Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Síða 6
6 Fréttir Vikublað 8.–10. apríl 2014
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Þórólfur og Bjarni vinna saman
Iðnaðarráðherra vill hefja koltrefjaframleiðslu á Íslandi á næstunni
K
aupfélag Skagfirðinga, Bjarni
Ármannsson fjárfestir og
Sveitarfélagið Skagafjörð
ur eru eigendur eignarhalds
félags um framleiðslu á koltrefjum
sem stofnað var árið 2008. Félag
ið heitir UB koltrefjar og koma hlut
hafaupplýsingarnar fram í ársreikn
ingi þess. Koltrefjar eru notaðar í
ýmiss konar iðnframleiðslu til að
styrkja efni sem byggt er úr, til dæmis
í bílum og flugvélum. Efnið er bæði
léttara og sterkara en til dæmis ál.
Fyrir stendur að koltrefjafram
leiðsla muni hefjast hér á landi á
næstu árum samkvæmt svari Ragn
heiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar
ráðherra við fyrirspurn Össurar
Skarphéðinssonar þingmanns í síð
ustu viku. Undirbúningur að stofn
un koltrefjaverksmiðju hefur staðið
yfir í nokkur ár á Sauðárkróki og
mælti Össur með því að Kaupfélagið
nyti þess frumkvæðis sem það hefði
sýnt í málinu: „Á Króknum er hefð
fyrir trefjaframleiðslu, og þar er eina
menntastofnunin á landinu sem
beinlínis býður upp á nám í trefja
fræðum […] … heimamenn eiga að
njóta frumkvæðis og innviðanna
sem þeir hafa byggt upp,“ sagði Össur
í samtali við Eyjuna á laugardaginn.
Ef af byggingu koltrefjaverksmiðj
unnar verður mun Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri á Sauðarárkróki,
hafa skotið enn einni stoð undir
styrkan rekstur Kaupfélags Skag
firðinga en fyrirtækið stefnir einnig
á byggingu virkjana í náinni framtíð.
Fyrir stundar Kaupfélag Skagfirðinga
útgerð, verslunarrekstur, framleiðir
kjöt og mjólkurvörur, á stóran hlut í
MS og á og rekur fyrirtæki sem eru
mikilvæg fyrir innviði sveitarfélags
ins eins og til dæmis flutningaþjón
ustuna. n ingi@dv.is
Rukkarar elta börn
Motus og Momentum senda kröfur á ólögráða einstaklinga
D
æmi eru um að innheimtu
fyrirtæki sendi fjárkröfur á
ólögráða börn þrátt fyrir að
það sé skýrt brot á lögum.
Ólafur Þ. Ólafsson fékk rukk
un frá Motus vegna meintra skulda
sem sonur hans, Ólafur Erick Ólafs
son Foelsche, átti að hafa stofnað til
þegar hann var fimmtán og sautján
ára. Ólafur gagnrýnir fyrirtæk
ið harkalega í samtali við DV. „Mér
finnst þetta bara ófyrirleitið, þeir vita
að þetta er lögbrot og eru einfaldlega
að fara gegn betri vitund.“
Hrafnkell Sigtryggsson, verkefna
stjóri hjá Motus, segir verklags
reglur hjá fyrirtækinu skýrar. „Við
sendum ekki innheimtubréf á ólög
ráða einstaklinga. Í þeim tilfellum
sem reikningar eru gefnir út á ólög
ráða einstaklinga, en það gera ýmsir
aðilar, bæði einkaaðilar og opinberir,
er forsvarsmanni hins ólögráða sent
bréfið vegna hans. Séu dæmi um
annað eru það mistök.“
Margrét María Sigurðardóttir, hjá
skrifstofu umboðsmanns barna, seg
ir alltaf óheimilt að beina innheimtu
að börnum. Það sé alveg skýrt í lög
ræðislögum að börn megi ekki
stofna til skulda. Þá sé einnig óheim
ilt að beina innheimtu að ungmenni
vegna skulda sem viðkomandi
stofnaði til fyrir 18 ára aldur. „Um
boðsmaður barna hefur í gegnum
tíðina fengið ábendingar um að inn
heimtu sé beint að börnum og hefur
þá brugðist við með því að hafa sam
band við viðkomandi aðila.“
Átti að beita hörku
Ólafur fékk símtal frá starfsmanni
Motus í upphafi mánaðar þar sem
hann var látin vita af meintum skuld
um sonar síns og að þær væru komn
ar í innheimtu hjá fyrirtækinu. Hann
segist í fyrstu hafa beðið um að fá
að semja um skuldirnar en það hafi
ekki verið hægt. Þá hafi þeim feðg
um brugðið í brún þegar í ljós kom
að kröfurnar voru að öllu tilefn
islausar. Þannig hafði sonurinn til
að mynda verið rukkaður um þrett
án þúsund krónur vegna 1.590 króna
skuldar við Heilbrigðisstofnun Vest
mannaeyja, en þar var um að ræða
reikning sem hann hafði þegar greitt.
Eftir þónokkuð stapp við innheimtu
fyrirtækið sé þó útlit fyrir að kröfurn
ar verði felldar niður.
„Þetta finnst mér þó ekki vera að
alatriðið heldur hitt að þessi fyrirtæki
séu með kröfur á börn undir átján
ára aldri. Þetta snýst um prinsippið
og það hvernig menn eru að vinna.
Þarna er um löglært fólk að ræða og
það stendur skýrt í lögum að þetta
sé ólöglegt.“ Ólafur segist hafa rætt
við umboðsmann barna í kjölfarið.
Þar hafi hann fengið þau skilaboð að
þetta væri ekki einsdæmi. „Þó þeim
sé falið að innheimta skuld þá er það
bara óheimilt ef einstaklingurinn er
ólögráða. Það átti bara að keyra á
hörkunni í strákinn. Mér blöskraði
einfaldlega að einhver 1.500 kall væri
kominn upp í þrettán þúsund.“
Fékk reikning frá Momentum
DV hefur upplýsingar um sambæri
legt tilfelli hjá innheimtufyrirtækinu
Momentum. Í kröfuyfirliti Moment
um sem DV hefur undir höndum
kemur fram að sá einstaklingur
hafi stofnað til skulda, sautján ára
að aldri, sem innheimtufyrirtækið
reynir nú að innheimta. Þrátt fyrir að
einstaklingurinn sé ennþá sautján
ára og því ólögráða samkvæmt lög
um sendi innheimtufyrirtækið
kröfur á hann í upphafi mánaðar.
Samkvæmt heimildum DV var inn
heimtubréfið stílað á barnið sjálft en
ekki forsjáraðila.
Í 5. kafla lögræðislaga númer 71
frá árinu 1997 eru ákvæði er varða
fjárræði og meðferð fjármuna barna
og unglinga. Samkvæmt lögunum er
ófjárráða barni óheimilt að stofna til
skulda. Þá kemur fram í lögunum að
löggerningar ólögráða manns bindi
hann ekki og því sé einstaklingum
og lögaðilum með öllu óheimilt að
beina kröfu að barni til innheimtu
skulda heldur skuli beina innheimtu
hennar til forsjáraðila barnsins. Geri
fyrirtækið hins vegar samning við
ófjárráða einstakling, án samþykkis
forsjáraðila tekur það þá áhættu að
fá ekki greiðslu samkvæmt samn
ingnum.
Innheimtufyrirtæki áminnt
Margrét María Sigurðardóttir segist
telja að minna sé um að innheimtu
fyrirtækin sendi rukkun á börn en
áður. Embættið hafi vissulega feng
ið slíkar ábendingar en „ábending
um sem þessum hefur þó fækkað á
síðustu árum sem vonandi er merki
um að fólki sé almennt kunnugt um
þessi ákvæði laganna.“
Þá segir hún frá því að umboðs
maður barna hafi nýlega fengið
ábendingu um að innheimtufyrir
tæki hefði beint innheimtu að ung
menni vegna skuldar sem stofnað
var til þegar viðkomandi var barn.
„Við stefnum á að senda almenna
ábendingu til allra innheimtufyrir
tækja og minna á gildandi lög.“ n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is „Mér finnst þetta
bara ófyrirleitið,
þeir vita að þetta er lög-
brot og eru einfaldlega að
fara gegn betri vitund.
Ósáttir feðgar Ólafur Þ. Ólafsson fékk
rukkun frá Motus vegna meintra skulda sem
sonur hans átti að hafa stofnað til þegar hann
var fimmtán og sautján ára. Mynd SIgtryggur ArI
Beint í afbrot
Par sem handtekið var í um
dæmi lögreglunnar á Suður
nesjum um helgina vegna ölv
unar á almannafæri reyndist
geyma ýmislegt í bakpoka sem
það hafði meðferðis, að því er
fram kemur í dagbók lögreglunn
ar á Suðurnesjum. Þar á meðal
voru átta rakspíraglös í innsigluð
um pakkningum. Grunur leikur á
að um hafi verið að ræða þýfi úr
apóteki í umdæminu frá því fyrr
um daginn sem fólkið var hand
tekið.
Parið var látið sofa úr sér
vímuna á lögreglustöðinni
í Keflavík. Því var svo sleppt
þegar það var komið sæmilega
til ráðs og rænu. Þar með var þó
sagan ekki öll, því frá lögreglu
stöðinni fór fólkið beinustu leið
í annað apótek þar sem það stal
fimm ilmvatnsglösum, að verð
mæti ríflega 30 þúsunda króna.
Starfsmaður þar kallaði lögreglu
til og parið var því handtekið
öðru sinni og flutt á lögreglu
stöð til skýrslutöku og þaðan til
móts við lögregluna á höfuð
borgarsvæðinu, því í umdæmi
hennar er fólkið búsett.
Saman í koltrefjum Þórólfur Gíslason
og Bjarni Ármannsson vinna saman í félagi
sem stofnað var utan um framleiðslu
koltrefja á Sauðárkróki.
Frestað til
haustsins
Fyrirtöku í máli hælisleitandans
Tonys Omos gegn Útlendinga
stofnun var á mánudag frestað
þangað til í október. Þetta er í
þriðja skiptið sem fyrirtöku í
málinu er frestað. Stefán Karl
Kristjánsson, lögmaður Tonys,
fór fram á að málinu yrði frestað
þangað til niðurstöður fengjust
úr rannsókn lögreglu á leka
málinu. Ekki liggur fyrir hvenær
þeirri rannsókn lýkur en heim
ildir DV herma að hún sé nokkuð
umfangsmikil og kemur emb
ætti sérstaks saksóknara meðal
annars að rannsókninni. Sam
kvæmt heimildum miðar rann
sókninni vel og talið að niður
stöðu sé jafnvel að vænta á næstu
vikum.