Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 12
Vikublað 8.–10. apríl 201412 Fréttir
K
ristín Egilsdóttir hefur
stefnt íslenska ríkinu út af
ráðningu Illuga Gunnars
sonar á Hrafnhildi Ástu
Þorvaldsdóttur í starf fram
kvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Stefnan var þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 6.
mars síðastliðinn. Í stefnunni í mál
inu kemur fram að stefnt sé á þeim
forsendum að ráðning Hrafnhildar
Ástu hafi verið meint ólögmæt
stjórnvaldsákvörðun. Í málinu gerir
Kristín þá kröfu að íslenska ríkið
greiði henni rúmlega ellefu milljónir
króna vegna fjártjóns sem hún telur
sig hafa orðið fyrir auk tveggja millj
óna króna miskabóta. Þá er gerð
krafa um greiðslu málskostnaðar.
DV hefur fjallað um ráðninguna
á Hrafnhildi Ástu, sem var starfs
maður umhverfisráðuneytisins
áður en hún varð framkvæmdastjóri
LÍN, síðustu vikurnar og hefur ýmis
legt komið fram sem segja má að
bendi til að ráðningin á henni til
LÍN hafi verið sérstök. Hrafnhildur
Ásta var ekki metin hæfust af stjórn
LÍN heldur Kristín Egilsdóttir, og
Sigurður Ingi Jóhannsson um
hverfisráðherra afturkallaði áminn
ingu sem Hrafnhildur Ásta hafði
fengið í starfi skömmu áður en Illugi
Gunnarsson réð hana í starfið. Til
að ráða Hrafnhildi Ástu þurfti því
að yfir stíga þessar tvær hindranir.
Hvorug þessara hindrana kom í veg
fyrir að Hrafnhildur fengi starfið og
ekki heldur þessar tvær hindranir
teknar saman.
Hrafnhildur Ásta er náfrænka
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi for
sætisráðherra og ritstjóra Morgun
blaðsins, en Illugi var aðstoðar
maður hans um árabil áður en hann
fór sjálfur út í stjórnmál.
„Skoraði hæst“
Í stefnu Kristínar í málinu kemur
fram að hún hafi „skorað hæst“
umsækjendanna í viðtalsmati sem
stjórn LÍN og Hagvangur, ráðgjafa
fyrirtækið sem sá um ráðningarferl
ið, gerðu. Svo segir: „Þegar stefnandi
er borin saman við HÁÞ [Hrafnhildi
Ástu Þorvaldsdóttur] sést að hún
kom betur út úr öllum þeim þátt
um sem lagðir voru til grundvallar
í auglýsingu um starfið og hæfnis
flokkun sem lýst er í tillögu stjórn
arinnar að undanskilinni kunnáttu í
einu Norður landamáli sem talin var
æskilegur eiginleiki.“
Í tillögu stjórnarinnar til Illuga
Gunnarssonar sagði orðrétt að:
„… þrír hafi þá menntun og starfs
reynslu til að gegna starfi fram
kvæmdastjóra LÍN og hafi stað
ið öðrum framar. Miðað við viðtöl
og þau verkefni sem fyrir voru lögð
þótti Kristín Egilsdóttir standa
framar hinum tveimur.“
Í stefnunni er vísað til umsagna
um umsækjendur þar sem fram
koma frekari skýringar á afstöðu
stjórnar LÍN í málinu og segir meðal
annars að Hrafnhildur Ásta hafi
ekki náð að „leysa fyrirlagt verk
efni á sviði fjármála og rekstrar
eins og væntingar voru um miðað
við reynslu hennar sem skrifstofu
stjóra á því sviði“. Þá segir einnig
að framtíðarsýn Hrafnhildar Ástu
hefði mátt vera „skýrari“ og að hana
hefði skort „þekkingu“ á sviði „fjár
hagslegrar áhættu“ og reynslu af því
að stýra stórum vinnustað.
Gagnrýni stjórnar LÍN á stefn
andann í málinu gekk hins vegar
út á það að hana hefði aðeins skort
„skilning á fjárlagaferlinu“ auk þess
sem hún hefði ekki áður stýrt eins
stórum vinnustað og Lánasjóði ís
lenskra námsmanna.
Samskipti um áminningu
Í stefnunni er svo vakin athygli á því
að Hagvangur hafi spurt Hrafnhildi
Ástu út í áminninguna sem hún fékk
í starfi með bréfi dagsettu þann 4.
október 2013. Meðal þess sem spurt
var um var hvort ekki hefði verið rétt
af Hrafnhildi Ástu að greina frá því í
ráðningarferlinu að hún hefði feng
ið áminninguna auk þess sem farið
var fram á að hún greindi frá sjónar
miðum sínum um þessa áminningu.
Þetta gerði Hrafnhildur Ásta í
bréfi þann 10. október en þar kom
meðal annars fram að áminningin
hefði ekki átt rétt á sér og að Sigurður
Ingi Jóhannsson ætlaði sér að draga
hana til baka. Athygi vekur að þann
10. október var ekki búið að draga
áminninguna til baka. Svo virðist
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Miðað við viðtöl
og þau verkefni
sem fyrir voru lögð þótti
Kristín Egilsdóttir standa
framar hinum tveimur.
Fer í mál við ríkið
n Vill þrettán milljónir út af ráðningu Hrafnhildar Ástu n Þriðja deilumálið vegna ráðninga ættmenna Davíðs Oddssonar