Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 38
38 | Menning 9.–11. september 2011 Helgarblað
Menningarrýni
Hvað ertu
að gera?
Raular lög
úr Uppnámi
Hvaða bók ert þú að lesa?
„Ég er að lesa Steinsmiðinn eftir
Camillu Läckberg.“
Hvaða tónlist er í uppáhaldi
þessa dagana?
„Lögin sem Viggó og Víóletta
syngja í Uppnámi í Þjóðleikhús-
kjallaranum eru í miklu uppáhaldi
hjá mér og ég raula þau mikið
þessa dagana.“
Hvert ferð þú út að borða ef þú
mátt ráða?
„Ég borða oft á Pisa en annars á ég
eftir að prófa Grillmarkaðinn. Hann
er næstur á dagskrá hjá mér.“
Hvaða leikrit sást þú síðast og
hvernig líkaði þér?
„Síðast sá ég sjálfshjálparsöng-
leikinn Viggó og Víólettu sem
er á eftir uppistandi Pörupilta í
Leikhúskjallaranum og fannst það
hann mjög skemmtilegur.“
Hvað ætlar þú að gera um
helgina?
„Á föstudagskvöld ætla ég að
bregða mér í gervi Dóra Maack og
vera með Uppnám í Leikhúskjallar-
anum. Pörupiltar eru fyrir hlé með
uppistand og Viggó og Víóletta eru
eftir hlé með sjálfshjálparsöng-
leik. Í hádeginu á laugardag verð
ég með upplestur á barnabókum
fyrir krakka í Eymundsson á
Skólavörðustíg og í Kringlunni.
Sunnudagurinn væri kjörinn til
að fara í berjamó eða taka upp
kartöflur ef veður leyfir.“
DV mælir með...
Sólveig Guðmundsdóttir
Andlit norðursins
„Myndin er með stórkostlegt auga
fyrir hlutunum en litla tungu og
minni mænu.“ – Erpur Eyvindarson
The Greatest Movie
Ever Sold
„Myndin er skemmtileg fyrir þá sem
kunna að meta eitthvað dýpra
en Hollywood-sumarmyndir.“ –
Aðalsteinn Kjartansson
Á annan veg
„Myndin er dramatísk, fyndin og
skemmtileg.“ – Erpur Eyvindarson
É
g reyni að birta Ísland eins
og það blasir við með þau
sem linsu, það er ásetn-
ingur um tiltekið mynd-
verk,“ segir Haukur Már
en Ge9n er fyrsta kvikmynd
hans í fullri lengd. Áður hefur
hann gert stuttmyndir, gefið út
ljóðabækur, skáldsögu og fjölda
greina sem birst hafa í fjöl-
miðlum hér á landi og erlend-
is. Blaðamaður DV fékk sér kaffi
með Hauki Má í íbúð í Vestur-
bænum og ræddi við hann um
gerð kvikmyndarinnar sem
og það íslenska samfélag sem
hann hefur verið að takast á
við í verkum sínum til þessa, oft
með afar gagnrýnum augum.
Kvikmyndin sem
ábyrgðarhlutur
„Fyrstu skrefin við vinnslu
svona myndar felast einfaldlega
í hugsun. Hvað er það í heimin-
um sem ég vil sjá eða vil að sjá-
ist. Svo skýtur maður, safnar því
sem maður hafði ætlað, en þeg-
ar kemur að úrvinnslunni bæt-
ist við aukavídd. Í klippingunni
taka stemningar yfir, hljóm-
fall, fas, líkamsburður, birta og
fleira, músíkin í myndinni – ekki
bara tónlistin í hljóðrásinni,
heldur tónlistin í myndefninu
sjálfu, og áður en maður veit af
er freistandi að segja að þetta
sé ekki heimildarmynd heldur
söngleikur,“ segir Haukur Már.
Þeir sem til þekkja munu ef-
laust taka eftir því að í Ge9n er
Haukur Már undir þó nokkrum
áhrifum frá leikstjóranum Jean-
Luc Godard. Hann segist vera
mjög meðvitaður um það enda
sé bein tilvísun í Godard í einu
atriðinu í Ge9n.
„Hann fann upp, ekki bara
tilteknar aðferðir, heldur líka
nálgun og afstöðu, ákveðinn
módernisma í hugmyndinni um
kvikmyndina sem átök. Ég gaf
mér vísvitandi tíma í að rann-
saka og tileinka mér þetta sem
einhvern upphafsreit sem sam-
ræmist mínu áhugasviði. Þessa
hugmynd um kvikmyndina sem
ábyrgðarhlut einhvern veginn.“
Annars konar ríki
Mér leikur forvitni á að vita
hvað hafi rekið Hauk Má út í það
að gera sína fyrstu kvikmynd
í fullri lengd, og það um mál
sem þegar hafði verið fjallað
svo mikið um í fjölmiðlum. „Ég
held að mjög mörg mikilvæg at-
riði í Íslandssögu síðustu ára-
tuga hafi farið fyrir ofan garð og
neðan, og lengst af lifað í munn-
mælasögum eins og til dæmis
Guðmundar- og Geirfinnsmál-
ið. Á sama tíma er til staðar her
atvinnumanna sem fæst við að
skrifa söguna, og skilja ákveðna
hluti eftir, hvort sem er vísvit-
andi í þágu samfélagsmyndar
eða bara óvart vegna þess að
þeir koma ekki auga á þá.“
Haukur segir mál níumenn-
inganna vera þannig vaxið að
þar hafi verið reynt að koma
höggi á hreyfingu, með því að
þreyta fólk með málarekstri.
Slík taktík sé mjög stórt ein-
kenni á allt annars konar ríki
en við viljum kannast við að sé
rekið hér á landi. „Þess vegna
fannst mér mikilvægt að stoppa
við svona atburð. Þarna blasti
við mér annar veruleiki en birt-
ist í fjölmiðlum, og að þetta væri
eitthvað sem ég gæti tæklað,
hefði tækin til að takast á við.
Það eru mikil forréttindi fyrir
kvikmyndagerðarmann með
heimspekiblæti að lifa í gegn-
um svona mikið, eigum við að
segja kjaftæði? Mér fannst bak-
grunnur minn á ólíkum sviðum
geta mæst í einum brennidepli í
þessu viðfangsefni.“
Hvaða stórsaga?
Í Ge9n kallast atburðirnir á
Austurvelli árið 1949 skýrt á
við atburðinn í þinghúsinu
árið 2008. Bent hefur verið á að
umfjöllun fjölmiðla hafi í báð-
um tilfellum oft og tíðum ver-
ið nokkuð gildishlaðin. Í kvik-
myndinni er meðal annars
vitnað í forsíðufyrirsögn Morg-
unblaðsins frá 1949 „Trylltur
skríll ræðst á Alþingi“. Ég spurði
Hauk hverja hann teldi ástæð-
una fyrir slíkum fréttaflutningi
vera, þá og nú?
„Til að gæta sanngirni voru
forsíðufyrirsagnir Þjóðviljans
alveg jafngildishlaðnar, meðal
annars talað um nasistasinn-
aðan hvítliðaskríl. Ég held að
eitt hugtak sé mikilvægt hér og
það er hugmyndin um grand-
narratíf eða stórsögu. Á hverj-
um tímapunkti í samfélagi er
til staðar ein eða fleiri stórsög-
ur sem fela í sér hugmynd um
ákveðna framvindu sem sé í
gangi. Það var stofnað til einn-
ar þannig stórsögu í viðbragð-
inu við hryðjuverkaárásunum
í New York árið 2001. Eftir það
stóðu Mið-Austurlönd and-
spænis Vesturlöndum, og þeg-
ar búið var að stofna til stórsög-
unnar, þá var hægt að segja frá
öllum atburðum sem fylltu upp
í þessa framvindu í afar stuttu
máli. Um leið og skopmynda-
teiknari er laminn einhvers
staðar þá fittar það inn í fyrir-
framgefinn ramma sem þarfn-
ast engra útskýringa.
Þetta dæmi, níumenninga-
málið, er kannski svolítið erfitt
vegna þess að þá kemur spurn-
ingin; hvaða stórsaga er það
þarna sem býr til þessa hug-
mynd um þennan tryllta skríl
og þennan óþjóðalýð? Það er
skiljanleg árátta í starfi blaða-
manns að byrja á að leita leiða
til að segja söguna í sem stystu
máli. Hugtak eins og skríll er til,
það tilheyrir ákveðinni heims-
mynd, ákveðnum heimsskiln-
ingi, en svo kemur á daginn að
það segir ekki neitt, það lýsir
engum raunveruleika.“
Yfirvofandi dómur
Haukur þekkti einhverja af
þeim ákærðu persónulega og
segir það vissulega hafa haft
áhrif á hvernig hann nálgaðist
umfjöllunarefnið. „Stærsta bil-
ið á milli frásagnarinnar sem
var ríkjandi og raunveruleik-
ans sem mér fannst blasa við
var hvað öllum lá á að tala um
aðgerðina, ekki bara sem of-
beldisfulla, heldur líka hugs-
unarlausa. Þetta væru bara
krakkabjálfar að valda einhverj-
um óskunda og gera einhverja
vitleysu.
Ég sá sjálfur að einhver í
þessum hópi voru mun með-
vitaðri um hvað þau voru að
gera. Þau stunduðu miklu
nánari samræðu orða og at-
hafna en kannski meirihluti
mótmælenda, voru vel að sér
í heimsmálunum, með ákveð-
inn grunnskilning á atburð-
unum á Íslandi og skóluð í því
hvernig bregðast megi við slíku.
Þaðan kom ein af löngunun-
um að baki myndinni, að birta
þetta fólk sem hugsandi verur,
láta það tala fyrir sig sjálf. Það er
ákveðinn grunnur.“
Haukur segir að frá upphafi
hafi markmið hans verið að
ljá öllum þeim ákærðu rödd í
myndinni. Þannig hefði mynd-
in heimildargildi fyrir fram-
tíðina. „Öll viðtölin eru tek-
in á meðan málið er í gangi, á
meðan þau standi frammi fyr-
ir óvissunni um niðurstöðuna,
hvort þau séu að fara að lenda
í fangelsi fyrir það að lesa yfir-
lýsingu á pöllum Alþingis eða
ekki. Með þetta yfirvofandi er
ákveðið spennuástand í lífi
þeirra sem er liðið hjá núna. Að
ná þeim tímapunkti í lífi fólks
á svona breiðum skala úr ís-
lensku samfélagi var mikilvægt,
bæði fyrir heimildargildið og til
að gera gott bíó.“
Falskt hlutleysi
Sumir gætu bent á að kvik-
myndin sýni bara eina mynd,
sé ekki hlutlaus, það vanti til
dæmis frásagnir lögreglu-
manna sem voru á staðnum
og upplifðu hlutina öðruvísi?
„Það er ekki bara að hún sýni
bara eina mynd. Þetta er bara
ein mynd, kvikmynd. Fyrst og
fremst er þetta mynd af þessum
hópi fólks og Íslandi í gegnum
það. Ég reyni að birta Ísland
eins og það blasir við og nota
þau fyrir linsu og það er ásetn-
ingur um tiltekið myndverk.
Kvikmyndagerðarfólk eða
listamenn eiga ekki að setja sig
á sama klafa hlutleysis í um-
fjöllun um sitt samfélag og
starfsmenn fjölmiðla. Það er
jafnvel skylda manns við gerð
kvikmyndar eða við ritstörf, að
vera tilbúinn að ábyrgjast sann-
leikann í tiltekinni sýn, að gang-
ast við því að þar sé að finna
mikilvægan sannleika sem er
mjög ólíklegt að sé jafnþókn-
anlegur öllum sem að málinu
koma. Þarna blasti við að það
væri enginn fótur fyrir þessum
málaferlum. Það er ábyrgðar-
hlutur að svíkjast ekki um gagn-
vart þeirri staðreynd í nafni ein-
hvers hlutleysis. Hlutleysi milli
þvættings og þess sem blasir
við. Hvaða konsept er það eig-
inlega? Hvers konar list yrði úr
slíkri nálgun?“
Virk í andófi
Þegar maður horfir á mynd-
ina hlýtur maður að spyrja
sig: Afhverju þau níu? Hvern-
ig voru þau valin úr hópi þrjá-
tíu manns? Ég spyr Hauk hvort
hann hafi komist einhverju nær
við gerð myndarinnar.
„Það er ljóst að á myndum
innan úr þinghúsinu þekkj-
ast margir í sjón sem ekki voru
ákærðir, þar á meðal Lárus Páll
sem birtist í myndinni. Hann
var ekki ákærður þrátt fyrir að
hafa ítrekað krafist þess og bent
á þátttöku sína frammi fyrir
dómstólum.
Ég veit ekki hvernig ákveð-
ið var að ákæra þau níu, en sum
þeirra höfðu áður mótmælt á
Kárahnjúkum, stigið yfir línu í
beinum aðgerðum, og gerðu á
sínum tíma marga mjög reiða.
Sum þeirra tóku þátt í og leiddu
að einhverju leyti búsáhalda-
byltinguna með því að fara yfir
þau mörk sem óvanari mót-
mælendur kunnu ekki eða
kunnu ekki við. Þau leyfðu sér
að stíga yfir merkingarlausar
línur og stilltu sér upp í líkam-
legri andstöðu við yfirvöld. Svo
tóku einhver þeirra einnig þátt
í hústökunni við Vatnsstíg vorið
2009 þar sem lögregla brást við
með vélsögum og eiturefnum
til að svæla þau út. Það er alveg
ljóst að einhverjum embættis-
mönnum er í nöp við eitthvað
af þessu fólki. Hversu stóran
hluta það síðan spilar í málinu
öllu er ekki einfalt að segja.“
Stríð eða friður?
Það er erfitt að horfa á mynd-
ina án þess að velta upp þeirri
spurningu hvort hér á landi
ríki í raun sá friður sem marg-
ir vilja halda. Hvort að undir
niðri kraumi átök sem frá degi
til dags eru falin en blossa síðan
upp á mótmælum eins og þeim
sem áttu sér stað 1949 eða í kjöl-
far hrunsins. Ég spyr Hauk hvort
hann sé í myndinni að ýja að því
að hér á landi ríki stríð, en ekki
friður?
„Nú ertu að spyrja mig, svo
þyrftirðu helst að geta spurt
kvikmyndina líka, sem er ekk-
ert víst að sé sömu skoðunar
og ég. Ég held að það hafi verið
bandaríski fjárfestirinn Warren
Buffet, sem lét það frá sér fyrir
ekkert löngu síðan, að já, það
væri stéttastríð í gangi, en það
væri hans stétt, efri stéttin sem
hefði hafið það, og hún væri að
vinna. Þetta er rosalega vand-
meðfarið tungutak, það er rosa-
lega vandmeðfarið hvað mað-
ur vill. Ég held að það sé mikið
lán að þessi átök í búsáhalda-
byltingunni, þar sem ríkti hátt
spennuástand, hafi farið fram
mannskaðalaust. Það væri enn
meira lán ef við byggjum við
nógu þroskaða samræðu til að
þar væri fótfesta fyrir átök.
Erum stödd í átakasögu
Haukur segir að honum finnist
stundum eins og tungumálið
sjálft sé svo „glufótt, almennur
áheyrnar- og lesskilningur svo
lélegur, orðanotkun svo óná-
kvæm og fólk almennt svo vant
því að hlusta á slagorð frekar en
staðhæfingar, sannreynanlegar
eða varfærnislegar, að það sé
mjög erfitt að tala. Það er erfitt
að tala í umhverfi sem gerir ráð
fyrir að þú sért alltaf með eða á
móti einum af þremur eða fjór-
um stjórnmálaöflum, að þú sért
að reyna að snúast í vörn eða
sókn, að annað hvert orð sem
frá þér fari sé annar hvor fasinn
í fótboltaleik. Stundum er eins
og nákvæmnin í málnotkun sé
ekki meiri en svo.
Í búsáhaldabyltingunni
Haukur Már Helgason er leikstjóri
heimildarmyndarinnar Ge9n sem frum-
sýnd verður í Bíó Paradís í kvöld, föstudag,
klukkan níu. Myndin fjallar um þau níu
sem ákærð voru fyrir árás á Alþingi eftir að
þau fóru inn í þinghúsið þann 8. desember
2008 og reyndu að lesa upp yfirlýsingu
á þingpöllum. „Fyrst og fremst er þetta
mynd af þessum hópi fólks og Íslandi í
gegnum þau,“ segir Haukur í samtali við
blaðamann.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Viðtal
Ísland með linsu
níumenninganna„Þarna blasti
við mér ann-
ar veruleiki en birtist
í fjölmiðlum, og að
þetta væri eitthvað
sem ég gæti tækl-
að, hefði tækin til að
takast á við.