Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 42
Helgarblað 17.–20. janúar 201442 Skrýtið Sakamál Þ egar Bandaríkjamaðurinn James Hursey sneri heim frá Írak árið 2011, eftir að hafa særst alvarlega í átök- um, gerði hann sér grein fyr- ir að það gæti tekið tíma að aðlagast borgaralegu samfélagi á ný. Í heima- bæ hans Corbin í Kentucky beið fjöl- skylda hans; Amber, eiginkona hans, barnungur sonur, amma hans og afi og móðir. Amber var æskuástin hans, 26 ára, og þau höfðu verið gift í þrjú ár. Hjónaband þeirra var alls ekki full- komið og James var ljóst að spennu gæti gætt í því fyrst um sinn eftir heimkomuna, en vonaði að þau gætu komist yfir erfiðasta hjallann, þó ekki væri nema vegna sonar þeirra. Áhugi á peningum En James sá fljótlega að ólíklegt var að hann og Amber næðu saman. Amber var köld og fjarlæg og sýndi þeim erfiðleikum sem sár hans ollu litla þolinmæði. Reyndar virtist hún eingöngu hafa áhuga á peningum og þá eink- um og sér í lagi bótunum sem hann fékk frá hernum og áttu brátt að hækka, og eftirlaunum hans og dá- góðri upphæð sem hann fengi ef honum tækist ekki að vinna vinnu. Í mars 2011 urðu hjónabandsörðug leikar þeirra þó að víkja um stundarsakir eftir að í ljós kom að einhver svindlari hafði stolið persónueinkennum James og notað ljósmyndir af honum á Face- book með það fyrir augum að hafa fé af auðtrúa konum. En það er önnur saga. En á meðan það mál var rannsak- að lék Amber elskandi eiginkonu, en að tjaldabaki var ljóst að hjóna- bandið stóð á brauðfótum. Sótt um skilnað Í október 2011 var James handtek- inn og ákærður fyrir líkamsárás á Amber og nokkrum dögum síðar fór hún fram á vernd fyrir honum. Það gekk ekki eftir því fjölskyldudóm- stóll fann ekkert sem færði sönnur á fullyrðingar hennar. Viku síðar sóttu Amber um skilnað. James flutt út og fann skjól hjá afa sínum og ömmu og við tók löng og lýjandi barátta, meðal annars um forræði yfir syni hjónanna. Amber fannst nóg um hve langan tíma þetta tók og hugsaði með sér að hægt væri að finna skjótari, ein- faldari og, ekki síst, varanlegri leið til að fá það sem hún vildi. Til þess að svo gæti orðið þurfti hún að finna rétta manninn til verks- ins og hún hafði, á meðan James sinnti herþjónustu, notið félagsskap- ar annarra karlmanna og komið sér upp samböndum. Gamall vopnabróðir James skyldi ráðinn af dögum og Amber hóf leit að einhverjum sem tæki að sér starfið og jú, „Chuck“ var reiðubúinn en mæltist til þess að þau hittust og ræddu smáatriðin, sem þau gerðu. En Amber hafði keypt köttinn í sekknum því það sem hún ekki vissi var að Chuck var vopna- bróðir James frá Írak, og góður vinur hans í þokkabót. Chuck ekki boðanna og hringdi í James og sagði honum tíðindin. James átti erfitt með að trúa vini sín- um sem sagði að þetta væri „dauð- ans alvara“. James hafði samband við lög- regluna sem, í samvinnu við Chuck, setti upp gildru fyrir Amber; útbúinn upptökutæki mætti Chuck til fundar við Amber á McDonald's-stað. Am- ber upplýsti Chuck um venjur James, lét hann hafa ljósmyndir og heimilis- fang. Amber sagði að réttast væri að kála afa, ömmu og móður James líka, en þyrma lífi föður hans - hann hafði alltaf verið henni góður. Allt James að kenna Amber var handtekin og ákærð fyrir fyrirætlanir sínar. Upphaflega lýsti hún yfir sakleysi sínu en söðlaði síð- ar um í von um að fá styttri dóm en fimmtán ár. Verjandi hennar full- yrti að áform hennar hefðu verið illa ígrunduð og fyrst og fremst afleiðing streitu vegna skilnaðarins og þung- lyndis. Dómarinn var ekki sama sinnis og Amber fékk tólf ára dóm. Skömmu fyrir réttarhöldin hafði móðir Amber samband við James. „Hún sagði að Amber hefði reynt að koma mér fyrir kattarnef, en það væri allt mér að kenna. Ég hefði ýtt henni út í það,“ sagði James um orð tengdamóður sinnar. En … hvað hefði gerst hefði Chuck ekki þekkt James? Ef um ann- an en James hefði verið að ræða hefði Chuck þá lokið verkinu? n „Dauðans alvara“ n James kom særður heim frá Írak n Eiginkonan vildi losna við hann Amber Hursey Bruggaði eiginmanni sínum banaráð. James Hursey Sneri særður heim frá Írak og fékk ekki góðar móttökur.„Amber sagði að réttast væri að kála afa, ömmu og móður James líka. Stökk þrjá metra afturábak Myndskeið af Ástralanum Brodie Sciberras hefur farið eins og eld- ur í sinu um myndbandsvefinn Youtube. Brodie, sem er frá Perth, sést þar stunda stórhættulega iðju. Hann fer heljarstökk aft- urábak af húsþaki og lendir, með naumindum, í sundlaug sem er þremur metrum frá húsþakinu. Vinir Brodie vara hann ítrekað við áður en hann stekkur, en Brodie hlustaði ekki á viðvaranir þeirra og tók stökkið. Minnstu mun- aði að Brodie lenti með andlitið á sundlaugarbakkanum og hafa fjöl- margir skrifað í athugasemdakerfi Youtube hversu heimskulegt upp- átæki Brodie hafi verið. Bónorð á leikhússviði Myndskeið af bónorðinu hefur vakið mikla athygli um allan heim. G estir á leiksýningunni Pétur Pan í stórvirkinu SSE Hydro urðu vitni að óvæntri upp- ákomu í lok sýningarinnar í vikunni. Eftir eitt söngatriði hóf aðalleikarinn, Sandor Sturbl, upp raust sína og talaði við leikhúsgesti. „Dömur mínar og herrar,“ hóf hann mál sitt á. „Næsta atriði á að vera með þeim Pétri Pan og Vöndu þar sem Pétur gefur henni koss á kinn. Þetta er þó ekki venjuleg sýn- ing í kvöld. Þetta er ekki Pétur Pan að horfa á Vöndu – heldur er þetta Sandor Sturbl að horfa á ástina í lífi sínu,“ og átti við mótleikkonu sína, Jany Mary Sullivan. Við orð Sandors átti Jany erfitt með að halda aftur af tárunum. Því næst fór Sturbl á hnén og bað um hönd hennar við mikinn fögnuð meðleikara þeirra, sem voru á sviðinu, og gesta úr salnum. Allt ætl- aði um koll að keyra í salnum þegar Jany játaðist Sandor og skömmu síðar kláruðu þau sýninguna með glæsibrag. Nýtrúlofaða parið hefur verið að stinga saman nefjum í meira en ár og er alsælt saman. Þegar Sandor komst að því að sýna ætti leikritið í Glasgow, þar sem Jany ólst upp, ákvað hann að láta til skarar skríða. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið og var verulega brugðið,“ sagði Jany um bónorð Sandors við The Daily Record. „Mér líður eins og heppnustu stúlku í heiminum og get ekki beðið eftir giftingunni.“ n ingolfur@dv.is Pétur Pan bað Vöndu á sviðinu Allt ætlaði um koll að keyra í salnum 100 ára með strippara Hin aldargamla Doris Deahardie hélt upp á stórafmæli sitt með því að leigja karlstrippara á nætur- klúbbi. Doris, sem er búsett ná- lægt Saundby í Nottinghamskíri á Englandi, ferðaðist á límúsínu á næturklúbbinn með barnaolíu meðferðis. Doris valdi föngulegan karl- mann á staðnum og bað um „allan pakkann“. Sharon, eiginkona sonar henn- ar, var með í för og bað strippar- ann um að fara varlega með Dor- is. Þá greip afmælisbarnið inn í og sagði stripparanum að engin ástæða væri til þess. Doris þótti kvöldið afar vel heppnað að sögn Sharon og að hún hafi dillað sér við lagið Sexy and You Know It. Pyntaði bróður sinn Hjón sem tóku að sér umsjón ungs manns hafa verið dæmd í þrjá- tíu ára fangelsi. Hjónin, Viviana og Brandon Gunn, tóku að sér, árið 2012, að ala upp og aðstoða Jordan Gunn, bróð- ur Jordan, þá ellefu ára. Það var von og ósk móður hans að hann væri betur settur þar en hjá henni. Í staðinn fyrir að ala drenginn upp og hugsa um framtíð hans beittu þau hann miklu ofbeldi og pyntuðu hann nærri daglega. Reglulega var hann barinn sund- ur og saman, auk þess sem hann var oft læstur inni í litlu herbergi eða hundakofa, bundinn á hönd- um og fótum. Í fyrra komst upp um glæpi og grimmd þeirra hjóna þegar Jordan tókst að flýja frá heim- ili sínu, sem átti að vera griðastaður hans. Hjónin hafa alltaf neitað sök.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.