Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Page 72
Skrikaði
Árna líka
fótur?
Minnislaus
Árni Páll
n Árni Páll Árnason, formaður Sam
fylkingarinnar, þekkir mikilvægi
þess að lifa fyrir líðandi stund og
líta ekki að
óþörfu í bak
sýnisspegilinn.
„Um verslunar
mannahelgina
í fyrra? Það
man ég ekki,“
segir Árni í
samtali við
DV aðspurður
hvað hann gerði um síðustu
verslunarmannahelgi. Hvort
minnistapið skýrist af fyrrnefndum
jákvæðum skapgerðareiginleika,
eða hvort óminnishegrinn eigi þar
hlut að máli skal ósagt látið en ljóst
er að Árni gefur framtíðinni ekki
meiri gaum en fortíðinni. „Ég veit
ekkert hvert ég fer núna, en von
andi kemst ég í smá reiðtúr,“ segir
Árni sem er þekktur sem mikill
djúphyggjumaður. En er hann
mikill hestamaður? „Það er stórt
orð, hestamaður.“
Stríð gegn
nauðgunum
n Kynferðisglæpir eru sennilega
mesta samfélagsmein samtím
ans. Þetta vita útvarpsmennirnir
skeleggu Frosti Logason og Þorkell
Máni Pétursson. Þeir hafa skor
ið upp herör gegn meininu fyrir
verslunarmannahelgina. „Það
eru bara aumingjar sem nauðga,“
skrifa þeir á Facebooksíðu út
varpsþáttar síns, Harmageddon,
og meðfylgjandi er mynd af þeim
í bleikum bolum, sem á stendur:
„Það er bleikur fíll í stofunni. Hann
heitir nauðgun!“
Mikael og Jesús
n Mikael Torfason hefur afneitað
tilvist Jesú Krists. Frá þessu grein
ir hann á Facebooksíðu sinni.
Hann gengur meira að segja svo
langt að segja „vandræðalegt“ að
halda því fram að „Ésú hafi verið
til“. Stefán Pálsson, sagnfræðingur,
er á öndverðum meiði og gerir
eftirfarandi athugasemd við mál
flutning Mikaels. „Fornaldarsaga
er ekki mín sterkasta hlið, en ég
held að sagnfræðingar á þessu
sviði telji almennt líklegra en hitt
að til hafi verið prédikari með
því nafni fyrir rúmum 2000 árum
og að hann hafi átt nokkurn hóp
fylgismanna.“
L
æðan Perla notaði eitt af sínum
níu lífum þegar henni skrik
aði fótur og hún féll af svölum á
fjórðu hæð. Hún var þó ótrúlega
heppin að sögn dýralæknis sem skoð
aði hana eftir slysið, og er aðeins lítil
lega meidd. Eftir fallið er Perla þó tals
vert meiri kelirófa en áður og hættir sér
lítið aftur út á svalirnar.
„Við fundum hana í götunni okk
ar,“ segir Stefán Reynir Jökulsson, átta
ára, um Perlu. Perla býr ásamt Stef
áni í Sviss þar sem Stefán hugsar afar
vel um hana og hlúir að henni eins
og hún væri barnið hans, segir móðir
Stefáns stolt af drengnum. Perla hef
ur verið hjá fjölskyldu Stefáns í stuttan
tíma, en móðir hans bjargaði Perlu eitt
rigningarkvöld þegar kötturinn hafði
fest sig undir sendiferðabíl. Lilja, móð
ir Stefáns, hafði verið á leið út en ná
grannar létu hana vita af kettinum og
hún stökk af stað til að bjarga honum.
Þegar kettinum hafði verið bjargað
varð ekki aftur snúið og hún býr nú hjá
íslensku fjölskyldunni á fjórðu hæð.
Það var svo eitt blíðviðriskvöld sem
fjölskyldan sat úti á svölum og Perla
var að sniglast í kring um þau. Perla
lenti í hálfgerðri sjálfheldu og Stefán
reyndi að bjarga henni en hún féll nið
ur í garðinn fyrir neðan. Stefán kom á
harðahlaupum til foreldra sinn og lét
vita og spratt svo af stað niður stigann
til að finna köttinn. Engir ljósastaurar
eru í garðinum og Stefán gekk því á
glugga á íbúðunum á jarðhæð og bað
íbúana um að draga upp gardínur og
kveikja ljós svo þau gætu fundið kött
inn. Stefán segist hafa séð glitta í aug
un á Perlu og reyndist hún vera hreyf
ingarlaus. Perla reyndist vera vönkuð,
en stuttu síðar var hún komin til dýra
læknis. Hún reyndist aðeins hafa meitt
sig lítillega og grær sára sinna vonandi
fljótlega. „Hún er líklega búin með
eitt af níu lífunum sínum þetta krútt,“
segir Stefán. n astasigrun@dv.is
Níu líf læðunnar Perlu
n Kötturinn Perla datt af svölum á fjórðu hæð n Átta ára stoltur eigandi bjargaði henni
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 2.–6. ÁgúST 2013 86. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Kelirófa Stefán og Perla eru góðir vinir.