Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Qupperneq 11
Vikublað 8.–10. apríl 2014 Fréttir 11
„Varla tilbúin fyrir þennan
ferðamannastraum“
Skógafoss
Hugmyndir um gjaldtöku á svæði
Rangárþings eystra ná til staða á
borð við Skógafoss. Mikil ásókn er
í fossinn en utan bílastæðis er ekki
mikil þjónusta í boði fyrir ferða-
fólk við fossinn. Bílastæðið er lagt
möl en ekki malbiki og stígarnir á
svæðinu og grassvæði við fossinn
lætur mikið á sjá seinni part sum-
ars. Stígur hefur verið lagður upp
með fram fossinum og þar efst er
útsýnispallur, en það hafa sveitar-
félögin sem eiga fossinn byggt upp
sameiginlega.
Ætla að bæta
nemendum tapið
T
uttugu þúsund framhalds-
skólanemendur mættu
aftur í skólann á mánudag
í reglubundna kennslu, eftir
þriggja vikna verkfall fram-
haldsskólakennara. Verkfallinu hef-
ur nú verið frestað tímabundið þar
til kennarar hafa kosið um kjara-
samninginn. Fari svo að hann verði
felldur í kosningu hefst verkfall að
nýju. Nú ferðast fulltrúar Kennara-
sambandsins um landið og kynna
samninginn félagsmönnum sínum
og líkur eru á því að kosning um
samninginn hefjist undir lok þessa
mánaðar.
Bæta nemendum vinnutap
Ljóst er að bæta þarf nemendum
upp vinnutap, en líkur eru á að þeir
fái að minnsta kosti sex daga bætta,
jafnvel örlítið fleiri. Til þess að ljúka
önninni þarf því í einhverjum til-
fellum að fresta prófatíma, kenna
á laugardögum og einhverjir skól-
ar munu fara seinna í páskafrí og
kenna í dymbilvikunni. Þetta er gert
til þess að hægt sé að ljúka námsefni
vetrarins, en nemendur voru hvatt-
ir til þess að halda sínu striki í nám-
inu þrátt fyrir verkfall. Líkur eru á að
brottfallstölur liggi ekki fyrir fyrr en
á haustönn, það er að segja hversu
margir nemendur ákváðu að hætta
námi vegna verkfallsins. Líklega
mun einhver hópur ekki klára önn-
ina, en freista þess frekar að innrit-
ast aftur í haust. Samkvæmt upplýs-
ingum DV munu skólarnir reyna að
koma til móts við nemendur eins
og hægt er, þá sérstaklega þá sem
stefna á útskrift í vor.
Miklar breytingar
Nýr kjarasamningur felur í sér tals-
verðar breytingar en meðal annars
er í honum áætlun um samningu
nýs vinnumats sem kynna á fyr-
ir kennurum og kosið um það í
febrúar á næsta ári. Samningurinn
felur það einnig með sér að endur-
meta á kennarastarfið og aðlaga það
og kjarasamninginn að breytingum
á námskrá framhaldsskólanna, sem
sett var 2008 en tekur gildi á næsta
ári. Síðast en ekki síst eiga að felast
í honum talsverðar kjarabætur á
launum kennara og stjórnenda.
Launahækkunin kveður á 2,8 pró-
senta hækkun á launum strax, önn-
ur tvö prósent í ágúst á þessu ári og
í janúar 2016 kemur önnur tveggja
prósenta hækkun. Skólaárið lengist
að auki, bæði varðandi kennslu-
daga og prófadaga en með öllum
breytingunum eru launahækkanir
metnar allt að sextán prósentum
á samningstímanum. Með öðrum
breytingum getur farið svo að
launin hækki í allt að 29 prósentum
á samningstímanum, en þá hefur
starfsumhverfi kennara breyst um-
talsvert. Líkt og fram hefur komið
kröfðust kennarar sautján prósenta
launaleiðréttingar þar sem þeir
töldu sig hafa dregist mjög langt
aftur úr viðmiðunarstéttum, auk
launahækkunar. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Kennarar fá umtalsverðar launahækkanir gegn breytingu á vinnu
Börðust Nemendur
sýndu kennurum stuðn-
ing í verki. Mynd Sigtryggur ari
Paradísarhellir
Hellirinn er í einkaeigu og til að komast að honum
þarf að leggja við fjárréttir, en engin sérstök aðkoma
er að hellinum. Mjög auðvelt er að komast að rétt-
unum, sem eru rétt við þjóðveg 1. Eigandi landsins
sem hellirinn er á segir að átroðningur ferðamanna
sé vandamál, þar sem þeir eyðileggi girðingar svo
eitthvað sé nefnt. Hann hefur ekki áform um að hefja
gjaldtöku við hellinn en segist styðja Landeigenda-
félag Geysis, og gæti sjálfur hugsað sér að taka gjald
fyrir þá sem vilja skoða Paradísarhelli. Honum hugn-
ast þó ekki hugmyndir um náttúrupassa, þar sem
hann segist ekki treysta því að staðið sé réttlátt að út-
deilingu úr sameiginlegum sjóðum.
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Tilboðið gildir til 25. apríl
Sorpkvarnir í eldhúsvaska
20% afsláttur