Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Side 18
Vikublað 14.–17. febrúar 201418 Fréttir E inni af hverjum þremur konum hefur verið – eða verð­ ur – nauðgað eða hún beitt annars konar kynbundnu ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni. Miðað við mannfjölda í heiminum öllum er það einn millj­ arður kvenna. Víða um heim er slíkt ofbeldi félagslega viðurkennt – jafn­ vel löglegt – og skömmin talin vera fórnarlambanna. Slík viðhorf vald­ efla gerendur, en draga mátt úr þolendum sem aftur heldur víta­ hringnum gangandi. Dansmótmæli Í dag, föstudag, hyggst hópur fólks spyrna við fótum og senda ofbeldis­ mönnum allra landa, og þeim viðhorfum og lögum sem þeir skáka í skjóli, skilaboð um að þessi hegðun verði ekki liðin. UN Women á Íslandi hefur boðað til fundar í Hörpu. Mót­ mælin verða ekki með klassísku sniði – hvorki hnefasteytingar né ræðu­ höld verða á dagskrá – heldur diskó­ tek. Mótmælin, sem einnig voru haldin í fyrra og vöktu þá stormandi lukku, verða hins vegar ekki bara á Íslandi heldur í 207 löndum. Stefnt er að því að milljarður manna rísi upp fyrir alla þá sem hafa orðið fyr­ ir barðinu á kynbundnu ofbeldi og dansi með þeim gegn óréttlætinu. Árangur Á síðasta ári mættu 2.100 manns í Hörpu og dönsuðu, en í ár vonast samtökin eftir enn betri mætingu; stefnan er sett á 3.000 manns. Hanna Eiríksdóttir er herferðarstýra hjá Un Women og segir margt hafa áunnist í baráttunni gegn kynbundnu of­ beldi. „Í fyrra urðu miklar framfarir í jafnréttismálum um allan heim. Ég get nefnt Indland sem dæmi. Eftir hrottalega hópnauðgun í Nýju­Delí í lok árs 2012 og fjöldamótmæli voru gerðar róttækar breytingar á allri lög­ gjöf er varðar kynferðisofbeldi, til styrkingar á réttarvernd þolenda. Þá var dómurum og lögreglumönnum veitt fræðsla um umfang og alvar­ leika kynbundins ofbeldis, og ýms­ ar fleiri réttarbætur gerðar, til dæm­ is er varða læknisskoðun þolenda,“ segir Hanna og bætir við að fund­ ir eins og sá sem haldinn verður í dag, föstudag, geti haft raunveruleg áhrif á ástand mála. Slíkur þrýstingur hafi oft skilað árangri. „Sádiarabíska þingið samþykkti sem dæmi tíma­ mótalöggjöf fyrir skemmstu sem ger­ ir ofbeldi gegn konum innan veggja heimilis og á vinnustöðum ólög­ legt. Löggjöfin varð að veruleika eftir þrýsting frjálsra félagasamtaka sem notuðu áhrifamiklar auglýsingar til þess að vekja athygli á slíku ofbeldi.“ Enginn aðgangseyrir er að diskótek­ inu í Hörpu, frekar en á sams konar viðburði annars staðar í heiminum, en starfsmenn UN Women verða á vappi um salinn til að skrá þá sem vilja í systralag samtakanna. Með­ limir systralagsins greiða mánaðar­ lega upphæð að eigin vali sem renn­ ur í sjóð helgaðan baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og fyrir valdefl­ ingu kvenna og stúlkna um víða ver­ öld. n n Baráttudans í Hörpu og um allan heim n Kynbundnu ofbeldi mótmælt Baldur Eiríksson baldure@dv.is Stuð Vigdís Finnbogadóttir dansaði eins og enginn væri morgundagurinn í fyrra. Hún mun að líkindum endurtaka leikinn í ár, enda ein helsta talskona UN Women á Íslandi. Austur-Kongó Ísland Berlín New York Milljarður rís gegn ofbeldi „Í fyrra urðu miklar framfarir í jafnréttismálum um allan heim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.