Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 38
Helgarblað 17.–20. janúar 201438 Fólk
G
uðmundur Atlason, betur
þekktur sem Mundi, tók þátt
í keppninni Geðveikasta
jólalagið 2013 og vann
keppnina. Mundi hefur haft
brennandi áhuga á myndbandagerð
og bjó hann til sitt fyrsta myndskeið
árið 1988 sem sló alls ekki í gegn að
hans sögn. Það stöðvaði hann ekki
og hefur hann nú framleitt nokkra
grínsketsa með þekktum nöfnum í
bransanum. Mundi er einnig lista-
maður og hefur málað nokkur verk
sem hafa þótt vel heppnuð og prýða
nú nokkra veggi. Hann hefur gefið út
geisladisk þrátt fyrir að vera að sögn
vina sinna „ömurlegasti söngvari Ís-
lands.“ Hann er mikill húmoristi og
gerir óspart grín að sjálfum sér.
Mundi sóttist ekki eftir því að
taka þátt í keppninni um Geð-
veikasta jólalagið 2013.
„Ég var beðinn um að aðstoða
Öryggismiðstöðina um gerð á
myndbandi fyrir þá til að senda
inn í keppnina. Myndbandið vann
ég með starfsmönnum Öryggis-
miðstöðvarinnar og var þetta eitt
skemmtilegasta verkefni sem ég hef
unnið. Þessi mikla gleði hjá hópn-
um kom aldeilis vel fram í mynd-
bandinu og þess vegna rúlluðum
við keppninni upp,“ segir Mundi.
En hvaða þýðingu hefur titilinn
Geðveikasta jólalag 2013 fyrir þig?
„Maður vonar bara að það séu
fleiri en fimm sem vita hvað ég er
ógeðslega klár og fullt af verkefnum
komi í kjölfarið. Takmarkið er að
fólk þekki mig í Bónus. Ég bið ekki
um meir.“
Fyrsta myndbandið var tekið
upp á nokkur tæki og þurfti mikla
hæfileika til þess að geta stýrt tökk-
unum á græjunum.
Ekkert fyndin
„Ég bjó til mitt fyrsta vídeó árið
1988 og notaði við það HQ-vídeó-
upptökuvél, VHS-vídeótæki og
geislaspilara. Ég var mjög fær í því
að geta ýtt á þrjá takka samtímis og
hefði nú unnið keppnina Færasti
tökumaðurinn 1988 ef hún hefði
verið haldin. Fjöldi myndbanda
minna í gegnum tíðina er að detta
í á annað hundrað. Þegar fyrirtæki
mitt fór í hundana í kjölfar hruns-
ins tók ég þá ákvörðun að gera mitt
aðal áhugamál að atvinnu en til þess
að það gæti orðið að veruleika hef
ég þurft að læra á alvöru forrit síð-
astliðin þrjú ár. Fyrir rúmu ári bjó
ég til nokkra grínsketsa og þessir ör-
fáu sem eru þegar búnir að sjá þá
finnst þeir ekki rassgat fyndnir. Þrátt
fyrir dræma dóma hef ég nú sett þá
á heimasíðuna mína og hef kynnt
einn þeirra á Facebook.“
Eru einhver stór nöfn með þér í
þessu sketsaverkefni?
„Steinn Ármann, leikari og vinur
minn til margra ára, kemur fram í
einum skets og talar inn á þrjá aðra.
Þar sem ég átti enga peninga eru
þetta bara aðallega ættingjar og vin-
ir sem taka þátt í þessum sketsum.
Ég og Steinn Ármann ætlum síð-
an að setjast niður nú á nýju ári og
búa til einhverja snilld og það er þá
í fyrsta sinn sem ég sem gamanmál
með atvinnumanni.“
Mundi hefur málað mikið síð-
ustu fimm árin. Hann er ekki lærð-
ur listmálari en segist hafa hæfileika
í flest.
Hrunið kom honum í gírinn
Hvað með listina og málverkin,
hvaðan sækir þú innblástur?
„Í byrjun árs 2009 fór ég að mála
akrýlmálverk á striga, innblástur-
inn í byrjun var nú aðallega hrunið
og málaði ég sextán málverk tileink-
uð því og síðan róaðist ég niður og
fór að mála aðra hluti. Ég vissi alltaf
að ég gæti málað vegna þess að ég
málaði fimm málverk fyrir meira
en tuttugu árum. Ég fór í pásu fyr-
ir rúmum tveimur árum í málara-
listinni, aðallega vegna þess að ég
varð svo heltekinn að ekkert ann-
að komst að. Eina myndlistin sem
ég gerði í fyrra er svo kölluð „digi-
tal art“ sem er hönnuð 100 prósent í
tölvu, verkið hangir uppi á Kaffi Par-
ís og heitir það „The Brits“. Verkið er
af breskum leikurum á veitingastað
á sextándu öld. Hægt er að sjá mál-
verkin mín á síðunni hfjord.com.“
En hvað með uppistand. Eiga
Íslendingar von á því að fá að sjá
þig standa á sviði og reita af þér
brandara á næstunni?
„Ég og Björgvin Ragnarsson
höfum hannað raunveruleikaþátt
um uppistand sem við getum von-
andi framleitt í nánustu framtíð. Ég
hef tekið þátt í uppistandskeppni
sem hét Uppistandarinn en þar
ötu kappi atvinnumenn og óvanir,
þar hreppti ég þriðja sætið. En það
skrýtna við mig er að ég finn enga
ástríðu fyrir því að vera með uppi-
stand sjálfur vegna þess að þetta
er of auðvelt fyrir mig. Það verður
engin metnaður né áskorun í sam-
bandi við frammistöðuna, þannig
að ég sleppi því frekar.“
Þörf fyrir að tjá sig
Árið 2002 var Mundi sölustjóri ljós-
vakamiðla Norðurljósa og þá fékk
hann allt í einu mikla þörf fyrir að tjá
sig í tónlist. „Ef eitthvað dramatískt
gerðist í fyrirtækinu þá fór ég inn í
stúdíó og söng lag um atburðinn og
í kjölfarið sendi ég lagið með tölvu-
pósti á alla sem störfuðu í fyrirtæk-
inu við misgóðar undirtektir starfs-
manna.
Garðar Ólafsson, betur þekktur
sem Gassi, sá um upptökur og út-
setningu, Davíð Torfi Ólafsson spil-
aði á gítarinn og ég samdi textana
og söng lögin,“ segir Mundi og bætir
við: „Sagt hefur verið að ég sé versti
söngvari á Íslandi og er ég nokkuð
viss um að það sé satt. Þegar við vor-
um búnir að gera tuttugu lög fékk ég
hugmynd um að gefa allt þetta frá-
bæra efni út plötu sem við kölluð-
um Pottþétt Mundi og allur ágóði
af plötusölu átti að fara óskiptur til
að kaupa tönn upp í Kidda Bigfoot
þar sem það vantaði eina framtönn
upp í hann. Skífan gaf út 500 eintök
af þessari plötu en einungis var selt
eitt eintak á fimm hundruð krónur,
öll hin eintökin voru gefin. En Kiddi
keypti sjálfur tönn þremur árum
seinna.“
Hver var brandari síðasta árs?
Besti brandari á árinu var þessi
stóri hópur sem hélt því fram að ef
þjóðin myndi ekki borga Icesave-
skuldina þá yrði heimsendir á Ís-
landi.“ n iris@dv.is
„Allur ágóði af plötusölu átti að fara
óskiptur til að kaupa tönn upp í Kidda
Bigfoot“
n Ömurlegasti söngvari á Íslandi n Vann keppnina Geðveikasta jólalagið 2013
„Ekki rassgat fyndnir“
„The Brits“ Verkið er svoköllað digital art-
verk og er eina verk Munda á árinu 2013.
List Mundi er fjölhæfur listamaður eins og sést í verkum hans.
„Allur ágóði af
plötusölu átti að
fara óskiptur til að kaupa
tönn upp í Kidda Bigfoot.