Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 50
Helgarblað 14.–17. febrúar 201442 Menning
B
orgarleikhúsið í samstarfi við
Pörupilta býður nemendum
10. bekkja grunnskóla
Reykjavíkur upp á uppistand
um kynlíf. Það eru engir aðr-
ir en Pörupiltar, þeir Nonni Bö, Her-
mann Gunnarsson og Dóri Maack,
sem eru andlega skyldir leikkonunum
Alexíu Björgu Jóhannesdóttur, Maríu
Pálsdóttur og Sólveigu Guðmunds-
dóttur sem sjá um að ausa úr fróð-
leiksbrunnum sínum.
Pörupiltar hafa troðið upp víða
um heim síðastliðna tvo vetur og
velt fyrir sér samskiptum kynjanna
við góðan orðstír. Í þetta skipti hef-
ur Sigga Dögg kynlífsfræðingur ver-
ið piltunum til halds og trausts svo
allt endi ekki í vitleysu. Blaðamaður
DV leit við á sýningu í Borgarleikhús-
inu þar sem 10. bekkingar Vogaskóla
hlýddu á uppistandið og ræddi svo
við Pörupiltana og nemendur um
kynlífsfræðsluna.
Kynntust á sjálf
styrkingarnámskeiði
Nemendur setjast í salinn og bíða
spenntir. Fyrr en varir birtast Pöru-
piltar í reykjarmekki og skrykkjótt-
um dansi og kynna sig. Þeir eru hálf
brjóstumkennanlegir og vekja strax
upp hláturrokur nemenda. Þeir segja
frá því að þeir hafi hist á sjálfstyrk-
ingarnámskeiði hjá Vinnumálastofn-
un og mæla svo sannarlega með því
að vera á „litlu listamannalaununum.“
Verst að þeir eiga á hættu á að missa
bæturnar nema þeir taki þátt í samfé-
lagslegu verkefni. Og þess vegna eru
þeir komnir til að fræða ungmennin
um kynlíf.
Í stórum píkubúningi
Sýningin grípur unglingana og þeir
hlæja dátt yfir flækjum Pörupiltanna
sem fara fimlega í annars vandmeð-
farið efni. Einn Pörupilta klæðir sig í
píkubúning og nemendur fá kennslu
í píkufræðum. Þá ríkir algjört hljóð í
salnum og ljóst að allir hlusta grannt.
Nönni Bö segir frá sjálfsfróunar-
reynslu sinni og allt er þetta til þess
fallið að leysa vandræðalega hnúta
og fá unglinga til að hugsa um kynlíf á
léttan og hispurslausan máta.
Fá gefins smokka
Þegar sýningu er lokið er létt yfir
nemendunum, áður en þeir halda út
fá þeir gefins smokka.
Þeir Sveinn Valmundsson og
Kristmundur Ari Gíslason segja uppi-
standið skemmtilegt og fyndið. „Best
er að þetta er alls ekkert pínlegt,“ segir
Sveinn. „Já, og virkilega fyndið,“ bætir
Kristmundur við.
Pínlegur fyrirlestur
um notkun smokka
Stór vinkonuhópur segir sýninguna
nauðsynlega. Allir þurfi að sjá hana
og hún sé ólíkt líflegri kynfræðsla en
fari fram í kennslustofunni. Beðnar
um að rifja upp eftirminnilegt atvik
úr kennslustofunni skella þær upp
úr. Greinilega af nógu að taka. „Jú,
einu sinni las eldri hjúkrunarfræðing-
ur fyrir okkur leiðbeiningarnar á
smokkapakkanum og var mjög lengi
að því, það var frekar vandræðalegt,“
segir ein þeirra hlæjandi og segir þá
hina sömu varla hafa litið upp úr leið-
beiningunum.
Engin predikun
Þeim Emilíu, Sögu Sól og Guðrúnu
fannst leikritið fróðlegt. „Það var
nefnilega allt tæklað sem skiptir máli
og engin predikun,“ segir ein þeirra.
„Mér finnst að allir ættu að sjá þetta
því þetta var bæði skemmtilegt og
fróðlegt.“
Pörupiltarnir eru komnir baksviðs
eru að tína af sér gervið.
„Þetta verkefni hefur verið í
nokkurn tíma í vinnslu og sprettur í
raun af annarri sýningu, Homo Erect-
us, þar sem við fjöllum um samskipti
kynjanna,“ segir Alexía sem er enn
hálf í gervi Nonna Bö. „Við byrjuðum
á því að kynna okkur það fræðsluefni
sem er til fyrir unglinga um kynlíf og
skoðuðum það vel.“
María Pálsdóttir vann með efni-
viðinn í einleik sem hún flutti á
Suðureyri síðasta sumar. „Ég fór þá al-
veg á kaf í efnið og vann með það, við
notuðum mikið af því efni sem varð til
í uppistandið.“
Pörupiltar fræða
unglinga um kynlíf
n Stúlkur styrktar og strákar fræddir um sjálfsfróun og kynlíf n Léttir á umræðunni
10–2 Pörupiltar strjúka
píkuna á þeim stöðum
sem að hún vill. Nönni Bö
spyr krakkana hvort þeir
kunni á klukku. Það sé
nefnilega gott að strjúka
píkuna á svæðinu 10 til 2.
Mynd dV EhF / ÞorMar V Gunnarsson
Ánægðar með sýninguna Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir, Anna Lísa Rafnsdóttir, Þórdís Lísa Birgisdóttir, Elísabet
Snorradóttir og Guðrún Valmundsdóttir sem hvöttu alla til að sjá sýninguna. Mynd dV EhF / ÞorMar V Gunnarsson
Fyndin sýning Sveinn Valmundsson og Kristmundur Ari Gíslason.
Mynd dV EhF / ÞorMar V Gunnarsson
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is