Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 36
Vikublað 8.–10. apríl 201436 Fólk Mickey Rooney látinn Leikferill sem spannaði yfir 80 ár L eikarinn Mickey Rooney er lát- inn, 93 ára að aldri. Rooney átti farsælan feril í Hollywood og starfaði við kvikmyndir allt frá barnæsku en hann lék í fyrstu kvik- mynd sinni aðeins sex ára gamall. Rooney var síðar ráðinn til MGM- kvikmyndaversins fjórtán ára. Leik- arinn var sannkölluð gullgæs kvik- myndaversins en á fjórða og fimmta áratugnum var hann á toppi ferils síns. Í heild lék hann í yfir 350 kvik- myndum og fjölda sjónvarpsþátta á ferlinum. Einkalíf Rooney var skrautlegt en hann kvæntist til að mynda átta sinnum yfir ævina. Rooney var eitt sinn spurður hvort hann myndi kvænast þeim konum aftur og svar- aði hann: „Tvímælalaust, ég elskaði þær allar.“ Ferli Rooneys var oft líkt við rússíbanaferð en frægðar- stjarna leikarans fölnaði og skein til skiptist í gegnum árin. Á sjöunda áratugnum var Rooney úrskurðað- ur gjaldþrota, en á þeim tíma fór stærstur hluti eigna hans í meðlags- greiðslur til fyrri eiginkvenna og í glæfralegan lífsstíl leikarans. Rooney hélt áfram að leika í kvik- myndum og sjónvarpsþáttum langt fram á níræðisaldur. Leikarinn lést á heimili sínu í norðurhluta Hollywood í faðmi vina og ættingja. n jonsteinar@dv.is Mickey Rooney Leikarinn átti langan og skrautlegan feril að baki. Á hátindinum Rooney og Judy Garland í myndinni Babes On Broadway frá árinu 1941. Wall Street- úlfur í vanda Jordan Belfort, svikahrappur- inn sem myndin The Wolf of Wall Street er byggð á, lenti ný- lega í klandri hjá skattyfirvöld- um í Bandaríkjunum. Aðeins tveimur vikum eftir frumsýningu myndarinnar lagði skattstof- an fram kröfu á tvö glæsihýsi í eigu Belforts. Belfort var á sínum tíma dæmdur til að greiða við- skiptavinum sínum til baka 110 milljónir dala og því vakti þetta athygli skattstofunnar. Vefritið TMZ, sem hefur gögnin undir höndum, greindi fyrst frá mál- inu. Það er því augljóst að Belfort hefur greinilega ekki slegið slöku við í íburðarmiklum lífsstíl sín- um eftir dóminn. Grínast með samband sitt Skötuhjúin Ashton Kutcher og Mila Kunis leika á móti hvort öðru í nýjasta þætti Two and a Half Men sem sýndur verður vestanhafs í vikunni. Þar gerir parið, sem á von á barni bráð- lega, grín að sambandi sínu. „Ég þori að veðja að þú farir bara út með fallegum leikkonum,“ segir persóna Kunis í þáttunum. „Guð, nei, ég myndi aldrei fara út með leikkonum, þær eru allar klikk- aðar,“ svarar Kutcher þá, en hann leikur hinn unga milljarðamær- ing Walden Schmidt í þáttunum. Lítur upp til stóru systur Jamie Lynn Spears, yngri syst- ir Britney, ætlar að feta í fótspor systur sinnar en hún gaf nýlega út sína fyrstu smáskífu, lagið How Could I Want More. „Lagið er mjög þýðingarmikið fyrir mig og ég var loksins nógu hugrökk til að gefa það út,“ sagði söng- konan í viðtali á dögunum. „Maður lítur alltaf upp til systur sinnar, það er gott að fá ráð hjá henni,“ sagði jamie Lynn en hún semur kántrítón- list á meðan að stóra systirin er í poppinu eins og flestir vita. Jón Steinar Sandholt jonsteinar@dv.is Tuttugu ár síðan Kurt Cobain kvaddi Markaði djúp spor í rokksöguna með framlagi sínu sem söngvari Nirvana Þ að var snemma morguns föstudaginn 8. apríl árið 1994 sem rafvirki, sem átti að setja upp öryggiskerfi í húsi einu, kom að manni látnum á heimili í Seattle. Á lík- inu lá haglabyssa og skammt frá lá kassi af skotum. Kassi með spraut- um og nálum fannst einnig við hlið hans. Sjálfsmorðsbréf lá ofan á litlu blómabeði, fest niður með kúlu- penna. „Ég hef ekki ástríðuna leng- ur, og munið, það er betra að brenna út en hverfa á brott,“ eru lokaorð bréfsins. Borin voru kennsl á lík- ið með skoðun fingrafara og var þá endanlega staðfest að þarna væri um að ræða Kurt Cobain, söngvari Nirvana. Cobains hafði verið saknað í sex daga þegar hann fannst og töldu réttarmeinafræðingar að hann hafi látist tæpum þrem dögum áður en hann fannst. Rannsókn leiddi í ljós mikið magn heróíns og val- íums í blóði söngvarans. Áður en hann hvarf hafði hann skráð sig inn á meðferðarstofnun í Los Angeles til að kljást við eiturlyfjavanda en skráði sig út eftir stutta dvöl. Cobain var 27 ára þegar hann stytti sér ald- ur. Eins og oft áður þegar frægir einstaklingar falla frá skutu upp kollinum ýmsar samsæriskenn- ingar. Eins og frægt er orðið eru ekki allir sammála þeirri útskýringu að Cobain hafi framið sjálfsmorð og telja margir að honum hafi verið ráðinn bani. Sem dæmi má nefna heimildamyndina Kurt and Court- ney sem kom út árið 1998. Þar var eiginkona Cobains, Courtney Love, bendluð við dauða hans. Nirvana er af mörgum talin ein áhrifamesta rokksveit seinni tíma og hafa plötur hljómsveitarinnar, sem eru þrjár talsins í fullri lengd, selst í rúmlega 75 milljónum eintaka. Vel- gengni Nirvana lagðist aldrei vel í Cobain. Hann átti rætur að rekja í pönk og honum fannst hann vera að svíkja það sem hann stóð fyrir áður. Til dæmist þoldi hann ekki hvernig Nevermind, vinsælasta plata sveit- arinnar, var framleidd: „Þegar ég horfi til baka á Nevermind, skamm- ast ég mín fyrir hana. Hún líkist meira Mötley Crue-plötu en pönki.“ En hvort sem fólk elskar Nirvana eða hatar, þá er það óumdeilan- legt að hljómsveitin setti mark sitt á rokksöguna. Í ár eru 25 ár liðin frá útgáfu frumraun sveitarinnar, Bleach. Af því tilefni verður bandið tekið inn í frægðarhöll rokksins. Hvort Cobain hefði uppveðrast vegna þess heiðurs skal látið liggja milli hluta. n „Ég hef ekki ástríðuna lengur, og munið, það er betra að brenna út en hverfa á brott, Kurt Cobain Söngvarinn kvaddi þennan heim fyrir tuttugu árum. Nirvana Cobain ásamt Krist Novoselic og Dave Grohl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.