Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 9.–11. september 2011 Helgarblað
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
NÝJASTA SPENNUBÓK
GARÐYRKJUMANNSINS!
„Árstíðirnar í garðinum“ er fimmta bókin í bókaflokknum
Við ræktum, sem Sumarhúsið og garðurinn gefur út.
Höfundur er Vilmundur Kip Hansen garðyrkju- og
þjóðfræðingur. Ljósmyndir Páls Jökuls Péturssonar
úr íslenskum görðum prýða bókina.
Fæst í öllum bókaverslunum og á www.rit.is
Í nám á launum
frá ríkinu
Á mánudag
greindi DV
frá því að Þórunn
Sveinbjarnadóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar,
að Þórunn væri
á fullum launum
frá ríkinu á meðan hún stundar nám
í siðfræði við Háskóla Íslands en frá
og með 1. október mun Þórunn svo fá
biðlaun í sex mánuði, jafnhá þingfar-
arkaupi eða 520.000 krónur á mán-
uði, þar sem hún hefur setið lengur
en tvö kjörtímabil. Í samtali við DV
baðst Þórunn undan því að svara
spurningum og sagði við blaðamann
að hvernig hún ráðstafaði sínu einka-
lífi væri sitt einkamál.
Launahækkanir og
hagnaður Arion
DV greindi
frá risa-
hagnaði Arion
banka, en bank-
arnir hafa hagn-
ast um meira
en 120 milljarða
frá hruni sem
myndi nægja
til að byggja
aðra Hörpu eða um það bil fimm
fangelsi á Hólmsheiði. Launakostn-
aður bankans jókst um 24 prósent á
fyrri helmingi ársins og þar af var 13
prósenta launahækkun hjá starfs-
mönnum. „Hræðilegt að horfa upp
á þetta,“ sagði Margrét Tryggvadóttir
þingmaður.
Huang Nubo segist
elska Ísland
Huang
Nubo,
sem vill kaupa
Grímsstaði á
Fjöllum, sagð-
ist í viðtali við
DV ekki vera
hættulegur.
Hann sagð-
ist enn fremur
elska Ísland mjög mikið og hafa gert
síðan hann las bókina um íslenska
sjómanninn og kynntist íslenska her-
bergisfélaga sínum í Peking-háskóla,
Hjörleifi Sveinbjörnssyni. Hann lýsti
líka sorglegri barnæsku sinni en faðir
hans svipti sig lífi þegar Huang var
tveggja ára og móðir hans lést úr gas-
eitrun þegar hún var við vinnu sem
dyravörður á byggingasvæði.
Fréttir vikunnar í DV
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 5.–6. septem
ber 2011 mánudagur/þriðjudagur
10
1.
t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
Lærir siðfræði
á launum frá
ríkinu n „Mitt einkamál“n Fær hálfa milljón á mánuði þar til í apríl á næsta ári
Erlendur
auðjöfur
lokar ám
og vötnum
Hann á allan
Heiðardalinn
Kristrún Ösp
Veit ekki
hver er
pabbinnÍsland er á uppleið
Hagstæðir
samningar
við vini
Framsóknar
Hægri hönd Finns Ingólfssonar stýrði rekstri heilsugæslunnar 2–3
11
6
14–15
22
4
10
Tölurnar segja:
Lærðu
að spara
bensín
Óafvitandi
greindur
vitlaus
Greiningin birt opinberlega
2 | Fréttir 7. september 2011 Mi
ðvikudagur
Fréttir | 3
Miðvikudagur 7. september 2011
Þ
ór Saari, þingmaður Hreyf-
ingarinnar, hefur lagt fram
skriflega fyrirspurn á Al-
þingi til Svandísar Svavars-
dóttur, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, um kostaðar
stöður við skóla á háskólastigi.
Þór spyr hversu margar stöður
við skóla á háskólastigi hafa verið
kostaðar af fyrirtækjum, samtök-
um eða stofnunum frá árinu 1995
og hversu lengi. Hann óskar eftir
sundurliðun eftir skólum, auk upp-
lýsinga um hverjir hafi gegnt um-
ræddum stöðum og hversu lengi,
svo og hver greiði kostnaðinn við
þær.
Ómarktækir háskólar
„Það dúkkar upp reglulega um-
ræða um hvers eðlis þessar stöður
í háskólum eru sem eru kostaðar af
fyrirtækjum eða stofnunum,“ segir
Þór í samtali við DV. „Nýjasta dæm-
ið er Helgi Áss Grétarsson sem er
í einhverju fyrirbæri sem heitir
Lagastofnun Háskóla Íslands, en
launin hans og staðan hans eru
greidd af LÍÚ. Þetta hefur verið við-
loðandi vandamál hér á Íslandi í
nokkuð mörg ár og á ekkert erindi
inn í akademískt umhverfi; að pró-
fessorar séu á launum hjá sérhags-
munahópum í stað þess að vera á
grundvelli akademísks umhverfis.“
Þór vill breyta þeim reglum sem
heimila að hagsmunahópar geti
keypt prófessorsstöður. „Hér á landi
hefur staðan verið sú að LÍÚ hefur í
mörgum tilfellum einfaldlega keypt
sér álit og störf og prófessora Há-
skóla Íslands.“
Hann nefnir dæmi um Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands.
„Ragnar Árnason hefur verið á
launum hjá LÍÚ í áratugi. Hag-
fræðistofnunin var lengi að hluta
til fjármögnuð af LÍÚ. Háskóli Ís-
lands er fyrir vikið að stórum hluta
að verða ómarktækur sem aka-
demískt fyrirbrigði. Mér finnst rétt
að það verði gerð úttekt á þessu
og að það komi í ljós hverjir þetta
eru og síðan verði reynt að breyta
þessu fyrirkomulagi.“
Hann segir að ekki þurfi annað
en að lesa örfá álit frá þeim sem eru
í kostuðum stöðum, þau séu ávallt
í samræmi við hagsmuni þess sem
kostar stöðuna.
Fráleitt að hagsmunahópar
geti keypt prófessorsstöðu
Þór gengur svo langt að segja að
sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akur eyri sé algjörlega ómarktæk
sem akademísk deild. „Deildin er
bara fjármögnuð af LÍÚ.“
Hann gagnrýnir einnig að oft
sé það ekki skýrt í stöðuheitum
viðkomandi háskólamanna að
störf þeirra séu kostuð af öðrum.
„Það kemur yfirleitt ekki fram í
stöðunum sjálfum – til dæmis að
Helgi Áss sé LÍÚ-prófessor við HÍ
en það er vitnað í hann sem eitt-
hvað átorítet í Lagastofnun Há-
skóla Íslands. Mér finnst fráleitt að
einkaaðilar og sérhagsmunahópar
geti keypt sér prófessorsstöðu við
háskóla.“
DV fjallaði um það árið 2010 að
hugmyndir hefðu verið uppi um
að Björgólfur Guðmundsson, þá-
verandi aðaleigandi Landsbank-
ans, myndi kosta prófessorsstöðu
Tryggva Herbertssonar hjá HÍ.
Ekkert varð af því.
n Ekki er opinbert hvaða stöður í Háskóla Íslands eru kostaðar
af hagsmunaaðilum n Þór Saari telur háskólann ómarktækan
Helgi Áss Grétarsson Starf hans hjá
Lagastofnun Háskóla Íslands er kostað
af LÍÚ.
Hagfræðistofnun „Ragnar Árnason
hefur verið á launum hjá LÍÚ í áratugi,“ segir
Þór Saari.„Deildin er bara
fjármögnuð af LÍÚ.
Þór Saari „Hér á landi hefur staðan
verið sú að LÍÚ hefur í mörgum tilfellum
einfaldlega keypt sér álit og störf og
prófessora Háskóla Íslands.“
E
ins fljótt og ég get,“ seg-
ir auðkýfingurinn og æv-
intýramaðurinn Huang
Nubo sem vill kaupa Gríms-
staði á Fjöllum og byggja
þar lúxushótel, aðspurður hvenær
hann hyggst koma aftur til Íslands.
Hann var staddur hér á landi fyr-
ir skömmu síðan og gerði þá bind-
andi kauptilboð í 72,19 prósenta
hlut af jörðinni á Grímsstöðum sem
er sú stærsta á Íslandi, eða 300 fer-
kílómetrar.
Neikvæð umræða
gæti haft áhrif
Sá fyrirvari er þó á kauptilboði Nu-
bos að bæði íslensk og kínversk
stjórnvöld samþykki það. Þá þarf
innanríkisráðuneytið að veita sér-
staka undanþágu til kaupanna því
aðilum utan EES-svæðisins er lög-
um samkvæmt óheimilt að fjárfesta
hér á landi. Ögmundur Jónasson
innanríkissráðherra hefur sjálfur
sagt að hann efist um réttmæti þessa
ráðahags en ætli þó ekki að gefa sér
neitt í þeim málum. Fleiri ráðherrar
og þingmenn úr röðum Vinstri
grænna hafa lýst því yfir að skoða
þurfi mál Nubos vandlega áður en
ákvörðun verði tekin í máli hans.
Ráðherrar og þingmenn úr röðum
Samfylkingarinnar eru þó mun já-
kvæðari gagnvart fyrirætlunum Nu-
bos. Sjálfur hefur auðkýfingurinn
sagt í viðtölum að kínversk stjórn-
völd muni hugsanlega setja sig upp
á móti áformum hans vegna þeirrar
neikvæðu umræðu sem skapast hef-
ur hér á landi vegna þeirra.
DV sendi nokkrar spurningar til
Nubos sem hann svaraði samvisku-
samlega þrátt fyrir að sumar þeirra
væru nokkuð persónulegar. Hann
hefur upplifað tímana tvenna og ást
hans á Íslandi hefur vaxið og dafnað
frá því að hann var barnungur.
Reynir að vera góð manneskja
Afhverju Ísland? Er ekki nóg af fjall-
lendi í Kína sem hægt er að fjárfesta
í?
„Landslagið á Íslandi er mjög
eftirminnilegt og sérstakt. Þar er að
finna undravert eldfjallalandslag,
stórbrotna heita hveri og dularfull
norðurljós. Og síðast en ekki síst er
landið náttúrulegt, hreint og óspillt,
og engin merki um leifar af mann-
gerðu landslagi.“
Financial Times er einn þeirra
fjölmiðla sem fjallað hefur um áhuga
þinn á Íslandi og að hann gæti tengst
hernaðarlegum hagsmunum Kína.
Hver eru þín svör við slíkum vanga-
veltum?
„Það er ekki við Financial Times
eða aðra fjölmiðla að sakast, ég er
vissulega útlendingur sem þarf að
aðlagast menningunni í landi gest-
gjafans. Það er hins vegar misskiln-
ingur að líta á mig sem umboðs-
mann fyrir einhver herkænskubrögð
kínversku þjóðarinnar. Í síðustu
viku hélt ég blaðamannafund fyrir
hundruð blaðamanna, alls staðar
að úr heiminum, þar sem ég kynnti
stefnu Zhongkun Group og útskýrði
að ég væri eingöngu kaupsýslumað-
ur og hefði engan annan ásetning.
Ég get til að mynda aðeins vonað
að þið trúið því að ég sé ekki hættu-
legur og að ég reyni að vera góð
manneskja.
Ég get aðeins lýst því yfir að ég sé í
raun og veru að skipuleggja verkefni
í ferðamannaiðnaði, að hótelið mitt
komi ekki til með að verða herstöð
og að dvalarstaðurinn verði ekki
ætlaður flugskeytum og ratsjám.
Ég vona að þið treystið því. Dóttur-
félag mitt á Íslandi kemur til með að
greiða skatta á Íslandi. Allir starfs-
mennirnir munu verða íslenskir og
gestirnir verða ferðamenn, ekki her-
menn. Það er allt sem ég hef að segja
um það mál.“
„Litlu munaði að ég týndi lífi“
Hvernig var æska þín? Nú hefur
komið fram að þú misstir foreldra
þína ungur. Hvað varð um þig eftir
andlát foreldra þinna?
„Þetta er spurning sem mér
finnst óþægilegt að svara. Að rifja
upp barnæsku mína er mjög sárs-
aukafullt fyrir mig. Faðir minn svipti
sig lífi þegar ég var aðeins tveggja
ára gamall, eftir að hafa verið rang-
lega sakaður um pólitískar mis-
gjörðir. Þegar ég var unglingur lést
móðir mín úr gaseitrun þegar hún
var við vinnu sem dyravörður á
byggingarsvæði.
Eftir að hafa misst foreldra mína
og staðið uppi sem munaðarlaus
drengur þá mátti ég þola ýmiss kon-
ar niðurlægingu, en ég komst af líkt
og einmana, hrakinn úlfur. Á þeim
tíma komst ég oft í hann krappann
og litlu munaði að ég týndi lífi. Síð-
ar þegar ég var sendur út á lands-
byggðina til að uppfræðast hjá smá-
bændum, eins og svo mörg kínversk
börn á þessum tíma, fékk ég hlýjar
móttökur, þar var mér sinnt og sýnd
umhyggja. Upp frá þeim tíma fór ég
loksins að geta notið yls sólarinnar.
Þetta var erfiður tími fyrir kínversku
þjóðina og tók sinn toll af öllum.
Í dag er það mín eina ósk að þessi
óhamingjusama fortíð endurtaki sig
ekki. Ég vil ekki að neitt barn þurfi
að þjást vegna slíkrar barnæsku.“
Ert þú tengdur kínverska komm-
únistaflokknum?
„Ég gekk í kínverska komm-
únistaflokkinn þegar ég flutti út á
landsbyggðina til fræðslu hjá smá-
bændunum, 18 ára gamall. Ég er
ekki viss um að allir skilji hvern-
ig staðan var í Kína á þessum tíma.
Ég var að vonast til að bæta líf mitt
með því að ganga í flokkinn. Það var
eina leiðin fyrir mig til að losna við
menningarbyltingarstimpilinn og
það að vera kallaður barn menning-
arbyltingarinnar.“
Seldi ljósritunarvélar
og leikföng
Þú ert í 161. sæti á lista yfir ríkustu
menn í Kína. Hvernig varðstu ríkur?
„Ég kann illa við litlausa og
hversdagslega tilveru. Ég vil áskor-
anir og ég hræðist ekkert vegna þess
að ég hef þurft að þola svo mikla erf-
iðleika í lífinu. Það er ástæðan fyrir
því að ég sagði upp starfi mínu sem
embættismaður og freistaði þess að
koma á fót mínu eigin fyrirtæki á
hátindi efnahaglegra umbótatíma í
Kína. Á þeim tíma átti ég eiginlega
ekki neitt. Ég byrjaði á því að prenta
gjafakort en fór síðan að selja ljósrit-
unarvélar og leikföng. Fyrstu pen-
ingana sem ég eignaðist fékk ég fyrir
að landa leigusamningi fyrir gamla
verksmiðjubyggingu sem mér tókst
að leigja út. Eftir það leigði ég gamla
skrifstofubyggingu sem ég breytti í
hótel og þannig tók ég fyrstu skref-
in í átt að ríkidæmi mínu. Í kring-
um aldamótin síðustu hóf ég sam-
starf við gamlan skólafélaga og
við náðum samningi um að fá að
byggja upp íbúðahverfi í Peking og
það verkefni skilaði miklum hagn-
aði. Síðan þá hef ég verið farsæll í
vali á verkefnum og hef hagnast vel
á þeim.“
Þekkirðu til íslenskrar menning-
ar? Hvernig líkar þér hún?
„Ég þekki nokkuð vel til íslenskr-
ar menningar. Ég var mjög ungur
þegar ég las bókina Íslenski sjómað-
urinn, sem var þýdd á kínversku.
Bókin skildi eftir sig djúp hughrif
yfir fegurð landsins. Síðan þá hef-
ur nafnið Ísland verið greypt í huga
mér þrátt fyrir að ég hafi aldrei vitað
hvar það var. Tuttugu árum eftir að
ég las bókina komst ég þó að því að
hún er ekki skrifuð af íslenskum rit-
höfundi. Á þeim tíma hvarflaði ekki
að mér að ég fengi íslenskan her-
bergisfélaga á heimavistinni í há-
skólanum, eða að ég myndi fjárfesta
í þessu landi. Ég held að þetta hljóti
að vera örlögin.
Fyrir mér er íslensk menning
skáldsagnakennd, uppfull af fjöl-
skyldutengslum, ríkri ljóðlist og
þykkum söguþræði.
Ég dáist að heiðarleika og hrein-
skilni Íslendinga, það endurspeglar
nánasta umhverfi þeirra og náttúru-
öflin.“
„Ég mun vera vinur
ykkar að eilífu“
Þekkirðu Íslendingasögurnar og hef-
urðu lesið einhverjar þeirra?
„Já, ég þekki þær. Njáls saga er í
uppáhaldi hjá mér, sérstaklega lýs-
ingarnar á því hvernig sambandi
Njáls og Gunnars var háttað.“
Nú hefurðu komið til Íslands
nokkrum sinnum og væntanlega
fengið að smakka hefðbundinn ís-
lenskan mat. Hver er uppáhalds ís-
lenski maturinn þinn?
„Ég hef tvisvar komið til Íslands
og uppáhalds íslenski maturinn
minn er kæstur hákarl og brenni-
vín.“
Viltu segja eitthvað við íslensku
þjóðina sem veltir fyrir sér hver þú
ert?
„Ég vil að þið vitið að ég elska
Ísland mjög mikið. Alveg síðan ég
las bókina um íslenska sjómann-
inn, og kynntist íslenska herberg-
isfélaga mínum í Peking-háskóla,
honum Hjölla [Hjörleifi Sveinbirns-
syni, innsk. blm.], og skólafélaga
mínum Ragnari [ Baldurssyn], hef-
ur ást mín á Íslandi vaxið og dýpk-
að. Á ljóðahátíðinni á Íslandi í fyrra
varð ég þess heiðurs aðnjótandi að
hitta nokkur norræn ljóðskáld. Það
var ógleymanleg upplifun fyrir mig
þegar ég komst í beina snertingu við
sál þessa dásamlega lands.
Hvort sem fjárfestingar mínar á
Íslandi munu ganga eftir eða ekki
mun ást mín á Íslandi vara að ei-
lífu, tengsl mín við landið munu
ekki rofna og vinátta mín og gam-
alla bekkjarfélaga minna mun aldrei
taka enda.
Ég vil upplýsa íslensku þjóðina
um það að ég mun halda áfram að
vera aðdáandi ykkar og aðdáandi
landsins, ég mun vera vinur ykkar
að eilífu, takk fyrir!“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Viðtal
„Þá mátti ég þola
ýmiss konar
niðurlægingu, en ég
komst af líkt og einmana,
hrakinn úlfur.
Íslenskur matur Uppáhalds
íslenski matur Nubos er ekki harð-
fiskur, heldur hákarl og brennivín.
Pétur Emil Gunnarsson:
„Hann skuldar
mér 300 þúsund“
Meistaradeildarsvindlarinn svokall-
aði, Pétur Emil Gunnarsson, hefur
enn ekki endurgreitt þeim sem hann
hafði fé af fyrr á árinu. Eitt af fórnar-
lömbum Péturs Emils segir að hann
skuldi sér ennþá 300 þúsund krónur.
„Hann skuldar mér 300 þúsund
krónur,“ segir maðurinn sem ekki vill
láta nafn síns getið. Pétur Emil hefur
verið búsettur í Bretlandi síðustu
mánuði en hann flúði land undan
ákæru um fjárdrátt fyrr á árinu.
Líkt og DV greindi frá í maí
stundaði Pétur Emil það að svíkja fé
út úr fólki með því að selja því miða
á leiki með Manchester United í
Meistaradeild Evrópu. Fólkið fékk
hins vegar aldrei miðana sem Pétur
Emil lofaði að senda því. Þann-
ig hafði Pétur Emil til dæmis 312
þúsund krónur af fjögurra manna
vinahópi sem hann sagðist ætla að
afhenda fjóra miða á úrslitaleikinn í
Meistaradeild Evrópu fyrr á árinu á
milli Manchester United og Barce-
lona.
Einhver af fórnarlömbum Pét-
urs Emils hafa verið í sambandi við
hann með það fyrir augum að fá
endurgreitt frá honum. Pétur Emil
sagði sjálfur í viðtali við DV í maí að
hann ætlaði að endurgreiða fórn-
arlömbunum það sem hann hafði
af þeim. Orðrétt sagði Pétur Emil í
maí, þegar hann var spurður hvenær
hann ætlaði að greiða fólkinu: „Það
byrjar bara fljótlega í þessari viku.“
Pétur Emil hefur hins vegar ekki
staðið við þessi orð sín samkvæmt
einu fórnarlamba hans.
Þau tíðindi bárust DV í vikunni
að Pétur Emil hefði verið hnepptur
í gæsluvarðhald í Bretlandi fyrir að
selja miða á leiki með Manchester
United í gegnum þarlenda vefmiðla.
DV forvitnaðist um málið hjá utan-
ríkisráðuneytinu en fékk þau svör að
það hefði ekki komið inn á borð til
ráðuneytisins. Sjálfur neitaði Pétur
Emil því aðspurður að hafa verið
hnepptur í varðhald þar í landi.
ingi@dv.is
Á Norðurpólnum Gömlu skólafélagarnir Huang Nubo, Hjörleifur Sveinbjörnsson og
Ragnar Baldursson eru góðir vinir og hafa gengið saman á Norðurpólinn.
Háskólamenn
greiddir af lÍÚ
Ég er ekki hættulegur
„Ég mun vera vinur
ykkar að eilífu
Hlupu fyrir
44 milljónir
Aldrei hefur áheitasöfnun fyrir
Reykjavíkurmaraþonið gengið eins
vel og í ár. Hátt í 44 milljónir söfnuð-
ust en til samanburðar söfnuðust 30
milljónir króna í fyrra.
Upphæðin skiptist á milli 131
góðgerðafélags sem jafngildir 336
þúsund krónum á hvert félag. Upp-
hæðin sem rennur til hvers félags er
þó mjög mishá. Ef upphæðinni væri
deilt niður á lengd heils maraþons,
sem er 42 kílómetrar, má segja að
milljón krónur hafi safnast á hvern
kílómetra.
Reykjavíkurborg hefur efnt til
uppskeruhátíðar í Ráðhúsi Reykja-
víkur á morgun klukkan fimm.
n Huang Nubo segist elska Ísland
n Borðar hákarl og drekkur brennivín
n Átti ekkert og vann sig upp
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
7.–8. september 2011 miðvikudagur/fimmtudagur
10
2
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Tíu milljarða gróði og launahækkun
Þingmaður:„Hræðilegt
að horfa
upp á þetta
n Segist ekki vera hættulegur
n Kveðst elska hákarl og brennivín
„Ég mun vera
vinur ykkar
að eilífu“
2–3
Viðtal
Huang Nubo:Geir brosti
til Kjartans
í landsdómi 8
Gerði
ekkert!
Gaddafi
á enga
vini
Loksins vann Ísland
Það
tókst!
Lifðu af landinu
12
10–11
Á Íslandi er fullt af mat, það þarf bara að ná í hann
Myndir
Ókeypis
matur!
Siðanefnd
lækna braut
siðareglur
Banka-
ParTíið
BYrjar
aFTur!
n Laun í Arion banka hækka um 13%
n Hagnaður Arion banka frá hruni
nægir fyrir nýrri Hörpu
6
20
14–15
Viðskiptavinur:
„Á meðan
við megum
éta það sem úti
frýs græða þeir
á tá og fingri“
1 2 3
R
eykjavíkurborg hefur fall-
ið frá styrkveitingu til Ís-
lensku Kristskirkjunnar eftir
að mannréttindaráð Reykja-
víkur gerði athugasemdir
við styrkveitinguna. Ákvörðun um að
hætta við styrkveitinguna var tekin á
fundi borgarráðs á fimmtudaginn.
Friðrik Schram, prestur Íslensku
Kristskirkjunnar, hefur ítrekað lýst
yfir öfgafullum skoðunum á samkyn-
hneigðum og barist gegn auknum
réttindum þeirra. Hann skrifaði með-
al annars pistil á vefsíðu kirkjunnar
þar sem hann sagði að 27. júní á síð-
asta ári, þegar ný hjúskaparlög tóku
gildi, hefði verið svartur dagur fyrir
þjóð og kirkju. „Nú getur karl gifst
karli og kona konu. Þetta ber vitni um
mjög alvarlega siðferðlega hnignun
þjóðfélags okkar, já, nánast ótrúlega,“
sagði Friðrik í pistlinum.
Mannréttindastjóri
lagðist gegn styrk
Styrkveiting til Íslensku Kristskirkj-
unnar átti að vera hluti af 11 milljóna
króna styrkveitingu kirkjubyggingar-
sjóðs til ýmissa kirkna í borginni. Í bréfi
sem Anna Kristinsdóttir, mannrétt-
indastjóri Reykjavíkur, skrifaði borgar-
ráði vegna fyrirhugaðrar styrkveitingar
kemur fram að mannréttindaskrifstofa
Reykjavíkurborgar telji að borgin eigi
ekki að styrkja Íslensku Kristskirkj-
una. Í bréfinu segir: „Þar kemur fyrst
og fremst afstaða þeirra gagnvart sam-
kynhneigðum sem brýtur gegn mann-
réttindastefnu Reykjavíkurborgar.“
Í bréfinu er einnig vísað í níunda
kafla mannréttindastefnu Reykja-
víkurborgar þar sem fram kemur að
öllum nefndum og ráðum borgar-
innar sem úthluta styrkjum sé skylt
að gæta mannréttindasjónarmiða við
úthlutun þeirra. Styrkir Reykjavíkur-
borgar séu bundnir því skilyrði að
unnið sé gegn mismunun og jafnrétti.
Þá segir í bréfinu að Íslenska
Kristskirkjan sé á lista innanríkis-
ráðuneytisins yfir skráð trúfélög utan
þjóðkirkjunnar. Þegar heimasíða
safnaðarins sé skoðuð komi fram
að afstaða hans til samkynhneigðar
sé á skjön við mannréttindastefnu
Reykjavíkurborgar. Á heimasíðunni
sé að finna grein þar sem mörg dæmi
er að finna um þá skoðun Friðriks
forystumanns safnaðarins að sam-
kynhneigð sé óeðlileg, hún sé synd
og það að samþykkja samkynhneigð
sé í sjálfu sér það sama og að sam-
þykkja þjófnað eða lygar. Jafnvel eru
samkynhneigðir hvattir til að koma
sér út úr þessu líferni sínu og breyta
kynhneigð sinni. Anna leggur síð-
an fram fylgiskjal þar sem fordóm-
ar Friðriks prests í Íslensku Krists-
kirkjunni koma skýrt fram í ýmsum
ummælum.
11 milljónir í kirkjur
Sú staðreynd að Reykjavíkurborg sé
á annað borð að úthluta styrkjum til
kirkjubygginga er ekki óumdeild í
borgarráði. Þannig lét Sóley Tómas-
dóttir borgarráðsfulltrúi Vinstri
grænna bóka að hún gæti ekki sam-
þykkt úthlutun til kirkjubygginga og
að hún hefði efasemdir um að sjóð-
urinn sem slíkur ætti rétt á sér. Hún
vísaði einnig í álit Önnu mannrétt-
indastjóra þar sem fram kemur að
kirkjubyggingarsjóður hefur ekki
stöðu sem sjálfstæður sjóður og í nú-
gildandi sveitarstjórnarlögum eru
engin ákvæði þess efnis að íslensk
sveitarfélög skuli styðja kirkjubygg-
ingar eða trúfélög með beinum fjár-
framlögum. Þá lét Sóley bóka að á
sama tíma og grunnþjónusta líði fyrir
þröngan efnahag borgarinnar sé 11
milljóna króna styrkveiting til kirkju-
bygginga varla réttlætanleg.
Friðrik Schram vildi lítið tjá sig
um málið þegar DV hafði samband
við hann. Aðspurður hvort hann
væri ekki kominn langt yfir strikið í
málflutningi sínum í garð samkyn-
hneigrða, sagði Friðrik: „Ég er ekki í
slæmum félagsskap í kristinni kirkju
og það er algjör minnihluti hennar
sem aðhyllist það viðhorf að þetta sé
mannréttindabrot.“
n Borgarráð hætti við að styrkja Íslensku Kristskirkjuna n Prestur kirkjunnar telur
samkynhneigð óeðlilega n Samræmist ekki mannréttindastefnu borgarinnar
Fordómakirkja
fær ekki styrk
„Þar kemur fyrst og
fremst til afstaða
þeirra gagnvart sam-
kynhneigðum sem brýt-
ur gegn mannréttinda-
stefnu Reykjavíkurborgar.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Dagur B. Eggertsson Dagur er formaður
borgarráðs Reykjavíkur sem ákvað að
styrkja ekki Íslensku Kristskirkjuna.
Mannréttindi Það brýtur gegn mannréttindastefnu
Reykjavíkur að styrkja Íslensku Kristskirkjuna
Dauðagildrur á
leikskólum
Í skýrslum heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, frá árinu 2010, vegna
reglubundins eftirlits á leikskólum
Reykjavíkurborgar er að finna rúm-
lega 10 athugasemdir við aðbúnað
sem óhætt er að kalla alvarlegar
slysagildur fyrir börn, eða jafnvel
dauðagildur. Við athugasemdirnar
er meðal annars skráð að drukkn-
unar- og hengingarhætta geti stafað
af leiktækjum á útileikvöllum leik-
skólanna. Hætturnar eru þó ekki
aðeins utandyra. Í fleiri en einu til-
felli er skráð að hengingarhætta
stafi af gardínuböndum innandyra
á leikskólunum. Í fjölda tilfella hafa
athugasemdirnar verið margítrek-
aðar. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki
lokið eftirliti á leikskólum borgar-
innar á þessu ári og því liggur ekki
fyrir hvort hvort lagfæringar hafi átt
sér stað.
Leiðrétting
Í miðvikudagsblaði DV var haft
eftir Þór Saari alþingismanni
að Ragnar Árnason hefði verið
á launum hjá LÍÚ í áratugi. Hið
rétta er að Ragnar hefur verið
forstöðumaður Hagfræðistofn-
unar Háskóla Íslands sem hefur
unnið rannsóknir kostaðar af
LÍÚ.