Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 51
Helgarblað 17.–20. janúar 2014 Lífsstíll 51
D
agblaðið New York Times
gerði skeggtískunni hátt und-
ir höfði í nýlegu tölublaði og
fjallaði sérstaklega um þau
tímamót þegar Jay Carney,
talsmaður Hvíta hússins, mætti á
blaðamannafund síðasta mánudag
með það sem hefði áður þótt óhugs-
anlegt af talsmanni svo virðulegs
embættis: Alskegg. Hárvöxtur í and-
liti er víst tabú í Hvíta húsinu svo Jay
framdi víst mikla hallarbyltingu.
Skegg Jay í Hvíta húsinu vakti svo
mikla athygli að á Twitter ætlaði allt
um koll að keyra þar sem skiptar
skoðanir voru á skeggvextinum. Helst
þótti hann þó marka tímamót í tísku
og endurvekja það sem dagblaðið
kallar „Brooklyn-skeggið.“ Skegg-
tíska frá sjöunda áratug síðustu ald-
ar afleidd af hömlulausum hárvexti
Woodstock-hippa.
Skeggtískan úrelt fyrst hún er
sögð trend
GQ fjallar um úttekt New York Times
og dæmir skeggtískuna úrelta. „Fyrst
New York Times, segir skegg vera
trend, þá er það dottið úr tísku,“ segir
pistlahöfundur tímaritsins. Kannski
það sé rétt. En skeggvöxtur er hins
vegar í tísku í Hollywood sem aldrei
fyrr og eins og New York Times nefn-
ir réttilega átti vefsíðan BuzzFeed
ekki í vandræðum með að nefna 51
heitasta karlmann Hollywood með
skegg en efst á listann röðuðu sér þeir
Ryan Gosling, Jared Leto, Jon Hamm,
Robert Pattinson og fleiri. Nýjasta
tískuæðið mátti þó greina á Golden
Globe-verðlaunahátíðinni þar sem
karlmenn sportuðu grófri skeggrót í
stað alskeggs, það gerðu Ben Affleck,
Jesse Spencer, Liev Schreiber og fleiri
föngulegir karlmenn.
Íslenskir skeggberar til vinstri
Hér á landi hefur skeggvöxtur tekið
rækilega yfir í herratískunni svo um
tíma sást varla í andlit karla fyrir úfn-
um skegglubba. Íslenskir ráðamenn
voru langt á undan starfsfólki Hvíta
hússins að skarta andlitshárum. Árni
Páll Árnason, formaður Samfylkingar,
birtist alskeggjaður og vakti athygli
fyrir það eitt. Þótti það reyndar engin
nýlunda í hans flokki enda hefur
skeggfrumkvöðullinn Össur Skarp-
héðinsson ríghaldið í skegghárin. Svo
virðist sem jafnaðar- og vinstrimenn
safni frekar skeggi en hægri menn.
Skeggjaðir á þingi voru Guðmundur
Steingrímsson, Óttarr Proppé, Róbert
Marshall og Steingrímur Sigfússon.
Sjálfstæðis- og framsóknarmenn
hafa verið duglegri með sköfurnar.
Bjarni Benediktsson, Illugi Gunnars-
son, Guðlaugur Þór Þórðarson og Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson hafa
verið sléttrakaðir á Alþingi og ekki
örlað á byltingu í þeim efnum. n
Skeggið ratar
í Hvíta húsið
n Vinstri menn frekar með skegg n Sléttrakaðir hægri menn
Skegg eða skeggrót? DiCaprio, Leto og Gosling skörtuðu allir skeggi á Golden
Globe-verðlaunahátíðinni en karlar með skeggrót veittu þeim samkeppni. Þá helst Ben
Affleck, Jesse Spencer og Liev Schreiber.
Fyrir/ eftir Jay framdi hallar-
byltingu í Hvíta húsinu þar sem
skeggvöxtur er víst tabú.
Frumkvöðull í flokknum Ræktarlegt
skegg Össurar er engin tískubóla.
Mynd Sigtryggur Ari
Alskegg Árna Páls Árni Páll Árnason,
formaður Samfylkingar, birtist alskeggjaður
og vakti athygli fyrir það eitt. Mynd Eyþór ÁrnASon
Kristjana guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is „Fyrst New
York Times,
segir skegg vera
trend, þá er það
dottið úr tísku.
Vel heppnuð
litagleði
Íslendingar eru stundum sakaðir
um að vilja bara klæðast svörtu.
Það getur verið vandasamt að
raða saman glaðlegum litum
en hér má sjá nokkrar afar vel
heppnaðar útfærslur.
Appelsínugult og blátt Þessi fer
óhefðbundnar leiðir með appelsínugulu
og bláu. Flott útkoma.
grænn og blár Litirnir fara furðu vel
saman.
gult og gleðilegt Gulur, appelsínugul-
ur og blár ganga upp saman í þessu tilviki.
Fjólublátt Fallegt sítt fjólublátt pils
tónar vel við gula peysuna.
töff Maður hefði haldið að ljósblár og
rauður gengju ekki upp saman en það er
ekki rétt.
Karlmenn á háum hælum
Er þetta það sem koma skal?
J
á, þið lásuð fyrirsögnina rétt.
Karlmenn og háir hælar er
það sem tískuhúsin kynna
fyrir vor- og sumarlínu karl-
manna 2014.
Það þótti ekkert óeðlilegt við
að sjá karlmenn ganga um á hæla-
skóm á 16. öld. Hælarnir voru
kubbslegir og þóttu henta vel til
þess að vaða mold og á grýttum
vegum. Hefðin fyrir hælaskóm
fyrir karlpeninginn lognaðist að
mestu út af um 1740. Þegar hippa-
tímabilið rann upp mátti sjá hæla-
skó skjóta upp kollinum á mestu
töffurum bæjarins. Þá þótti smart
að sjá karlmenn í útvíðum, upp-
háum gallabuxum sem voru níð-
þröngar um þá miðja og hæla-
skóm. Sítt hár var líka áberandi á
þessum árum en það var laust við
að karlmenn væru farðaðir, eða að
minnsta kosti ekki í miklum mæli.
Nú rúmum 40 árum síðar virð-
ist þessi tíska vera komin aftur.
Vor- og sumartískan fyrir herra
er hælaskóm prýdd við misgóðar
undirtektir karlmanna.
Í myndasafni má sjá nokkra
herra sem sýndu vor- og sumar-
línu J.W. Anderson 2014 í London
á dögunum og þar má sjá karl-
menn á hælum. Þar mátti sjá stór-
ar og þykkar kápur sem þykja
frekar kvenlegar fyrir herrana.
Jafnrétti kynjanna er að minnsta
kosti sjáanlegt á tískupöllun-
um þetta árið. Stóra spurningin
er, munu karlmenn taka þetta
„trend“ upp í vor? n
Frumlegt Mörg-
um þótti þetta
ekki hitta í mark.
Öðruvísi
Stöðugir
hælar fyrir
karlmenn í
sumar.
töff?
Það munu
örugglega
einhverjir
karlmenn
taka upp
þessa tísku.