Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Page 2
Helgarblað 17.–20. janúar 20142 Fréttir
Áhrifin
ekki metin
Ekki er hægt að meta áhrif skulda-
niðurfellingarinnar sem ríkis-
stjórnin áformar að ráðast í. Þetta
kemur fram í svari Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætis-
ráðherra við fyrirspurn Árna Páls
Árnasonar, formanns Samfylkingar-
innar. „Forsætisráðuneytið býr ekki
yfir upplýsingum til að svara þessari
fyrirspurn. Enginn fyrirliggjandi
gagnagrunnur getur metið áhrif
leiðréttingarinnar á einstaka tekju-,
skulda- og greiðslubyrðishópa með
nægjanlega nákvæmum hætti,
ekki hvað síst vegna samspils við
fyrri aðgerðir sem dragast frá leið-
réttingunni,“ segir í svari Sigmund-
ar. Í svarinu segir hann einnig að
forsætisráðuneytið og fjármála-
og efnahagsráðuneytið muni á
næstunni safna upplýsingum um
dreifingu leiðréttingarinnar. Til
stendur að fella niður hluta verð-
tryggðra húsnæðislána. „Aðgerðirn-
ar eru ekki félagslegt úrræði heldur
er þeim ætlað að taka á þeim vanda
heimila sem til er kominn vegna
hinnar ófyrirsjáanlegu höfuðstóls-
hækkunar verðtryggðra lána sem
leiddi af gengislækkun íslensku
krónunnar,“ segir Sigmundur um
aðgerðirnar í svarinu.
É
g er náttúrlega feginn að þetta er
búið og ég mjög ánægður með
niðurstöðuna, með þeim fyrir-
vara að maður veit ekki hvort
þetta sé endanlegt,“ segir Hannes Sig-
marsson, fyrrverandi yfirlæknir Heil-
brigðisstofnunar Austurlands (HSA).
Heilbrigðisstofnun Austurlands var
í gær dæmd í Héraðsdómi Aust-
urlands til þess að greiða Hannesi
tæpar fimmtán milljónir króna vegna
vangoldinna launa. „Ef þetta verður
endanleg niðurstaða, þá er þetta auð-
vitað mikill sigur fyrir Hannes, en um
leið áfellisdómur yfir vinnubrögðum
Heilbrigðisstofnunar Austur lands,“
segir Guðjón Ármanns son, lögmaður
Hannesar.
DV greindi frá máli Hannesar í
nóvember 2012. Þá var skaðabóta-
kröfu hans á hendur Heilbrigðis-
stofnun Austurlands (HSA) vísað
frá dómi í Héraðsdómi Austurlands
vegna annmarka á málatilbúnaði.
Hannes krafðist þá rétt tæplega sex
milljóna króna vegna „ólögmætr-
ar uppsagnar“ en hann var rekinn
árið 2009. Héraðsdómur dæmdi hins
vegar HSA og þáverandi forstjóra
stofnunarinnar Einar Rafn Haralds-
son, til að greiða Hannesi samtals
þrjú hundruð þúsund krónur í miska-
bætur en Hannes sakaði forstjórann
um að hafa vegið að persónu hans
og æru með ummælum í fjölmiðlum
um brottrekstur Hannesar.
„Þetta er niðurstaða dómsins
og það er ríkislögmanns að ákveða
hvort hann uni því eða ekki,“ segir
Einar í samtali við DV. Hann vill ekki
tjá sig frekar um málið. Hannes segir
málið hafa snert fjölskyldu sína mik-
ið: „ Fjölskyldan mín er mjög ánægð
með þessa niðurstöðu.“ Lögmað-
ur hans segir dóminn góðan í ljósi
þess að Hannes hafi þurft „að sitja
undir linnulausum ásökunum þá-
verandi forstjóra Heilbrigðisstofnun-
ar Austurlands um fjárdrátt.“ Eins og
fyrr segir var forstjórinn, Einar Rafn,
dæmdur til að greiða Hannesi miska-
bætur vegna þeirra ummæla. n
jonbjarki@dv.is
„Mikill sigur fyrir Hannes“
Fær fimmtán milljónir króna vegna vangoldinna launa
Fékk á hann Hannes Sigmarsson segist
ánægður með niðurstöðuna en málið hefur feng-
ið mikið á hann og fjölskyldu hans, að eigin sögn.
Náin tengsl
við MP banka
n Spara hátt í 200 milljónir vegna skattleysismarka á bankaskatti
M
P banki sleppur við
greiðslu 188 milljóna
króna vegna skattleysis-
marka sem sett voru á
bankaskatt fyrir áramót
en greiðslur bankans vegna skatts-
ins nema 53 milljónum, miðað við
heildarskuldir bankans um síðustu
áramót. Skattleysismörkin voru lögð
til í breytingatillögu við fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar sem efna-
hags- og viðskiptanefnd lagði fram í
þinginu. Athygli hefur vakið að ráð-
herrar í ríkisstjórninni eru tengdir
stjórnendum bankans og var fjallað
um tengslin á vefsíðunni Andríki.
Tengdur fjölskylduböndum
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP
banka, er tengdur forsætisráðherra
fjölskylduböndum. Hann er kvæntur
Nönnu Margréti Gunnlaugs-
dóttur, systur Sigmundar Davíðs
Gunnlaugs sonar. Þetta eru ekki einu
tengsl Sigmundar við stjórnendur í
bankanum en Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri eignastýringar
MP banka, er einn nánasti ráðgjafi
hans í efnahagsmálum. Hann var
meðal annars skipaður af Sigmundi
til að leiða vinnu nefndar sem kom
með tillögur um hvernig ætti að leið-
rétta forsendubrest þeirra sem eru
með verðtryggð húsnæðislán. Sig-
urður og Sigmundur störfuðu saman
í InDefence-hópnum sem barðist
gegn samningum í Icesave-deilunni.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, hefur líka verið í
góðum tengslum við forystumenn
bankans. Nýverið réð hann til sín
Benedikt Gíslason sem starfað hef-
ur frá árinu 2011 sem einn af fram-
kvæmdastjórum MP banka. Starf
hans fyrir Bjarna á meðal annars að
felast í ráðgjöf um framkvæmd áætl-
unar um afnám gjaldeyrishafta og
tengd mál.
Kom ekki nálægt skattinum
DV sendi spurningar til Sigmundar
Davíðs vegna málsins en aðstoðar-
maður hans, Jóhannes Þór Skúlason,
svaraði fyrirspurninni. Hann segir í
svarinu að forsætisráðherra hafi ekki
komið nálægt útfærslu á skattinum.
Vísar hann á fjármálaráðuneytið
um hvernig frítekjumarkið var fund-
ið út. „Forsætisráðuneytið gerir ekki
tillögur um né tekur ákvarðanir um
tæknilega útfærslu skatta,“ segir Jó-
hannes í svarinu. Hafnar hann því
að tengsl Sigmundar við stjórnendur
MP banka hafi haft áhrif á ákvörðun-
ina, enda hafi hún ekki verið tekin
af honum. „Forsætisráðherra gerir
samkvæmt stjórnskipan engar tillög-
ur né tekur ákvarðanir um útfærslu
einstakra skatta. Tengsl forsætisráð-
herra við stjórnendur MP banka,
hvort sem er núverandi eða fyrrver-
andi, höfðu því augljóslega engin
áhrif,“ segir hann.
Aðspurður hvort að leitað hafi
verið ráða hjá Sigurði Hannessyni,
formanni sérfræðihóps um höfuð-
stólsleiðréttingu verðtryggðra lána,
segir hann það ekki hafa verið gert.
Hópurinn kom ekki með tillögur
um fjármögnun skuldaniðurfelling-
anna en hækkun bankaskattsins á
að tryggja hana. „Ekki var óskað eft-
ir neinum ráðum frá Sigurði Hann-
essyni varðandi útfærslu frítekju-
marksins, enda útfærslan ekki á
forræði forsætisráðherra eins og
áður segir,“ segir hann. n
Þetta eru
tengslin
n Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri hjá MP banka, er sérstak-
ur ráðgjafi forsætisráðherra.
n Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP
banka, er mágur forsætisráðherra.
n Benedikt Gíslason lét af störfum sem
framkvæmdastjóri hjá MP banka til að
gerast ráðgjafi fjármála- og efnahags-
ráðherra.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
„Tengsl forsætis-
ráðherra við
stjórnendur MP banka,
hvort sem er núverandi
eða fyrrverandi, höfðu því
augljóslega engin áhrif.
Milljónir MP banki sleppur við um 200
milljóna greiðslur vegna skattleysismark-
anna. Bankinn er sá eini af viðskipta-
bönkunum fjórum sem kemur betur frá
bankaskattinum eftir breytingarnar.
Mágur Forstjóri MP banka er
mágur Sigmundar Davíðs auk
þess sem einn af hans helstu
ráðgjöfum er framkvæmdastjóri
hjá bankanum. Mynd SigTryggur Ari
Hefur ráðrúm
til að andmæla
Andmælafrestur Þorsteins
Jóhannessonar, framkvæmdastjóra
lækninga við Heilbrigðisstofn-
un Vestfjarða,
vegna mats
embætt-
is landlæknis
á starfshæfni
hans rann út í
byrjun vikunn-
ar. BB.is grein-
ir frá, en þar
kemur fram að
Geir Gunnlaugsson landlæknir segi
að niðurstöðu sé að vænta á næstu
dögum.
Málinu var vísað til landlæknis-
embættisins í kjölfar þess að deilur
lækna við stofnunina vegna máls-
ins komust í hámæli í fjölmiðlum,
en sem kunnugt er neituðu margir
læknar að vinna með Þorsteini.
Ekki verður greint frá niðurstöðu
matsins fyrr en endanleg niður-
staða liggur fyrir en þangað til
gegnir Þorsteinn áfram störfum
sem framkvæmdastjóri lækninga.
Hann tekur þó ekki að sér skurð-
aðgerðir eða læknavaktir.