Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 32
Helgarblað 17.–20. janúar 201432 Fólk Viðtal „Ég ætlaði að segja upp“ „Ég er kakkalakki, ég lifi ýmislegt af,“ segir sjón- varpskonan Margrét Erla Maack. Margrét er flestum landsmönnum kunn en hún hefur verið einn umsjónarmanna Kastljóssins undanfarin þrjú ár auk þess að starfa sem danskennari, sirkuslistamaður og plötusnúður. Henni var nýlega sagt upp starfi sínu á RÚV, líkt og fjölmörgum öðrum, en var ekki lengur en hálftíma að finna sér nýja vinnu og segir spennandi tíma framundan. É g er ekki með athyglisbrest en ég þarf alltaf að vera með rosalega marga bolta á lofti og ég vinn mjög verkefnamið­ að. Fólk spyr mig oft hvern­ ig ég hafi tíma fyrir allt sem ég er að gera en það er aldrei þannig að ég sé að gera allt í einu. Þetta kemur allt í bylgjum,“ segir Margrét. Hún er alltaf með mörg járn í eldinum en sam­ hliða störfum sínum á RÚV hefur hún starfað sem danskennari í Kram­ húsinu, sirkuslistamaður hjá Sirkus Íslands og plötusnúður auk þess að hafa atvinnu af því að stýra karókí. Hún segir tækifærin leita hana uppi. „Draumarnir hafa svolítið elt mig í gegnum tíðina, þeir koma til mín. Ég byrjað í magadansinum af því að ég var bakveik, ég fór að spila á skemmtistöðum bara af því að ég hlustaði mikið á tónlist og vinur minn var lasinn eitt kvöldið svo ég fór að leysa hann af. Allt í mínu lífi hef­ ur gerst svona. Ég segi það ekki að ég þurfi ekki að leggja mikið á mig; það er erfitt að dansa, það er erfitt að vera í sirkus og það er erfitt að gera allt þetta en ég þarf ekki að leggja mikið á mig til að finna þessa hluti.“ „Hvað með Gettu betur?“ Margrét var í hópi þeirra sem sagt var upp á RÚV í byrjun desember en hún hafði þá verið einn umsjónar­ manna Kastljóssins í þrjú ár auk þess að hafa unnið sem skrifta og útvarps­ maður á Rás 2. Hún heldur þó starfi sínu sem dómari og spurningahöf­ undur í Gettu betur og segir þá stað­ reynd hafa komið í veg fyrir reiði og biturleika vegna uppsagnarinnar. „Þegar mér var sagt upp horfði ég með hvolpsaugum á Skarphéðin [Guðmundsson, dagskrárstjóra, innsk. blm.] og spurði: „Hvað með Gettu betur?“. Hann sagði að auðvit­ að yrði ég áfram þar og ég varð rosa­ lega fegin, því ef svo hefði ekki verið þá hefði ég orðið rosalega bitur og sár. Þá hefði ég fundið fyrir reiði og skellt hurðum og eitthvað, held ég. En ég veit það samt ekki. Mér hefur aldrei verið sagt upp áður,“ segir Mar­ grét og bætir við að það hafi verið skrýtin tilfinning að vera látin fara. „Það var rosalega gott sem pabbi sagði við mig: „Þér var sagt upp en þú ert ennþá að fara að vera í Gettu bet­ ur þannig að það er svolítið eins og þér hafi verið „dömpað“ en sért svo að fara að sofa hjá fyrrverandi hverja helgi til 14. mars.“ Og eins og hann benti á þá getur það alveg verið gott og mögulega gefandi að skilja við í svona öfugri aðlögun en það getur líka verið slæmt og skrýtinn viðskiln­ aður.“ „Allt saman mjög skrýtið“ „Það var margt fólk sem talaði opin­ skátt um uppsagnirnar, sem mér fannst skrýtið því ég hef miklu frekar viljað bera gleði mína á torg en harm. Ég hefði til dæmis aldrei sagt frá þessu á Facebook nema vegna þess að ég var svo spennt fyrir nýjum verk­ efnum. En það var kannski bara snið­ ugt að einhverjir skyldu stíga fram því þá spurði fólk mig út í þetta og þá gat ég talað opinskátt um það hvern­ ig mér leið,“ segir Margrét, en henni fannst skringilega staðið að upp­ sögnunum. „Það var lokað fyrir tölvupóstinn og aðganginn að húsinu og allt. Það var til dæmis ekkert verið að athuga það að ég er ennþá í Gettu betur og ég þarf alveg að hafa aðgang að safn­ inu og geta skoðað tölvupóstinn minn og svona. Sem betur fer var þó hægt að koma því í lag, sérstaklega af því að ég var byrjuð að klippa alls konar efni fyrir Gettu betur sem var í vinnutölvunni minni. En þetta fannst mér allt saman mjög skrýtið.“ Biðu með ritstjórnarfundinn Margrét segir uppsögnina hafa kom­ ið sér á óvart. „Já, hún gerði það. Þegar ég kom í vinnuna um morguninn var sagt: „Við ætlum aðeins að bíða með rit­ stjórnarfundinn því við þurfum að sjá hversu mörgum verður sagt upp“. Við vissum því að það yrði að einhverju leyti sagt upp og að þættinum yrði breytt. Jói [Jóhannes Kr. Kristjánsson, innsk. blm.] var sendur fyrst upp á fimmtu hæð og ég hugsaði með mér að það gæti ekki verið að fleirum úr fimm manna ritstjórn yrði sagt upp. Og þegar Jói fór hugsaði ég – og það er ógeðslegt að hugsa svona um nána vini sína – að fyrst hann væri að fara, þá væri ég „safe“. En svo var ég köll­ uð upp.“ „Ég dáist að þeim“ Uppsagnirnar urðu mun fleiri en Margrét hafði búist við. „Alls vorum við tíu sem unnum að þættinum og það var tveimur umsjónarmönnum sagt upp, einni skriftu og einum pródúsenti. Það er því búið að fækka starfsfólki um 40 prósent en samt er ennþá sami mín­ útufjöldi sem þarf að framleiða. Eftir uppsögnina hugsaði ég með mér: „Hvernig í andskotanum ætla þau að fara að þessu?“ og ég dáist að þeim að hafa þetta úthald. Ef einn er til dæmis heima með veikt barn þá eru bara tveir umsjónarmenn að vinna að þættinum.“ „Skil að mér hafi verið sagt upp“ Margrét segist þó skilja að hún hafi verið í hópi þeirra sem misstu vinnuna. „Ef ég hefði fengið að ráða þá hefði ég sagt mér upp. Ég hefði ekki sagt Jóa upp en ég skil að mér hafi verið sagt upp. Ég var í svona dúllu­ legu, mannlegu fréttunum sem eru kannski ekki flaggskip Kastljóssins en þær fréttir sem Jói er búinn að vinna að eru fréttir sem við erum ennþá að fá verðlaun fyrir,“ segir hún en bendir þó á að mannlegar og skemmtilegar fréttir séu líka nauðsynlegur hluti af þættinum. „Þegar fréttamenn eins og Helgi [Seljan, innsk. blm.] og Jói eru að vinna að sínum hörðu málum sem taka langan tíma í undirbúningi þá þarf samt að fylla mínúturnar í þættinum. Og þá er gott að hafa litla dúllu sem getur farið og talað við Fjarstýrðubílaklúbbinn eða hippa­ hjón sem eru að læra Lindy Hop.“ „Ég ætlaði að segja upp“ Margrét var ekki lengi að ráða sig í aðra vinnu eftir uppsögnina í desem­ ber. „Ég var búin að ráða mig í aðra vinnu hálftíma eftir að mér var sagt upp. Ég ætlaði reyndar að segja upp og hefði viljað gera það sjálf. Ástæðan er sú að mér bauðst önnur vinna sem átti að byrja í apríl en ég fæ að koma inn í hana núna eins og mér hentar. Ég var búin að ræða það við fjölskylduna mína og nánustu vini að mig langaði til að hætta á RÚV þannig að þegar uppsögnin kom þá var það algjörlega rétti tíminn. Auð­ vitað var þetta sjokk og ég fann fyrir rosalegri höfnunartilfinningu en á sama tíma leit ég á þetta sem ákveðið tækifæri. Þannig að ég hringdi beint í Lee Nelson, sirkusstjóra Sirkus Ís­ lands, og sagði bara: „It‘s on!“. Það er stundum eins og tækifærin komi til manns og ákvarðanirnar séu teknar fyrir mann.“ Er ekki bitur Næstu mánuði verður Margrét fast­ ráðinn sirkuslistamaður hjá Sirkus Íslands og segist varla geta ímyndað sér skemmtilegra starf. „Maður fer í vinnuna og húllar í nokkra tíma, svo kenni ég kannski strákunum aðeins að dansa, leik mér aðeins á trampólíni og svo er maður bara farinn heim. Og svo svarar mað­ ur nokkrum tölvupóstum og bókar gigg,“ segir hún og brosir. Það eru spennandi tímar framundan, en líkt og kunnugt er tókst Sirkus Íslands nýlega að safna fyrir alvöru sirkustjaldi og mun hópurinn ferðast um allt land næsta sumar og leika listir sínar fyrir lands­ menn. Margrét er því alls ekki svekkt yfir því að hafa verið látin fara á RÚV. „Ég held ég sé kannski minnst bitur af þeim sem var sagt upp. Ef ég hefði sagt upp sjálf þá hefði ég líka þurft að vinna uppsagnarfrestinn. En núna er ég bara ennþá í jólafríi,“ segir hún og hlær. „Þetta var bara algjörlega rétti Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is m y n d S iG tr y G G u r A r i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.