Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 11
Helgarblað 17.–20. janúar 2014 Fréttir 11
O
kkur er full alvara í því að
láta þetta ganga upp.“ Þetta
segir Guðbrandur Einars
son, formaður Verslunar
mannafélags Suðurnesja,
sem sæti átti í samninganefnd ASÍ
og undirritaði kjarasamninginn fyrir
hönd verslunarmanna. Hann var
kjörinn formaður Landssambands
íslenskra verslunarmanna þann
8. nóvember síðastliðinn. Hann er
fyrsti kjörni landsbyggðarformað
ur LÍV frá því að það var stofnað árið
1956. Guðbrandur var einnig lengi
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og er
iðinn við að skrifa greinar og fylgist
vel með.
Guðbrandur hefur talað fyrir því
að kjarasamningarnir sem undirrit
aðir voru fyrir jól verði samþykktir.
„Já, ég samþykkti þessa samninga.
Við náum aldrei öllu okkar fram
þegar við gerum kjarasamning en ég
tel að við séum á réttri leið með gerð
þessa samnings.“
Atkvæðagreiðslan mun fara fram
frá 15. janúar til 20. janúar. Niður
stöður úr kosningunum þurfa að
liggja fyrir í síðasta lagi 22. janúar.
Flest verslunarmannafélaga viðhafa
rafræna allsherjaratkvæðagreiðslu
þar á meðal hér á Suðurnesjum.
Félagsmenn fá lykilorð sent í pósti
ásamt upplýsingum um helstu atriði
samningsins. Þetta á að auðvelda fé
lagsmönnum að greiða atkvæði um
samninginn.
Full alvara
Guðbrandur er bjartsýnn á að samn
ingarnir verði samþykktir. „Við mætt
um talsverðir ágjöf í fyrstu en þetta
hefur róast síðustu daga. Þeir sem
tala fyrir þessum samningi hafa að
undanförnu náð að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri og eins ætti
fólk að sjá, eftir það sem hefur verið
að gerast undanfarna daga, í aftur
köllun verðbreytinga, að okkur er full
alvara í því að láta þetta ganga upp.“
Guðbrandur kvittaði undir vegna
þess að hann sér í þessum samningi
veruleg tækifæri og telur að þessi
samningur marki ákveðin þáttaskil
í samningsgerð á Íslandi. „Þarna er
verið að semja um launabreytingar
sem munu, ef rétt er á málum haldið,
auka kaupmátt og stuðla að minnk
andi verðbólgu,“ segir hann. Sam
hliða samningnum er tímasett við
ræðuáætlun um það hvernig skuli
nálgast gerð næsta kjarasamn
ings. Sú vinna hefst um leið og,
þegar eða ef, samningurinn verð
ur samþykktur. „Þetta eru nýmæli í
samningsgerð á Íslandi.“
Allir eru hvattir til að taka hönd
um saman og vinna gegn verð
bólgu. Ríkið hefur skuldbundið
sig til þess að taka þátt. „Þrátt fyrir
verðhækkanir ríkisins undanfarna
daga þá liggur fyrir skuldbinding af
hálfu fjármálaráðherra um að verð
breytingar fari ekki umfram verð
bólgumarkmið Seðlabankans sem
er 2,5 prósent.“
Hann bendir einnig á að sveitar
félög hafi sýnt það í verki að þau
eru tilbúin að taka þátt. Með því að
stilla verðhækkunum í hóf og jafn
vel lækka verð þannig að þetta geti
gengið upp. „Verðlagseftirlit ASÍ
verður á vaktinni og mun beita sér
hart gegn þeim aðilum sem ekki
taka þátt. Ef þetta tekst, munum við
geta upplifað umhverfi hér næstu
árin, með minnkandi verðbólgu og
lægri vöxtum.“ Guðbrandur telur
að það kæmi íslenskum heimilum
virkilega til góða.
Samið fyrir heilar atvinnugreinar
Samkvæmt viðræðuáætlun sem tek
ur gildi ef samningar verða sam
þykktir á að ræða peningastefnuna
og fjárlögin við stjórnvöld. Það á
að ræða verðstöðugleika og launa
hækkanir við viðsemjendur. Síðan á
að skoða möguleika á annars konar
samningsgerð.
Horfa ber til atvinnugreina í stað
starfsgreina líkt og er gert á hinum
Norðurlöndunum að mati Guð
brands. „Í því skyni mætti hugsa sér
að mörg stéttarfélög kæmu að gerð
eins kjarasamnings sem myndi þá
gilda fyrir heila atvinnugrein.“
Hann segist til dæmis sjá fyrir
sér kjarasamning fyrir ferðamanna
iðnað eða byggingariðnað. „Kjara
samningar á Íslandi hafa ekki verið
unnir á þennan hátt en þetta er
áhugavert að skoða. Við viljum
vinna að samningsgerð sem stuðlar
að og gengur út frá efnahagslegum
stöðugleika. Ekki bara núna held
ur til frambúðar.“ Guðbrandur telur
að leiðin til þess geti meðal annars
verið fólgin í því að móta nýtt kjara
samningslíkan þar sem gerðir eru
atvinnugreinasamningar sem taka
til allra starfa innan viðkomandi
atvinnugreinar. Í takt við það sem
gerist á hinum Norðurlöndunum.
Stundum betra að segja minna
Guðbrandi finnst andstaða við ný
gerða samninga hafa farið minnkandi
undanfarna daga. Hann telur einnig
að gagnrýni á samningana sé órétt
mæt að mörgu leyti. „Í aðdraganda
þessarar samningsgerðar lögðu
ákveðnir aðilar fram kröfur sem þeir
vissu að þeir þyrftu ekki að standa
við enda var þeim hafnað á fyrsta
fundi þeirra með samningsaðilum.
Það hefur líka komið á daginn að við
komandi aðilar voru ekki tilbúnir að
standa á eigin fótum og fara sínar eig
in leiðir í samningsgerð og leggja sín
eigin verk í dóm sinna umbjóðenda.
Ég lít svo á að stundum sé betra að
segja minna og framkvæma meira.“
Hann bendir á að þetta sé skamm
tímasamningur og að það megi grípa
til annarra aðferða í framhaldinu ef
markmið samningsins náist ekki.
Þess vegna virkaði þjóðarsáttin
Margir kjarasamningar eru lausir og
Guðbrandur segir ljóst að ef kostn
aðarbreytingar verða í samfélaginu,
hvort sem það er vegna verðhækk
ana eða launabreytinga, umfram
það sem samið er um, þá hafi sú til
raun sem samþykktir samningar feli í
sér, mistekist. „Þá verður líka enginn
áhugi hjá okkur að reyna samninga
um stöðugleika aftur. Þessi tilraun
byggir á því að allir taki þátt í henni.
Þess vegna skilaði þjóðarsáttin árið
1990 árangri.“
Guðbrandur leggur ríka áherslu á
að ef brotist verði út fyrir kostnaðar
ramma samnings með verulegum
launahækkunum annars staðar, þá
muni launafólk á almennum vinnu
markaði þurfa að grípa til annarra
aðferða til að ná fram auknum kaup
mætti. „Þurfa ekki allir leiðréttingar?
Urðu ekki allir fyrir skerðingu í hrun
inu?“ spyr Guðbrandur. Ríkið er
skuldbundið til þess að fylgja eftir
verðbólgumarkmiðum Seðlabankans
upp á 2,5 prósent verðbólgu og get
ur því ekki samið um meira en sem
því nemur við aðra, án þess að brjóta
samninginn við ASÍ. „Ég vil bara leyfa
mér að vonast eftir því að allir séu að
vinna að sama markmiði, að tryggja
hér lífvænlegt umhverfi, ekki bara
fyrir suma, heldur fyrir alla.“
Gælir við framboð
Sem fyrrverandi bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ er Guðbrandur dug
legur að tjá sig um sveitarstjórnar
mál. Hann hefur á þeim mikinn
áhuga. „Mér sýnist að ég tjái mig
meira í fjölmiðlum um samfélags
mál en margur bæjarfulltrúinn hér
í bæ, enda eru þau mitt hjartans
mál.“ Þegar Guðbrandur er spurður
hvort hann hafi hug á því að snúa
aftur í bæjarpólitíkina og bjóða sig
fram í vor segist hann telja það vera
áhugaverðan kost. „Ég veit að það
er mikill áhugi í sveitarfélaginu fyrir
því að stofna til framboðs sem er án
tengingar við núverandi stjórnmála
öfl. Ég hef ekki lokað á það að taka
þátt í slíku framboði. Ég mun skoða
það á næstu vikum hvort ég tek þátt í
slíku framboði.“
Hann segir erfitt að segja fyrir um
það hvernig áherslur svona fram
boð myndi hafa meðan framboð
ið sé ekki til, en heldur að þeir sem
myndu vilja taka þátt í slíku, hefðu
fyrst og fremst áhuga á því að leggja
samfélaginu lið. Láta gott af sér
leiða. „Það liggur auðvitað fyrir að
fjármál sveitarfélagsins hafa verið í
brennidepli í mörg ár og það er ekki
að ástæðulausu að eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga hefur verið að
fylgjast náið með Reykjanesbæ. Það
þarf að vinna ötullega að því að bæta
fjármál Reykjanesbæjar.“
Ekki fleiri töfralausnir
Guðbrandur bendir á mikilvægi fé
lagsmála í víðum skilningi og að þau
snerti íbúa beint; mál eins og skóla
mál, aðbúnaður ungmenna, barna
og eldra fólks í sveitarfélaginu. „Það
er fjöldi stórra verkefna sem þarf að
takast á við. Það er úr nægu að moða
ef fólk hefur áhuga á að starfa fyrir
sveitarfélagið sitt.“
Aðspurður hvað hann telji að
verði aðalmál kosninganna segist
Guðbrandur vona að það muni snúa
að hag bæjarbúa almennt. „Ég vona
að menn eyði ekki dýrmætum tíma
sínum í að halda á lofti einhverjum
kosningaloforðum sem byggja á ein
hverjum töfralausnum. Nóg komið
af slíku.“ n
Nóg komið af
töfralausnum
n Samningamaður ASÍ harðorður í garð andstæðinga kjarasamninga n Kemur heimilum til góða
Undirritaði samninginn
Guðbrandur Einarsson segir að
í samningunum felist tilraun
sem hann líkir við þjóðar-
sáttina 1990. Mynd Þorri
„Við náum aldrei
öllu okkar fram
þegar við gerum
kjarasamning
„Ef þetta tekst,
munum við geta
upplifað umhverfi hér
næstu árin, með minnk-
andi verðbólgu og lægri
vöxtum.
Þormóður Logi Björnsson
logib@dv.is