Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 28
Vikublað 8.–10. apríl 201428 Lífsstíll Bílar Nýr Buick væntanlegur General Motors hefur nú ýtt úr vör áformum um að endurvekja Buick og að hann muni verða kominn í framleiðslu á seinni hluta þessa áratugar. Bíllinn verður byggður á Opel og mun að mestu verða sami bíllinn en með Buick-merkjum. Á þeim bæ er horft til þess að markaðs- setja þennan þýska bíl í Banda- ríkjunum og Kanada en einnig er áhugi fyrir því að fara með hann á markað í Kína. Sá mark- aður hefur hingað til ekki reynst Opel vel en með Buick-nafnið að vopni standa vonir til þess að sölutölur verði betri þar en hing- að til hafa sést hjá GM. Eldvarnir Tesla Töluvert hefur verið rætt um tíðni bruna á Tesla-rafmagns- bílnum undanfarið en nokkr- ir slíkir bílar hafa eldi að bráð í kjölfar rafmagnsbilunar. Elon Musk, framkvæmdastjóri Tesla, hefur nú boðað breytingu á þessum bílum sem á að koma í veg fyrir þennan galla. Búið er að útbúa þykka títanhlíf yfir geyma bílsins sem á að veita vörn gegn óhöppum af þessum toga. Þá er þeim kaupendum sem þegar hafa fengið bíla sína afhenta boðið að fá sína bíla uppfærða en S-bíllinn frá þeim hefur nú selst í 30 þúsundum eintaka. Eftirlitsaðilar gerðu ekki kröfu um að Tesla gerði umrædda breytingu. Stapp hefur staðið um það hvort um „innköllun“ sé að ræða og vilja forsvarsmenn Tesla ekki meina að um innköll- un sé að ræða. Ástæðan er sú að neikvæð umræða hefur skapast um stóru bílaframleiðendurna, Toyota og General Motors, sem hafa þurft að innkalla fjölda bif- reiða undanförnu vegna galla. 700 hestafla Mustang Þó 2015 Ford Mustang sé ekki kominn í sölu þá hafa starfs- menn Whipple-keflablásara- framleiðandans þegar útbúið uppfærslu á 5 lítra vélina sem hann verður með. Þessi uppfær- sla skilar 700 hestöflum í venju- legum Mustang GT-bíl en upp- runalega gerðin verður seld sem 420 hestafla fákur. Wipple segir þennan blásara ekki breyta neinu í venjulegum akstri og sé í raun viðbót sem ekki eigi að hafa áhrif á daglegan akstur nema menn vilji nota aflið. Uppgefnar eyðslutölur styðja þá fullyrðingu, en þurfi menn að spretta úr spori þá eiga þeir alvöru götuhæfan villihest með þessum keflablásara. Drift í Danmörku n Íslenskir feðgar gera út keppnislið n Stefna á titil í sumar F eðgarnir Óðinn Hauksson og Atli Óðinsson hafa verið bú- settir í Danmörku um árabil. Þeirra helsta áhugamál síð- astliðin ár hefur verið drift en sú keppnisgrein hefur vaxið mik- ið þar. Dellan byrjaði er þeir festu kaup á AE86 Toyotu Corollu Twin Cam. Þetta var árið 2011 en eftir það var ekki aftur snúið. Þeim varð fljótt ljóst að til þess að geta keppt á toppnum þyrftu þeir öflugri bíl en Corollan var með 1,6 lítra mótor og átti ekki séns í stóru strákana. Það varð því úr að þeir höndluðu sérút- búna Toyotu Supru af árgerð 1993. Eftir það var ekki aftur snúið. Öflugur bíll Nýi keppnisbíllinn þeirra er Toyota Supra árgerð 1993 sem hentar vel til breytinga fyrir drift-keppni og eru slíkir bílar vinsæll valkostur meðal driftara um allan heim. Mótorinn í honum skilar í dag 540 hestöflum en þessa dagana eru þeir feðgar að breyta honum og yfirfara fyrir sum- arið. Eftir breytingar reikna þeir með því að þessi þriggja lítra túrbómótor komi til með að skila á milli 700–800 hestöflum. Búið er að breyta nán- ast öllum hlutum í honum að öðru leyti og er hann með allan öryggis- útbúnað til þess að geta keppt í drifti um allan heim. Sérsmíðaður beygjubúnaður er kominn í hann með klöfum sem gera honum kleift að beygja mun meira en þessir bíl- ar gerðu frá verksmiðju. Þá er í hon- um glussatengd handbremsa sem er nauðsynlegur búnaður til þess að geta slengt bílnum til. Mikið af varahlutum Á æfingum sem haldnar eru nokkrum sinnum ári fara þeir feðgar á góðri braut með 26–30 dekk á dag. Þetta vakti sérstaka athygli greinarhöfundar og þá einnig er þeir sögðu mér að vandamálið hjá þeim í dag væri að þeir ættu bara 16 aukafelgur að aftan, sem væri alltof lítið fyrir góða æfingu. Þurfa þeir því að umfelga á æfingum þar til búið er að ráða bót á þessu „felguleysi“. Um- felgunarvél er því farteskinu fyrir flesta viðburði en einnig er boðið upp á umfelgun á stærri viðburðum. Bíllinn er á 17 og 18 tomma dekkj- um og það þarf því ekki neina fram- úrskarandi stærðfræðikunnáttu til þess að átta sig á því að þetta er ekki bara tímafrekt sport heldur einnig mjög dýrt. Styrktaraðilar eru því mjög mikilvægir í þessum rekstri og hafa þeir verið nokkuð lánsam- ir með stuðningsaðila hingað til þó leitin að þeim stóra standi enn yfir. Frábær félagsskapur Það er ekki bara adrenalínkikkið sem heldur þeim gangandi í þessari dellu því á þeim árum sem þeir hafa gert út bíllinn þá segja þeir félags- skapinn í kringum sportið standa upp úr. „Það eru allir sem við höf- um kynnst tilbúnir að gera allt fyrir mann á keppnisstað,“ segir Atli. „Ferðalögin eru einnig stór hluti af þessu og á keppnisstað eru allir saman og þó svo að við keppum á brautinni þá eru allir vinir á staðn- um og stemmingin í kringum mótin er ekkert síðri en í mótinu sjálfu.“ Að sögn Óðins er svo tíminn sem þeir feðgar eyða í kringum þetta einnig einkar ánægjulegur enda frábært að geta unnið saman, faðir og sonur, að sameiginlegu áhugamáli. Stefna á titil Í sumar á að leggja allt undir og stefnan er sett á DDR-titilinn (Dansk Drifting Seria). Mótin í ár eru sex og fara fram víðs vegar í Danmörku. Keyrsludagar eru tólf og því afar mikilvægt að vera vel undirbúinn og með allan búnað í góðu lagi. Drift á Íslandi „Sú hugmynd hefur komið upp að koma með útgerðina til Íslands og mikill áhugi er hjá félögum þeirra í DDS að koma með þeim. Til þess að það verði að veruleika þarf fjár- stuðning að heiman en vissulega væri það frábært að geta hjálpað til við uppbyggingu sportsins heima með góðri drift-sýningu héðan,“ sögðu þeir báðir. „En þangað til keppum við stoltir í Danmörku með íslenska fánann á bílnum, stefnum á titil og keppum til þess að hafa gaman af!!“ n Í keppni Hér er Atli á ferð í keppni og sem fyrr er íslenski fáninn á bílnum en þeir feðgar eru ávallt merktir Íslandi á keppnisferða- lögum sínum. MynD StuMpphoto.Dk Björgvin Ólafsson bilar@dv.is Í höfuðstöðvunum Þeir feðgar opnuðu nýlega verkstæði í Danmörku þar sem höfuð- stöðvar útgerðarinnar eru einnig hýstar. Mikinn lager þarf af dekkjum ásamt varahlutum, verkfærum og þjónustubílum til þess að geta gert út keppnistæki sem þetta. MynD BÓ Viðgerðarsvæði Supran á viðgerðar- svæði á keppnisstað. Mikið er lagt upp úr flottri umgjörð í kringum mót og félags- skapurinn þar er eitt af því sem keyrir þá feðga áfram í þessu skemmtilega sporti. Beygt í botn Mikið er búið að breyta stýr- isbúnaði og klöfum svo hægt sé að leggja meira á bílinn í beygjum. Þetta skiptir miklu máli í akstri rétt eins og góð handbremsa, sem í þessum bílum er glussatengd við afturhásingu. MynD BÓ Vélarsalurinn Supran er með þriggja lítra túrbómótor og skilar í dag 540 hestöflum á „dyno“-bekk. Feðgarnir eru um þessar mundir að breyta honum fyrir komandi tímabil og áætla að hann mælist á milli 700–800 hestöfl þegar hann verður klár í keppni í vor. MynD BÓ Á fullri ferð Hér er bíllinn í hliðarskriði í botni í þriðja gír en við þær aðstæður snúast afturdekkinn á ríflega 200 kílómetra hraða en bíllinn sjálfur er yfirleitt á um 130 kíló- metra hraða við þessar aðstæður. „Það eru allir sem við höfum kynnst tilbúnir að gera allt fyrir mann á keppnisstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.