Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 24
Vikublað 8.–10. apríl 201424 Neytendur Símafyrirtækin öll með svipuð tilboð n Þvertaka fyrir samráð n Nýju áskriftirnar góðar fyrir stórnotendur B æði stóru farsímafyrirtækin, Síminn og Vodafone, kynntu nýverið nýjar áskriftarleiðir fyrir farsíma þar sem lofað er ótakmörkuðum fjölda skilaboða og mínútum í síma með ákveðnu gagnamagni. DV lék forvitni á að vita hvernig stæði á því að bæði fyrirtækin kynntu sams konar leið á sama tíma. Hrannar Pétursson, fram­ kvæmdastjóri samskiptasviðs Voda­ fone, segir af og frá að um samráð sé að ræða enda bítist fyrirtækin um hvern viðskiptavin. „Ég get sagt þér allt sem þú vilt vita um okkar undirbúning sem hef­ ur staðið í langan tíma, um sex til átta mánuði, og í þeirri vinnu höfum við mjög litið til Vodafone Group, sem er okkar alþjóðlegi samstarfsaðili og býður Vodafone RED á um 20 mörk­ uðum víða um heim,“ segir hann. Öllum ljóst í hvað stefndi Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir fyr­ irtækið í marga mánuði hafa undir­ búið sig til að geta boðið upp á pakka­ samning sem þennan. „Þessi þjónusta hefur verið að ryðja sér til rúms víða um heim. Hún lá í loftinu og við vorum tilbú­ in með útfærslu og kynningarefni en óákveðin með dagsetningu. Við töluðum að sjálfsögðu ekki við keppinautinn áður en við fórum í loft­ ið. Öllum mátti vera ljóst hvert stefndi þegar hann taldi opinberlega nið­ ur dagana í þjónustuna. Við þær að­ stæður var ekki eftir neinu að bíða,“ segir hún. Ódýrari iPhone Athygli vekur að þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem fyrirtækin kynna sams konar þjónustu en í lok nóvember síðastliðinn kynntu þau bæði samstarfssamninga við Apple­ tölvurisann og símaframleiðandann sem gerði þeim kleift að lækka verðið á símunum umtalsvert. Gunnhildur segir það eiga sínar skýringar. „Eins og þekkt er í dag þá hefur Apple samið við þrjú íslensk fjarskiptafyrirtæki, þar á meðal Sím­ ann, um viðskiptasamband. Apple ákvað hvenær Símanum var heimilt að kynna samninginn og selja vörur félagsins, það er 29. nóvember og 13. desember síðastliðinn. Apple stjórnar því við hvaða aðila félagið semur við og með hvaða hætti.“ Undir þetta tekur Hrannar og seg­ ir: „Leið Apple hefur í öllum löndum verið sú sama.“ Gagnamagnspakkar „Við leitum sífellt leiða til að bjóða viðskiptavinum okkar það nýjasta á markaði og vörur sem við teljum að henti þeim og þeir sækjast eftir. Gagnamagnspakkarnir eru gríðarleg búbót fyrir stórnotendur, sem geta sparað tugi þúsunda í þessari þjón­ ustuleið. Kjarninn í samkeppni er iðulega sá að fyrirtæki eru snögg að bregðast við nýjungum og breyting­ um á markaði. Sú staðreynd að fleiri en Síminn hafi fylgt snögglega í kjöl­ farið sýnir það og hve hörð og virk samkeppnin er á farsímamarkaði,“ segir Gunnhildur. Hjá öllum fyrirtækjunum er rukk­ að aukalega fyrir umframgagnamagn og símtöl í gjaldskyld númer. Fyrir stórnotendur Eldri áskriftarleiðir eru enn í gildi þar sem greitt er ákveðið mánaðargjald sem innfelur ákveðinn fjölda af sím­ tölum og sms ásamt ákveðnum fjölda númera sem hringt er í ókeypis. Neyt­ endur þurfa að skoða símanotkun sína vel því ekki er víst að nýju tilboð­ in séu betri en núverandi áskriftar­ leiðir þar sem nýju tilboðin miðast við að talað sé mikið í símann. Síma­ notkun breytist hratt með tilkomu internetsins og mikilvægt að skoða vel hvaða liðir það eru helst sem neyt­ endur notfæra sér og velja áskriftar­ leið eftir því. n Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is Svipuð tilboð Vodafone, Síminn, Tal og Nova bjóða öll upp á endalaust tal og sms. Mynd ShutterStocK Verðsamanburður Endalaust tal, sms og 500 mb. Fyrirtæki 500 mb n Nova 5.680 kr. n Tal 5.980 kr. n Síminn 5.990 kr. n Vodafone 5.990 kr. „Þessi þjónusta hefur verið að ryðja sér til rúms víða um heim. Apple hætti notkun eiturefna Þrýstihópar vilja að fyrirtækið tryggi öryggi verkafólks Þ rýstihóparnir China Labor Watch og Green America krefjast þess að Apple hætti notkun eiturefnanna bensens og n­hexan­leysiefna við framleiðslu fyrirtækisins. Þrýstihóparnir segja kínverskt verkafólk veikjast vegna óhindraðrar snertingar við eiturefnin sem sé að ástæðulausu þar sem önnur hættu­ minni efni geti komið í staðinn og kosti lítið meira. „Ásamt Green America krefju­ mst við þess að Apple axli ábyrgð og hætti notkun efna eins og n­hex­ an­leysiefnis og bensens, sem vit­ að er að getur valdið hvítblæði, og tryggi verkafólkinu þannig viðun­ andi vinnuskilyrði,“ segir Kevin Slat­ en hjá China Labor Watch í samtali við Guardian. N­hexan­leysiefnið er notað frekar en isopropanol eða annars lags leysiefni þar sem það gufar upp þrisvar sinnum hraðar en sambæri­ leg efni. En snerting við efnin getur valdið taugaskaða eða jafnvel lömun og hefur það verið tengt við nokkur eitrunartilfelli í iPhone­verksmiðj­ um í Kína. Talsmaður Apple segir fyrirtækið krefja alla birgja sína um viðunandi öryggisráðstafanir þegar unnið er með hættuleg efni og miðar við ör­ yggiskröfur vinnueftirlits Bandaríkj­ anna eða í sumum tilfellum strangari kröfur. Slaten segir Apple ekki eina fyr­ irtækið sem má gagnrýna í þessum efnum en segir sjónum beint að því þar sem gríðarlega stór hluti fram­ leiðslunnar fari fram í Kína. Talsmaður Apple segir fyrirtækið hafa verið leiðandi undanfarinn ára­ tug í því að minnka notkun hættu­ legra efna svo sem kvikasilfurs, hættulegra eldvarnarefna og PVC í framleiðslunni. „Á síðasta ári framkvæmdum við tæplega 200 úttektir á verksmiðjum þar sem við lögðum megináherslu á hættuleg efni til að ganga úr skugga um að aðstæðurnar uppfylltu ör­ yggisstaðla okkar. Við útvegum birgjunum einnig þjálfun í meðferð hættulegra efna,“ segir talsmaður Apple. n fifa@dv.is risi Apple gerir reglulega úttekt á aðstæðum verka- fólks. Mynd reuterS Ekki steikja ólífuolíu Ólífuolía er af mörgum talin bráð­ holl og svo þykir hún líka bragð­ góð. Hún er sérstaklega vinsæl í ítalskri matargerð og í hefðum við Mið­ jarðarhafið. Hún er þó ekki æskileg í alla mat­ reiðslu til að mynda er ekki æskilegt að steikja upp úr ólífu­ olíu, þar sem hún inniheldur bæði ein­ og fjölómett­ aðar fitusýrur sem eru við­ kvæmar fyrir hita. Það þýðir að olían brenn­ ur auðveldlega og oxast, sem er mjög heilsuspillandi. Einnig geta myndast í ólífuolíunni transfitu­ sýrur ef hún er hituð mikið. Það er kannski óhætt að nota hana við vægan hita og í ofnrétti, en til steikingar við mikinn hita er miklu betra að nota til dæmis bragð­ og lyktarlausa kókosfitu. Hvað er vín- steinslyftiduft? Mörgum fallast hendur þegar þeir fara að skoða heilsuupp­ skriftir og framandi matargerð þar sem innihaldsefnin eru oft mörg og óvenjuleg. Margar heilsuuppskriftir innihalda til dæmis vínsteinslyftiduft. En hvað er það? Það er lyftiduft sem saman stendur af vínsteini og matarsóda. Þessi blanda virkar vel sem lyfti efni. Oftast er vín­ steinslyftiduft glútenlaust og laust við ál. Þetta lyftiduft er fljót­ virkandi og því er best að láta deig aldrei bíða lengi áður en það er sett í ofninn. Yfirleitt þarf sama magn af vínsteinslyftidufti og öðru lyftidufti. Í öllum tilfell­ um er þó hægt að komast af með venjulegt lyftiduft. Fá ekki að endurskoða tolla Stjórn Neytendasamtakanna mótmælir því harðlega að sam­ tökunum hafi ekki verið gefinn kostur á að skipa fulltrúa í starfs­ hóp landbúnaðarráðherra sem á að endurskoða tollalöggjöf á sviði landbúnaðarmála. Stjórnin telur það jafnframt óvirðingu við Neytendasamtökin að ráð­ herra sjái ekki ástæðu til að svara ítrekuðum erindum samtakanna þar sem óskað var eftir að full­ trúi þeirra yrði skipaður í þennan mikilvæga starfshóp. Neytendasamtökin eru hags­ munasamtök íslenskra neytenda og það er því með öllu óskiljan­ legt að þau eigi ekki fulltrúa í starfshópi sem ætlað er að fjalla um svo mikilvægt hagsmunamál neytenda. Stjórn Neytendasamtakanna hvetur landbúnaðarráðherra til að gefa Neytendasamtökun­ um kost á að skipa fulltrúa sinn í þennan starfshóp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.