Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Page 25
Umræða 25Helgarblað 14.–17. febrúar 2014 Spurningin Hann talar um eitthvert helvítis umsýslugjald Hárið er óttaleg órækt Greip um klofið á mér þegar ég var í pilsi Á Hanna Birna að segja af sér? Leoncie var brjáluð út í fasteignasala í Keflavík. – DV Dagur B. Eggertsson var á Beinni línu. – DV.is Vera Sölvadóttir lýsir kynferðislegri áreitni. – DV.is S em barn fékk ég eitt sinn fylgd í gegnum þétta þoku. Það var hann pabbi sálugi sem leiddi mig yfir stórgrýtt holt í þykkri og svartri þoku. Þessi gönguferð um kirkju- holtið okkar í Kópavoginum er mér minnisstæð, jafnvel þótt meira en hálf öld sé frá atburðinum. En það sem ég man kannski helst frá ferðinni þeirri arna, er að ég var ekkert hræddur. Þótt þokan væri svo þétt að pabbi talaði um að við værum villtir, fann ég ekki til ótta. Ég treysti pabba mínum fullkom- lega og vissi að allt myndi fara vel. Ég hélt í hönd hans og hann hafði svo traust tak á mér, að ég vissi í hjarta mínu að við myndum ná í gegnum þokuna. Mér er alltaf hugsað til þessa at- burðar annað veifið, kannski eink- um vegna þess að það er svo gott að sjá boðskap í hugsuninni sem sögunni fylgir. Ég get séð mitt nán- asta umhverfi, þjóðina eða allan heiminn í þeirri glætu sem myndin af gönguför okkar feðganna birtir mér. Ég veit í hjarta mínu að mann- kynið á von sem helst í hendur við samúð og fagra hugsun. Með því að virða fólk einsog það er, ekki einsog við viljum að það sé, mun okkur takast að gefa dygðum byr undir báða vængi. Okkur mun takast að snúa þeim sem háðir eru gegndar- lausri græðgi, og leyfa þeim að njóta brunna nægjuseminnar. En leiðin að þessu marki, liggur í gegnum þoku fordómanna og yfir grýtta hæð hagsmunaárekstranna. Það hefur stundum verið sagt, að viturlegast sé að láta hjartað ráða för. Mig minnir að það hafi þó ver- ið stjórnmálamaður sem lét þau orð einhverju sinni falla, að það væri álíka gáfulegt að reyna að hugsa með nýrunum einsog að láta hjart- að ráða för. Og víst er það að við get- um akkúrat kennt illa grunduðum ályktunum um þær ógöngur sem heimur okkar virðist sitja fastur í nú um stundir. En við megum samt ekki láta blekkinguna blekkja okkur, hún er ekkert annað en þoka sem við þurfum að ganga í gegnum. Svik hinna gráðugu komast upp og birta réttlætisins mun sýna þeim hið sanna. Von okkar liggur í því að treysta á það sem við höfum hér og nú; lífið í þeirri mynd sem við getum sætt okk- ur við. Og þá er afturhvarf til sátta við náttúru, sjálfbærni og skýrrar hugsunar í umhverfismálum lyk- ill að lausnum. Þoka olíuglýjunnar er eitt af vítunum sem varast skal. Gróði okkar liggur í fögrum hug- sjónum og fallegri hugsun. n Um leið og vitund okkar þráir þögn fá þreyttar sálir fagnað bestu launum því breyting hugarfarsins er sú ögn sem okkur leiðir burt frá heimsins raunum. Hugarfarsbreytingin er hér og nú Kristján Hreinsson Skáldið skrifar Myndin Tiltektir Þessir vösku menn leggja lokahönd á tiltektir í byggingu við Dugguvog sem brann á dögunum. Á efri hæð hússins brann allt sem brunnið gat á stuttum tíma. MynD SigTryggur Ari „Ég veit í hjarta mínu að mann- kynið á von sem helst í hendur við samúð og fagra hugsun. „Hver kýr er í þræl- dómi þau fimm ár, sem hún fær að lifa. „Já, mér finnst þetta mjög illa séð hvernig við komum fram við innflytj- endur meðan við gefum okkur út fyrir að vera friðarland. Við spilum okkur alltaf svo hátt.“ Daníel Hlynur Mikaelsson 20 ára þjónn „Hún á ekki að segja af sér. Þetta er bara rugl, upplýsingar eru bara svona í dag.“ Guðný Magnea Gunnarsdóttir 53 áraöryrki „Mér er sama hvort hún stendur eða fellur.“ Bjarni Kristján Stefánsson 23 ára nemi „Ég er ekki nógu vel inn í þessu til að taka afstöðu.“ Guðrún Áslaug Einarsdóttir 51 árs iðjuþjálfi „Já, heldur betur.“ Björgvin Freyr Magnússon 23 ára nemi Mjólk er vond F yrirsögn þessa pistils er andstæða mest notaða slag- orðs stærsta mjólkurfram- leiðanda á Íslandi - „Mjólk er góð“ Ég ætla að halda hinu gagn- stæða fram. Að mjólk sé vond. Undanfarna daga hafa all- ir miðlar logað af fréttum vegna dauða gíraffa, sem haldinn var í dýragarði í Kaupmannahöfn. Örlög hans særðu margt sálartetr- ið. Hann var tekinn af lífi, heil- brigður og langt um aldur fram. Ástæðurnar hafa verið útskýrðar. Sitt sýnist hverjum. Fjöldi annara dýra í dýragörðum hefur fengið áþekka útreið. Fólk hefur látið sér fátt um finnast. Mjólkurkýr á Íslandi og víða um heim eru haldnar í dýragörðum, sem kallaðir mjólkurbú. Mjólk er mest framleidda land- búnaðarafurð á Íslandi. Hún er mannslíkamanum ekki nauðsyn- leg. Framleidd fyrir kálfa. Maður- inn stelur henni þó strax frá þeim. Þeir fá ekki að sjúga móður sína eins og ungbörn, hvolpar og kett- lingar. - Dýrategundir, sem standa manninum næst í kærleik hans við þau. Til að kú mjólki þarf kálf. Hann fæðist en er strax tekin frá móður sinni. Það er illa gert! Broddmjólk- ina fær hann fyrstu dagana – úr pela. Hvað síðan verður um kálfinn er önnur saga, stundum sorgleg. Hver mjólkurkú mjólkar að meðaltali í 2,7 ár og lifir að meðal- tali í tæp 5 ár að sögn kúabónda. Þá er hún send í sláturhús. Kýr geta náð miklu hærri aldri eða vel yfir 10 ár. Þau ár eru tekin af henni – af manninum – í þágu mannsins. Hver kýr er í þrældómi þau fimm ár, sem hún fær að lifa. Linnulaust er hún látin ala kálfa, mjólka, sædd, látin ala kálf og mjólka. Endar síðan hjá böðlinum. - Í þágu mannsins. Þegar hún hætt- ir að mjólka svo arður hljótist af er hún deydd. Er þetta boðlegt í siðuðu þjóðfé- lagi þar sem dýravernd og virðing fyrir öllu lífi er sagt vera í hávegum haft? - Ég segi nei. Mjólk er vond þegar hún er notuð af manninum í þágu hans sjálfs. Hugsum áður en við kaup- um næsta mjólkurlítrinn eða aðra mjólkurafurð. n Árni Stefán Árnason skrifar Af blogginu MynD Eyþór ÁrnASon 1 Pósturinn refsar duglegum Röskir bréfberar fá fleiri hverfi ef þeir eru fljótir með sín. 2 „Ég var með mömmu en sagði henni aldrei frá því af skömm“ Vera Sölvadóttir lýsir kynferðislegri áreitni sem hún varð fyrir 13 ára gömul. 3 Læknisleikurinn gekk of langt Ónefnd kona sagði í DV frá þeirri lífsreynslu sinni úr æsku þegar eldri strákur fékk hana í „læknisleik“. 5 Svarar fyrir Biggest Loser gagn-rýni: „Ég er mjög, mjög heilbrigð“ Rachel Frederickson missti 70 kíló og vann Biggest Loser í Bandaríkjunum. Hún segist ekki haldin átröskun. 6 „Ég hefði aldrei skilið börnin mín ein eftir með honum“ Vinkonan sem greindi upprunalega frá meintri misnotkun Woody Allen stígur fram. 7 Fangelsaður þegar hann neitaði að leyfa sýnatöku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur iðulega í nógu að snúast á kvöldin og næturnar. Mest lesið á DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.