Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Qupperneq 16
Vikublað 8.–10. apríl 201416 Fréttir Erlent
Rándýr barátta
gegn spillingu
n Moldríkir Kínverjar óttast spillingarstimpil og halda að sér höndum
S
pilling hefur verið út
breitt vandamál í Kína,
fjölmennasta ríki heims,
undanfarin misseri. Ekki
alls fyrir löngu ákváðu kín
versk yfirvöld að skera upp her
ör gegn spillingu og má fullyrða
að talsverður árangur hafi náðst
í þeirri baráttu. En fórnarkostn
aðurinn er talsverður eins og
niðurstöður nýrrar skýrslu Bank
of America Merril Lynch bera
með sér; þannig er talið að bar
áttan muni kosta kínverska hag
kerfið allt að hundrað milljörðum
Bandaríkjadala á þessu ári.
Hræddir við stimpil
Ástæðan fyrir þessum áhrifum á
hagkerfið er meðal annars sú að
þeir sem eiga peninga kjósa frekar
að halda að sér höndum en vekja
grunsemdir vegna stórra fjár
festinga. Þeir eru smeykir um að fá
á sig spillingarstimpil. Breska rík
isútvarpið, BBC, greindi frá þessu
fyrir helgi.
Í umfjöllun BBC kemur fram
að þetta sjáist í ýmsum hagtölum.
Þannig hefur sala á ýmsum lúxus
varningi minnkað síðan kínversk
yfirvöld hófu átakið. Má þar nefna
lúxusbíla og merkjafatnað. Inni
stæður í kínverskum ríkisbönkum
hafa til marks um þetta aukist mik
ið, eða um 30 prósent á undan
förnum tólf mánuðum. Er nú svo
komið, samkvæmt BBC, að jafnvel
strangheiðarlegir opinberir starfs
menn eru hræddir við að fjárfesta
af ótta við að einhver stimpli þá
spillta. Kjósa þeir frekar að halda
peningum inni í bönkum en fjár
festa.
Hagvöxtur minnkar
Talið er að hagvöxtur muni
minnka í Kína á þessu ári af þess
um sökum, um 0,6 prósent. Svört
ustu spár gera ráð fyrir að hag
vöxtur muni minnka um allt að 1,5
prósentum. Í skýrslunni er tekið
fram að aðeins um áætlanir sé að
ræða, þannig geti vel farið svo að
samdrátturinn verði minni. Hvað
sem því líður sé ljóst að kostnað
urinn sé umtalsverður.
Ótrúlegar fjárhæðir
Það var Xi Jinping, sem tók við
embætti forseta Kína í fyrra, sem er
drifkrafturinn á bak við þessa bar
áttu. Telur hann að spilling standi
framförum í Kína fyrir þrifum og
ógni jafnvel kínverska Kommún
istaflokknum.
Í síðustu viku var greint frá því
að kínversk yfirvöld hefðu lagt
hald á eignir Zhou Yongkang,
fyrrverandi hátt setts aðila inn
an Kommúnistaflokksins. Ekki
var um neinar smá eignir að ræða,
en þær eru metnar á 14 milljarða
Bandaríkjadala. Þykir þetta vera
til marks um umfang og alvarleika
spillingar sem grasserað hefur í
Kína um langt skeið.
Of mikil barátta rústar flokknum
Sitt sýnist hverjum um þessa hörðu
baráttu gegn spillingu enda ljóst að
hún hefur sína kosti og galla. Í síð
ustu viku var greint frá því að Ji
ang Zemin, fyrrverandi forseti Kína,
hefði látið að sér kveða og sent þau
skilaboð til forystunnar að láta að
gerðirnar ekki fara úr böndun
um. Evan Osnos, blaðamaður New
Yorker, hafði athyglisverð ummæli
eftir Chen Yun, valdamanni í
Kommúnistaflokknum. „Ekki berjast
gegn spillingu og þú rústar landinu;
berstu af of miklum krafti gegn spill
ingu og þú rústar flokknum.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Lúxusbíll Baráttan
gegn spillingunni á
sér ýmsar birtingar-
myndir. Þannig hefur
sala á lúxusbílum
tekið snarpa dýfu.
Gegn spillingu Xi Jinping, forseti Kína,
hefur lagt á það ríka áherslu að uppræta
spillingu.
„Ekki berjast gegn
spillingu og þú
rústar landinu; berstu af
of miklum krafti gegn
spillingu og þú rústar
flokknum.
Fær oft martröð
Oscar Pistorius notar þunglyndislyf og á erfitt með svefn
O
scar Pistorius, suðurafríski
spretthlauparinn sem ákærð
ur hefur verið fyrir að myrða
unnustu sína, Reevu Steen
kamp, fær martraðir. Þá notar hann
þunglyndislyf og svefnlyf að staðaldri.
Þetta sagði Oscar þegar réttarhöld
yfir honum héldu áfram í Pretóríu í
SuðurAfríku á mánudag. Pistorius er
ákærður fyrir að skjóta Reevu til bana
þann 14. febrúar í fyrra.
Réttarhöldin hafa staðið yfir í um
það bil mánuð og hefur fjöldi vitna
verið kallaður fyrir dóminn. Á mánu
dag var komið að Oscari sjálfum þar
sem hann lýsti því meðal annars hvað
átti sér stað þessa örlagaríku nótt.
„Það hefur ekki komið augna
blik þar sem ég hef ekki hugsað um
þennan harmleik. Ég var einfaldlega
að reyna að verja Reevu og ég get
lofað ykkur því að hún fann fyrir ást
og hlýju þegar hún lagðist til svefns
þessa nótt,“ sagði Oscar. Sem kunn
ugt er var Reeva, sem var hollensk
fyrirsæta, skotin til bana í gegnum
baðherbergishurð á heimili þeirra
í SuðurAfríku. Oscar segist sjálf
ur hafa talið að innbrotsþjófur væri
í húsinu og þess vegna hafi hann
hleypt af skotum úr byssu sinni. Eins
og áður segir lýsti Oscar því að hann
fyndi blóðlykt og vaknaði oft með
martraðir. Sagðist hann stundum
óska þess að hann þyrfti ekki að sofa
vegna þessa. n
einar@dv.is
Dauðadæmd
fyrir guðlast
Dómstóll í Pakistan hefur
dæmt kristið par þar í landi til
dauða fyrir guðlast. Parið var
sakfellt fyrir að fara niðrandi
orðum um Múhameð spámann
í smáskilaboðum. Sendu þau
skilaboðin til múslimaleið
toga í mosku í bænum Gojra í
Punjabhéraði. Breska ríkis
útvarpið greindi frá þessu og
hafði eftir lögmanni parsins að
dómnum yrði áfrýjað. Hvort
sem sú áfrýjun skilar árangri
eða ekki þykir ólíklegt að parið
verði tekið af lífi þrátt fyrir
dóminn. Fullnustu slíkra refs
inga er jafnan frestað fram í hið
óendanlega eða þeim breytt í
lífstíðarfangelsi.
Festist
í holræsi
Sextán ára stúlka komst í hann
krappan á dögunum þegar hún
missti símann sinn ofan í hol
ræsi í bænum Dover á England.
Stúlkan, Ella Birchenough, sá
sig knúna til að freista þess að
ná símanum og ákvað hún því
að fara ofan í holræsið. Eins og
meðfylgjandi mynd ber með
sér fór það ekki eins og hún
ætlaði, en hún komst ekki upp
um opið, en sat þar pikkföst.
Slökkviliðsmenn voru kallaðir
út til að aðstoða stúlkuna og
tókst þeim að ná henni lausri
eftir nokkuð vesen. Engum sög
um fer af símanum, að því er
breskir fjölmiðlar greina frá.
Neitar sök Rétt-
arhöldin standa yfir í
Pretóríu í Suður-Afríku.
Oscar hefur staðfastlega
neitað því að hafa orðið
Reevu að bana að yfir-
lögðu ráði. MyNd REutERS
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.