Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Side 20
20 | Fréttir 9.–11. september 2011 Helgarblað
Á
stæðan fyrir því að ég kom
ekki fram á sínum tíma voru
viðbrögð samfélagsins, kirkj-
unnar manna og jafnvel frétta-
manna. Viðbrögðin voru svo
ofsafengin að ég þorði ekki að koma
fram,“ segir ein þeirra kvenna sem
sakar Ólaf Skúlason um kynferðisbrot
gegn sér.
Alltaf sama mynstrið
Fréttablaðið greindi frá því fyrr í vik-
unni að vitað væri um að minnsta
kosti sex konur til viðbótar við þær
sem fengu bætur frá þjóðkirkjunni á
dögunum og að vitað hafi verið um
þær áður en bæturnar voru greiddar.
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sagðist
stundum hafa verið milliliður á milli
kvennanna og fagráðs þjóðkirkjunnar
en að minnsta kosti tvær þeirra hafa
haft samband við fagráðið skriflega án
þess að leggja málin formlega fram.
DV sagði sögu þriggja kvennanna
síðasta sumar en þrjár þeirra vilja ekki
gefa neitt upp varðandi meint brot
Ólafs. Ein þeirra sagði þó að mynstrið
væri svipað í öllum þessum málum.
Ólafur hefði yfirleitt laðað að sér kon-
ur sem hafi verið viðkvæmar fyrir,
byggt upp trúnaðarsamband sem
endaði með kynferðislegri áreitni,
kossum og káfi. Engin þessara kvenna
tilkynnti brotin á sínum tíma og engin
þeirra lítur svo á að kirkjan eða aðrar
stofnanir hafi brugðist sér með einum
eða öðrum hætti.
Vilja sjá breytingu
Konurnar sex sem um ræðir þekktust
ekkert innbyrðis en eftir að þær fréttu
hver af annarri hafa þær hist, spjallað
saman og sent hver annarri stuðn-
ingskveðju þegar við á. Þær líta svo á
að máli Ólafs Skúlasonar hafi lokið í
sumar þegar þær Sigrún Pálína Ingv-
arsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir
og Stefanía Þorgrímsdóttir fengu
greiddar bætur frá kirkjunni.
„Við viljum bara sjá breytingu á
því hvernig kynferðisbrot eru með-
höndluð, sama hvaða hlutverki kyn-
ferðisbrotamaðurinn gegnir og óháð
því hvort hann brýtur gegn konum,
körlum, börnum eða unglingum.
Það skiptir ekki máli. Það þarf að taka
þessi mál fastari tökum,“ segir konan
sem segir að í rauninni hafi það verið
samfélaginu að kenna hvað Ólaf-
ur komst upp með þetta lengi, hann
sjálfur hafi bara verið veikur. Ábyrgðin
liggi hjá þeim sem tóku ekki á málinu
þegar reynt var að koma upp um það
hvernig hann hagaði sér.
Réðst á hana í enskuprófi
Særós Guðnadóttir varð fyrir
kynferðis legri áreitni af hálfu Ólafs
Skúlasonar árið 1972, sautján ára
gömul. Líkt og DV greindi frá síð-
asta sumar sendi Særós Sigrúnu Pá-
línu Ingvarsdóttur bréf árið 2009 þar
sem hún þakkaði henni fyrir að hafa
stigið fram á sínum tíma og vakið at-
hygli þjóðarinnar á framferði Ólafs
Skúlasonar. Særós steig síðan fram og
sagði þjóðinni sögu sína í þættinum
Sjálfstætt fólk árið 2009 þegar Sigrún
Pálína kom þar fram.
„Ég var ekki að koma fram með
þrjátíu ára gamlar ásakanir á hendur
Ólafi til þess að ráðast á hann. Ætlun-
in var að styðja þessar konur til þess
að fá uppreisn æru sinnar eftir með-
ferðina sem þær fengu, ekki bara inn-
an kirkjunnar heldur einnig í fjölmiðl-
um og á meðal almennings. Ég held
að við þurfum öll að líta í okkar eigin
barm.“
Sjálf var hún nemandi í Réttar-
holtsskóla þar sem Ólafur var umsjón-
ar- og enskukennarinn hennar. Vegna
veikinda varð hún að taka sjúkrapróf
í lokaprófinu í ensku. „Þegar að próf-
inu kom vildi Ólafur að það yrði tek-
ið í kirkju því hann ætlaði að vinna að
ræðu á meðan. Þegar ég svo tók próf-
ið kom hann og nuddaði axlirnar á
mér, sagði mér að reyna að vera ekki
stressuð og slappa af. Ég kláraði próf-
ið og hann leit yfir það með mér og
áður en ég gat áttað mig fór hann að
káfa á mér og skyndilega henti hann
sér á mig og byrjaði að kyssa mig. Ég
varð skelfingu lostin og stökk á fætur
og hljóp hljóðandi að dyrunum sem
hann hafði læst, hann kom á eftir en
ég barði á dyrnar og öskraði. Þá greip
hann höndunum fyrir andlitið og
sagði: „Guð, fyrirgefðu, hvað hef ég
gert?“ Síðan opnaði hann dyrnar fyrir
mér og ég hljóp út.“
Áreitti hana í veikindum
Önnur kona varð fyrir barðinu á Ólafi
árið 1973, 28 ára gömul. Hún sagði
sögu sína í DV síðasta sumar en hún
lá á spítala vegna veikinda þegar móð-
ir hennar kallaði Ólaf til hjálpar. Hann
leitaði tvisvar sinnum á hana áður en
hún sleit endanlega öllum samskipt-
um þeirra á milli. Konan sagði móð-
ur sinni og sambýlismanni frá þessu
en bæði gerðu þau lítið úr þessu. Hún
ætti ekkert að vera að tala um svona
hluti. Hún gaf lögreglunni þó skýrslu
þegar Ólafur kærði þær Sigrúnu Pá-
línu Ingvarsdóttur og Stefaníu Þor-
grímsdóttur.
Ólafur kom upp á spítala og hitti
þessa konu. Í kjölfarið fór hann að
hringja heim til hennar. Einn daginn
bauð hann henni í bíltúr. „Við fórum
upp í Hafnarfjarðarhraun. Þetta var
að vori og það var gott veður. Hann
fór að fækka fötum og settist í aftur-
sætið á bílnum og bað mig að setjast
hjá sér. Ég gerði það en þá tók hann
utan um mig. Ólafur renndi síðan
niður buxnaklaufinni og gerði sig lík-
legan í einhvers konar ástarleik. Ég sá
í hvað stefndi og sagðist þá vilja kom-
ast heim og fór út úr bílnum. Hann
gerði það þá einnig, klæddi sig og ók
af stað. Við ræddum ekkert um þetta
á heimleiðinni en hann talaði mik-
ið um það að hann hefði oft farið út
í hraun þegar hann var að læra að
verða prestur.“
Nokkrum dögum síðar hringdi
Ólafur í hana og bað hana um að
hitta sig í kirkjunni. „Ég hélt að hann
ætlaði að ræða við mig. Hann var að
klára athöfn og leiðir mig um kirkj-
una. Hann fer með mig inn í þetta
fræga gluggalausa herbergi. Seinna
hef ég oft hugsað með mér að hann
hljóti að hafa verið í góðri æfingu því
hann hvolfdi hempunni af sér með
einu handtaki og henti henni út í
horn. Hann lét hempuna bara fljúga.
Þetta var ótrúlegt. Ég man ekki hvort
hann fækkaði fötum frekar. Hann tók
mig í fangið og reyndi eitthvert kelerí.
Hann gaf skýr merki um að hann vildi
ganga lengra. Hann var hátt stemmd-
ur og æstur. Ég hörfaði undan hon-
um og fór út í miklu uppnámi. Mér
var brugðið. Ég hvorki hitti né ræddi
við Ólaf Skúlason eftir þetta.“
Ósæmileg framkoma prestsins
Þriðja konan í þessum hópi sagði
einnig sögu sína í DV í fyrra. Ólöf
Pitt Jónsdóttir varð fyrir kynferðis-
legri áreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar
árið 1982, 26 ára gömul. Hann áreitti
hana tvisvar sinnum, í annað skipt-
ið var bænastund að hefjast á spítala
og í hitt skiptið var hann umvafinn
prestum. Enginn varð þess þó var
þegar hann áreitti konuna.
Hún sagðist hafa hitt Ólaf á Landa-
kotsspítala þar sem hann byrjaði að
klæmast við hana. „Hann strauk yfir
axlirnar á mér, niður eftir bringunni
og kleip svo í brjóstin á mér. Sagði:
„Rosalega ert þú með falleg brjóst.“
Svo sló hann tvisvar sinnum á rass-
inn á mér. Ég stífnaði alveg upp.“
Áður en leiðir þeirra skildi sagði
hann henni að klæðast þröngum
búningi svo hennar „fallegi skrokkur“
fengi notið sín en hún var klædd víð-
um slopp þegar þetta gerðist. Kvaddi
hann hana svo með þessum orðum:
„Vertu nú ekkert að segja frá þessu,
þetta er bara í gríni.“
Óttaðist ofsa-
fengin viðbrögð
n Vitað er um sex aðrar konur sem saka Ólaf Skúlason um kynferðisbrot n Mynstrið alltaf það
sama n Þorðu ekki að stíga fram á sínum tíma n Vilja að kynferðisbrot verði tekin fastari tökum „Við viljum bara
sjá breytingu á
því hvernig kynferðisbrot
eru meðhöndluð, sama
hvaða hlutverki kynferð-
isbrotamaðurinn gegnir.
Tengiliðurinn Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir hefur vitað af
sumum þessara kvenna í mörg
ár og leiddi þær saman. Hún
hefur einnig komið tveimur
þeirra í samband við fagráð
kirkjunnar. Engin þeirra sækist
þó eftir bótum frá kirkjunni.
Steig fram síðasta sumar Ólöf Pitt
Jónsdóttir sagði frá reynslu sinni af Ólafi í
DV síðasta sumar. Það var í fyrsta sinn sem
hún gerði það.
Biskupinn Ólafur Skúlason beitti áhrifum
sínum víða og margir sitja eftir í sárum. Ein
þessara kvenna segir að ábyrgðin liggi hjá
þeim sem brugðust ekki við þegar reynt var
að opinbera framferði hans en hann sjálfur
hafi bara verið veikur maður.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is