjóma og smá smjörklípu má einnig
setja út í til að fá fallegan gljáa á
kremið. Sáldrið smá kókos yfir.
Ástríðukokkur „Ég kann hvergi betur við mig
en í eldhúsinu,“ segir læknirinn, bloggarinn og
kokkurinn Ragnar Freyr Ingvarsson.
Aðstoðarkokkur Valdís Eik hjálpar til við að baka skúffukökuna.